EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

þriðjudagur, 23. júní 2009

Fiskur í tjörn

Í viðtali á ABC fréttastöðinni sagði Geir Haarde að lærdómurinn af hruninu væri að betra væri "að vera stór fiskur í lítilli tjörn en lítill fiskur í stórri tjörn".

-Einmitt.

Þetta "sniðuga" svar Geirs afhjúpar algerlega viðhorf arkítekta hrunsins því það sem Geir er í raun og veru að segja er að:

  • best sé að fá að leika lausum hala þar sem maður getur beygt reglurnar en að hætta sér þangað þar sem maður getur það ekki.

Þetta er lærdómurinn að mati Geirs Haarde? Takið eftir að hann er ekki að tala fyrir hönd íslensku þjóðarinnar í þessu tilfelli, enda passar líkingin engan vegin við þá skýringu.

Hann er að tala um Davíðsklíkuna. Skilaboðin eru skýr.

  • Við ættlum bara að einbeita okkur að Íslandi í framtíðinni. Þar komumst við upp með allt.
Góðar fréttir fyrir Ísland eða hitt þó heldur.

Flokkar:

4 Comments:

  • verðum að vona að fólk læri af þessu öllu saman og láti ekki bjóða sér að fámenn klíka stjórni landinu

    By Anonymous Nafnlaus, At 23. júní 2009 09:24  

  • hehe, sammála.

    en hvað finnst þér um ný-upplýst bréf frá grjóna vini okkar?

    kv. hörður

    By Anonymous Nafnlaus, At 23. júní 2009 09:26  

  • þegar ég hlustaði á svar geirs, þá fékk ég aumingjahroll og í hugann flaug mynd af georgi buss frá nýja-heimi, svara viðtali!

    kv. hörður

    By Anonymous Nafnlaus, At 23. júní 2009 09:28  

  • Er ekki enn búinn að fatta svar Geirs .Hörður

    By Anonymous Nafnlaus, At 23. júní 2009 11:31  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim