EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

sunnudagur, 26. júlí 2009

Krati en ekki Samfylkingarmaður.

Ég er krati. Ég er samt ekki Samfylkingarmaður. Ég aðhyllist evrópukratisma. Ekki Blair-isma. Samfylkingin í núverandi mynd getur aldrei verið einhver samnefnari fyrir vinsta fólk á Íslandi. Vinstri græn eru mikið nærri þeirri hugmynd. Ef þau halda rétt á spilunum gætu þau hæglega tekið við kyndlinum sem hinn stóri og stefnumarkandi vinstri flokkur á Íslandi. Mér sýnist þau vera að gera allt rétt meðan Samfylkingaþingmenn þegja. Vandinn við Samfylkinguna er allt í senn Blair-isminn og biðraðaséníin. En biðraðaséníin eru duglaust og hæfileikalaust fólk sem þekkir ekki hugtök á borð við æruverðugleika og skyldurækni. Kunna bara að plotta sig áfram innan kerfisins og eiga það sammerkt að geta þvaðrað um ekki neitt.

Vinur minn sem er harður hægri maður og dyggur stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins uns Hrunið óð yfir líf hans og fjölskyldu, sagðist ekki ætla kjósa Sjálfstæðisflokkinn fyrr en hann væri búin að greiða hverja einustu krónu af FL-group / Landsbanka mútunum. Þetta þykir mér gáfulega sagt og bera vott um heilbrigða hörku.

Ég ætla ekki einu sinni að íhuga það að kjósa minn gamla flokk fyrr en allir, hver og einn einasti þingmaður og ráðherra vanhæfu ríkisstjórnarinnar er hættur og farinn.

Annað væri merki um undirlægjuhátt af yfirgengilegri stærðargráðu. Endurnýjun Samfylkingarinnar er knýjandi. Út með gamla liðið og inn á með fólk með óflekkað mannorð og æru.

Flokkar: , ,

15 Comments:

  • Er er rati :)

    Rómverji (rosalega fyndinn)

    By Anonymous Nafnlaus, At 26. júlí 2009 00:28  

  • Sorrí. Eg er rati

    Rómverji

    By Anonymous Nafnlaus, At 26. júlí 2009 00:29  

  • Hendi hér með Samfylkingarstimplinum sem ég hef haft við hönd mína þegar ég hef lesið bloggið þitt.

    Við erum á svipaðri skoðun eftir allt saman sem og fjölmargir aðrir Íslendingar.

    -Snorri

    By Anonymous Nafnlaus, At 26. júlí 2009 00:31  

  • Endurnýjun. Hvað með stjórnsýsluna, ráðuneytin, stofnanir? Hvað með dómstólana?

    Rómverji

    By Anonymous Nafnlaus, At 26. júlí 2009 00:32  

  • Sammála þér í morgun. En ég persónulega mun aldrei kjósa samfylkinguna aftur. Ef þetta er alvöru hugsjónafólk þá ætti að vera lítið mál að stofna nýja stjórnmálahreyfingu. Prófa að byrja aftur með aðeins minni peninga. Láta fólk vera meira þakklátt fyrir það traust sem það hlýtur.

    By Anonymous Nafnlaus, At 26. júlí 2009 00:41  

  • "Endurnýjun Samfylkingarinnar er knýjandi. Út með gamla liðið og inn á með fólk með óflekkað mannorð og æru."
    Svo sammála þessu...
    Kv. Solveig

    By Anonymous Nafnlaus, At 26. júlí 2009 00:48  

  • Hale-fokking-lúja!

    kv. Bjarki

    By Anonymous Nafnlaus, At 26. júlí 2009 00:52  

  • þú ert heimskari en ég hélt. Vg kratar...eitthvað það besta sem ég hef heyrt.

    kv Guðjón

    By Anonymous Nafnlaus, At 26. júlí 2009 01:13  

  • VG verður aldrei trúverðugur kostur fyrir krata meðan þeir halda áfram að hata Esb út af einhvers konar misskildum þjóðernisrembingi. Ég hef aldrei skilið það. Ef þú villt hafa áhrif á umhverfismál og þróunaraðstoð hvort er betra að gera það innan esb eða utan? Þau vilja norræna velferðarstjórn, öll norrænu velverðarríkin eru í esb fyrir utan noreg.

    By Anonymous Davíð R. Gunnarsson, At 26. júlí 2009 06:51  

  • Meirihluti Íslendinga eru kratar en meirihluti núverandi stjórnmálamanna tækifærissinnar án sannfæringar eða réttlætiskenndar. Við þurfum einmitt á svona hreinskilni að halda en ekki blindri flokkshollustu.
    TH

    By Anonymous Nafnlaus, At 26. júlí 2009 08:26  

  • Rétt, við þurfum algera endurnýjun fólks á öllum sviðum og í öllum flokkum.

    By Anonymous Arinbjörn Kúld, At 26. júlí 2009 10:16  

  • Teitur

    Já sæll

    Hvað ætlarðu þá að kjósa þangað til að heimurinn verður fullkominn?

    Svona ideal pælingar eru fínar en þetta er afneitun á veruleikanum eins og hann er og það er skaðlegt.

    Evrópukratar eiga helst skjól (eingöngu kannski?) hjá Samfylkingunni og sá flokkur er að berjast fyrir hugsjónum þínum.

    Það að þú ætlir að kyssa vöndinn finnst mér ekki bera vott um mikið innsæi.

    By Anonymous Nafnlaus, At 26. júlí 2009 10:24  

  • Flestir menn eru í eðli sínu tækifærissinnar. Það breytist ekkert. Menn geta samt verið sæmilega heiðarlegir og farið eftir settum reglum. Það er íslenska kerfið sem hefur verið að byggjast upp áratugum saman sem gefur völdum hópum tækifæri sem aðrir fá ekki. Við sjáum skyldleikaræktunina og hagsmunapotið víðar en í stjórnmálaflokkum og stjórnmálum. Skoðið t.d. leikarastéttina - hverjir hafa forgang að kjötkötlunum þar, frá fæðingu. Það er þessi inngróna samtryggingarviðleitni sem okkur á eftir að ganga illa að losna við. Alvöru hugsjónafólk!? Það er vandfundið. Yfirleitt stimplað sem rugludallar af andstæðu hagsmunaliði.

    By Anonymous Nafnlaus, At 26. júlí 2009 10:25  

  • Ps. Skv. skilgreiningu þinni þá ættir þú ekki að geta búið á Íslandi (eða komið hingað) vegna þess að ALLIR sem hér búa bera ábyrgð á hruninu.

    Íslendingar, almenningur, var með brenglað gildismat og þjáðist af neysluhyggju og græðgisvæðingu.

    Teitur, ég held því að þú sért of góður fyrir þjóðina...og alla flokka um leið:)

    By Anonymous Nafnlaus, At 26. júlí 2009 10:26  

  • Meistari Teitur hittir hér naglann á höfuðið. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir er eini nothæfi þingmaður Samfylkingarinnar og þyrfti að gera hana að formanni með hraði. Samfylkingin hefur algjörlega sagt skilið við alþýðu íslendinga. Eftir standa upphrokaðir háskóladindlar sem tala niður til þjóðarinnar. Jóhanna sem búin er að sitja bráðum 32 ár á Alþingi er algjörlega búin að missa það sem fulltrúi hins venjulega Íslendings.
    Samfylkingin er einfaldlega orðið að pólitísku hæli fyrir smjörgreidda sjálfstæðismenn sem munu snúa tilbaka í sinn gamla flokk þegar niðurstaða verður fengin í Evrópumálin. Sú niðurstaða verður óhjákvæmilega sú að Evrópuaðild verður kolfelld.

    By Anonymous Nafnlaus, At 26. júlí 2009 12:24  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim