Rembingur eyjaskeggja
Ég er að lesa bók Guðna Th. Jóhannessonar um Hrunið. Fín bók og afar gagnleg sem setur upp aðdraganda efnahagshrunsins og eftirköst í samhengi. Mæli sterklega með henni. Það er svolítið sérstakt að það virðist sem íslenks stjórnvöld og viðskiptalífið hafi staðið fyrir framan nokkrum vondum kostum og alltaf valið þann lang-versta. -Trekk í trekk.
Wa-Mu leiðin var sennilega sú allra versta sem hugsast gat og hefur skaðað okkur ótrúlega mikið. Með henni var lína dregin og hagsmunir íslenskra sparifjáreiganda voru teknir fram yfir þá sem eru erlendir að uppruna. -Gengur þetta upp? Það er ekki að undra að enginn vildi hjálpa okkur í þessari stöðu. Mikið betra hefði verið að láta alla tapa jafnt og ríkisstyðja ekki íslenska sparifjáreigendur. Láta kapítalismann ráða för. borga það sem okkur ber samkvæmt samningum (20.000 evrur) og láta þar við sitja.
Það er svolítið sérkennilegt að í Wa-Mu leiðinni kristallast annar vandi. Sá herfilegi hugsunarháttur að Íslendingar séu á einhvern hátt betri eða merkilegri en þegnar annara þjóða. ESB andstæðingar klifa á þessu í hvívetna. Samvinna á jafnréttisgrundvelli er eitur í þeirra beinum. Björk-fjölskyldan í Gautaborg er ómerkilegri en fjölskylda á Víðimel í Reykjavík. Aho-fjölskyldan í Helsinki er ómerkilegri en fjölskylda í Reynigrund í Kópavogi. Gomez-fjölskyldan í Barcelona er ómerkilegri en fjölskylda í Stekkjaflöt í Garðabæ. Þessi hugsunarháttur er algerlega grundvallandi í hugsunarhætti ESB andstæðinga og í raun kjarninn í hinum belgingslega sjálfsbirginshætti sem einkennt hefur íslenska þjóðarvitund um áratugaskeið.
Við erum betri, merkilegri og fremri öðrum þjóðum. Óskaplega dæmigerður rembingur fyrir eyjaskeggja.

Flokkar: Stjórnmál

7 Comments:
Þarna skaustu yfir markið, Teitur.
Andstaða við ESB hefur ekkert með það að gera að við séum eitthvað betri en einhverjar fjölskyldur í ESB-löndum.
Andstaðan gengur út á það hvort að Ísland sé betur sett í ESB eða ekki.
Fyrir marga er ESB sýnd veiði en ekki gefin.
ESB-sinnar setja dæmið þannig upp að aðild að ESB sé hreinn ávinningur að öllu leyti fyrir land og þjóð, en enginn fórn né tilkostnaður, þ.e. við fáum allt fyrir ekkert.
ESB-andstæðingar eru mjög efins um þetta og eru því ekkert ginkeyptir fyrir svona áróðri.
By
Nafnlaus, At
10. júní 2009 09:45
Það er nú ekkert séríslenskt, eða eyjabundið við ESB umræðuna á Íslandi. Hún er nákvæmlega eins og hún var í öllum þeim ríkjum sem hafa vellt fyrir sér að ganga í ESB.
By
Héðinn Björnsson, At
10. júní 2009 10:05
Nú hef ég ekki lesið þessa bók en afhverju er ísl. leiðin kölluð WAMU leiðin ? Þetta er ekkert líkt.
Jú, kannski að þeir yfirtóku bankann en útfærslan og athafnir allar í gjörningnum eru ekkert líkar.
http://en.wikipedia.org/wiki/Washington_Mutual
Aldrei skilið þegar verið er að kalla þetta WAMU leið.
By
Nafnlaus, At
10. júní 2009 10:06
Tek undir það með nafna mínum nafnlausum hér að ofan að andstaða við ESB hefur ekkert með fyrirlitningu á fjölskyldum í ESB-löndunum að gera (eða afstöðu til almennings þar yfirleitt). ESB er stjórnkerfi sem fólk hefur misjafnar skoðanir á. Ég er t.d. fylgjandi aðild Íslands að því, en það er önnur saga, og ekki dettur mér í hug að ætla ESB-andstæðingum upp til hópa þann hroka og mannfyrirlitningu sem þú gerir í bloggfærslu þinni.
Ég hef einnig lesið hina vönduðu bók Guðna Th. Jóhannessonar, Hrunið. Það er sannarlega athugunarefni hvernig svo til allt fór á hinn versta veg. Eiginlega gekk ekkert upp af því sem gert var. Klúðrið og ólánið var yfirgengilegt. Nema að það tókst þó að halda bönkunum starfhæfum að nokkru leyti.
By
Nafnlaus, At
10. júní 2009 10:26
Það sem ég átti við með samlíkingunni er sú staðreynd að málflutningur ESB andstæðinga gengur út á að á Íslandi sé einhvernvegin aðrar aðstæður en annarsstaðar. Að við séum á einhvern hátt sérstök. Að aðrar reglur gildi fyrir Íslendinga en aðra Evrópubúa.
Dæmigert fyrir þennan hugsunarhátt er tilraun vanhæfu ríkisstjórnarinnar (og Davíðs Oddsonar) að mismuna innistæðueigendum á Íslandi og í UK, BRD og Hollandi! Tryggja innistæður 100% á íslandi en ekki annarsstaðar. Þetta gengur gegn öllum siðum og venjum sem hafa mótast meðal siðaðra þjóða um áratuga skeið.
Sjáið þið ekki hvað þetta er GALIÐ.
Að skipta bönkunum í 2 hluta, þann sem eru dauðvona (í útlöndum) og þá sem eiga sér líf (á Íslandi). Ekki að furða að alþjóðasamfélagið yrið brjálað við þessi skilaboð.
Mér þykir margt líkt í þessum hugsunarhætti og meðal þeirra sem eru andstæðingar ESB.
-Við erum nefnilga svo spes.
By
Teitur Atlason, At
10. júní 2009 10:35
Alþjóðasamskipti eru ekki eins og menntaskólareunion þar sem allir eru vinir. Allar ríkisstjórnir rembast eins og þær geta við að gæta hagsmuna sinna ríkja fyrst og fremst og beita til þess hvaða brögðum sem þær telja viðeigandi. Það er nákvæmlega ekkert "séríslenskt" við það og þú getur varla hafa fylgst mikið með stjórnmálaumræðu í Evrópu ef þú sérð þetta ekki.
Svo ertu ekki að sannfæra neinn um neitt með þessum sífelldu yfirlætisfullu alhæfingum um "ESB-andstæðinga" og þankagang þeirra. Þú afhjúpar aðallega hversu lítinn skilning þú hefur á málinu.
By
Nafnlaus, At
10. júní 2009 10:45
Er ekki alveg að ná samlíkingunni hjá þér með þessar mismunandi fjölskyldur í ESB-löndunum vs. okkur hér á landi í einns stað, og það að gangast í ábyrgð vegna IceSave í annan stað, sem í raun er allt annað mál.
Hitt er svo annað mál að hér á landi eru allt aðrar aðstæður heldur en í flestum ESB-löndum, bæði efnahagslega og menningarlega.
Hvað eigum við t.d. sameiginlegt með löndum eins og Grikklandi eða Albanínu? Nú, eða löndum eins og Rúmeníu og Búlgaríu? Erum við svona lík þessum löndum, að við smellpössum við þau innan ESB? ESB er ekki hómógenískt fyrirbrigði.
Svo veit ég ekki af hverju þú ert að blanda Davíð inn í þessa umræðu, nema ef vera skyldi vera þessi króníski atvinnusjúkdómur Samfylkingarfólks sem heitir Davíðs-heilkennið, sem lýsir sér í því að menn halda að allt vont sé Davíð að kenna, líka vont veður.
Mér vitandi hefur Davíð aldrei sagt að mismuna ætti innstæðueigendum eftir þjóðerni. Þú ert kannski að vitna til margfrægra orða hans í Kastljósinu sl. haust, sem Samfylkingarfólk hefur túlkað á marga vegu sér í hag.
Með kv.
Nafnlaus kl. 9:45
By
Nafnlaus, At
10. júní 2009 11:24
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim