Bullið er búið.
Það var frétt í útvarpinu fyrir rúmri viku sem vakti athygli mína. Frétt þess efnis að ríkisstjórnin sé að skera massíft niður á sviðum sem áður voru einskonar heilagar kýr ríkis-yfirstéttarinnar. Þarna er ég að tala um sértakar greiðslur fyrir nefndarsetur ofan á mánaðarkaupið osfr. Draga á úr ferðakostnað ríkisins um 30%
Það sem mér þykir mest um eru fréttir um að handhafar forsetavalds (forsetisráðherra, forseti hæstaréttar og forseti Alþingis) fá ekki lengur laun (ofan á mánaðarlaunin sín) fyrir það að vera til þegar Ólafur Ragnar fer til útlanda. Sparnaður ríkisins fyrir þessa einföldu aðgerð mun nema 2.5 til 3 miljónum á ári.
Þó að þessi sparnaður sé ekkert sérlega mikill í krónum talið þá má samt ráða einhvern atvinnualausan í eitthvað verðmætaskapandi fyrir þennan pening. Fyrst og fremst er þessi spanaður táknrænn. Jóhanna er beinlínis að segja við ríkiselítuna: -Bullið er búið.
Það er gott og löngu tímabært.

Flokkar: Stjórnmál

2 Comments:
Því miður Teitur þá er þetta bara kattarþvottur. Elítan berst um á hæl og hnakka við að verja fenginn. Embættismenn reyna að fara á svig við skipanir, ráðið er fullt af ættingjum í sumarstörf og jafnvel varanleg embætti, ferðalög eru síst minni, og í raun má segja að kerfið allt vinni af hörku gegn sitjandi stjórnvöldum.
Það er að verða nokkuð ljóst af hverju Jóhanna og kó halda öllum málum þétt að bringunni (sem margir nefna leyndarhjúp. Ástæðan er sú að öllu er lekið, snúið útúr, og skrumskælt.
Elítan virkilega trúir því að með andófi og skemmdarverkum þá verði allt í góðu lagi, bara ef hægt er að viðhalda hálfgerðu stjórnleysi.
Fólk skilur ekki að ríkið er á hausnum og lántökur frá nágrannaþjóðum eru einungis frestun á stóra skellinum.
Ríkið er of stórt, eyðir of miklu, hefur of marga starfsmenn og fer illa með fé.
Einn góðan veðurdag mun launatékki elítunnar ekki berast, kassin verður tómur.
By
Nafnlaus, At
29. júní 2009 13:19
hvað er eiginlega vandamálið með þig Teitur? Jóhanna er ömurlegur forsætisráðherra og reynir að láta sem allt sé í fínu standi þegar allt er á heljarþröm. Stanslaus fólksflótti innbrotafaraldur fátækt og auðmýking þúsunda. Svo blaðrar þú eins og asni og veist ekki neitt.
By
Nafnlaus, At
29. júní 2009 16:14
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim