200 metrar í næsta Range Rover.
Ég hef nú verið á skerinu í tæpa viku eftir árs dvöl í Svíþjóð. Margt hefur breyst á þessum tíma. Nýjar byggingar, nýjar götur og heilu hverfin hafa risið upp. Ég var t.d í matarboði í gær á Löngulínu 10. Flott hverfi í Garðabæ. Aldrei er meira en 200 metrar í næsta Range Rover. Ég sé ekki þessa kreppu sem alltaf er í fréttum. Allir vinir mínir eru í vinnu að mér skilst og vélin gengur hikstalaust. Kreppan er sennilega í efstu lögunum. Ósýnileg og óáþreyfanleg.
Mér datt svolítið í hug komandi frá hinni skipulögðu Svíþjóð. Þar er umferðarmenning betri og enginn leggur í stæði nema að borga fyrir það. Engum Svía dettur í hug að leggja upp á gangstétt eða gegn aksturstefnu. Það er ekki vegna þess að þeir eru siðferðislega fremri Íslendingum heldur eru viðurlög við slíku skarpari en á Íslandi. Lágmarkssekt við því að leggja ólöglega í stæði er 500 skr. (um 8000 kall) og stöðumælaverðir eru óvenju vökulir. Ég legg því til við yfirvöld að hækka viðurlög við umferðarlagabrotum tífallt. Bæta einu núlli við. Með því móti græðist tvennt. Umferðarmenning batnar og tekjustofn myndast tímabundið (meðan að fólk er að fatta nýja kerfið). Peningana er síðan hægt að nota til að greiða fleiri stöðumælavörum laun sem ella myndu vera á bótum. Í sumum götum í Reykjavík leggja menn tvist og bast gegn akstursstefnu, á ská, upp á gangstéttum og algerlega upp við gangbrautir. Þetta er bara djók hvernig fólk leggur birfreiðum sínum. Svo ætti að tengja viðurlög við hraðakstri við skattskýrlsu síðasta árs. Miða ætti sektir við hlutfall af mánaðartekjum. Sama ætti að gilda um ölvunarakstur nema viðurlög harðari.
Flokkar: Samfélagsmál


10 Comments:
Það er gott að refsa fólki. Helst mikið og taka vel í lurginn á sóðum og bílstjórum. Fólk bara á ekki að brjóta reglur þó þær séu óréttlátar eða beinlínis vitlausar.
Hærri skatta, fleiri sektir og stærri fangelsi!
By
Björn bóndi, At
5. júní 2009 10:27
Innilega sammála þér Teitur. Hér vaða menn um eins og skepnur vegna þess að það er enginn sem stoppar þá af.
Tók einmitt eftir þessu við vetursetu í Gautaborg, að þar lagði enginn ólöglega. Það er mikil harka þarna gagnvart bílum - þarf meira að segja að borga í bílastæði yfir nóttina í miðbænum ef ég man rétt. Meira að segja sektað fyrir að leggja við gangstéttarbrún sem á að hreinsa morguninn eftir. En það þekkja allir reglurnar (og viðurlögin) og haga sér eftir því.
Hérlendis ríkir linkindin ein, enda finnst manni umferðin hvergi eins hættuleg í veröldinni eins og hér, eftir að hafa verið að keyra erlendis bæði austan hafs og vestan.
By
Nafnlaus, At
5. júní 2009 10:31
'Eg er hjólakarl og blöskrar hvernig gangstéttir eru notaðar sem bílastæði .Stöðumæla verðir eru mjög árvökulir í 101 ,þurfti að fara á námskeið að Hallveigarstöðum bílandi og að finna stæði og var mættur kl 17 40 og vantaði mig skiptimint í gjaldmælinn.Skipti engum togum að það var kominn sektarmiði þegar námskeiðið var búið.Gæslan í 101 er mjög góð en brotalömin eru úthverfin menn leggja þar tvist og bast.Hörður
By
Nafnlaus, At
5. júní 2009 10:58
Já það er nú fínt að þínir vinir eru í vinnu og svona. Þessi 15þ manns sem hafa misst vinnuna eiga hins vegar líka vini. Ég var að vinna í fyrirtæki sem hafði 150 starfsmenn fyrir hrun, er núna með 50. Ég er kominn með starf að nýju en fæstir hinna.
Nágrannar mínir eru ýmist orðnir atvinnulausir eða í íhlaupavinnu. Þetta er ágætasta úthverfi í Kópavogi, ekki eitt af þeim nýjustu.
Kreppan er á lífi, mörg heimili eru á síðustu blóðdropunum.
By
Nafnlaus, At
5. júní 2009 11:19
Líst vel á að hækka sektir fyrir að leggja bílum ólöglega. Sektin mætti vera minnst 5.000 kr.
Og ef einhver fer að væla út af þessu, þá má benda viðkomandi á að þetta er einn af fáum opinberum gjöldum sem menn geta stjórnað sjálfir, þ.e. komist hjá að borga og það löglega.
Menn leggja bara einfaldlega löglega og þar með losna þeir við sektina.
Með svona háum sektum vinnst tvennt:
1. Koma má í veg fyrir að ökumenn leggi bílum sínum ólöglega og skapi þar með vissa hættu.
2. Sektir skapa tekjur sem hægt er að nota til að skapa atvinnu, t.d. fyrir stöðuverði eða við gatnagerð.
By
Nafnlaus, At
5. júní 2009 11:21
Ég hef óþægilega á tilfinningunni að lögreglunni sé skítsama um bíla sem leggja upp á gangstéttir, oft svo yfirgengilega að fólk þarf út á götu til að komast leiðar sinnar.
Þrisvar sinnum hefur mér blöskrað frekjan svo mikið að ég hef hringt í lögregluna í Reykjavík til að kvarta. Þar hafa undirtektirnar vægast sagt verið litlar - ég gæti allt eins verið að kvarta undan veðrinu. Þeir sem svara hafa bara sagt að þetta verði athugað. Hvað þýðir það? Hvers vegna segja þeir ekki bra að þeir ætli að taka á málinu?
By
Nafnlaus, At
5. júní 2009 12:17
vertu í Svíðjóð ekki vera að færa einhverjar skítahugmyndir á okkar þjóðfélag. Einkum þar sem þú býrð ekki hér og ert bara túristi
By
Nafnlaus, At
5. júní 2009 12:29
Teitur minn, nú ertu aðeins að færa í stílinn. Ég þekki mikið af þínum vinum og veit um allnokkra úr þeim hópi sem misst hafa vinnuna. 17 þúsund manns eru án atvinnu og jafnvinamargur maður og þú hlýtur að þekkja einhver þeirra dæma. Varðandi Game Over-ana sem þú sér á hverju götuhorni, þá voru þeir keyptir í bullæðinu fyrir hrun og eru mikil byrgði á eigendum sínum í dag. Það myndi engin heilvita maður fjárfesta í slíkri vitleysu í dag. Eigðu góðan dag.
By
Nafnlaus, At
5. júní 2009 13:07
Já það er rétt. Nokkrir vina minna eru án atvinnu. Nánasti vinahópurinn hefur þó sloppið samilega undan hruninu að mér skilst. Enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér.
Nettur drungi niður á Hressó en fínn borgari. - Léleg þjónusta. Nú smelli ég mér niður á Fréttablað.
-Hugmynd af dúndri.
By
Teitur Atlason, At
5. júní 2009 13:37
Til nafnlauss kl. 12.17
Hefur þú prófað þegar þú tilkynnir lögreglunni um bíla sem er illa lagt, að segja þeim að þú hafir grun um að viðkomandi ökumaður hljóti að vera ölvaður miðað við hversu illa bíl hans sé lagt.
Þetta klikkar ekki. Um leið og þeir fá tilkynningu um ölvunarakstur, koma þeir um leið.
Að taka einhvern fyrir ölvun við akstur er nefnilega eitt það skemmtilegasta verkefni sem lögreglan getur fengið.
Prófaðu þetta.
By
Nafnlaus, At
5. júní 2009 13:58
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim