EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

fimmtudagur, 11. júní 2009

Jónas hittir naglann á höfuðið

Þessi greining Jónasar er því miður sönn. Nú verður reynt að þykjast styðja Joly en vinna samhliða gegn hugmyndum hennar.

Það sem ég og sennilega fleiri landsmenn óttast er að hrunið verði aldrei gert upp nema til málamynda. Stóru fiskarnir sleppa meðan verðbréfaguttar á gólfinu verða látnir gjalda.

Þessvegna nötraði allt samfélagið við orð Joly.

Ég trúi því ekki að neitt breytist. Sér einhver lesandi t.d fyrir sér að Sigurður Einarsson, Jón Ásgeir eða einhverjir Alþingismenn verði leiddir burtu í járnum á leiðinni á Kvíabryggju?

Trauðla. -Þeir sleppa.

Flokkar:

11 Comments:

  • Já...ég sé það fyrir mér! (silly me!!!)

    By Anonymous Nafnlaus, At 11. júní 2009 19:49  

  • Höldum vöku okkar – hver veit?

    By Anonymous Nafnlaus, At 11. júní 2009 20:06  

  • Nú reynir á almenning hér heima og að við höldum vöku okkar.
    T.d hvað er Jón Ásgeir að gera í vinnu hjá skilanefnd Landsbankans?
    Hvað er Gunnar Sigurðsson fyrrverandi framkvæmdastjóri Baugs að gera í vinnu hjá skilanefnd Landsbankans?
    Kveðja Ásta B

    By Anonymous Nafnlaus, At 11. júní 2009 20:12  

  • hafe faith ;-)

    By Blogger Sigurlaug Anna, At 11. júní 2009 20:17  

  • Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis fær miljón á mánuði frá Ólafi í Samskipum.

    -Ekkert grunsamlegt við það. Nei nei.

    By Blogger Teitur Atlason, At 11. júní 2009 20:35  

  • Nei Teitur þetta er rugl hjá Jónasi. Ragna ræddi við Evu í dag og er á fullu að semja frumvarp sem heimilar ráðningu 3 ríkissaksóknara, einn fyrir hvern banka. Steingrímur og Jóhanna lofuðu að settir yrðu peningar í rannsóknina, 2 milljónir Evra minnir mig. Jóhanna lofaði líka að það yrði reynt að koma Valtý úr embætti þar sem hann væri vanhæfur. Það er varla hægt að hafa mann í embætti sem getur bara skoðað fáein mál, mál Lalla Jones, hassplönturæktenda og eiturlyfjasmyglara!
    Jónas ruglar bara af því hann vill koma af stað sem mestum íllindum og ausa óhróðri yfir sem flesta! Hvenær hefurðu séð hann skrifa vel um nokkurn mann - íslenskan!
    Þetta fer allt að ganga núna Haarderingin er hætt!
    Ragnar Eiríksson

    By Anonymous Nafnlaus, At 11. júní 2009 20:54  

  • Ágæti Ragnar. Nú hef ég fylgst með stjórnmálum á Íslandi í uþb 25 ár. Ég hef fylgst vel með og tel mig þekkja mitt heimafólk bara alveg ágætlega og hvernig það hugsar.

    Það sem Jónas er að segja að nú varð einhver kippur eftir að Joly talaði við fjölmiðla (sem margir stjórmálamenn eru æfir yfir og flokka sem "flugeldasýningu" eða þ.h). Nú er s.s að hefjast fasi í þessu leikriti sem gengur út að að stjórnvöld eru að þykjast taka mark á Joly en efna ekki neitt.

    Heldur þú að það sé áhugi fyrir því hjá stjórnvöldum að sakfella alla þá sem eiga sök á Hruninu?

    Það er bara fyndið að skrifa þetta. Það er enginn áhugi á því. -Ekki nokkur.

    By Blogger Teitur Atlason, At 11. júní 2009 21:05  

  • Ef við eigum að metast á um hve lengi við höfum fylgst með stjórnmálum þá má segja að ég hafi byrjað að fylgjast með þeim þegar ég 13 ára sat og skrifaði kosningatölur aftan á krossviðarstólsetu (átti engan pappír - henti setunni fyrir mistök fyrir fáum árum!) árið 1958. Þá var ég mikill sjálfstæðismaður eins og pabbi og mamma og þótti úrslitin bölvuð! Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar, ég skipt um skoðun en ég hef samt enn trú á að það finnist heiðarlegt og gott fólk og jafnvel að það sé að finna í ríkisstjórninni núna. Ég viðurkenni hins vegar að það er erfitt að berjast við embættismannakerfið, þar er margan drulluhauginn að finna (bæði menn og mál!) en ég vil lifa í voninni um að bæði sé vilji og geta til að brjóta þetta kerfi á bak aftur! Ég vil ekki trúa að samtryggingarkerfið sem verndar t.d. Davíð og Geir sem báða ætti að ákæra fyrir landráð dekki yfir alla, t.d. menn eins og Baldur G., Valtý, Jónas Fr. Jónsson o.fl., o.fl. og sé ósigrandi og enginn vilji að fella það.
    En ég er bara einföld sál, öryrki og hestamaður en þú hinn mikli flakari og vitringur í Gautaborg - en þó ekki heimsmeistari!!!! (það er ég ekki heldur - vona ég!)

    Kveðja til Svíþjóðar,

    Ragnar Eiríksson

    By Anonymous Nafnlaus, At 11. júní 2009 22:23  

  • Er þetta þá ekki lausn okkar pöpulsins? http://images3.wikia.nocookie.net/uncyclopedia/images/b/be/Guillotinediagram.gif

    By Anonymous Nafnlaus, At 11. júní 2009 22:48  

  • Jú þú þarna alveg nafnlausi - fallöxin er einmitt næsta skref - þegar trúin er horfin!!! Það væri allt í lagi að fara að smíða hana - er ekki einhver lagtækur maður sem getur bangað henni saman - helst að hafa hana á hjólum svo auðvelt sé að fara með hana á AUSTURVÖLL!

    Ragnar

    By Anonymous Nafnlaus, At 11. júní 2009 22:57  

  • getum safnad pening f. Evu...Hun ma ekki hrekjast burt.

    By Blogger Sylvia, At 12. júní 2009 08:22  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim