Fysta prófið.
Ég þoli ekki þjóðfélagsumræðuna nú um stundir. Aðstæður eru allar harkalegar, mikið rifist um IceSave og aðrar hörmungar. Ég held að nú fyrst séu afleiðingar Davíðshrunsins að koma fram.
Við höfum bara hlustða á upptaktin af þessari hörmungarsinfóníu hingað til.
Kunnugleg staða er komin upp. Kratar og VG eru byrjaði að rífast innbyrðis. Talað er um að slíta þessu stjórnarsamstarfi og Brennuvargarnir í Framsókn og Sjálfstæðisflokki eygja nú von um að komast að kjötkötlunum með skelfilegum afleiðingum fyrir íslenska þjóð. Þessi þrá Hrunsflokkana (fyrir utan Samfylkingu) um að komast að slökkvistarfinu er mér ráðgáta og gersamlega óhugsandi.
Þetta væri álíka og að nasistaflokkur Þýskalands kæmist til valda í fyrstu kosningunum eftir aðra heimsstyrjöld þar í landi.
Við meigum ekki gleyma hverjir "eiga" hrunið. Sjálfstæðisflokkurinn 75%, Framsókn 20% og Samfylking 5%. Nú treysta hrunsflokkarnir á alþekkta gleymsku íslenskra kjósenda og telja sig "vera með þetta". -Það má ekki gerast.
Ef að VG og Samfylking klúðra þessu stjórnarsamstarfi þá verður einfaldlega ekki líft á Íslandi. Ef að brennuvörgum Íslands verða afhentir lyklarnir af samfélginu, rétt einn ganginn mun verða fólksflótti sem verður engum líkur. Þeir einu sem verða eftir verða meðlimir Engeyjarættarinnar og nokkrir framsóknardindlar.
Nú reynir á ríkisstjórnarflokkana. Nú er fyrsta prófið. Það yrði skammarlegt að falla á því. Skammarlegt.
Við höfum bara hlustða á upptaktin af þessari hörmungarsinfóníu hingað til.
Kunnugleg staða er komin upp. Kratar og VG eru byrjaði að rífast innbyrðis. Talað er um að slíta þessu stjórnarsamstarfi og Brennuvargarnir í Framsókn og Sjálfstæðisflokki eygja nú von um að komast að kjötkötlunum með skelfilegum afleiðingum fyrir íslenska þjóð. Þessi þrá Hrunsflokkana (fyrir utan Samfylkingu) um að komast að slökkvistarfinu er mér ráðgáta og gersamlega óhugsandi.
Þetta væri álíka og að nasistaflokkur Þýskalands kæmist til valda í fyrstu kosningunum eftir aðra heimsstyrjöld þar í landi.
Við meigum ekki gleyma hverjir "eiga" hrunið. Sjálfstæðisflokkurinn 75%, Framsókn 20% og Samfylking 5%. Nú treysta hrunsflokkarnir á alþekkta gleymsku íslenskra kjósenda og telja sig "vera með þetta". -Það má ekki gerast.
Ef að VG og Samfylking klúðra þessu stjórnarsamstarfi þá verður einfaldlega ekki líft á Íslandi. Ef að brennuvörgum Íslands verða afhentir lyklarnir af samfélginu, rétt einn ganginn mun verða fólksflótti sem verður engum líkur. Þeir einu sem verða eftir verða meðlimir Engeyjarættarinnar og nokkrir framsóknardindlar.
Nú reynir á ríkisstjórnarflokkana. Nú er fyrsta prófið. Það yrði skammarlegt að falla á því. Skammarlegt.
Flokkar: Stjórnmál


13 Comments:
Sammála þér, en eru það ekki aðallega FL-okksmenn sem eru að tala um stjórnarkreppu og að ríkistjórnin springi? Hefur sýnst það á æsingamönnunum, að þeir séu að reyna að sannfæra alla um það.
En já, það er ferð út landi til framtíðar, ef Sjálfsætðisflokkurinn nær aftur völdum og ég get engan veginn ekki litið á það að mér beri nokkur skylda ef svo færi, til að borga skatta, gjöld eða reikninga framar. Þeir rufu samfélagssáttmálann og iðrast einskins með það, eina hugsunin er að koamst til valda svo þeir geti haldið áfram sama siðleysi og áður.
By
Agnar Kr. Þorsteinson, At
28. júní 2009 01:39
Samfylkingin 5%?
1) Samfylkingin sat í stjórn þegar vandinn varð ljós og gerði ekkert til að vinda ofan af bankakerfinu - þvert á móti fór hún í ímyndarherferð fyrir bankana.
2) Þegar Samfylkingin tók við viðskiptaráðuneytinu - þ.e bankamálum og málefnum fjármálaeftirlitsins, voru Icesave innistæður um 1/4 af því sem þær voru við hrun. Það skrímsli varð til á vakt Samfylkingar.
3) Samfylkingin tók virkan þátt í ófrægingrherferð Baugsmanna gegn sakamálarannsókninni á sínum tíma. Þ.e hún aðstoðaði við sömu tegund af aðgerðum og nú er reynt að beita gegn sérstökum saksóknara og Mme Joly.
4) Slöpp vörn utanríkisþjónustunnar í Icesave málinu er á ábyrgð tveggja utanríkisráðherra flokksins og annar þeirra var formaður. "Pólitíska lausnin" sem nú skilar svo glæsilegum árangri var að kröfu Samfylkingar.
5) Í stjórnarandstöðu studdi Samfylkingin oftar þær efnahagsákvarðanir sem helst má rekja hrunið til. T.d var Samfylkingin fylgjandi kjölfestueigendum frekar en dreifðri eignaraðild við einkavæðingu bankanna. Harðasta stjórnrandstaðan kom frá Samfylkingu þegar hagsmunum auðmanna var stefnt í hættu s.s með Baugsarannsókn og fjölmiðlalögum.
6) Samfylkingin tók virkan þátt í óeðlilegum sambræðingi stjórnmálastéttarinnar og fjármálamanna. Má þar nefna að hún tók við svipuðum risastyrkjum og Sjálfstæðisflokkurinn og næturfundi Björgvins G. með Jóni Ásgeiri.
7) Samfylkingin hefur verið við slökkvistörf frá því að eldur braust út og bálið hefur bara stækkað.
Ég veit ekki hvernig þú reiknar en ég fæ út meira en 5%.
By
Hans Haraldsson, At
28. júní 2009 02:06
Sjálfstæðisflokkurinn sveik þjóðina þegar flokkurinn kom í veg fyrir að eignarákvæði þjóðarinnar á auðlindunum færi í stjórnarskránna.
Sjáfstæðisflokkurinn sveik þjóðina þegar við vorum sett á lista yfir þjóðir sem vildu í stríð við írak og gerði þar með íslendinga samseka fyrir morði á hundruðum þúsunda manna, kvenna og barna.
Sjálfstæðisflokkurinn sveik þjóðina þegar hann barðist fyrir fjölmiðlafrumvarpinu og ætlaði m.a. að stoppa Gunnar Smára í gagnrýni flokkinn í Fréttablaðinu, þoldi ekki að það væri fjölmiðill í landinu sem hikaði ekki við að gagnrýna flokkinn á mannamáli.
Sjálfstæðisflokkurinn sveik þjóðina þegar hann kom í veg fyrir að Bretar yrðu gerðir ábyrgir fyrir beitingu hryðjuverkalaganna gegn Íslandi. Geir gunga þorði ekki! I should have!
Sjálfstæðisflokkurinn hefur svikið þjóð sína með því að koma í veg fyrir að það yrði sett í lög um að flokkar opnuðu bókhald sitt. Hvað hefur Sjálfstæðisflokkurinn að fela?
Sjálfstæðisflokkurinn svíkur þjóð sína með því að verja kvótakerfið með kjafti og klóm.
Sjálfstæðisflokkurinn svíkur fólkið í landinu með því að taka alltaf afstöðu með Samtökum atvinnulífsins gegn hinum vinnandi manni, talandi um flokk sem þykist vera flokkur stétt með stétt.
Sjálfstæðisflokkurinn sveik þjóð sína þegar hann lagði niður Þjóðhagsstofnun.
Sjálfstæðisflokkurinn sveik þjóð sína með því að reka ekki arfa lélegan bankastjóra úr Seðlabankanum (Raunverulegan viðvaning sem hefur kostað þjóð sína meira en nokkur annar, a.m.k. 300-500 miljarða)
Sjálfstæðisflokkurinn sveik þjóð sína þegar hann tók við styrkjum úr hendi Baugsliðsins og frá Björgólfunum. og það þó svo búið væri að semja lög um að gera slíkt ekki. Hugsið ykkur ósvífnina, þeir sömdu lögin sjálfir.
Sjálfstæðisflokkurinn sveik þjóð sína þegar hann réði vini og vandamenn eins og að skíta í gegn um sikti þannig að öll stjórnsýslan varð doppótt.
Sjálfstæðisflokkurinn sveik öryrkja þegar þeir þurftu að fara með mál sín fyrir hæstarétt eftir níðingsskapinn þegar þessi flokkur sem þykist vera flokkur allra stétta gaf skotleyfi á öryrkja.
Sjálfstæðisflokkurinn sveik þjóð sína þegar flokkurinn setti bankana í hendurnar á fólki sem ekki kunni með þá að fara.
Sjálfstæðisflokkurinn sveik þjóð sína þegar hann gerði samning við Framsókn um að einkavæði eins mikið og hægt væri af eignum þjóðarinnar og skipta þessu á milli vildarvina flokkanna.
Sjálfstæðisflokkurinn sveik þjóð sína þegar Davíð hótaði dómurum hæstaréttar þannig að lesið var öðruvísi út úr dómsniðusrstöðum en í upphafi var gert. Þetta hefur gerst tvívegis, í öryrkjadómnum og í kvótamálinu (Valdimarsdómnum)
Sjálfstæðisflokkurinn sveik þjóð sína þegar hann seldi áburðarverksmiðjuna fyrir slikk. Svo opnuðu kaupendurnir vöruskemmur verksmiðjunnar og seldu vörurnar fyrir rúmlega helminginn af því sem þeir þurftu að borga fyrir verksmiðjuna í upphafi. þetta hafa þessir glæpamenn verið dæmdir.
Sjálfstæðisflokkurinn sveik þjóð sína þegar flokkurinn gerði nýfrjálshyggjutilraun sem misheppnaðist og úr varð efnahagshrun á íslandi.
Sjálfstæðisflokkurinn afhendir gæðingum sínum Morgunblaðið þegar Björgólfur Thor og Jóhann Ólafur keyptu á, að því er virðist ólögmætan hátt. Bæði um að ræða umboðssvik og ólögmæta notkun Landsbankans í þeim tilgangi. Enn helgar tilgangurinn meðalið. Tapið var svakalegt og lendti á okkur, almenningi.
Sjálfstæðisflokkurinn sveik þjóð sína þegar hann gaf vinum sínum eiginirnar sem kaninn skildi eftir sig á Keflavíkurflugvelli.
Sjálfstæðisflokkurinn sveik þjóð sína þegar hann seldi Íslenska aðalverktaka og verðlagði dæmið 1300 miljónum of lágt, allt með bókhaldsfiffi. Fyrir
Gunnars, saga, Birgissonar í Kópavogi. Ein mesta og óhugnalegasta einkvina-og fjölskylduvæðing (dótturfélögin) sögunnar.
Hver kýs svona ógeð trekk í trekk og viðheldur ósómanum?
By
Nafnlaus, At
28. júní 2009 07:24
Rétt Teitur
En þú gleymir því að almenningur á Íslandi er ekki beint þekktur fyrir mikið innsæi um hvað sé sér fyrir bestu.
Þess vegna erum við í þessarri stöðu í dag.
Fólk er fífl og alveg sérstaklega á Íslandi bæði fyrir og eftir tímabil Davíðs Oddssonar.
Þjóðinn var ekki sjálfrátt og er það ekki enn. Þess vegna var hún svo hrifin af Davíð og Víkingunum á sínum tíma.
Nú hatast hún við þá sem hún elskaði heitast og kennir öllum öðrum um en eigin heimsku.
Það er hætt við því að þjóðin kyssi vöndinn við fyrsta tækifæri því hún vil EKKI borga skuldir sínar eða bera neina ábyrgð.
Tækifæri spunameistaranna og tækifærissinna er (aftur) að renna upp.
Ísland er fucked vegna hugarfars og heimsku almennings.
Þetta vita nágrannaþjóðir okkar mjög vel og í raun allur hinn vestræni heimur.
Sorglegt en satt...
By
Nafnlaus, At
28. júní 2009 07:30
Frábær samantekt hjá Naflausum kl 07:24. Bravó.
Naflaus 07:30. Ég held að almenningur á Íslandi sé ekki fífl. Þetta er að breytast til hins betra.
By
Teitur Atlason, At
28. júní 2009 10:53
...er ekki í lagi með þig Teitur - talandi um Sjálfstæðisflokkinn (burtséð frá ábyrgð þeirra sem er auðvitað öskrandi mikil) eins og nasista er í ekki bara skammarlegt heldur gerir öll ummæli þín marklaus...
By
Nafnlaus, At
28. júní 2009 12:04
Það eru nú tengsl á milli nasista og Sjálfstæðisflokksins sem ekki er hægt að hundsa. Fyrir það fyrsta þá runnu íslenskir nasistar inn í Sjálfstæðisflokksins rétt fyrir stríð, og svo eftir stríð urðu einhverjir af þeim, áhrifamenn innan flokksins. Ekki má gleyma því svo að einn þessara nasista var svo skipaður lögreglustjóri í Reykjavík og var yfirnjósnari fyrir Sjálfstæðisflokkinn þá líkt og kemur fram í bók Guðna Th. um það mál allt.
Sjálfstæðisflokkurinn og nasistar eru því órjúfanleg heild þegar kemur að sögulegum skýringum og því ekki annað en sjálfsagt og skiljanlegt að slikt sé dregið fram.
By
Nafnlaus, At
28. júní 2009 13:02
Samfylkingin er flokkur Quislings.Föðurlandssvikarar og landráðamenn.
Sjálfstæðismenn nasistar? einn voða þroskaheftur!
By
Nafnlaus, At
28. júní 2009 13:02
Ótrúleg þessi blinda aðdáun sem fólk hefur á sínum flokki.
Samfylkingin 5%, ertu ekki að grínast?
Ég held að það sé alveg óhætt að setja samasemmerki á milli Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Það er mestmegnis spilltir vitleysingar í þessum flokkum sem hugsar mest um völd og eigið rassgat.
Samfylkingin kemst í stjórn og hefði átt að gera sér grein fyrir slæmu ástandi þjóðarbúsins. Í staðinn fyrir að gera eitthvað þá spila þau með, vona að allt lagist því það er svo gaman að ráða. Þvílíkt pakk.
-Ingvar
By
Nafnlaus, At
28. júní 2009 13:50
Til þeirra sem bríksla mér við að blanda saman Sjálfstæðisflokki og Nasistaflokkinum í Þýskalandi:
-Þið eruð lesblind og skilningsljó.
Ég segi: "Þetta væri álíka og að nasistaflokkur Þýskalands kæmist til valda í fyrstu kosningunum eftir aðra heimsstyrjöld þar í landi".
Sá sem les úr þessu að ég sé að líkja þessum flokkum saman er bara vitleysingur. Ég er að líkja meintum aðstæðm saman. Ekki flokkunum. Þó mér sé mein-illa við Sjálfstæðisflokkinn þá er hann enginnn nasistaflokkur þótt að á tímabili hafi foringahollusta hans verið álíka og Nasistaflokknum.
...Svo minnir H.H. Giss mig allaf á Göbbels en það er önnur saga.
By
Teitur Atlason, At
28. júní 2009 18:29
...úff hvað þetta er aum "afsökunarbeiðni" hjá þér Teitur - á meðan vitleysingar eins og þú halda blint í hollustu við S/VG sem eru að klúðra málum hægri og vinstri og eyða endalausum tíma í "blame game", þá held ég að það gefist enginn tími í uppbyggingu á þessu litla skeri.
By
Nafnlaus, At
28. júní 2009 20:26
Nei þetta er ekki aum afskökun. Þetta er ekki einu sinni afsökun. Þetta var leiðrétting á misskilningi sem komin er til vegna
a) fávísi
b) lesblindu
eða
C) hvoru tveggja.
það sem er lélégt er að segja á innsöginu að ég sé að líkja Sjálfstæðisflokknum við Nasistaflokkinn. Það getur hver meðalsnotur séð að ekki er rauninn. Ég sagði:
"Þetta væri ÁLÍKA og að nasistaflokkur Þýskalands kæmist til valda í fyrstu kosningunum eftir aðra heimsstyrjöld þar í landi"
By
Teitur Atlason, At
28. júní 2009 20:35
Teitur er ekki Íslendingur bara sænskur drulluhali með samfylkingar-geðklofa
By
Nafnlaus, At
28. júní 2009 22:46
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim