EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

fimmtudagur, 11. júní 2009

Uppgjörið.

Ég fékk svolítið skrýtna tilfinningu í gær. Ég ímyndaði mér að gengið yrði að kröfum Evu Jolie. Að ríkisstjórnin myndi hysja upp um sig buxurnar eftir smánarlega frammistöðu.

Ég ímyndaði mér að það væru 3 saksóknarar, einn um hvern banka. Ég ímyndaði mér að þessir saksóknarar gætu ráðið til sín allt það fólk sem til þarf til þess að skila af sér verkinu með sóma.

Þá gerðist það.

Ég fattaði allt í einu að ég hef aldrei haft trú á því að Hrunið yrði gert upp. Íslenska svæfum-þetta-í-nefnd-aðferðin er sennilega svona inngróin inn í hugsunarhátt minn. Í brjósti mínu bærðist ekki einu sinni von um að hrunið yrði rannsakað nema með kerfisbundu og skipulögðu sleifarlagi, sérpöntuðu til þess að valda sem minnstum usla.

Svei mér þá ef að þetta er ekki að breytast. Ég fékk skyndilega trú á að uppgjör við Hrunið sé mögulegt. Að það sé rétt sem Eva segir. Slóðin er heit og verður það lengi. Trikkið er ekki flókið. "Follow the money".

Ég er hinsvegar sannfærður um að valdamikil öfl í samfélaginu, í stjórnkerfinu og á Alþingi setja nú allt á fullt til þess að hindra eðlilega rannsólkn og vilji helst að pótentátar Sjálfsstæðisflokksins verði látnir rannsaka (eins og alltaf). Ég er líka sannfærður um að angar þessa máls teygji sig á staði sem hingað til hafa verið stikkfrí frá spillingarumræðunni.

Þegar sagt er að uppgjörið við hrunið sé nauðsynlegt fyrir þjóðina þá er það ekki bara vegna þess að réttlátt er að refsa misgjörðarmönnum sínum, heldur er málið í þessu tilfelli að veruleg hætta er á að óútkljáð uppgjör, uppgjör sleifarlagsins, uppgjör að hætti Sjálfstæðisflokksins, kjúfi þjóðina í tvennt um áratugi.

-Við höfum fengið nóg af slíku rugli. Það má ekki gerast.

Flokkar:

5 Comments:

  • Þetta er meira ruglið allt saman...

    http://www.hvitbok.vg/Frett/9395/

    By Anonymous Nafnlaus, At 11. júní 2009 11:42  

  • Eva er Joly
    Angelina er Jolie

    By Anonymous Nafnlaus, At 11. júní 2009 11:50  

  • Uppgjörið verður gert af götunni eða vinstristjórninni. Því trúi ég staðfastlega.

    By Anonymous Héðinn Björnsson, At 11. júní 2009 12:03  

  • Follow the money eða eins og Árni Snævarr þýðir það, finnið Finn.(Ingólfsson)

    By Blogger arri, At 11. júní 2009 12:40  

  • Var hún ekki líka að leggja tilað þessir 3 saksóknarar fengju frjálsar hendur eða fengju mun rýmri völd en nú er. Ég skildi hana hálfpartinn þannig.

    Svoleiðis er það (eða var allavega) í Frakklandi. Rannsóknardómarar (eins og hún var) höfðu mjög rúmar heimildir. Gátu sett menn í grjótið hægri vinstri nánast. Hún beitti slíku í Elf málinu.

    Málið er nefnilega að hún er að koma úr allt öðru umhverfi og hefð en hefur tíðkast á Íslandi, allavega hin síðari ár.

    Þetta er líka spurning um hvernig íslendingar vilja hafa kerfið sitt. Vill fólk að "grunaðir" menn og konur njóti vafans, hve langt mega rannsóknaraðilar ganga að ganga o.s.frv. o.s.frv.

    By Anonymous Nafnlaus, At 11. júní 2009 12:43  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim