EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

föstudagur, 19. júní 2009

Guðlaugur Þór er áhyggjufullur

Það var beinlínist sjúklegt að horfa á Guðlaug Þór Þórðarsson hafa áhyggjur af viðbrögðum ríkisstjórnarinnar. Guðlaugur Þór hefur áhyggjur af atvinnuleysi. Hann hefur líka áhyggjur af skattahækkunum og að skattkerfið sé "flækt mjög mikið".

Ég hef áhyggjur af Guðlaugi Þór.

Ég held að hann sé nefnilega með Alzheimer háu stigi. Hann er greininlega búin að gleyma því að flokkurinn hans, Sjálfstæðisflokkurinn á heiðurinn af því hvernig fór í íslenskum efnahagsmálum og að sama skapi heiðurinn af þeirri ömurlegu stöðu sem ríkistjórnin og þjóðin öll stendur frammi fyrir.

Ef að Guðlaugur Þór hefið snefil af sómatilfinningu myndi hann bara þegja og lata hina taka til. Hjálpa jafnvel til ef honum sýnist svo. En hann stendur eins og "hinir löskuðu", félagar sínir í SjálfstæðisFLokknum á hliðarlínunni og reynir að eyðileggja fyrir slökkvistarfinu. Sker á vatns-slöngurnar og hrópar vísvitnandi rangindi að örvringluðum slökkvuliðsmönnum.

Guðlaugur Þór kemur sífellt á óvart. -Hann má eiga það.

Flokkar:

13 Comments:

  • Við hjónin stóðum hér og öskruðum á Guðlaug Þór bulla í sjónvarpinu. Hinn var ekki mikið skárri.

    By Anonymous Nafnlaus, At 19. júní 2009 21:30  

  • Ég heyrði ekki betur en að hann væri ággjufullur...

    By Anonymous Nafnlaus, At 19. júní 2009 21:31  

  • nennir eh að fara að gleyma fortíðinni - það skiptir engu máli hver kom okkur í þessa vitleysu heldur hvernig við komum okkur út úr þessu. Ef stjórnmálamenn og aðrir myndu kannski hætta að eyða tímanum í "blame game" þá kannski ættu þeir meiri tíma í að laga til!

    By Anonymous Nafnlaus, At 19. júní 2009 22:02  

  • Þetta er með heimskulegri færslum sem ég hef séð.

    en það er víst réttur þinn að drulla yfir aðra......og hanga á fortíðinni.

    Sama gera jú Steingrímur og Jóhanna, og þess vegna gerist ekkert að viti þessa dagana annað en þau skötuhjú vorkenna sjálfum sér yfir verkefnum dagsins og hlutverki sýnu.....

    væri ekki betra að leggjast á árarnar?

    EP

    By Anonymous Nafnlaus, At 19. júní 2009 22:50  

  • ég er enginn stuðninsmaður Guðlaugs. En mér getur ekki orða bundist. Má þessi ríkisstjórn hegða sér eins og kjánar?

    Er ekki skiljanlegt að Guðlaugur Þór sé áhyggurfullur, má hann það ekki af því að hann var í fyrri ríkisstjórn. Hann var ekki í viðskiptaráðuneytinu þegar allt hrundi.

    Sparnaðartillögur ríkisstjórnarinnar eru fáranlegar. Flatur niðurskurður, ekki bendir það til gáfulegra vinnubragða. utanríkisráðuneytið er búið að vaxa hraðast hlutfallslega, mátti ekki minnka það mest? Þetta eru ótrúlega miklar gerfilausnir á erfiðum timum. Ráðherrar koma sér ekki saman um sparnaðartillögur.

    kv.
    Jón Þór Helgason

    By Anonymous Nafnlaus, At 19. júní 2009 23:58  

  • Guðlaugur Þór var virkilega aumkunnarverður þarna í kvöld, í rauninni hefur ekkert reynt á Guðlaug sem stjórnmálamann, hefur haft það mjög gott þarna á þingi í þá "gömlu góðu daga" þegar allt var fjótandi hér í rússagulli , og fullt var af gæluverkefnum handa honum og fleirum í hans FLokki.
    Enn eitt er víst að Guðlaugur Þór þarf ekki að hafa áhyggjur af styrkjamálum og FLokksins það eru allir hættir að tala um það !

    By Anonymous Nafnlaus, At 20. júní 2009 01:16  

  • Teitur,
    Vinsamlega hafðu ekki Alzheimer sjúkdóminn í flimtingum. Davíð Oddsson gerði það á landsfundi Flokksins. Það var illa gert. Ótrúlega margar fjölskyldur eiga um sárt að binda vegna þessa sjúkdóms sem herjar á fólk án tillits til aldurs.

    By Anonymous Nafnlaus, At 20. júní 2009 09:40  

  • Ég er ekki sammála því að menn eigi að gleyma fortíðinni. Það er stórhættulegt að gleyma því sem á undan er gengið. Við eigum að muna og muna vel og lengi og læra af sögunni (þótt það hafi reynst mannkyninu frekar erfitt að læra af sögunni).
    Merkilegast fundust mér samt ummæli Guðlaugs um hversu illa hafi verið haldið utan um stofnanir í eigu ríkisins á liðnum árum. Þær hafi fengið að leika lausum hala og eyða eins og þeim sýndist. Þetta var þungur dómur yfir hans eigin stjórn. Hvað voru stjórnir liðinna ára eiginlega að hugsa?
    Kveðja Ásta

    By Anonymous Nafnlaus, At 20. júní 2009 11:47  

  • Sæll Teitur ofl.
    Þetta er heimskulegasta færsla sem ég hef séð. Heldur þú að við hefðum fengið að sjá Icesave "samninginn" ef ekki hefði komið til aðhalds á þingi? Á þá ekki að veita þessari ríkisstjórn aðhald. Hvað er eiginlega að hjá þér?
    Kv.
    Sveinbjörn

    By Anonymous Nafnlaus, At 21. júní 2009 09:03  

  • Menn eins og Guðlaugur eiga ekki að vera á þingi ekki frekar en Steinunn eða Helgi Hjörvar og FLeiri.
    Hvernig eigum við að geta treyst fólki sem þáði risastyrki frá umdeildustu fyrirtækjum landsins?

    By Anonymous Nafnlaus, At 21. júní 2009 09:55  

  • Ágæti Sveinbjörn. Það eina sem er "að mér" er að er svo illa innréttaður að mér finnst að allir þingmenn og ráðherrar Vanhæfu ríkisstjórnarinnar ættu ekki að koma nálægt stjórnmálum framar. Þau klikkuðu big time og eiga að sjá sóma sinn í því að kalla inn varamenn fyrir sig.

    En sómatilfining er nokkuð sem enginn þingmaður Vanhæfu ríkisstjórnarinnar hefur til að bera.

    Auðvitað á þetta lið að víkja. Þorgerður Katrín belgir sig í hvívetna og talar um "ástandið" eins og það sé eitthvað sem datt ofan af himnum.

    Þetta fólk myndi víkja ef það hefði sómatilfinningu.

    By Blogger Teitur Atlason, At 21. júní 2009 14:21  

  • Sæll Teitur
    Skv þinni eigin skilgreiningu er þá þessi ríkisstjórn vanhæf. Ekki satt?
    Á hún þá ekki að fara?
    Kv.
    Sveinbjörn

    By Anonymous Nafnlaus, At 21. júní 2009 16:15  

  • Nei. -Hvernig lestu það út?

    By Blogger Teitur Atlason, At 21. júní 2009 16:42  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim