EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

laugardagur, 18. júlí 2009

Komin heim

Við fjölskyldan erum á Íslandi þessa daganna. Sumarfrí og bloggfrí. Það er fínt. Við erum nýkomin frá Flatey þar sem við dvöldum í húsi fjölskyldunnar í góðra vina hópi. Það er sem er svo frábært við Flatey er að ekkert breytist nema að fólkið eldist. Krakkar sem ég lék mér við eru orðin fullorðin með krakka sem leika sér saman. Tíminn fær einhvernvegin æðri vídd og setur lífið í rétt samhengi. Eyjan breytist lítið. Krían skrækir og kjóinn gellur. Öldurnar leika við svarta steinanna. Himinninn. Já himinninn er alltaf jafn blár og alltaf jafn grár. En það er sólin sem kemur mér alltaf á óvart. Hún er stundum appelsínugul.

Á leiðinni keyrðum við um feitar sveitir Snæfellsness og Borgarfjarðar innan um blá fjöll sem finnast hvergi í Svíþjóð. Læki fulla af laxi og gular breiður af grasi. Þessi klettur okkar er góður staður. Sannarlega góður staður.

Við getum búið hér til sómasamlegt samfélag en það verður ekki átakalaust. Það þarf að berjast fyrir því. Ekkert fæst án fyrirhafnar og hvert einasta skref í átt að betra samfélagi er varðað og vaktað af hópum hvers óréttlætið er hin æðsta dyggð.

Nú þarf að spýta í lófana. Tína upp sprekin eftir Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn. Byggja upp að nýju til móts við betri framtíð.

Flokkar:

6 Comments:

  • já já vinur. Ekki gleyma að samfylking var í síðustu ríkisstjórn líka.... grow up!

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. júlí 2009 01:04  

  • Engar áhyggjur ágæti Nafnlaus. Þetta viðhorf þitt er einmitt kjarninn í því sem verður að breyta eigi landið að verða byggilegt að nýju.

    Það verður að fara að fylla upp í skotgrafirnar.

    Ummæli þín eru þér til skammar.

    By Blogger Teitur Atlason, At 18. júlí 2009 01:25  

  • Þú ættir þá kannski að koma þér upp úr þeim.

    Athugasemd nafna míns eru honum ekki frekar skammar en ummæli þín.

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. júlí 2009 04:16  

  • Nú er ég hættur að skilja. Ég rita tiltölulega meinlausa bloggfærslu um Flatey og ruslið eftir Sjálfstæðið og Framsókn. Nafnlaus 1 kemur þá fram og baunar á mig að Samfylkingin hafi líka verið í síðustu ríkisstjórn!!

    Ég bendi N1 á að viðkomandi þurfi að líta upp úr skotgröfunum

    Þá kemmur Nafnlaus 2 til sögunnar og segir mig vera ómerking.

    Ég nenni ekki að stappa svona við vanvita.

    By Blogger Teitur Atlason, At 18. júlí 2009 09:28  

  • Átti þett ekki að vera "Á leiðinni keyrðum við um feitar sveitir Snæfellsness sem eru í einkaeigu og Borgarfjarðar innan um blá fjöll sem finnast hvergi í Svíþjóð. Læki fulla af laxi sem almenningur má ekki veiða og gular breiður af grasi sem búið eru að selja. Þessi klettur okkar er góður staður. Sannarlega góður staður fyrir kapítalista.
    Kv. Hörður Tómasson

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. júlí 2009 13:19  

  • Þetta eru asnar Guðjón ;-)

    En hvað segirðu ... trúi varla að það sé Kjói í Flatey óáreittur - enginn með haglara?
    Getur það verið að það hafi verið stelkurinn sem hvellti á þig?

    kveðja
    Anna Sigrún

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. júlí 2009 22:04  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim