Sparnaðarráð til ríkisstjórnarinnar
Nú á að setja lög sem kveður á 95% skatt á tekjur sem eru umfram eina miljón króna á mánuði. Þannig má ná inn peningum í ríkiskassann sem gætu brúað bilið fyrir heilbrigðis og -menntakerfið. Skattsvik munu sennilega aukast til muna við svona lög en á þeim á bara að taka eins og öðrum lagabrotum. Fyrirtæki sem hefðu svona þak á launagreiðslur munu sjálfsagt spara peninga sem þessu nemur og gætu ráðið fólk í vinnu fyrir mismuninn.
Lífeyrisgreiðslur frá ríkinu ættu einnig að skattleggja á þennan hátt. Ég skil ekki hvað farlama gamalmenni hafið neitt við ofurlaun að gera. Miljón á mánuði ætti að duga. Fjölmargir stjórnmála og -embættismenn sem komin eru á eftirlaunaaldur eru með ofurlaun. Sárast er að þeir sem lögðu grunninn að hruninu skulu fá ofureftirlaunagreiðslur fyrir fúskið. Davíð Oddson mun vera hæst launaðasti ríkisstarfsmaðurinn í sögu lýðveldisins. Með tvö eða þreföld ráðherralaun fyrir að hafa farið með eldibrandi um íslenskt samfélag.
Þetta er óþolandi.
Lífeyrisgreiðslur frá ríkinu ættu einnig að skattleggja á þennan hátt. Ég skil ekki hvað farlama gamalmenni hafið neitt við ofurlaun að gera. Miljón á mánuði ætti að duga. Fjölmargir stjórnmála og -embættismenn sem komin eru á eftirlaunaaldur eru með ofurlaun. Sárast er að þeir sem lögðu grunninn að hruninu skulu fá ofureftirlaunagreiðslur fyrir fúskið. Davíð Oddson mun vera hæst launaðasti ríkisstarfsmaðurinn í sögu lýðveldisins. Með tvö eða þreföld ráðherralaun fyrir að hafa farið með eldibrandi um íslenskt samfélag.
Þetta er óþolandi.
Flokkar: Samfélagsmál


9 Comments:
innilega sammála!
By
sefsongur, At
8. júní 2009 19:14
Skattsvik aukast ekki. Menn minnka bara við sig vinnu þar sem ábatinn verður enginn. Þeir sem eru með 2 millj. fara niður í 50% vinnu og spila golf restin af deginum, viðbótarálaginu er svo skipt á milli annara starfsmanna sem taka því þegjandi og hljóðalaust þar sem atvinnuástandið er þannig.
Svona skattlagning hefur því þau áhrif að skatttekjur dragast saman.
Það væri einnig stórhættulegt að leggja ofurskatt á menn eins og Davíð Oddsson. Hann gæti tekið upp á því að fara finna sér vinnu aftur. Í ljósi skaðans sem hann hefur unnið úr þeim störfum sem hann hefur tekið sér fyrir hendur í gegnum árin þá er það gríðargóð fjárfesting fyrir ríkið að borga honum stórfé fyrir að gera ekki neitt.
Dude
By
Nafnlaus, At
8. júní 2009 19:17
Davíð Oddsson þáði reyndar aldrei ráðherraeftirlaun á meðan hann var Seðlabankastjóri, þótt hann ætti rétt á þeim samkvæmt lögum. Nóg hefur karlinn á samviskunni, þótt við ljúgum ekki upp á hann fleiri löstum.
By
Stefán Pálsson, At
8. júní 2009 19:25
Má ekki greiða manninum, sem skipaði sjálfan sig seðlabankastjóra, milljarðara á mánuði skattfrjálst fyrir að vinna ekkert? Það kostar samfélagið mun minna en hinn möguleikinn.
By
Nafnlaus, At
8. júní 2009 19:26
Af hverju koma alltaf svona miklar mótbárur gegn hátekjuskatti?
By
Nafnlaus, At
8. júní 2009 19:31
Rétt er að Doddson þáði ekki ráðherraeftirlaun meðan hann var Seðlabankastjóri (dauðans).
Hann mun samt verða lang hæst launaðasti ríkisstarfsmaðurinn þegar hann fer á eftirlaun.
Ég trúi því trauðla að hann gefi eftir þumlung varðandi launagreiðslur frá skattgreiðendum.
Maðurinn virðist hata þjóð sína eins og pestina.
By
Teitur Atlason, At
8. júní 2009 19:53
Ástæðan fyrir því að það koma alltaf mótbárur gegn hátekjuskatti er sú að hann er vita gagnslaus og hefur mjög oft neikvæð áhrif á tekjuskattstekjur hins opinbera. Þetta snýst allt um jaðarinn. Hversu mikinn ábata færðu af því að vinna einni klst lengur. Ef að hátekjuskattur verður of hár þá verða engir með háar tekjur þar sem enginn vill leggja það á sig að afla sér hárra tekna.
Hátekjuskattur hefur líka neikvæð áhrif á vilja sérfræðistétta til að vinna hér á landi. Það eru til dæmis frekar góðir möguleikar, eins og staðan er núna, fyrir lækna að fá vinnu erlendis á 50-100% hærri launum en þeir eru á hér á landi (skýrist af gengisfalli ISK). Ísland er varla samkeppnishæft núna um fólk með langskólamenntun vegna lágra tekna. Menn geta rétt ímyndað sér hvaða áhrif hátekjuskattar hafa á þessa samkeppnishæfni.
Kjarni málsins er að það eru mjög lélég rök fyrir því að setja á hátekjuskatt með tilliti til ábatans af honum fyrir hið opinbera og þjóðfélagið í heild. Hann er yfirleitt settur á til að friðþægja fólk sem öfundast út í fólk með góða menntun og háar tekjur en það er reyndar til nóg af því hér á landi virðist vera.
Dude
By
Nafnlaus, At
8. júní 2009 20:51
Ég er hreint ekki viss um að Davíð sé launahæsti ríkisstarfsmaðurinn. Hvað með Svavar Gestsson sem þiggur eftirlaun sem þingmaður og ráðherra, laun fyrir sendiherrastarf og trúlega laun sem formaður samninganefndar Icesave?
By
Nafnlaus, At
8. júní 2009 21:09
Davíð Oddsson..Davíð Oddsson..Davíð Oddson..Davíð Oddsson..Davíð Oddsson..Davíð Oddsson..Davíð Oddsson..Davíð Oddson..Davíð Oddsson..Davíð Oddsson..Davíð Oddsson..Davíð Oddsson..Davíð Oddson..Davíð Oddsson..Davíð Oddsson..Davíð Oddsson..Davíð Oddsson..Davíð Oddson..Davíð Oddsson..Davíð Oddsson..Davíð Oddsson..Davíð Oddsson..Davíð Oddson..Davíð Oddsson..Davíð Oddsson.....getur nokkuð verið að bloggurum skorti smá hugmyndarafl?
By
Nafnlaus, At
9. júní 2009 00:11
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim