EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

þriðjudagur, 9. júní 2009

Þegar Sigmundur fór á dularfullan fund.

Nokkrum dögum eftir að Sigmundur Davíð var kosinn formaður Framsóknarflokksins var hann skyndilega boðaður á fund á Hótel Nordica. Sigmundur vissi ekki hverjir stóðu á baki fundnum en mætti að áeggjan reyndra innanbúðarmanna í Framsókn.

Þegar Sigmundi var vísað á fundarherbergið blasti við stórt U-laga bort sem var þéttsetið af 60 einstaklingum. Þeir mændu allir á hinn nýja formann uns einn þeirra sagðist ekki nenna smjaðri og snúa sér beint að efninu.

"Hvað getur þú gert fyrir okkur?"

Þetta var sem sagt fyrsta og eina spurningin sem LÍÚ lagði fyrir formann Framsóknarflokksins.

-o-o-o-

LÍÚ eru þjóðskaðleg glæpasamtök sem sett hafa landið á hausinn með fávitahætti og hundingsskap. Rændu auðlyndum þjóðarinnar og seldu til þýskra banka. Arðurinn af hinni sameiginlegu auðlynd þjóðarinnar fer ekki til Íslands heldur til Þýskalands. Þessvegna styrkist ekki gengið. Þessvegna er fólk að berjast í bökkum. Það sorglega við þessa stöðu er að bankarnir í raunninni prönguðu þessum skuldum inn á útgerðina með gylliboðum knúnum áfram af bónusgreiðslum lánaprangaranna. Lánaprangararnir fengu svo prósentu af hverjum díl sem nam tugum miljóna. Laun þessara lánaprangara voru stjarnfræðileg.

Fróðlegt er að fylgjast með varnarbaráttu útgerðarinnar. Öllu er tjaldað til og heill fjölmiðill keyptur í þessum tilgangi. Tugir blaðamanna og urmull þungavigtarmanna í samfélaginu eru á launum frá LÍÚ við það að viðhalda kvótakerfinu óbreyttu.

Þetta er lokaorrusta. Þetta er Stalingrad.

Flokkar: ,

7 Comments:

  • já sæll... þetta kallar maður töff afneitun... LÍÚ er einmitt stóra málið i dag...

    By Anonymous Nafnlaus, At 9. júní 2009 10:43  

  • Góð saga. Mafíusvipmótið er augljóst. Er þetta satt?

    By Blogger Illugi, At 9. júní 2009 10:50  

  • Ógeðslega flottur pistill.

    By Anonymous Nafnlaus, At 9. júní 2009 10:50  

  • Þetta er uppspuni en hafa skal það sem betur hljómar.

    By Anonymous Nafnlaus, At 9. júní 2009 14:37  

  • Fundurinn sem þú nefnir var fundur stjórnar og varastjórnar LÍÚ. Á hann var m.a. boðið forvígismönnum stjórnmálaflokkanna til þess að ræða stefnu flokka sinna í sjávarútvegsmálum fyrir ksomingarnar. Er það eitthvað dularfullt?

    By Anonymous Nafnlaus, At 9. júní 2009 14:38  

  • Þessi ummæli: "LÍÚ eru þjóðskaðleg glæpasamtök sem sett hafa landið á hausinn með fávitahætti og hundingsskap. Rændu auðlyndum þjóðarinnar og seldu til þýskra banka..." yrðu sennilega dæmd dauð og ómerk fyrir dómstólum en verra þykir mér að þriggja barna faðir með menntun í guð- og trúarbragðafræðum láti svona frá sér fara.

    By Anonymous Nafnlaus, At 9. júní 2009 20:36  

  • Af hverju er það e-ð aðalatriði í málinu að Teitur er guðfræðingur?
    Ég sé ekki hvers vegna helgislepjan þarf að leka af honum þó að hún drjúpi af fyrrum skólabræðrum hans og systrum

    Pétur Maack

    By Anonymous Nafnlaus, At 9. júní 2009 21:12  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim