EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

laugardagur, 20. júní 2009

Vandinn með ríkisstjórnina...

Ríkisstjórnin er ágæt. Mér sýnist hún vera að taka á erfiðustu málunum. Hrikalegum málum sem skilja óbragð eftir í munni allra ærlegra Íslendinga. Sama þvælan er samt alltaf að koma upp aftur og aftur.

-Upplýsingaskortur.

Einhverra hluta vegna taldi ríkisstjórnin (eða nennti hreinlega ekki) að skýra þjóðinni frá ICESAVE samningnum. Fréttamenn fóru á límingunum. Bloggið brann beinlínis yfir og andstæðingar ríkisstjórnarinnar (sem ábyrgir eru fyrir Hruninu) fylltust óstrjórnlegri gleði og gleymdu um stund því að þau brenndu íslenskt fjármálakerfi niður við rótina.

Eftir skuggalegar samsæriskenningar, afhjúpanir blaðamanna og raunverulegan ótta í brjóstum Íslendinga drullaðist loksins ríkisstjórinn til að gefa út yfirlýsingu þess efnis að samsæriskenningar um fullveldisafsal væru stórlega ýktar og birti um leið allann ICESAVE samninginn eins og hann leggur sig hérna.

Hví birtu stjórnvöld ekki þennann bansetta samning strax! Hversvegna að hræða fólkið með þögninni og gefa þjóðníðingum Framsóknar og Sjálfstæðis, færi á að belgja sig út með samsæriskenningum? Hversvegna var þessi andskotans samningur ekki opinberaður strax!

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem að gjá myndast milli stjórnarinnar og þjóðar. Þessu verður að linna! Við erum nefnilega líka með í "liðinu". Við þurfum m.a að borga fyrir fúskið. Hvað er svona hræðilegt við að ríkistjórn deili upplýsingum með umbjóðendum sínum?

-Hvað er það því? -Getur einhver sagt mér það?

Ég geri mér grein fyrir því að ógnarstjórn Davíðs Oddsonar taldi það merki um aumingjaskap að upplýsa þjóðina um minnstu smáatriði og stjórnaði landinu eins og glæpahyski, en núna eru nýjir tímar.

Stöðugt og réttlátt upplýsingaflæði er best til þess fallið að skapa traust milli ríkisstjórnar og þjóðar. Þegar fólk fær það á tilfinninguna að það sé að verið að pukrast með framtíðina þess, þá skapast kjörlendur fyrir tortryggni og samsæriskenningar. Lýðskrumarar á borði við formann Framsóknarflokksins nýta sér þannig ástand sér til framdráttar.

Nú veit ég að fjöldinn allur af fjölmiðlafulltrúum eru starfandi fyrir ríkisstjórnina en því miður virðast allir þessir ágætu fagmenn vera með hugann við naflakuskið á sjálfum sér frekar en að sinna vinnu sinni af kostgæfni. Þetta fólk ætti barasta að skammast sín. Ekki bara vegna þess að þau eru að klikka persónulega , heldur líka vegna þess að nú er sögulegt tækifæri á að gera eitthvað brillíant, faglega.

En vissulega er undrum líkast hvernig skuggar naflakusksins mynda ótrúlegustu munstur á sólsmurðum maga. -Skuggaspilið glepur.

Flokkar:

11 Comments:

  • Steingrímur missti það sjálfur út úr sér að hann vildi ekki að Icesave yrði síndur þjóðinni.

    By Anonymous Nafnlaus, At 20. júní 2009 22:19  

  • Er fjöldinn allur af fjölmiðlafulltrúum starfandi fyrir ríkisstjórnina? Hverjir? Hvernig? Á hvaða launum? Kominn sparnaðarliður þarna sýnist mér.
    Kv. Solveig

    By Anonymous Nafnlaus, At 20. júní 2009 23:28  

  • Ég er alveg sammála þér. Ef hið opinbera hefði lagt allt fram frá byrjun hefði umræðan í landinu þróast á allt annan hátt. Ef ríkisstjórnin springur á þessu er hún að springa á sínum eigin klúðri og getur engum öðrum kennt um en sjálfri sér.

    Það er líka með ólíkindum að stjórnsýslan skuli ekki vera komin með inn í 21. öldina hvað varðar form og hraða upplýsingargjafar. Hvernig stendur á því að island.is er svona ill skipulagður vefur? Af hverju eru ekki blogsíður með sérfræðingum ríkisins í þessum málum þar sem þeir segja frá staðreyndum málsins og svara þeim aðfinnslum sem koma frá lesendum. Af hverjur er ríkið ekki með fasbook-síðu sem safnar saman svörum sem fólk getur linkað þegar það þarf gögn eða túlkun á málefnum líðandi stundar? Er stjórnsýslan algerlega dómínaruð af fólki yfir fimmtugt eða er hún bara svona rosalega hægvirk?

    By Anonymous Héðinn Björnsson, At 20. júní 2009 23:56  

  • Fínn punktur Héðinn.

    Hversvegna er ekki einhver sem uppfærir island.is á hverju korteri. alltaf með nýar upplýsingar og SVÖR við spurngum sem brenna á þjóðinni.

    By Blogger Teitur Atlason, At 21. júní 2009 00:19  

  • Það eru ekki einungis Sjalla og Framsóknardurgar sem gagnrýna ríkisstjórnina. Ríkisstjórnin getur bara unnið eins og fjórflokkur. Klíka, þöggun, seinagangur . . .

    By Anonymous Nafnlaus, At 21. júní 2009 00:35  

  • Ríkisstjórnin veit ekki einu sinni sjálf hvaða ábyrgð hún ætlar almenningi að axla með IceSave-samningunum.

    Hér er vítamín:
    http://hnakkus.blogspot.com/2009/06/af-gungum-og-druslum.html

    Rómverji

    By Anonymous Nafnlaus, At 21. júní 2009 00:35  

  • Hér getur þú lesið skýringu á því AFHVERJU samningurinn var ekki birtur strax:

    http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/

    Hvaða fréttamenn fóru á límingunum?
    Ruv?
    Eru einhverjir aðrir fréttamenn á Íslandi?
    Ekki hef ég orðið vör við þá.

    By Anonymous Nafnlaus, At 21. júní 2009 06:59  

  • Sæll Teitur
    Gaman að sjá þessa færslu þína miðað við að í færslunni á undan. Telur þú að ekki sé leyfilegt að stjórnarandstaða á þingi haldi uppi gagnrýni vegna sögunnar? Eða er það kannski spurning um hver heldur uppi þessari gagnrýni? Hvaða þingmönnum er leyfilegt að halda henni uppi fyrst GÞÞ er það ekki leyfilegt?
    Kv.
    Sveinbjörn

    By Anonymous Nafnlaus, At 21. júní 2009 09:10  

  • Af hverju er Ísland.is ekki uppfært á korters fresti spyrðu. Ég þykist geta mér til um hluta ástæðunnar a.m.k. og hún er sú að á þessum vef, sem er opinber vefur, verður að gera ríka kröfu um að það sem þar stendur sé rétt.

    Í svo viðkvæmum málum sem IceSave og svo sem öllu öðru sem yfir dynur þessa dagana, hlýtur að vera enn mikilvægara að allt sem þar birtist sé kórrétt og ekki ekki að toga og teygja og túlka. Þetta krefst þess að sérfræðingar á hverju sviði/innan viðkomandi ráðuneytis þarf að samþykkja útfærslu alls sem birtist. Ég veit ekki hvernig útfærsllan á því ferli er núna - hversu smurt þetta gengur. Spurning um forgangsröð auðvitað.

    Ég er algerlega sammála því að ríkisstjórnin/-stjórnirnar hafa skotið sig í fótinn með því að ná ekki betur utan um 'almannatengslin' hvort heldur var gagnvart Bretum á sínum tíma eða gagnvart okkur. Auðvitað áttu þau að taka þetta IceSave dæmi miklu fastari tökum - ekki til þess að geta skammtað okkur upplýsingar á sínum forsendum heldur til að vera ekki alltaf mörgum skrefum á eftir okkur og bjóða þannig upp á endalausan misskilning og æsing. Mæli með Guðmundi Hálfdánarsyni í Fréttablaðinu laugardag í þessu samhengi. Þá á ég við að þar er kærkomin yfirvegun í gangi, (sem opinver vefur þarf líka að búa yfir).

    Mæli líka með 'upphaflegu' Ísland.is sem leynist þarna undir krísu-vefnum og ég er stolt yfir að hafa átt þátt í að koma á laggir. Það má þakka fyrir að þessi vettvangur var tilkominn og gat tekið krísuna í fangið, ef svo má segja.

    Oddný.

    By Anonymous Nafnlaus, At 21. júní 2009 09:19  

  • Yfirleitt eru lánasamningar af þessu tagi ekki birtir sbr. það að þeir sem nú eru í taugaáfalli yfir ákvæðunum hafa ekki hugmynd um að þau eru regla en ekki undantekning.

    En það er rétt að með þennan samning hefðu stjórnvöld ekki átt að taka í mál annað en að hann væri opinber frá byrjun í stað þess að standa í bréfaskriftum við bresk og hollensk stjórnvöld til að fá trúnaði aflétt eftir að samningnum var lekið af lýðskrumurum og hræðsluáróðursmeisturum.

    By Anonymous Nafnlaus, At 21. júní 2009 10:10  

  • þú ert snarruglaður Teitur að vera að reyna að verja þessa ömurlegu ríkisstjórn.
    Hvað eru Samfylkingar-föðurlandssvikararnir að gera okkur íslendingum? Evrópusambandið!
    þú hlýtur að vera grínast eða a.m.k. létt-þroskaheftur. Vaknaðu þyrnirós það er allt að fara til andskotans!

    By Anonymous Nafnlaus, At 21. júní 2009 21:06  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim