Eimreiðin styður ICESAVE samningana.
Eftir töluverða yfirlegu hefur ritstjórn Eimreiðarinnar náð lendingu í erfiðasta máli Íslandssögunna. Það gekk á ýmsu og ritstjórn viðurkennir fúslega að hurðum var skellt og fúkyrðaflaumur streymdi frá báðum sjónarhornum líkt og daunillt jökulhlaup úr Vatnajökli mætti öðru ekki síður fúlla út Mýrdalsjökli. Fúlasti jökulárhryggur míns hrunda huga blasti við hvarvetna sem ég leit. Dimmur, sótugur, daunillur og brennisteinsmettaður. Sigurjón Rist hvergi sjáanlegur.
Ég náði lendingu, sem betur fer, því ástandi var orðið óbærilegt. Ég styð þessi samningsdrög um ICESAVE og vona að þau verði samþykkt á Alþingi. Mörður Árnason tæklar þetta mál af skynsemi og með einfaldri afleiðslu. það eru exit í þessum samningi sem hægt er að grípa til ef hlutirnir þróist á versta veg. Ég hvet fólk til að kynna sér þennan samning í þaula. það er hægt hér. Ég er sannfærður að ef að ríkisstjórnin hefði kynnt þetta mál fyrir almenningi en ekki pukrast með þetta eins og mannsmorð, væri ekki þessi klofningur "með eða á móti" í samfélaginu. Þetta er eitthvað það versta PR-fúsk sem ég hef orðið vitni af og hausar hljóta að fjúka í ráðuneytunum ef að eitthvað er í þau spunnið.
Það eru mikilvæg atriði sem hjálpuðu mér að ná lendingu í þessu ömurlega máli.
-......Og hann mun sleppa eins og allir hinir skúrkarnir.
Nú líður að atkvæðagreiðslu um þetta fúla, ömrulega mál og ég vona að þessir samningar verði samþykktir. Þeir eru að mér skilst, bara góðir fyrir okkur Íslendinga. Lýðskrumarar í Framsóknarflokki og Borgarahreyfingu fá skammarverðlaun Eimreiðarinnar fyir aðkomu sína að þessu máli því upphrópanir og heimsendaspár eru ekki það sem við þurfum akkúrat núna. Birgitta í batikmussunni er sennilega orðin háð mótmælum. Það er sorglegt. Vitið fer nefnilega oft út þegar hnefinn fer á loft. Hún ætti frekar að vinna vinnuna sína fremur en að vera alltaf að mótmæla hinu og þessu. Hvað varðar Framsóknar-Sigmund þá frétti ég af honum í herraverslun Andrésar þar sem hann var að máta kápu og tuðaði stöðugt fyrir munnis sér að "loftsteinn væri á leiðinni". - Gott að vita af því Sigmundur.
Hinir sönnu töffarar nú um stundir eu ekki tréskæddir leppalúðar í batikmussum, brælandi daunillt tóbak, heldur lúsiðnir skrifstofutillar. Fólk sem þarf ekki að athygli samborgara sinna heldur vinnur vinnuna sína af alúð og þrótti. -Fyrir Ísland
Já... Fyrir Ísland.
Ég náði lendingu, sem betur fer, því ástandi var orðið óbærilegt. Ég styð þessi samningsdrög um ICESAVE og vona að þau verði samþykkt á Alþingi. Mörður Árnason tæklar þetta mál af skynsemi og með einfaldri afleiðslu. það eru exit í þessum samningi sem hægt er að grípa til ef hlutirnir þróist á versta veg. Ég hvet fólk til að kynna sér þennan samning í þaula. það er hægt hér. Ég er sannfærður að ef að ríkisstjórnin hefði kynnt þetta mál fyrir almenningi en ekki pukrast með þetta eins og mannsmorð, væri ekki þessi klofningur "með eða á móti" í samfélaginu. Þetta er eitthvað það versta PR-fúsk sem ég hef orðið vitni af og hausar hljóta að fjúka í ráðuneytunum ef að eitthvað er í þau spunnið.
Það eru mikilvæg atriði sem hjálpuðu mér að ná lendingu í þessu ömurlega máli.
- Íslendingar skrifuðu sannarlega undir EES samninga sem kveða á um lágmarks-tryggingu á bankareikningum (20.000 evrur) ef að banki færri á hausinn. Þetta er óumdeilt. Allar vangaveltur um annað eru í mótsögn við lögfræðiálit allra ríkja Evrópu -Og Noregs!
- Ef að við segjum bara eins og margur vill, "Fokk jú fokking Júróp", þá er allt komið á flot. Allir samningar í lausu lofti, öll viðskipti, allt sem hugsast getur. -Við færum aftur á steinöld. Pínu heillandi sem eitthvað sósíalexperiment en við erum að tala um landið okkar, Ömmu okkar og afa. Mömmur og pabba. Jú og auðvitað börnin okkar margumtöluð.
- Höfum hugfast að 300.000 manns áttu fé inn á ICESAVE reikningum þegar Landsbankinn féll. Í Hollandi voru þessir reikningar opnaðir með pompi og prakt en lokuðu 4 mánuðum seinna á -einni sekúndu. Hvað myndu Íslendingar segja ef að hollensk svikamylla færi svona að á Íslandi? Myndum við ekki trompast út í Hollensk stjórnvöld? Myndum við ekki fara á límingunum ef að hollensk stjórnvöld segðu að þetta komi hollenskum stjórnvöldum ekkert við (þrátt fyrir að hafa skrifað upp á reglur sem kveða á um hið gagnstæða). Hvernig getur fólk ekki sett sig í spor Hollendinga og Breta? Erum við svo andskoti merkileg að finna ekki til með öðrum?
- Höfum einnig hugfast að við borgum "bara" lágmarkstrygginguna (20.000 evrur) en ekki alla summuna. Bretar og Hollendingar borga það sem vantar uppá. Risa-inneignaraðilar eins og líknarfélög og þ.h töpuðu öllum innistæðunum sínum. Þessar 20.000 evrur frá Íslandi eru sem dropi í hafið miðað við heildarskaða sumra reikningseigenda.
- Auðvitað skulum við lika vona að eignir Landsbankans muni ná upp í þessa óhræsis-skuld og munum að ef allt þróast á versta veg, þá eru exit í þessum saminingi sem hægt er að grípa til. Fróður og sannspár peningamaður sem ég þekki (tapaði ekki krónu á hruninu og sá það fyrir með 6 mánaða fyrirvara) segir mér að eignir LB muni sennilega duga. Margt getur gerst á 7 árum og uppsveiflan er jú óhjákvæmileg hvenær sem hún svo streymir undir mígleka þjóðarskútuna.
- Auðvitað er alltaf hægt að segja sem svo "við hefðum getað náð betri díl" en svona pælingum er alltaf hægt að slengja fram. Sumir (fyrrrverandi) bankamenn sem ég þekki hnusa í vandlætingartóni um að samninganefnd Íslands séu eintómir "pappakassar" en að mínu viti mun samninganefndin vera skipuð topp-fólki. Aðkoma Svavars Gestssonar gæti truflað einhvern en eftir að hann kom að borðinu munu hlutirnir hafa losnað úr hjólförunum og náð lendingu. Því ber að fagna með stuttum gleði-dansi. Hinir raunverulegu "pappakassar" eru þeir sem settu bankana á hausinn (á 4 árum...) og í hroka sínum og vandlætingu segja að engir aðrir en þeir, kunni samningatækni við útlendinga.
-......Og hann mun sleppa eins og allir hinir skúrkarnir.
Nú líður að atkvæðagreiðslu um þetta fúla, ömrulega mál og ég vona að þessir samningar verði samþykktir. Þeir eru að mér skilst, bara góðir fyrir okkur Íslendinga. Lýðskrumarar í Framsóknarflokki og Borgarahreyfingu fá skammarverðlaun Eimreiðarinnar fyir aðkomu sína að þessu máli því upphrópanir og heimsendaspár eru ekki það sem við þurfum akkúrat núna. Birgitta í batikmussunni er sennilega orðin háð mótmælum. Það er sorglegt. Vitið fer nefnilega oft út þegar hnefinn fer á loft. Hún ætti frekar að vinna vinnuna sína fremur en að vera alltaf að mótmæla hinu og þessu. Hvað varðar Framsóknar-Sigmund þá frétti ég af honum í herraverslun Andrésar þar sem hann var að máta kápu og tuðaði stöðugt fyrir munnis sér að "loftsteinn væri á leiðinni". - Gott að vita af því Sigmundur.
Hinir sönnu töffarar nú um stundir eu ekki tréskæddir leppalúðar í batikmussum, brælandi daunillt tóbak, heldur lúsiðnir skrifstofutillar. Fólk sem þarf ekki að athygli samborgara sinna heldur vinnur vinnuna sína af alúð og þrótti. -Fyrir Ísland
Já... Fyrir Ísland.
Flokkar: Stjórnmál.


17 Comments:
Exit grein? Ekki aldeilis. ENGIN skuldbindandi áhrif.
15 Breyttar aðstæður.
15.1.1. Þessi málsgrein 15. gr. á við, þegar nýjasta birta endurskoðun Alþjóða gjaldeyrissjóðsins samkvæmt IV varðandi Ísland sýnir, að verulega hefur dregið úr getu Íslands til að greiða skuldina, ef miðað er við mat Alþjóða gjaldeyrissjóðsins á þeirri greiðslugetu frá 19. nóvember 2008.
15.1.2. Ef þessi 15. grein verður virk, þá samþykkir Holland, ef Ísland æskir þess, að mæta til fundar, ræða ástandið og íhuga hvort, og ef svo er, hvernig ætti að breyta þessum samningi til þess að endurspegla hið verulega breytta ástand.
By
Ívar Pálsson, At
22. júní 2009 00:26
http://hnakkus.blogspot.com/2009/06/af-gungum-og-druslum.html
By
Nafnlaus, At
22. júní 2009 01:04
Það stendur ekkert um innistæðutryggingar í EES samningnum (það hefur sloppið fram hjá þér þrátt fyrr yfirleguna). Kröfur Breta og Hollendinga byggja á hentugleikatúlkun á Evróputilskipun 94/19/EC sem þeir treysta sér ekki til þess að láta reyna á fyrir dómi.
Höfuðatriðið í þessum "samningi" hvað Breta og Hollendinga varðar er að Alþingi setji lög um ábyrgð ríkissins á þessari skuld innistæðutryggingasjóðs. Á sama tíma byggja þeir kröfur sínar á því að ríkið sé ábyrgt fyrir tryggingasjóðnum!!!
Þessi útgönguleið er grín og það hefur engu verið hótað um að okkur verði úthýst úr samfélagi þjóðanna ef við krefjumst þess að fara dómstólaleiðina. Það er bara ekki í kortunum miðað við það sem fyrir liggur.
Það er hinsvegar ljóst að á meðan að ekki hefur verið orðið við kröfum Breta og Hollendinga eða málið leyst með öðrum hætti þá er ESB aðild út úr myndinni - sem er kannski algjör úthýsing í augum sumra.
Heildarskaði reikningseigenda verðu lítill miðað við þann skaða sem 2-3 kynslóðir Íslendinga munu bera af þessum Afríkuskuldum. Raunar mætti færa rök fyrir því að við hefðum neyðarrétt til þess að neita að greiða jafnvel þótt við hefðum verið samningsbundin til þess.
By
Hans Haraldsson, At
22. júní 2009 01:25
Er ósammála þér en trúi því að þú hafir komist að þessarri niðurstöðu að vel yfirförnu máli. Hugsa að ásæða þess að við séum ósammála byggist á eftirfarandi þremur hlutum:
- Við metum ólíkt líkurnar á að gjaldeyristekjur íslenska þjóðarbúsins hrökkvi fyrir lánaafborgunum.
- Við metum ólíkt áhættuna af því að "einangrast frá alþjóðasamfélaginu".
- Við metum ólíkt afleiðingar samþykktar samningsins á samloðun íslensks samfélags.
Verði samningurinn samþykktur vona ég að þú hafir rétt fyrir þér og ekki ég.
By
Héðinn Björnssn, At
22. júní 2009 01:31
Allar "röksemdir" þínar eru byggðar á misskilningi.
1. Við höfum aldrei skrifað uppá 20 þús Evrur.
2. Bretar og Hollendingar ætla ekki að borga "það sem uppá vantar"
3. Þú getur ekki gefið þér að við munum fara aftur á "steinöld".
4. Díllinn er fantastískt vondur.
Niðurstða þín er trúarbragðalegs eðlis, einkennist af trúarþörf, meir en rökhugsun.
By
Björn Jónasson, At
22. júní 2009 07:20
Ágæti Björn.
1. Við höfum aldrei skrifað uppá 20 þús Evrur.
- - Jú. 20.887 evrur á hvern reikning
2. Bretar og Hollendingar ætla ekki að borga "það sem uppá vantar"
- - Jú.
3. Þú getur ekki gefið þér að við munum fara aftur á "steinöld".
- - Nei það er rétt hjá þér. Hinsvegar kæmumst við sennilega á e-ð skuggalegt Nígeríu-stig.
4. Díllinn er fantastískt vondur.
- - Já hann er vondur en það skársta í stöðunni.
Athugasemd þín varðandi trúar-tenginguna er mér gersamlega framandi. Ég held að þú gefir þér það að ég sé voðalega trúaður eða þvíumlíkt vegna þess að ég er BA úr guð og -trúarbragðafræði við HÍ.
Sannleikurinn er reyndar sá að ég er algerlega trúlaus. Virkur meðlimur í Vantrú og fyrrverandi stjórnarmaður í þeim ágæta félagsskap.
Ég frábið mér allar yfirnáttúrutengingar hvaða nöfnum sem þær nefnast.
By
Teitur Atlason, At
22. júní 2009 07:33
Hvar stendur að við séum skuldbundin til að greiða 20 þús Evrur? Er ekki rétt að þú vísir í þá klausu?
Bretar og Hollendingar ætla að bæta sumum uppí 100 þúsund Evrur. Hvergi neitt kveðið á um það í neinum milliríkjasamningum. Þeir láta suma ekki njóta góðs, einsog t.d. líknarfélög og Bretar bæta ekki eftirlaunaþegum úr hernum, sem þeir ráðlögðu að geyma sitt fé á Isle of Man.
By
Björn Jónasson, At
22. júní 2009 08:00
Eru bretar og hollendingar ekki að vísa frá málum til að greiða, svo slíkir reikningseigendur geti - þegar búið er að samþykkja þessa handrukkun - sótt mál á hendur Íslenska Ríkinu fyrir upphæðinni?
By
Skorrdal, At
22. júní 2009 08:47
Sammála Teitur.
Kv. Dofri Hermannsson.
By
Nafnlaus, At
22. júní 2009 08:55
Þetta er val á milli vondra kosta mér finnst sumir vera barnalegir og halda að við getum smeygt okkur undan þessu.Ég er tæplega fimmtugur og fer ekki af klakanum en hvað með þá sem eru yngri missir maður þá úr landi?Verður Ísland eins og Raufarhöfn.annað hvort hús tómt.Hörður Halldórsson.
By
Nafnlaus, At
22. júní 2009 09:10
Líklega er ekkert annað í stöðunni en að taka þessum samning. Svotil allar forsendur þínar eru samt rangar (sem er einkennilegt af vantrúarmanni að bulla svona). Lykilatriðið er að við erum ekki með vigt í að fara gegn bretum og hollendingum og það verður enn erfiðara að fara í gegnum þetta allt ef lánveitingum annarra ríkja verður kippt tilbaka núna.
By
Nafnlaus, At
22. júní 2009 09:41
Nú er einhver annar að taka þessa ákvörðun fyrir þig. Svo mikið er augljóst.
By
Nafnlaus, At
22. júní 2009 10:00
Ástæða þess að UK og Holland vilja ekki fyrir dómsstóla er eingöngu velvild gagnvart íslandi.
Í aðalatriðum algjörlega ljóst hverndi dómar falla í þessu máli. Ábyrgðin fellur á Ísland. Einaspurningin er hvort ábyrgðin yrði eingöngu 20.000 evrur eða yrði alur pakkinn. Þar er vafaatriðið.
UK. og Holland vita það auðvitað (eins og allir) að málaferli mundu taka mörg ár og á meðan yrði Ísland einangrað og afskipt o.s.frv. Og þegar dómurféli héldi það áfram sama status.
Fyrir dómi mundu vera færð fram tvö megin atriði: 1. Lámarks bæturnar samkv. tilskipuninni og 2. Mismununin.
Svo halda einhverjir að ísland sé með góða stöðu til að fara fyrir dóm !
Jafnvel þó hægt væri að teygja og þvæla atriðin í tilskipuninni um innistæðuábyrgðir (se er reyndar mjög ólíklegt) þá kemur strax mismununin þar á eftir. Grunnatrið í ees. Eða muna menn ekki hvað Darling sagði við Árna í denn ? Telur þú þetta ekki, ráðherra, að um sé að ræða mismunun samkv. ees ??
Nei nei sagði Árni kallinn !!
(og þau "rök" sumra að ekki sé verið að mismuna með að bæta á ísl. en ekki erlendis vegna þess að verið sé að mismuna eftir landsvæðum og þessvegna séþað í lagi ! - Er auðvitað gjörsamlega kapútt hugsanavilla.)
By
Nafnlaus, At
22. júní 2009 10:41
Þú ert greinilega ekki kominn í gegnum moðreykinn.
By
Nafnlaus, At
22. júní 2009 10:46
Ég er nú ekki alveg búinn að mynda mér skoðun á þessu máli öllu, enda upphrópanir og gífuryrði í báðar áttir, líkt og Íslendinga er háttur.Sé fyrst og fremst val á milli vondra kosta og erfitt val og ólétt.
Aftur á móti langar mig aðeins til að mótmæla því að þetta sé lýðskrum í Borgarahreyfingunni, því ég veit að þetta er einlæg skoðun margra þar og þingmannana þar á meðal. Ég held að það sé svo með flesta sem leggjast á móti samningnum, að þeir telji raun og veru að hann sé verri kostur. Aftur á móti held ég að Sjálfstæðisflokkurinn sé að nýta sér þetta í populistatilraun í voninni um að komast aftur að kjötkötlunum.
Ætla asvo að lokum að þakka fyrir Skjaldborgina, sjáumst á næsta ári þar aftur.
By
Agnar Kr. Þorsteinsson, At
22. júní 2009 11:26
Má bjóða þér að vísa fáfróðum í átt að þessum lögfræðilegu álitum frá ESB (og Noregi) þar sem fram kemur að íslenska ríkið sé ábyrgt fyrir innistæðutryggingum? Það er það ekki samkvæmt tilskipuninni um innistæðutryggingar en mögulega er einhver leyndó réttarheimild á sveimi yfir meginlandinu.
Svo þarf einhver að skilgreina hvað felst í áróðursfrasanum um "einangrun í alþjóðasamfélaginu". Hvað nákvæmlega eru menn að tala um þar?
By
Nafnlaus, At
22. júní 2009 11:34
Sæll Teitur Eimreið
Það er eitthvað sem er frekar bogið í þínum huga. Lestu ellefu firrur um Icesave og svaraðu því sem að kemur þar fram. Þar kemur m.a. fram að Bretar notuðu landfræðileg rök til að borga ekki innistæðieigendum á Mön. Hver er munurinn?
Skammastu þín fyrir þessar aumu persónuárásir sem þú ert að veifa í þessari grein. Alltaf legstu á lægra plan.
Hvernig munu dómstólar afgreiða aðferðir Breta í samhengi við okkur?
Hvort sem þú hefur ímugustu á þjóðernisrembu eða ekki, þá ertu með ósmekklegri pennum sem ég les (stundum) of oft undanfarið.
Icesave er enn óútfylltur tékki sem ríkisstjórnin segir að eignir standi á bak við. Þar ljúga þau upp á erlent fyrirtæki að það hafi unnið mat á eignunum upp á 95% af skuldunum.
Þetta fyrirtæki hefur nú þegar neitað þessu. Því hafa engin gögn komið fram sem styðja "sögu" ríkisstjórnarinnar og þín.
Lögfræðileg álitamáll eiga að fara fyrir óháða dómstóla og ekki að vera komnir undir ESB sjúkum SF þingmönnum.
Kv.
Sveinbjörn
PS: Bara svo þú munir þá taldir þú í fyrri færslu að Jóhanna ætti að segja af sér vegna vanhæfi. Einnig Ásta Ragnheiður, Kristján Möller ofl.Hvað hefur slíkt fólk að gera með að semja um Icesave?
By
Nafnlaus, At
22. júní 2009 20:53
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim