EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

föstudagur, 18. desember 2009

800 dagar - - - 350 miljarðar

Davíð Oddson var Seðlabankastjóri 25. okt 2005 - 26. feb. 2009. Samtals 1220 daga. Ef við drögum helgidaga og sumarfrí frá, var hann við störf í um 800 daga. Ég tel ekki með síðasta daginn.

800 dagar x 7,5klst = 6.000 klst.

DO skyldi við Seðlabankann í um 350 milljarða króna skuld (350.000.000.000.). Þá erum við ekki að telja með þá skuldaklafa sem einkavinir hans lögðu á þjóðina.
Seðlabankinn undir stjórn DO tapaði hvorki meira né minna en rúmum 58 milljónum íslenskra króna hverja einustu klukkustund sem hann var við störf.
Geri aðrir betur.

Ef við reiknum áfram, þá tapaði Seðlabanki Íslands undir stjórn Davíðs Oddssonar (sem btw varaði við þessu öllu!), um 1,1 milljón á hvern Íslending. Já, núlifandi Íslendingar og ófædd börn þurfa að greiða 1,1 milljón hvert, plús vexti, sem gæti numið allt að þremur milljónum. Já allt að þremur milljónum á hvern Íslending. Er ekki nema von að Sjálfstæðisflokksmenn vilji beina athygli almennings að Icesave (sem btw er afurð Sjálfstæðisflokksmanna!)?

Kemst þetta afrek seðlabankastjóra ekki í heimsmetabók Guinness?

23 Comments:

  • Frábært hjá þér Teitur!!!! Frábært!!!

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. desember 2009 08:13  

  • kannski ferðamálaráð fari að vinna í að prómótera aulaskabinn sem setti þjóðina á hausinn:

    Að kom DO í heimsmetabók væri eitt skref. Næsta skref væri að breyta Seðalbankanum og stjórnarráðinu í Vaxmyndasafn þar sem hægt væri að horfa á aulana í fullri stærð. Toppurinn væri að halda Útrásarvíkinga Pig Out í veiðihúsinu hjá Ingva Hrafni þar sem þáttakendur mættu drekka sig mígfulla og leika sér að kasta fjöreggi íslensku þjóðarinnar á milli sín ælandi og ríðandi í kringum húsið.

    By Blogger Thrainn, At 18. desember 2009 08:34  

  • Þetta er með ólíkindum.

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. desember 2009 09:02  

  • Mikill er moðreykurinn..

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. desember 2009 09:35  

  • Farðu nú að fá lækningu við þessu Davíðs-heilkenni sem vinir þínir í Samfylkingunni hafa eitrað þig með.

    Hvað segja múslímskir samborgarar þarna í Svíþjóð yfir því að þú skulir vera það sem þeir (og þú sjálfur) kalla vantrú?

    Kannski að ættirðu að gerast múslími og læknast þar með af Davíðs-heilkenninu.

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. desember 2009 11:03  

  • Ég ætla ekki að borga þetta. Ekki að ræða það.

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. desember 2009 11:18  

  • Hehe skemmtilegar pælingar og útreikningar.

    By Blogger spritti, At 18. desember 2009 11:39  

  • Ég verð að segja að athugasemd hins nafnlausa frá 11:03, hefur dýpkað skilning minn á umræðunni og bloggi Teits Atlasonar og veitt mér nýja innsýn inn í hugarheim hans.

    Hvar væri landið statt án svona spekinga á borð 11:03?

    By Anonymous Agnar Kr. Þorsteinson, At 18. desember 2009 12:09  

  • Já, þessum 11.03 nafnlausa svíður greinilega sárt að bent sé á eitthvað sem Davíð hans hefur illa gert.

    En þú huglausi 11.03 nafnlausi, sem þorir ekki að birta nafnið þitt, gagnrýni á vanræsklu Davíðs Odssonar í starfi forsætisráðherra og seðlabankastjóra, hefur ekkert með hægri og eða vinstri að gera og ekkert með kristna trú eða múhameðstru að gera,

    By Anonymous Margret Run, At 18. desember 2009 12:37  

  • Er hægt að sjá eitthvað með rauðum gleraugum í moðreyknum Teitur?


    LS.

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. desember 2009 14:07  

  • Nafnlaus 14.07.

    Þegar snillingurinn bendir til himins, horfir fíflið á fingurinn.


    AH

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. desember 2009 14:44  

  • Hvernig væri að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort við viljum borga þetta....

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. desember 2009 15:42  

  • Ég hef tjáð mig nafnlaust hér á síðu Teits af ótta við bláu höndina, hún nær langt- rétt eins og armur Saurons.

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. desember 2009 16:26  

  • Þegar icesave-klúðrið er búið að ná nýjum víddum í aula og gunguskap byrjar Samfylkingarkórinn að kyrja Davíð Oddsson eina ferðina enn alveg ofboðslega þreytt.
    Þessir útreikningar Samfylkingar og VG á meintu klúðri Davíðs eru í besta falli hlægilegir. Þarna er verið að blanda saman nokkrum ólíkum tölum til að fá fyrirfram gefna niðurstöðu. Allir sem nenna að kynna sér þetta sjá þetta augljóslega. Jóhanna og Steingrímur leyta logandi ljósi að einhverju sem getur snúið umræðunni, en því miður tekst það ekki því íslendingar eða u.þ.b. 70% þeirra eru einfaldlega of gáfaðir fyrir áróðursvél Samfylkingarinnar.

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. desember 2009 21:07  

  • Nafnlaus 21.07

    Getur þú rökstutt mál þitt frekar?

    AH

    By Anonymous Nafnlaus, At 18. desember 2009 23:28  

  • voðalegt bull er þetta Teitur. Seðlabankinn gerði það sem hann gat til að bankakerfið hryndi ekki. Því miður var það ekki hægt og þá töpuðust peningar. Davíð Oddsson tók sannarlega ekki einn þessar ákvarðanir, m.a stjórn Seðlabankans þar sem sátu t.d. fulltrúar Samfylkingarinnar og þingmaður þeirra sagði af sér og baðst afsökunar á hagstjórnar mistökum sínum,þ.e frú Sigríður Ingibjörg. Svona bull er ekki fólki bjóðandi þetta er bara hatur.

    By Anonymous Nafnlaus, At 20. desember 2009 10:45  

  • Elsku vinur. Mikil eru orð þín, og sönn....en bið ég um eitt, lítil hátíðarósk...! Að snilldar penni eins og þú rífi þitt rassgat upp og taki á málum daxins. DO umræðan er að verða helv.... þreytt, gamlar og sveittar sleggjur á xd eru gamlar fréttir. Við verðum að horfast í augu morgundaxins.

    Því bið ég þig, kæri vinur, að snúa kröftum þínum og innsægi (sem er sérstakt) að nú líðandi stundu og hvernig við, íslendingar, tökumst á við næsta ár, 2010. Sérstaklega þá framtíð sem við viljum móta.

    Óska ég hér með eftir pistli frá þér sem snýr ekki að niðurrifi heldur uppbyggingu og framtíðarsýn.

    Segi ég þetta sérstaklega vegna þess að allt of margir bloggarar eru endalaust að velta sér uppúr liðnum atburðum sem verða ekki afturteknir.

    Okkar bíður framtíð sem er hvernig????

    Ræðum það !

    F

    By Anonymous Nafnlaus, At 23. desember 2009 01:42  

  • Ágæti F. Ég er svo svartsýnn á framtíð Íslands að ég get varla velt mér upp úr því. Ástæðan er fyrst og fremst heilaþvottur Sjálfstæðisflokksins sem gengur m.a út á að sameign sé slæm. Náttúruauðlyndir Islands eru t.d fyrir margt löngu komnar í einkavinaeigu FLokksmanna.

    Athugaðu að 1/3 landsmanna eru hugtrylltir sækópatar og kjósa trekk í trekk flokkinn sem níddi þá inn að skinni. Setti landið á hausinn með þvílíkum bravúr svo eftir verður tekið um ókomnar kynslóðir.

    Þetta er einfaldlega of stórt mengi til að heilbrigt samfélag geti þrifist. Ekkert samfélag ræður við svo marga sækópata.

    By Blogger Teitur Atlason, At 23. desember 2009 11:37  

  • Gleðileg jól Teitur. Ég er líka svartsýnn, enda með þetta Davíðs-heilkenni. Skil reyndar ekki almennilega hvað um er að ræða og hvað veldur.
    Það eina sem ég veit er að einkenni heikennisins eru þessi: Að skilja ekki af hverju má ekki nefna Davíð Oddsson á nafn nema lotning og hól fylgi með. Ef vottar fyrir neikvæðni, þá hefur maður þetta heilkenni. Mér skils að þetta megi lækna með því að taka upp íslamtrú.
    Sé reyndar ekki samhengið. Og svo nenni ég því ekki og vil frekar sætta mig við að lifa með kvillann, og fá skammir fyrir frá þeim ósýktu -3ji hverjum mammi í landinu. Skítt með það.
    Karl

    By Anonymous Nafnlaus, At 24. desember 2009 15:30  

  • ´Gleðileg Jól Teitur en sorí mér finnst Davíð langflottastur.

    By Anonymous Nafnlaus, At 24. desember 2009 17:19  

  • Teitur, hver var skuldastaðan þegar DO tók við? Hverjar eru afleiðingar hruns fjármálakerfis heimsins á skuldirnar? Má ekki deila ábyrgðinni á alla bankastjórana þrjá?

    Ég velti þessu fyrir mér þar sem ég sé göt í þessu bloggi þínu og þætti vænt um svör þar sem ég þekki þetta ekki nógu vel.

    By Anonymous Nafnlaus, At 26. desember 2009 12:09  

  • Sjálfsagt má deila ábyrgðinni á þessa þrjá. Hinvegar er DO stjarnan allstaðar sem hann kemur og það dylst engum hvar valdið lá meðal þeirra þriggja.

    En svona er þetta stundum þar sem hinn niðurskrifaði heimur, klessir á veröldina eins og hún er í raun og veru. Valdið liggur ekki þar sem það er skrifað, heldur í persónum og leikendum.

    Og auðvitað er þetta blogg götótt. Þetta blogg endurspeglar skoaðnir minar þegar það er skrifað og ekkert merkilegt við það.

    By Blogger Teitur Atlason, At 26. desember 2009 13:38  

  • Ef að sameign er slæm og einkaeign eina vitið, af hverju voru þá öll þessi einkahlutafélög útrásar- og kúlulánamannanna að fara á hausinn?

    By Anonymous Nafnlaus, At 28. desember 2009 14:50  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim