Jón Baldvin er með "þetta".
Jón Baldvin ritar besta yfirlit um IceSave fúskið hingað til. Allir sem snefil hafa af áhuga á samfélagsmálum ættu að lesa þessa grein. Hérna er smá úrdráttur úr ritsmíð Jóns Hannibalssonar:
Lesið þetta sómalausu Sjálfstæðismenn! Lesið þetta þótt það yrði ykkar síðasta verk.
-lesið þetta.
-Lesið þetta.
Icesave-málið snýst í innsta kjarna sínum bara um eina spurningu: Hvers vegna ber fiskverkakonunni hjá Granda skylda til að borga skuldir Björgólfanna (og attaníossa þeirra), sem græddu á tá og fingri í uppsveiflunni og komu fjármunum sínum úr landi (og framhjá skattyfirvöldum), án þess að íslensk stjórnvöld hreyfðu legg eða lið? Það er svo önnur spurning, hvort það er eitthvað réttlæti í því að formaður Vinstri-grænna – í hlutverki fjármálaráðherra – skuli þurfa að hreinsa eftir þá skítinn og taka út allar óvinsældirnar af skattahækkunum og niðurskurði velferðarþjónustunnar á sama tíma og forystumenn Sjalfstæðis- og Framsóknarflokks gera hróp að honum og berja sjálfum sér á brjóst í nafni þjóðrækni og föðurlandsástar. Heyr á endemi!og ennfremur:
Nú er upplýst, að IMF skilyrti lánafyrirgreiðslu sína við Ísland því, að Ísland stæði við lágmarkssparifjártrygginguna gagnvart Icesave. Það dugði ekki, að ríkisstjórnin lofaði að gera það, sem hún gerði, þeir kröfðust lagalega skuldbindandi yfirlýsingar frá þar til bærum stofnunum íslenska ríkisins, þ.e.a.s. Seðlabankanum og fjármálaráðuneytinu. Skuldbindingarskjalið frá 19.nóv.2008 ber undirskriftir Davíðs Oddssonar, seðlabankastjóra og Árna Matthiesen, fjármálaráðherra.
Lesið þetta sómalausu Sjálfstæðismenn! Lesið þetta þótt það yrði ykkar síðasta verk.
-lesið þetta.
-Lesið þetta.
Flokkar: Fjölmiðlagagnrýni, Stjórnmál


12 Comments:
Æ, ég nenni ekki að lesa þetta væl.
By
Nafnlaus, At
1. júlí 2009 13:45
Æ, ég nenna ekki að lesa þetta væl, skrifar einn.
Er Íslendingum nokkuð viðbjargandi?
By
Nafnlaus, At
1. júlí 2009 14:07
En nennir að skilja eftir athugasemd?
By
Teitur Atlason, At
1. júlí 2009 14:08
Þeir hafa enga sómakennd, hví skyldu þeir nenna að lesa þetta? Og hverjum stendur ekki á sama um þetta volaða hyski?
By
Nafnlaus, At
1. júlí 2009 16:27
tEitur þvílíkur heilaþveginn samfylkingarlúser
By
Nafnlaus, At
1. júlí 2009 21:46
Hjartanlega sammála þér Teitur. Jón Baldvin hittir algjörlega naglann á höfuðið þarna. Eins og talað út úr mínu hjarta.
By
Nafnlaus, At
2. júlí 2009 02:52
Hárrétt hjá Teiti "Göteborgare". JBH hefur þetta á hreinu enda mælskasti og ritfærasti maður úr stjórnmálastétt sem við eigum í dag. Hann var reyndar óþolandi hér á tímabili sem hægri krati og vogaði sér að gagnrýna Olof Palme um miðjan níunda áratuginn þegar þörf var mest á að fylkja liði gegn stórhættulegri vígbúnaðarstefnu Reagans.
En JBH hefur aftur fundið fjölina sína, batnandi manni er best að lifa og greining hans á ástandinu í dag er hárnákvæmlega rétt og sett fram af afburða mælsku.
BGJ
By
Nafnlaus, At
2. júlí 2009 09:51
jón er álíka ferskur og úrbrædd bílvél
By
Nafnlaus, At
11. júlí 2009 11:15
Jón er útúr kú eins og venjulega
By
Nafnlaus, At
12. júlí 2009 01:03
Þetta er rétt Teitur minn Jón Baldvin er með "þetta" sem almennt er kallað grautur í heilastað. Maðurinn er augljóslega ekki með fúlle femm
By
Nafnlaus, At
12. júlí 2009 22:37
AHHH maður verður bara syfjaður!
Jónki Ball með "þetta"
Vaknaðu Teisi
By
Nafnlaus, At
14. júlí 2009 19:44
Það er vonandi rétt að JBH hafi fundið síðustu fjölina í líkkistu heimskunnar. Er ekki kominn tími til að karlinn fari að bródera á elliheimilinu. Þið starfsmenn á Grund takið endilega ritvélina af gamalmenninu áður en hann skrifar fleiri greinar.
By
Nafnlaus, At
15. júlí 2009 21:24
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim