Önnur spurning á Landsprófi
Hvað tekur það Guðlaug Þór Þórðarsson mikin tíma til þess að safna 60 miljónum inn á bankareikinginn hjá Sjálfstæðisflokknum?
-Aukaspurning: Hversvegna eru náin fjárhagsleg tengsl fyrirtækja og stjórnmálamanna æskileg? (10 stig)
- a) 12 ár (allar launatekjur mínus framfærsla)
- b) 1 ár (Söfnunarátak meðal flokksmanna með aðkomu auglýsingastofu og markaðsrannsóknarfyrirtækis
- c) 6 mínútur (Símtal við Sigurjón Þ. Árnason bankastjóra Landsbankans og símtal við Hannes Smárason stjórnarformann FL Group)
-Aukaspurning: Hversvegna eru náin fjárhagsleg tengsl fyrirtækja og stjórnmálamanna æskileg? (10 stig)


13 Comments:
Það er frábært að fá svona skemmtilegar spurningar í morgunsárið, það bjargar deginum að geta hlegið hjartanlega!!
En í raun er þetta sorglegt.. sorglegt hvernig Davíð og hans flokkur hefur farið með okkur.
FLott Teitur, haltu áfram, þú ert frábær!!!
By
Nafnlaus, At
17. desember 2009 08:43
Þurfti virkilega 6 mínútur til að sannfæra þá? Afhverju voru þeir svona tregir til?
By
Nafnlaus, At
17. desember 2009 08:54
"Farðu í fangelsið! Þú færð ekki 20.000 kr. þótt þú farir yfir byrjunarreitinn."
Nei, Ég er með 30-milljóna "get out of jail" miða.
Sorglegt, en þetta er nú kjarninn í því af hverju ýmsir aðilar í þjóðfélaginu ganga lausir
By
Nafnlaus, At
17. desember 2009 09:26
Teitur,
Hvernig væri það nú að þú birtir viðlíka spurningar um Samfylkinguna og spillinguna sem þar ríkir?
Þessi þráhyggja þín gagnvart Sjálfstæðisflokknum fer að verða svolítið "lame" hefur þann tilgang að skemmta skoðanasystkinum þínum sem augljóslega líður jafn illa og þér út af Sjálfstæðisflokknum.
Er þetta ekki einelt gagnvart einum aðila?
Verkin bera þess merki.
Svona er alla vegana ferlið í einelti.
Einhverjum er í nöp við einhvern og fer að búa til níð um hann. Síðan hoppa aðrir á vagninn af því að þeim finnst þetta fyndið og þá líður þeim sjálfum betur í sínum ömurlegheitum.
Teitur, hvað hafa Sjálfstæðimenn gert þér? Settu þeir kláðaduft í fötin þín?
By
Nafnlaus, At
17. desember 2009 09:31
Hann er eins og kallinn, vel til vinstri.
By
Nafnlaus, At
17. desember 2009 09:35
"hvað hafa Sjálfstæðimenn gert þér? Settu þeir kláðaduft í fötin þín?"
Döh! þeir settu landið á hausinn og skildu allt eftir í rúst eftir 18 ára valdatíma!
By
Nafnlaus, At
17. desember 2009 09:40
http://eimreidin.eyjan.is/2009/12/grafarbakkanum.html
By
Tomas, At
17. desember 2009 09:41
Spyr þessi Nafnlausi virkilega hvað Sjálfstæðismenn hafi gert Teiti og öðrum Íslendingum?
Hefur þessi Nafnlausi ekki frétt af íslenska bankahruninu???
Þetta hefur akkúrat ekkert með einelti að gera!!!!
By
Nafnlaus, At
17. desember 2009 09:42
Skemmtileg nálgun hjá þér Teitur.
Gleymum því aldrei hvaða menn það voru, og úr hvaða flokk þeir komu, sem lögðu landið í rúst.
Allar mótbárur þessara aðila eru aumkunarvert kvak siðvillinga sem kunna ekki að skammast sín.
By
pjotr, At
17. desember 2009 09:47
Já og sumir eru enn í stjórn...
og kaupa menn í greinaskrif, fara í bissness með Bjögga Thor og meðí...
Enda enginn munur á D(riti) og S(kít)...
PS: Þetta gæti verið bónusstig á Landsprófi (extra credit)
By
Ólinn, At
17. desember 2009 11:06
Ætlar Eimreiðin aldrei að koma út úr moðreyknum?
LS.
By
Nafnlaus, At
17. desember 2009 13:41
já er þetta ekki bara einelti, aumingja Hitler litli, ekki fengið frið í öll þessi ár.
By
Nafnlaus, At
17. desember 2009 23:22
Að Sjálfstæðismenn hafi sett landið á hausinn af því að þeir voru 18 ár við völd, eru órökstuddar dylgjur.
Þetta er ein aumasta smjörklípa sem komið hefur frá lygameisturum Samfylkingarinnar.
By
Nafnlaus, At
18. desember 2009 10:59
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim