EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

miðvikudagur, 30. desember 2009

Icesave er lífæð Sjálfstæðisflokksins.

Veruleikinn er stundum fáranlegri en sýrðasti skáldskapur. Þannig er það nú bara. Sérkennilegustu aðstæður koma upp í veruleikanum sem enginn rithöfundur gæti mögulega toppað. Sjáið bara þegar Geir Haarde ætlaði að vera svona statesmanlike eins og í Bandaríkjunum og gera eins og Ameríkaninn. God bless America- eitthvað.

Þýðingin varð að sjálfsögðu Guð blessi Ísland. Í samhengi ræðunnar var þetta eins og að kasta napalmhylki á óttabálið sem logaði í hjörtum landmanna. -Þetta er eigilega fyndið svona eftir á.

Annað dæmi er að af öllum fjárfestingum röndótta Björgúlfs, var ein sem skar sig út í bjánaskap er talið var. Það var fótboltafélagið Vestham. Nú er allt hitt hrunið og orðið að dufti en boltanum er enn sparkað á Vestham-vellinum. Eina sem eftir er og býsna sniðugt að mér skilst.

Svona er þetta nú skýtið stundum.

Nýjasta tvistið í örlagateyjó veraldarinnar er staðan sem Sjálfstæðisflokkurinn er komin í. Ég þarf smávegis áhlaup á pælinguna því snúningurinn er svo magnaður. Eftir að hafa haft 18 ár til að koma stefnunni sinni í framkvæmd, hefðu maður ætla að það hefði tekist, því tíminn var jú rúmur og heljartök FLokksins náði allt frá æðstu stöðum yfir í sundlaugaverði út á landi. FLokkurinn gróf sig inn í alla helstu pósta stjórnkerfisins og kom "sínu" fólki að. Samhliða ótrúlegri einkavæðingu á bönkunum þar sem þeir voru seldir vildarvinum FLokksins (Búnaðarbankinn til Framsóknar). Flokkurinn lýstu svo yfir strí.....
.............

..............Hvað er ég eiginlega að skrifa þetta. Allir vita þetta hvort sem er og Sjálftæðið viðurkennir þetta meir að segja.

Stutta útgáfan er að stefnan er hruninn. Forrysta flokksins afhjúpuð sem spillt og vanhæf. Flokkurinn sundurtættur af mútum vafasömum gerðum forrystunnar. Hugmyndafræðin ónýt, löskuð og skemmd.

Það eina sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur er andstaðan við Icesave. Sem er eiginlega dásamlegt ef út í það er farið, því Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur er innvinklaður á bólakaf inn í upphaf þess máls, skipulagningu og útfærslu!!! Þetta er eins og.... Já hvað?

Svo virðist vera að stærsta skömmin þeirra ætli að reynast þeirra eini bjarghringur. Með þvi að garga sem hæst um rýtingsstunguna, ranglætið, óreiðumennina (sem reyndar eru allir í FLokknum) og kúgun nýlenduþjóðanna, níðinginn Gordon Brown og hinn þarna Alister Maclean, mun FL0kkurinn alveg ná að hanga á limminu.

Hinsvegar...

Sér fólk í gegnum þetta gól og garg. Við sjáum í gegnum Björn Bjarnason og tilraunir hans til að blekkja veikustu hlekkina í VG til fylgilags við sig. Við sjáum líka í gegnum réttritunar æfingar Davíðs Oddsonar á Íslandssögunni og embættisfærslum hans sjálfs. Ég held að gólið dugi skammt. Skandalarnir eru bara of stórir. Um leið og sjóinn lægir munu stóru málin reka á land. 900 miljóna skuld og afskrift til handa varaformanninum. Vafasamar græðgisfærslur formannsins sjálfs. Já og við munum sennilega komast til botns í mútumálinu (sem rangnefnd er "styrkjamálið") Tengsl Guðlaugs Þórs og Sigurjóns Árnasonar, aðkoma varaþingmannana Þórlindar Kjartanssonar og Erlu Ósk Kjartansdóttur að Icesavemálinu.

Þetta er allt eftir þótt ótrúlegt megi virðast.

Eftir Icesave munu þessir skandalar skola að landi. þeir munu verða teknir fyrir og vonandi leystir á einhvern hátt. Það eru ekki spennandi tímar fyrir Sjálfstæðisflokkinn eins og hin skuldum vafði varaformaður sagði í miðju hruninu.

-Það eru skelfilegir tímar fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Flokkar:

16 Comments:

  • Happy New Year !!!

    2010 New Year's Fireworks show

    http://fireworks2010.blogspot.com/

    By Blogger Jupiter Family, At 30. desember 2009 14:21  

  • Þeim mun ekki skola að landi með rannsóknarskýrslunni ef þú heldur það. Ráðning Jóns Sigurðssonar er besta sönnun þess að menn eru ekki einu sinni á tánum. Þeir traðka nú sem aldrei fyrr.

    By Anonymous Nafnlaus, At 30. desember 2009 14:31  

  • Það mun ekkert breytast fyrir eða eftir Icesave. Þessi stjórn er alveg eins og sú fyrri. Hún rembist við að flýta sér við allt sem hinir myndu gera hvort eð er. Hver er eiginlega hræðslufaktorinn í því að þessi falli?

    By Anonymous Nafnlaus, At 30. desember 2009 14:36  

  • Sæll Teitur
    Merkilegt hvað menn geta verið hræddir við FLokkinn í stað þess að hafa áhyggjur af þeirri stöðu sem við erum í og hvernig við getum unnið okkur úr henni.
    Vissulega hefur verið illa haldið á hlutum eins og þú bendir réttilega á en það afsakar ekki óvönduð vinnubrögð núverandi ríkisstjórnar.
    Er ekki bara tímabært að hreinsa verulega til á þingi, sama í hvaða flokki menn eru. Fá þangað inn hæfa aðila sem eru ekki að drekkja sér í fortíðinni heldur horfa fram á veginn og vinna að vegferð landsins.
    kv. Hermann

    By Anonymous Nafnlaus, At 30. desember 2009 14:37  

  • Já. það er allt í lagi að ljúga að fólkinu.

    Ástæðan?

    Jú fyrri ríkisstjórnir gerðu það.

    Þetta er nýja Ísland.

    Og ég skil ekki að þú sjáir mun á S eða D eða jafnvel B... sama draslið annar bókstafur...

    jÓlinn

    By Anonymous Nafnlaus, At 30. desember 2009 14:47  

  • Hermann, það þarf að gera upp fortíðina einnig en ekki leggja hana til hliðar. Ef hún verður ekki gerð upp þá getum við kvatt þetta samfélag sem slíkt. Það verður alltaf sundrað og heiftin mun magnast upp þar til að sprengjan springur og einhver af sökudólgunum verður festur upp í næsta ljósastaur.

    það sem þarf nú er alvöru uppgjör við Sjálfstæðisflokkinn í anda sannleiksnefndar S-Afríku eða Nuremberg-réttarhöld yfir þeim.

    Og ég ætla að leyfa mér að fullyrða svo að Sjálfstæðisflokkurinn í sínum iðrunarlausa, ábyrgðarlausa og samviskulausa ham við að ná völdum aftur til að hindra uppgjör og bjartari framtíð, er mun meiri ógn við þjóðina en IceSave og annað getur nokkurn tímann verið.

    By Anonymous Agnar Kr. Þorsteinson, At 30. desember 2009 14:50  

  • Ríkisstjórin er alveg að sönnu að skíta í buxurnar með þvílíkum bravúr, á stundum sem það barasta má ekki.

    jóhanna á að stoppa ráðningu flokksdindilsins Jóns Sigurðssonar eins og skot. Ekki er hægt að skýla sér bakvið að hún ráði ekki neinu. Ef svo er á hún að hvetja til áhlaups á bankann.

    Ef ekki hefði komið upp þetta Jónsmál væri staðan önnur og betri. Jón á náttúrulega að fatta að hans nærveru er ekki óskað af þjóðinni. Hann á að hætta sjálfviljugur.

    By Blogger Teitur Atlason, At 30. desember 2009 14:57  

  • Þetta er ódýr skýring, má ekki alveg eins snúa þessu þannig að Icesave sé lífæð ríkisstjórnar Samfylkingar og VG.

    By Anonymous Nafnlaus, At 30. desember 2009 14:59  

  • Ríkisstjórnin er akkúrat ekki að gera það. Það er ekki Jóns að fatta heldur þitt Teitur. Og þitt Agnar.

    By Anonymous Nafnlaus, At 30. desember 2009 14:59  

  • Ég er fullkomlega sammála þér Teitur og þér Agnar.
    Sjallar eru nú að rembast til þrautar við að fella þessa ríkisstjórn með dyggri aðstoð Framsóknar. Ég tek undir orð Össurar þegar hann sagði í hádegisfréttum að þegar Icesave væri frá hefði Sigmundur Davíð ekkert mál til að berjast fyrir lengur. Hann fór á þing þar sem hann stóð fyrir Indifencehópnum.
    Nú á bara að ljúka þessu málþófi og kjósa um þetta mál. Ef Sjallar og Framsókn væru við völd væru þeir löngu búnir að slýta þessu málþófi og stjórnarandstaðan hefði ekki fengið neitt um það að segja.
    Nú er stjórnarandstaðan að sýna fáránleika íslenskra stjórnmála á fáránlegasta leiksviði meðal siðmenntaðra þjóða. Skömmin er þeirra. Stjórnarandstaðan fær mitt atkvæði sem skussar ársins.

    By Anonymous Nafnlaus, At 30. desember 2009 16:50  

  • Gleymum ekki framlagi Davíðs Oddssonar til síðasta landsfundar Sjálfstæðisflokksins

    http://wms0a.straumar.is/xd/DavidOddson.wmv

    Takið sérstaklega vel eftir Bjarna Benediktssyni í klappkórnum. Ég mæli einnig með klappi Þorgerðar Katrínar.

    Þetta minnir mig helst á upptökur frá síðasta flokksþingi rúmenskra kommúnista undir stjórn félaga Sjáseskú 1989.

    Sigmundur Guðmundsson stærðfræðingur

    By Anonymous Nafnlaus, At 30. desember 2009 16:50  

  • Úr því að farið er að ræða málefni Jóns Sigurðssonar, þá er mín spurning þessi: Hver réð Jón? Samfylkingin? Getur ríkisstjórnin komið í veg fyrir þessa ráðningu? Væri hún þá ekki að íhlutast í málefni einkafyrirtækis? Með þessum spurningum er ég ekki að réttlæta þessa ráðningu.

    Þó Sjálfræðisflokkurinn og frammarar (þeir virðast ansi oft gleymast í þessari umræðu) ættu að gera upp sín málefni í tengslum við hrunið þá ætti Samfó að gera slíkt hið sama. Stofna nefnd sem fer yfir þátt Samfó í tengslum við hrunið og hvernig flokkurinn lítur á framtíðina.

    Annars er kristaltært að stjórnarandstaðan (mínus Hreyfingin) er með andstöðu sinni að reyna að sprengja stjórnina. Með því að komast til valda er möguleiki að koma í veg fyrir að sannleikurinn um hrunið komist í dagsljósið. Þetta á sérsaklega við skýrlsuna um hrunið sem verður birt 1. feb. n.k. Ég held að þessi skýrsla verði algjör sprengja. Það virðist vera kappsmál þeirra sem ollu hruninu að hluta (stjórmálamenn) vilji koma í veg fyrir að sannleikurinn verði gerður opinber.

    By Blogger Kristján, At 30. desember 2009 17:34  

  • Iceslave snýst um íslendinga en ekki sjálfstæðisflokk eða Samfylkingu. Þú ert alvarlega á villugötum. Persónulega er mér skítsama um alla stjórnmálaflokka en 100 milljónir í vexti á dag af skuld sem okkur ber alls ekki að borga skiptir mig máli. Þegar AGS segir að við getum borgað reikna þeir með margfaldri metframleiðslu þjóðarbúsins árum saman sem N.B. hefur aldrei gerst og mun aldrei gerast. Það eru blindir sauðir eins og þú Teitur sem sjá flokkspólítík út úr hörmungum íslands. Sannleikurinn er sá að Þjóðin vill alls ekki þessa ríkisábyrgð en rolurnar í ríkisstjórninn eru svo skelfing óttalega hræddir við kúgarana að þeir vilja frekar gefast upp en að berjast.

    By Anonymous Nafnlaus, At 30. desember 2009 19:59  

  • Mikið hlakka ég til, þetta lið þarf svo sannarlega að fá einn á kjammann og fólk út í samfélaginu þarf að opna augun og sjá fyrir hvað þetta sjálfstæðislið stendur.

    Kveðja, Valsól

    By Anonymous Nafnlaus, At 31. desember 2009 00:30  

  • Samfylkingin og VG eru búin að svíkja Ísland. Aðeins er eftir að Forsetinn svíki líka.

    By Anonymous Nafnlaus, At 31. desember 2009 00:49  

  • Samfylking á ICESAVE með húð og hári, það er eini flokkurinn sem er til í að selja sig 100% fyrir inngöngu í ESB og það var gert í kvöld, hryllilegt en það versta er að Samfylkingin var til í að fórna þjóðinni fyrir þetta markmið sitt, svei þeim.

    By Anonymous Nafnlaus, At 31. desember 2009 00:51  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim