Næsti leikur gegn fyringarleiðinni.
Ég hef það samkvæmt áreiðanlegum heimildum að næsti leikur LÍÚ gegn fyringarleiðinni sé kerfisbundin útdeiling á leigukvóta framhjá viðkvæmum svæðum. Nú á að svelta sumar byggðir með því að neita að leigja þeim kvóta og skapa þannig þrýsingi á Alþingismenn viðkomandi svæða til að snúast á sveif með hagsmunum LÍÚ.
-Vitið þið til...
Mjög bráðlega munu viðkvæm byggðarlög ekki fá neinn kvóta leigðan. Háværar raddir munu þrýsta á þingmenn viðkomandi kjördæma til þess að afneita fyrningarleiðinni.
Munum að LÍÚ lítur á baráttuna gegn fyrningarleiðinni sem lokabaráttu. Þeir tjalda öllu til og hafa meir að segja keypti heilan Mogga til að básúna ágæti núverandi kvótakerfis og hrikaleika fyringarleiðarinnar. Hundruðir manna og kvenna eru á góðum launum beint og óbeint við að verja kvótakerfið. LÍÚ veit best hvað staðan er viðkvæm og bregst því við með þessum hætti. Það hangir nefnilega ansi mikið á spýtunni. Útgerðaraðallinn er búin að spila svo rassinn úr buxunum að arðurinn af greininni fer ekki lengur til Íslands heldur í vaxtagreiðslur til þýskra banka. Þetta veit LÍÚ vel og reynir nú að blekkja fólk kerfisbundið. Tilkoma þessara skulda er svo annar handleggur og efni í ótal sorglegar bækur. Þeir þurftu nefnilega ekkert á þessum skuldum að halda og voru dobblaðir af gráðugum lánapröngurum frá bönkunum. -Meira um það síðar.

1 Comments:
Þetta er misskilningur hjá þér. Þessi skortur á leigukvóta er bein afleiðing yfirvofandi fyrningar. Þær útgerðir sem á næsta fiskveiðiári geta ekki veitt allan sinn kvóta sleppa því að leigja frá sér það sem er er umfram og nýta þess í stað geymsluréttinn og færa það yfir á næsta fiskveiði ár á eftir. Árið sem fyrningaleiðin verður tekin upp. Til þess að reyna að vinna gegn yfirvofandi þjóðnýtingu aflheimilda.
Og hvað snertir Moggann, þá á ég bágt með að trúa að LÍÚ menn séu eitthvað með puttana í ritstjórn blaðs sem berst hatrammri baráttu fyrir aðild landins að ESB. Þeir hafa nú ekki beint verið hrifnir af þeim hugmyndum hingað til.
Helgi
By
Nafnlaus, At
10. júní 2009 11:19
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim