EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

fimmtudagur, 18. júní 2009

Hrunið og ég.

Ég verð aldrei sami maður eftir efnahagshrunið. Ég man vel þessa daga þegar bankarnir féllu hver eftir öðrum og efnahagur og mannorð landsins míns fór niður á Nígeríustall. Ég var algerlega niðurbrotin.

Ég hef alltaf verið áhugamaður um að búa í almennilegu samfélagi og á tímabili hélt ég að það íslenska væri svona 90% gott. Að frekar lítið þurfti til að gera það almennilegt. Af þessum sökum var ég t.d virkur innan Vantrúar (og er enn) og skammaðist út í klíkuskapinn og flokksræðið í kringum pólitískar stöðuveitingum og vaxandi stéttaskiptingu í samfélaginu. Við hrunið þá hertist þessi afstaða mín til muna og ég er hræddur um að ég muni hafa þessa sannfæringu þar til ég drepst. -Svona eins og gömlu kommarnir íslensku. Það er svolítið sorglegt.

Ég reiður út í sjálfan mig að hafa ekki gert eitthvað meira, verið skýrari og ákveðnari í þessari sannfæringu minni fyrir hrunið. Sannleikurinn er nefnilega sá að við hleyptum skítapakkinu alltof langt. Það fékk að ráða alltof miklu. Svo langt gekk þetta að orð eins og sósíalismi var skammaryrði sem fólk þorði ekki að taka sér í munn. Búandi í sósíalísku ríki þá fullyrði ég að ekkert fyrirkomulag er betra en evrópu-sósíalismi og sú heilbrigða togstreyta milli vinstri og hægri sem hér ríkir. Það er nefnilega einhverskonar óskrifaður sáttmáli í gildi, ólíkt því sem var á Íslandi fyrir hrunið.

Við hleyptum þeim alltof langt og afleiðingarnar eru hörmulegar. Ég hef rætt við marga hægri menn um ástæður hrunsins og furðulegt nokk þá eru útskýringarnar þeirra á hruninu að ekki var nógu mikil frjálshyggja í gangi. Nú held ég að svör á þessa lund séu einhverskonar sálfræðiviðbragð fremur en kaldhömruðu skynsemi og læt þær í léttu rúmi liggja. Hitt er annað og verra að þetta sama fólk virðist hafa miklar og góðar skoðanir á því hvernig skuli tekið til eftir partíið sem þau héldu. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur sem hafa stjórnað landinu meira og minna frá lýðveldisstofnun, titra nú og nötra yfir því hvenig uppbyggingunni skuli háttað. Og til að bíta höfðuði af skömminni hafa þessir flokkar stundum staðið í vegi fyrir nauðsynlegum björgunaraðgerðum.

Ég treysti ekki Sjálfstæðisflokknum. Ekki boffs. Ég held að hann sé úlfur í sauðargæru. Flokkur sem þykist vera í stjórnmálum en er í rauninni hagsmunasamtök þeirra ríku og spilltu. Ágætis dæmi um það er að koma í ljós núna þegar formaður flokksins, Bjarni Benediktson neitar að gefa upp tegnsl sín við fyrirtæki í landinu. Ég veit alveg hvaða retórík hann beitir í þeirri vörn sinni. "Þetta kemur ykkur ekki við, ég er líka einstaklingur og þjóðinni kemur ekkert við hvað ég á og hvað ég ekki á". -Klassískt yfirklór og óheiðarlegt. Þingmenn flokksins eru meira og minna laskaðir af óeðlilegum hagsmunatengslum við stórfyrirtæki. Flokkurrinn sjálfur þáði risamútur og varaformaðurinn skuldar þrotabúi Kaupþings 1500 miljónir (sem aldrei munu greiðast vegna ófullkominna laga sem Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur kom á)

Star Wars útgáfan er þessi. Ég lít á Sjálfstæðisflokkinn sem riddarra Sith reglunnar en ekki sem stjórnmálasamtök í hefðbundum skilningi.

Samfylkingin hefur valdið mér ómældum vonbrigðum. Ég skrifaði nokkrum Samfylkingarþingmönnum bréf þar sem ég sagðist vera orði þreyttur á því að vera þreyttur á Samfylkingunni. Ég kaus hana ekki í síðustu kosningum. Samfylkingin er nefnilega líka löskuð eftir Davíðstímann. Hún er eiginlega stofnuð til þess að vera "hinn" Sjálfstæðisflokkurinn og Ingibjörg Sólrún átti að vera "Davíðinn" í Samfylkginunni. -Sterki leiðtoginn. Ingibjörg reyndist illa og brást á ögurstundu. Gísli Marteinn Baldursson (maður sem ég er eiginlega aldrei sammála) hefur bent á þessa eftirhermustæla Samfylkingar og með réttu. Samfylkingin er ónýtur vetvangur fyrir vinstri menn á Íslandi. það þarf að breyta öllum strúktúr flokksins og innviðum eigi ég að kjósa hann í framtíðinni. Það sem fer mest í taugarnar á mér varðandi Samfylkinguna eru pólitískar mannaráðningar og hrókeringar sem gefa Framsókn og Sjálfstæðisflokki ekkert eftir. Flokksskírteini er alltaf meira metið en prófskírteini þegar kemur að mannaráðningum. Ömurleg staðreynd en á pari við eftirhermuáráttu Samfylkingarinnar við Sjálfstæðiflokkinn.

Ég held að eftirköst hrunsins verði úr sögunni eftir 10 - 20 ár. þá er þetta búið en ég held líka að leiðin þangað verið vörðuð tilviljana og -fálmkenndum aðgerðum sem virka stundum og stundum ekki. Ég held að stjórnmálalífið muni loga stafnanna á milli á þessum tíma harðar deilur skekja land og þjóð. Samstöðu, sem er svo nauðsynlega á erfiðum tímum, mun skorta.

Samstöðu um alltaf skorta meðan óréttlæti ríkir.

Óréttlæti sem kveðið er á um í stjórnarskrá, óréttlæti sem fólgið er í því að ofurríkir borga ekki skatta eins og aðrir, óréttlæti sem felst í því að auðlyndir landsins eru "eign" um 60 fjölskyldna og óréttlæti sem fólgið er í því að flokkskírteini eða ætterni er meira metið en prófskírteini í opinberum mannaráðningum.

Ég ber þó, þrátt fyrir allt, von í brjósti að allt muni fara vel. Að órétturinn verið leiðréttur og að á Íslandi muni ríkja almennilegt samfélag. Reyndar gerðist nokkuð óvænt í sálu minni þegar upp komst um svindl og svívirðu Sigurjóns bankastjóra, þá fékk ég eins og vindhviðu í gegnum mig og eftir glundi í hausnum setningin: "Þetta gengur ekki upp. Ísland mun aldrei ná sér. Ísland mun alltaf verða spillt og óréttlátt". En sem betur fer þá þrjóskaðist ég upp við þennan mótbyr sálarinnar og er staðráðinn í því að taka til hendinni. Mennta mig og berjast fyrir almennilegu samfélagi. Bæta það og láta gott af mér leiða fyrir landið sem ég ann svo heitt.

Flokkar:

10 Comments:

  • Alveg sammála thér
    Thad tekru 20 ár ad gera vid skadann sem thetta rugl hefur valdid
    Vegna vidbjódsflokkanna adallega enda standa their gegn breytingum og endurskodun á kerfinu

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. júní 2009 13:02  

  • Tja, ég skil svo sem þessa hugmynd hægri manna um að hér hafi ekki verið nógu mikil frjálshyggja. Sannleikurinn er auðvitað sá að ef Ísland hefði verið sannkallað frjálshyggjuland hefði ríkisvaldið ekki gefið einkareknum bönkum ríkisábyrgð á innistæðum. Svo er það líka rétt hjá frjálshyggjumönnum að hér ríkti ekki beint frjálshyggja, heldur einhver undarlegur bastarður af neocon-speki og þriðju leið Blairs í samkrulli við hefðbundna íslenska klíku- og spillingarpólitík (tek það fram að ég telst líklega vinstrimaður).

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. júní 2009 13:57  

  • Eftir fall Sovétríkjanna var skýring harðlínu kommúnista sú að ekki hafi verið nógu mikill kommúnismi í Sovétríkjunum, eða hann hafi ekki verið rétt útfærður.

    Ég held að íslenska bissnessmódelið muni seint hverfa úr sögu- og hagfræðibókum. Tekur amk meira en tuttugu ár að gleymast.

    AH

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. júní 2009 14:29  

  • Heyr heyr! Eins og talað út úr mínu hjarta. Enda flúði ég land fyrir löngu. Ég reyndi að koma heim eftir doktornám árið 2000 en entist bara í þrjú ár. Ég gafst upp á spillingunni. Hef gengið beint í tvær mjög góðar stöður í tveimur löndum undanfarin fimm ár en fékk aldrei neitt nema grunnskólakennslu á leiðbeinendalaunum á Klíku og sukklandi.Baráttukveðjur heim! Kannski kem ég þangað aftur sem ellilífeyrisþegi.

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. júní 2009 20:21  

  • Við hverju öðru er hægt að búast?
    Þetta er einkenni fyrrverandi nýlenda.
    Á nýlendutímanum voru það embættismenn sem réðu í nafni nýlenduherrana. Eina leiðin til fjár var í gegnun embætti eða tengslin við þau. Lestu bara æfisögu Einars Ben t.d.
    Eftir "sjálfsstæðið" gerðust þessir sömu embættismenn "stjórnmálamenn" undir sömu stjórnarskrá nýlendunar sem samin hafði verið af Konungi. Eina sem breyttist í henni var orðið "Konungur" var strokað út, og orðið "Forseti" sett í staðinn. Þessi stjórnarskrá er ennþá við lýði.
    Það eina sem getur breytt einhverju er aðskylnaður ríkisstjórnar og þings þar sem þessir aðilar hafa eftirlit með hverjum öðrum.
    Þangað til gilda hollustu-flokksskýrteini til hinna konunglegu embættismanna.

    By Anonymous Nafnlaus, At 19. júní 2009 08:14  

  • Sjónvarpið spurði fólk á götunni í Kópavogi um Gunnar Birgisson. Flestir voru ánægðir með hann sem bæjarstjóra en það sem vakti athygli var að nokkrir sögðu: hann hefur gert svo mikið fyrir félagið. Við spurðum okkur: hvaða félag? Líklega voru þeir að tala um Sjálfstæðisfélagið í Kópavogi. Spillingin er einmitt þannig hjá Sjöllunum að FLokkurinn er fyrst og svo fólkið. Eins og þegar Sigurður Kári sagði á landsfundi þeirra að kvótinn væri í eigu Sjálfstæðisflokksins!

    By Anonymous Nafnlaus, At 19. júní 2009 09:11  

  • Er svo innilega sammála, það virðist vera einhver ótrúlega lífseig meinloka þarna heima að það sé í lagi að fara bara 70-80% eftir lögum og reglum, já eða bara 0%. Svo þessi andsk.... hræsni um hvað allt er nú spes og sérstakt á Íslandi

    By Anonymous Nafnlaus, At 19. júní 2009 18:15  

  • meistaralega vel skrifuð grein.

    By Anonymous Nafnlaus, At 20. júní 2009 01:23  

  • SJÁLSTÆÐISFLOKKURINN ER LOKUÐ ÞRÖNGSÝN PÓKERKLÍKA AÐ ÁLITI ALLMARGRA LANDSMANNA SEM ÞÓ STEFNAN FLOKKSINS SÉ Í EINHVERSKONAR SPÉHRÆÐSLU FRÍI UM ÞESSAR MUNDIR ÞÁ LÆÐIST ÞREYTULEGA PÓKERKLÍKAN INN SJÓNVARPSTÖÐ INGVA HRAFN SEM ER NOTA BEN LÍKLEGA SPONSAÐUR AF KVÓTAKÓNGUM OG GEIRA Í GOLDFINGER EN HANN ER EKKI VENJULEGUR SJÓNVARPSTJÓRI HANN INGVI HRAFN HELDUR MINNIR MANN FREKAR Á LITRÍKA VINAFÁA BARSÁL Í LÉTTRI TILVISTARKREPPU. UNDIRALDA ALLRAR UMRÆÐU Á PÓLITÍSKUM VETTFANGI Á STÖÐINI ER AFNEITUN ÞEIRRAR STAÐREINDAR AÐ VIÐ GETUM EKKI LEYST ICESAFE Á SAMA HUGSUNAR GRUNDVELLI OG VIÐ SKÖPUÐUM VANDAMÁLIÐ OG (SJÁLSTÆÐISMENN EIGA VANDAMÁLIÐ ALFARIÐ)..ÞETTA GASPUR
    Á ÞESSARI STÖÐ HJÁ SIGUR KÁRA HALLI OG FLEIRUM HJÁLPAR EKKI SJÁLSTÆÐISMÖNNUM VIÐ VERÐUM EINFALDLEGA AÐ BORGA OG SÚ ÁKVÖRÐUN MUN LENDA ILLILEGA EN RÉTTILEGA Á FYLGI SJÁLSTÆÐISFLOKKNUM UM ÓKOMNA FRAMTÍÐ .

    By Anonymous Nafnlaus, At 20. júní 2009 01:39  

  • Góð grein. Þú ert hér með bookmarkaður.

    By Anonymous Gauti, At 20. júní 2009 21:44  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim