EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

laugardagur, 28. febrúar 2009

Ólafur Ragnar hafi skömm fyrir

Alveg eins og það er fráleitt að velja Stórnmálamann í Seðlabankann, er jafn fáránlegt að velja stjórnmálamann sem forseta lýðveldisins.

Það fólk sem velst í þessi embætti verða að njóta óskoraðs trausts þjóðarinnar. Það er hrikalegt hvernig þjóðin hefur verið klofinn í herðar niður í afstöðunni til þessara þeirra sem gegna þessum embættum. Allt sem þeir segja, hversu gott sem það kann að vera, er sett í hið pólitíska ljós og rifið í sig af úlfum stjórnmálaflokkanna.

Ég sé núna hversu dýrmætur maður eins og Kristján Eldjárn var. Virtur, vinsæll, látlaus, (takið eftir því hve þetta orð er fallegt. lát-laus. = laus við læti) og hófsamur í orði sem æði. Hugsið ykkur ef við hefum manneskju á borð við Kristján Eldjárn sem forseta til að stappa í okkur stálinu á þessum erfiðu tímum. Eina sem heyrist frá Bessastöðum nú um stundir, eru fréttir af rifrildi Dorritar og Ólafs Ragnars. Svo ekki sé minnst á hin ódauðlegu ummæli Ólafs. "Ég hef ekkert oft farið upp í einkaþotu" þegar hann var að reyna að þvo hendur sínar af útrásarliðinu sem setti landið á hausinn.

Afsakanir og yfirvarp er það eina sem heyrist frá Bessastöðum. í stað samlíðunnar og hluttekningar. -Hafi hann skömm fyrir.

Endurvinnsla sorps í Svíþjóð

Svíar standa framarlega í endurvinnslu sorps. Það eru litlar endurvinnslustöðvar vítt og breitt hér í Gautaborg. Ekki þarf að ganga langt til þess að komast í slíka stöð
hvar sem maður er búsettur í borginni.

Þetta er afar þægilegt fyrirkomulag sem Reykvíkingar ættu að taka til fyrirmyndar. Stöðvarnar eru snyrtilegar og falla vel að íbúahverunum. Aðgengi gott og stöðvarnar mikið notaðar af íbúum Gautaborgar. Ég hef tekið eftir þvi að eftir að ég byrjaði að endurvinna er ruslatunna okkar hjóna alltaf hálf-tóm. Sem sparar okkur fé.

Furðu vekur hvað plast er fyrirferðamikið í sorpmálum okkar hjóna. Brúsar og umbúðir af mætvælum taka alveg ferlega mikið pláss. Pappír líka. Hann þjappast betur og er því auðveldur í geymslu og þvíumlíkt. Töluvert af járni rennur í gegnum heimilið okkar. Tappar, dósir, leikföng ofl. Fult af járni. Hérna eru myndir af sorpstöðinni sem ég fer í og myndir af upplýsingaspjöldum sem leiðbeina um
það hvað má fara í kistuna og hvað ekki.























































föstudagur, 27. febrúar 2009

Kindarlegt baul

Það er heldur kindarlegt að hlusta á baulið í Sjálfstæðismönnum þessa stundina. Það er líka svolítið tragískt og mannlegt. Þórlindur Kjartansson hreykir Sjálfstæðisflokknum fyrir því að hafa leyft bjór á Íslandi fyrir 20 árum síðan. Þetta er gott og gilt. það voru ólög sem bönnuðu bjórsölu á Íslandi.

-Alltaf gott að rifja upp 20 ára gamla sigra.

En hví horfir Þórlindur ekki fram á vegin á þessum örlagatímum Íslandssögunnar? Hví er hann að glápa ofan í gamlan medalíupoka og dást af afnámi bjórbannsins? Er það kannksi vegna þess að Þórlindur vill bara gleyma hruniu? Að það sé of sárt að velta því fyrir sér.

Hversvegna veltir Þórlindur ekki því fyrir sér hvað klikkaði í stefnu flokksins sl. 18 ár sem birtast þjóðinni í efnahagshruni, fjöldaatvinnuleysi, yfirgengilegum skuldum og fólksflótta? Hví talar Þórlyndur ekki um það frekar en að mæra 20 ára gamla lagabreytingu?

Ég bíð spenntur eftir uppgjörinu við Davíðstímann meðal Sjálfstæðismanna. Meðan það uppgjör hefur ekki farið fram skyggir fjarvera þess á allt sem frá flokknum kemur, forrystufólki hans og félagsmönnum.

Segðu okkur nú ágæti Þórlindur í fáum orðum, hvað klikkaði í stað þess að spegla þig í 20 ára gömlum medaíum.

Ingibjörg Sólrún og mistök Samfylkingarfólks

Þegar Ingibjörg Sólrún stekkur fram á sjónarsvið stjórnmálanna var Davíð Oddson "maðurinn" sem réð öllu. Óumdeildur leiðtogi stærsta stjórnmálaflokksins. Ég hef á tilfinningunni að Samfylkingarfólk hafi hugsað sem svo að "okkur" vantar einhvern eins og Davíð. Svarið var Ingibjörg. Hún átti að vera "sterki leiðtoginn" okkar. Kannksi hefur henni líka fundist það, ég veit það ekki.

En þarna liggur meinið. Stjórnmálaafl eins og Samfylkingin er ekkert leiðitamur. Okkur hentar ekki að hafa einhvern eins og Davíð Oddson sem ákveður allt. Umræður og lýðræði, málamiðlanir og samningar henta Samfylkingunni mikið betur. Samfylkingin er stundum sundurleit og félagsmenn hennar hika ekki við að gagnrýna forrystuna (ólíkt Sjálfsstæðisflokknum þar sem allir bugta sig gagnvart forrystunni) Óteljandi klofningar undangenginna ára sýna þetta og sanna. það sem hefur kannski vantað í krata undanfarin ár er þolinmæði og samvinnuhugsun. Ég er þess fullviss að engum er greiði gerður með endalausum klofningum. Fólk á bara að sitja á skoðunum sínum og vinna þeim fylgis á lýðræðislegan hátt frekar en að stofna nýja flokka. Þannig og bara þannig næst árangur. þannig er dínamískt stjórmálastarf.

Sammála um grundvallaratriði en semja um ágreningsatriði.

Ég hef verið ódeigur við að gagnrýna Samfylkinguna og ráðherra hennar og þingmenn. Það er styrkur fólgin því fyrir flokkinn að félagsmenn gagnrýni og láti heyra í sér. Ekki veikleiki eins og Sjálfstæðismenn halda stöðugt fram (og trúa í alvöru sem staðreynd). Ef ekki væri fyrir gagnrýni félasgmanna á forrystuna, þá færi fyrir Samfylkingunni eins og Sjálsfstæðisflokknum og hún verður einskonar þurrprumpulegt kerfisapparat sem er allt í senn heyrnarlaust, vitlaust og dáðlaust.

Samfylkingin er organísk. Hún á að vera það. Samfylkingin á að iða af lífi. Endurkoma Jóns Baldvins er frábært dæmi um það. Ég ætla reyndar ekki að styðja kallinn, en hann á örugglega hljómgrunn innan flokksins. Svona á stjórnmálaflokkur að vera. Mér finnst frábært að sjá kraftinn og gerjunina í Samfylkingunni nú um stundir. Fullt af nýju og frábæru fólki býður sig fram. Framboð eiga ekki að kosta krónu. Bara síðu á Fésinu og málið er dautt.

Ef ég tek samanburð við prófkjörsslag Sjálfstæðisflokksins frá Reykjavík, þá mun slagur Gísla Marteins og Vilhjálms kostað um 50 miljónir samtals. hvaðan ætli þeir peningar hafi komið? Getur verið að tengsl séu á milli þess að auðmenn tóku yfir aðalskipulag Reykjavíkur og þeirra staðreyndar að þessir tveir forrystusauðir skulduðu þessum ríku köllum greiða?

Ég hvet allt Samfylkingarfólk að kjósa endurnýjun á öllum póstum. Ekki endurtekningu. -Endurnýjun!

Ég á ekki til orð...

Mikið er ég orðin ánægður með Samfylkinguna mína. Fullt af frábæru nýju fólki og hin knýjandi endurnýjun á sér stað í þessum skrifuðum orðum. Ég hvet allt samfylkingarfólk að kjósa nýja fólkið og láta hina eiga sig. Það er farsælast. Fréttir þess efnis að Íslandshreyfingin hafi gengnið inn í Samfylkinguna eru stórkostlegar. Ómar Ragnarson og Margrét Sverrisdóttir eru frábærir fulltrúar sjónarmiða sem SANNARLEGA eiga hljómgrunn meðal Samfylkingarfólks.

Ómar er reyndar þjóðargersemi, en það er önnur saga.

Endurnýjun er lykilatrið núna.

Endurnýjun. -Ekki endurtekning.

Djöfull líst mér vel á Írisi í stjórnmálin


Hún er að fara í framboð fyrir Samfylkinguna. Ég vann með henni um stund hjá Reykjavíkurborg og þekki kallinn hennar í gegnum Hagskóla. Íris er akkúrat týpan sem við Samfylkingarfólk þurfum.

Klár, réttsýn og með hjartað á réttum stað. Ég mæli sannarlega með henni. Jesss....

-Yfirburðamanneskja.

Meira hér: http://www.facebook.com/group.php?gid=141730015006

Heimspeki

"Heimspeki er einskismannslandið milli vísinda og guðfræði, berskjaldað árásum frá báðum áttum"

-Bertrand Russel.

Ingibjörg Sólrún

Ingibjörg Sólrún mun hugsanlega tilkynna brotthvarf sitt úr framlínu stjórnmálanna á næstu klukkustundum ef eitthvað er að marka sögusagnir. það tel ég vera hið besta mál. Ekki vegna þess að Ingibjörg sé svo slæmur stjórmálamaður heldur miklu fremur vegna þess hve hún er góður stjórmálamaður. Hún er með þessu að axla ábyrgð.

Óumdeilt er að Davíðshrunið átti sér stað á hennar vakt og við þvi verður að bregaðst. Það verður að fá inn nýtt fólk til að leiða Samfylkinguna fram á veg.

Ég þekki Ingibjörgu litillega og átti með henni góðan fund. Ég sendi henni bara tölvupóst og óskaði eftir fundi með henni. Hún brást vel við og nokkrum dögum síðar funduðum við á skrifstofu hennar í Austurstæti. Ástæða fundarinns var sú að ég vildi segja henni frá hrikalegum áhrifum hnattrænnar hlýnunar á lífríki Breiðafjarðar, en þar hef ég stundað lundaveiðar frá því ég var 10 ára. Við ræddum málið til og frá og hún tók mér og skoðunum mínum í alla staði vel. Ég hvatti hana ennfremur að ef hún kæmist til valda að hætta að kaupa dýra bensínháka-jeppa og velja frekar Hybrid bíla fyrir starfsmenn ríkisins, en þá voru bílakaup ráðherra í deiglunni.

Það var svo daginn sem yngri sonur minn Leó fæddist að ég hitti Ingibjörgu aftur. Ég var að fara heim af fæðingardeildinni í sólskinsskapi að sækja bílinn minn sem var parkeraður á bílastæðinu við Hallgrímskirkju. Mér til undrunnar var svartri glæsikerru af nýjustu sort. Lexus með tvinnvél, lagt þvert fyrir bílinn minn þannig að ég komst hvorki lönd né strönd. Vippaði þá sér út Ingibjörg úr glæsikerrunni og heilsaði mér. Hún sagðist hafa verið að fá þennan nýja ráðherrabíl en vissi ekki hvernig átti að setja í bakkgír. Aðstoðarmenn hennar voru þá að rembast við að finna taka á tækniundrinu til sem gæti bakkað bílnum. Við áttum enn stutt spjall og ég sagði henni frá honum Leó mínum sem var þá um 10 klst gamall. Loks tókst að bakka og síðan hef ég ekki hitt Ingibjörgu. Ég ætla nú ekki að eigna mér heiðurinn af því að hún hafi valið sér tvinnbíl en hver veit?

Ef það er boðskapur í þessari sögu þá er hann kannksi sá að fólk ætti ekki að hika við að funda með þingmönnum eða ráðherrum. Þeir eru jú þjónarir okkar.

Eimreiðin

Árið 2005 fór ég í bissness. Komandi úr fjölmiðlum frá vinnumarkaðinum þá blundaði alltaf í mér smá draumur að stofna lítið blað. Þessi draumur rættist þetta ár og ég stofnaði Eimreiðina á haustdögum árið 2005. Þetta var fríblað sem dreift var í alla framhaldsskóla landsins. Það er svo skemmtilegt að annað áþekkt blað hóf einnig göngu sína á saman tíma en það var Verðandi. Svipuð efnistök og sami markhópur. Reksturinn gékk bara vel en vinnan við útgáfuna var afar slítandi. Ég var nefnilega allt í öllu. Þegar mér svo bauðst vinna hjá stóru tölvufyrirtæki þá þaði ég það, þó með hálfgerðum trega.

Eimreiðin lifir nú á þessu prívatbloggi minu. Verðandi er í fríi en aðalsprautan þar er félagi minn Guðmundur Rúnar Svansson. Við áttum í góðri og heiðarlegri samkeppni sem ég held að hafi styrkt bæði blöðin. Árið 2006 leit svo dagsins ljós Mónitor sem er líka framhaldskólablað en það er líka í fríi. Það mætti segja að ég hafi hætt á toppnum. Aldrei var tap á útgáfunni og ég held að lesendur hafi verið ánægðir með Eimreiðina. Líka auglýsendur.

Mér skilst að þessi lestarferð mín með Eimreiðina hafi veirð þriðja skiptið sem tímarit undir þessu nafni hafi lagt af stað. Fyrsta Eimreiðin var gefin út í uppnhafi aldarinnar, síðar gáf Eimreiðarhópurinn út sína Eimreið og svo ég. Ekki er laust við að það hlakki pínulítið í mér að 2.Eimreiðin hafi verið málgagn frjálshyggjufursta úr Sjálfstæðisflokknum sem settu landið að á hausinn. Trauðla er hægt að segja að Eimreiðin mín sé sammála frjálshyggjubófunum.

Annars lenti ég í leiðindum þegar ég fékk vörumerkið skráð. Einhver frjálshyggjufursti og leiðindargaur úr Eimreiðarhópnum reyndi að hindra það með öllum ráðum tiltækum en tókst sem betur fer ekki. Hafði í hótunum við mig en ég nennti ekki að svara honum. Það er oft besta leiðin til að díla við leiðinlegt fólk.

Mér finnst Eimreiðin vera flott nafn og bera með sér andrými bjartsýni, framfara og tæknibyltingar. Ég er nokkuð viss um að ég gefi Eimreiðina aftur út í einhverju formi þegar ég kem heim til Íslands eftir útlegðina hér í Svíþjóð.

Annars held ég að nafnið Eimreiðin sé orðið hálf toxískt eftir Daviðshrunið. Svona eins og einhverjum Þjóðverja dytti í hug að gefa út Der Angriff en það blað var áróðurspési harðkjarna nasista. Fullyrt er að annar eins texti hafi aldrei veirð settur saman á þýskri tungu.

fimmtudagur, 26. febrúar 2009

Afsögn Árna Mathíesen

Eitthvað segir mér að meira búin undir en að "Sjálfstæðismenn vilji breytingar" þegar Árni Mathiesen útskýrir brotthvarf sitt frá stjórnmálum.

Mér þykir einhvernvegin augljóst að orð Davíðs Oddsonar um óeðlieg tengsl þekkts fólks úr stórnmálum og atvinnulífinu, spili þarna stóra rullu. Árni hefur t.d aldrei upplýst um eignatengsl sín við fyrirtæki og banka þó alkunna sé að hann sé risa-hluthafi í Sparisjóði Hafnarfjarðar. Þegar það mál verður gert upp munu ugglaust koma upp hrollvekjandi mál sem að Árni sér að eru honum ofviða.

Villandi upplýsingar Sigríðar Andersen

Nágranni minn af Ásvallagötunni, hún Sigríður Andersen, hefur nú birt greinargerð um fjármál sín og manns síns. Þetta er til fyrirmyndar. Auðvitað vona ég að aðrir þingmannskandítatar geri slíkt hið sama en á ekki vona á því að margir feti í fótspor Sigríðar. Margir þingmenn og ráðherrar eru miljónamæringar eða jafnvel miljarðamæringar og sumt þolir ekki dagsljósið eins og dæmin sanna. Vafasöm eignatengsl, skúffufyrirtæki, óeðlileg fyrirgreiðsla frá bönkunum osfr.

Fordæmi Sigríðar er því til algerar fyrirmyndar. Hún hefur hreinan skjöld og ég hvet alla Sjálfstæðismenn til að veita henni brautargengi í komandi prófkjöri.

Ég skoðaði heimasíðu Sigríðar í kjölfar fréttar mbl um málið og sá meinleg mistök í efnisgrein sem innihélt helstu stefnumál hennar. Það er þessi málsgrein sem er gölluð:
Ég hef alla tíð aðhyllst hina klassísku sjálfstæðisstefnu um frelsi til athafna og tækifæri allra til að láta að sér kveða. Ég tel að sjaldan hafi verið jafn mikilvægt að standa vörð um þessi grunngildi sjálfstæðisstefnunnar og nú þegar ríkið hefur fengið fjölda fyrirtækja í fangið og höft hafa verið sett á utanríkisviðskipti.

Það vantar sárlega að tekið sé fram að ástæðan fyrir því að ríkið hefur fengið upp í fangið og höft hafa verið sett á utanríkisviðskipti, er stefna Sjálfstæðisflokksins s.l 18 ár.

-Stefnunnar sem Sigríður sjálf stendur fyrir.

Áskorun til Dags B. Eggerssonar.

Ég skora á Dag B. Eggertson að bjóða sig fram í formann Samfylkingarinnar í komandi prófkjöri. Hann getur með því móti aukið traust flokksins til muna. Það er algerlega ótækt að gamla liðið sem svaf svo sannarlega á verðinum í aðdraganda Davíðshrunsins, potist í efstu sætin.

Við Samfylkingarfólk þurfum nýja forystu. Dagur er prýðilegur kandítad að leiða Samfylkinguna af braut tortryggni, vandræðagangs og ósóma. Mér líst ferlega vel á öll ný andlit sem til forystunnar veljast. Dagur verður nú að taka afskarið og hasla sér völl þótt það krefjist þess að hann fari í slag við sinn mentor, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttir. Ganga ekki allar góðar sögur út á einhverskonar föðurmorð? Er það ekki eðlilegur þroski hvers og eins að stíga út úr skugga uppalenda sinna? Ég hvet Dag til að stíga út úr skugganum og taka sér það pláss sem hann sannarlega hefur hæfileika til.

Það er rangt að Samfylkingin hafi axlað ábyrgð á Davíðshruninu með því að slíta stjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokk eins og ISG sagði í viðtali fyrir skömmu. Ummæli hennar minna óþægilega á orð Vilhjálms Þ fyrrverandi borgarstjóra sem sagðist hafa axlað ábyrgð á REI-hneykslinu vegna þess að hann hrökklaðist frá völdum.

Staðreyndin er, og blasir við öllum landsmönnum, að Samfylking svaf á verðinum í aðdragana hrunsins. Ef Samfylkin ætlar sér stóra hluti í næstu kosningum þá verður að skipta út öllum ráðherrum og sennilega öllu þingmönnum líka. það nær ekki nokkurri átt að bjóða upp á Ingibjörgu, Össur, Möller, Jóhönnu, Ástu, Þórunni og alla hina.

Þetta segir sig nú bara sjálft og ósómi fólgin í því að þessu fólki detti í hug að bjóða sig fram til forrystu að nýju.

Nýr seðlabankastjóri

Ríkisstjórnin ætti að leita út fyrir landssteinana þegar næsti seðlabankastjóri verður valinn. Okkur var lofað að útlendingar myndu sjá um rannsóknina á Davíðshruninu en það var auðvitað svikið. Nú er lag að efna það til hálfs að ráða besta mögululegu manneskjuna í embætti Seðlabankastjóra.

Annars átti karl faðir minn frábæra tillögu að því hverjir ættu að rannsaka Davíðshrunið. Við eigum að fá "óvini" okkar til þess. Þýska endurskoðandur. Danska endurskoðendur. Breska endurskoðendur. Hollenska endurskoðendur. Mynda tvö eða þrjú óháð teymi sem skila skýrslum á sama tíma. Þannig og bara þannig er hægt að ná einhverri mynd af Davíðshruninu, aðdraganda þess og viðbrögðum við því.

Þar sem traust til stjórnmálamanna er af afskaplega skornum skammti er viðbúið að hvaða ráðning sem er vekju upp tortryggni.

-Nú er lag að breyta rétt.

Norðmenn eru til fyrirmyndar

Ég sá þátt í sjónvarpinu í gær á SV1. Löng fréttaskýring um fiskeldi Norðmanna. Ýmislegt fróðlegt kom í ljós. T.d það að fóðrið sem laxinn étur er venjulega fiskimjöl og til að framleiða eitt tonn af laxi þarf 2 tonn af loðnu (eða öðrum mjöl-tegundum). Lífmassinn í sjónum minnkar s.s við hvern fisk sem framleiddur er í kerjum eða búrum.

Það sem hreif mig svo við þennan þátt var sú staðeynd að fiskeldi er þriðja mikilvægasta atvinnugrein Noregs á eftir olíuvinnslu og námugreftri. Á síðasta ári framleiddu Norðmenn 750.000 tonn af eldisfiski og fluttu út. Mest af þessu er lax en flundru-eldi (grálúða?) hefur aukis mörg hundruð prósent á nokkrum árum svo sér ekki fyrir endan á því. Þorskeldi er næsta sprengja í norsku fiskeldi. Þar er næsta sóknartækifærið og Norðmenn binda miklar vonir við þorskinn. Þorskeldi verður að öllum líkindum næsta ævintýri þessarar duglegu og útsjónarsömu þjóðar sem Norðmenn eru.

Sem dæmi um tölurnar bakvið fiskeldi Norðmanna þá sagði ein viðmælandi þáttarins að Norðmenn sköffuðuð heiminum 11 miljónir máltíða

-Á dag. Allt árið um kring.

miðvikudagur, 25. febrúar 2009

Útlendingar horfa ekki á Kastljósið.

Í frægri ræðu hjá viðskiptaráði rétt eftir hrunið, sagði Davíð Oddson glettnislega frá því að útilokað sé að tengja orð sín úr frægum Kastljósþætti við setningu hryðjuverkalaganna. Hann rökstuddi máls sitt þannig að "útlendingar horfa ekki á Kastljósið" og uppskar óskaplegan hlátur.

Nú hefur þetta komið í ljós:

  • „My view is that there is complete failure of Icelanders to understand that alleged statements by David Oddsson on central bank deposits, which triggered a sovereign debt downgrade, placed the UK Government in an impossible position. ... The transcripts of conversation between the two Governments, and statements by the ministeral team in Iceland and by David Oddsson, should be made available in their entirety.

Campell-Savour lávarður í bresku lávarðardeildinni þann 28. október síðastliðinn.

Oft er sagt að fyrstu viðbrögðin séu alltaf þau réttu. Það ætlar að vera svo í þessu máli sem öðrum. Davíð setti hryðjuverkalög á Ísland með óvarkarum og heimskulegum ummælum í téðum Kastljósþætti.

-Þarf frekari vitnanna við? Er hægt að horfa framhjá þessu lengur?

Hver lýgur? Davíð eða Ármann

Davíð Oddson heldur því fram að miljarðatugir hafi streymt frá Kaupingi til Íslands rétt fyrir Hrunið.

Ármann Þorvaldsson Kaupþingsmaður heldur því fram að engir óeðlilegir frjármagnsflutingar hafi átt sér stað rétt fyrir hrunið.

Nú er spurt. -Hver er að ljúga? Tiltölulega auðvelt ætti að vera að skera úr um þetta. Allar færslur eru til. Það verður að fá svör við þessari spuringu hvor sé að ljúga.

Davíð og samhengi hlutanna.

Ég mæli sterklega með bloggi Hallgríms Thorseinssonar um Kastjósþáttinn. þar er fjallar Hallgrímur um að Davíð sé pólitískur Seðlabankastjóri. Hann hefur alltaf verið í pólitík og allt sem hann segir og gerir er settur í pólítiskt ljós.

Þessvegna er ekki tekið mark á honum þegar hann segist vara við yfirvofandi bankahruni. Þessvegna segir ríkisstjórnin hann vera dramatískan.

Ekki nóg með að Davíð nýtur ekki trausts almennings, heldur nýtur hann ekki trausts ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks Geirs Haarde.

-Það er einfaldlega ekki tekið mark á honum. Hann er í pólítik og nýtur hvorki virðingar né trausts sem óháður og sjálfsstæður Seðlabankastjóri.

Hugsum okkur nú aðeins þá hugsun að í Seðlabankanum hafi setið manneskjas sem hafi notið trausts. Manneskja sem ekki er í pólitík. Hugsum okkur svo að þessi manneskja hafi varað við hruninu mörgum vikum fyrir hrunið. það hefi örugglega verið tekið meira mark á henni en hinum vænissjúka stjórnmálamanni sem Davíð Oddson er. Þegar Davíð ríkisvæðir Glitni, þá er það strax túlkað sem árás á Baug. Er þetta í lagi? Er þetta traust? Allt sem maðurinn gerir er sett í annarlegt samhengi og það er í raun engum að kenna nema kannksi persónu Davíðs OG þeim sem hafa hag að því að setja hlutina í annarlegt samhengi. Þetta er kanski ekki sanngjarnt gagnvart Davíð en svona er þetta bara. Hann nýtur ekki trausts. Trausts sem verður að vera til staðar.

Hið stóra samhengi hlutanna er einfaldlega þetta:

Davíð Oddson er arkítekt hrunsins. Hann hleypti hundunum lausum og bólan þandist út. hann er heilinn bakvið hrunið. Hann er höfundur hugmyndafræðinnar að fjármagnseigendum sé best borgið að hafa engar reglur um það hvað þeir gera. Hann réð sjálfan sig sem Seðlabankastjóra og fretaði þannig á öll rök sín um að Seðlabankastjóri verður að fá að vera óháður stjórnvöldum. Hann er brennuvargur númer eitt og það er óþolnadi að vita af þessum manni í opinberri þjónustu. Skaðinn sem hann hefur valdið er yfirgengilegur.

Algerlega yfirgengilegur.

Áfellisdómur um fyrri ríkisstjórn

Ef að Davíð sagði rétt frá í Kastljósþættinum mikla, að hann hafi varað ítrekað við yfirvofandi bankahruni, er það mikill áfellisdómur yfir ríkisstjórn Geirs Haarde og Ingibjargar Sólrúnar.

Þau gerðu nefnilega ekki neitt og skelltu skollaeyrum við öllum viðvörunum.

Betur og betur kemur í ljós hversu skaðleg þessi ríkisstjórn var, ráðherrar hennar og já-bræður. Mér þykir liggja í augum uppi að allir ráðherrar úr þessar óheppilegu stjórn hætti í pólitík og snúi sér að einhverju öðru.

Það ætti að vera sársaukalaust því ofur-eftirlaun bíða brosandi handan við hornið. Viðkomandi gætu hugsanlega flutt á rólegri stað en Ísland. Suður-Frakkland t.d.

Hip heppilega samband Baugs og Sjálfsstæðisflokksins

Óþolandi er að Baugur og Sjálfstæðisflokkurinn noti hvern annan til þess að afsaka sjálfa sig.

  • Ef illa gengur hjá Baugi er það Sjálfstæðisflokknum að kenna
  • Ef illa gengur hjá Sjálfstæðisflokknum, er það Baugi að kenna.
Þetta heppilega samband þessara fjandvina hefur lamað alla þjóðfélagsumræðu og hindrað að Baugur og Sjálfstæðisflokkurinn standi reikningskil gerða sinna.

Þetta minnir mig um margt á heimsmynd Orwells í 1984. En þar gekk kerfið út á stöðug stríð við andstæðinginn. Báðir þurftu á hinum að halda til að kúga fólkið.

Ástrali kaupir Árvakur

Hvað í andskotaum á Ástralskur Miljarðamæringur með að kaupa fallít blaðaútgáfu á Íslandi. varla sér hann gróðavon í Mogganum.

Augljóst er að Ástralinn er leppur þeirra sem telja sig getað stjórnað almenningsálitinu á Íslandi. Ég held að það virki ekki. Dagblöð eru tækni gærdagsins og munu sennilega aldrei ná sér á strik. Miðlun upplýsinga er komin á netið.

Almenningur er heldur ekki svo skini skroppinn að láta plata sig með vaðli úr Sunnudagsbréfum og Staksteinum

Framsóknar Höskuldur.

Framsóknar Höskuldur er milli tveggja elda. Annarsvegar þarf hann að sitja undir gríðarlegri pressu frá almenningi um að breyta rétt og hinsvegar pressu frá Davið Oddsyni um að sá syngi eins og kanarífugl verði hann rekin úr embætti Seðlabankastjóra.

Höskuldur tekur verri kostinn. Hann þappar sér upp við Davíð og spillingarpésana í Framsókn.

Það á að yfirheyra Davíð Oddson

Davíð Oddson segir fullum fetum að hann búi yfir upplýsingum um þingmenn að þeir hafi ástundað löglausa fjár-glæfra. Davíð hefur sýnt það og sannað að það sem hann segist vita, á við rök að styðjast sbr Araba-furstan sem var látin þykjast kaupa í Kaupþing.

Rökrétt er að færa Davíð til lögreglu og yfirheyra hann af lögreglu vilji hann ekki veita þessar upplýsingar.

Að sitja á svo mikilvægum upplýsingum jaðrar við landráð.

HInn faglegi Oddson

Davíð Oddsyni var tíðrætt um sjálfstæði Seðlabankans. Taldi það nánast heilagt. En hvar var sjálfsstæði téðs banka þegar Davíð réð sig þangað beinustu leið úr forsætisráðuneytinu?

Hvar var sjáfstæðið þá og fagmennskan?

Kastljósþáttur.

Það var spennandi að fylgjast með Kastljósinu í kvöld. Við hjónin horfðum á þáttinn af áhuga. Mér þótti mest vert að Davíð var næstum því farinn að skæla. Svo var náttúrulega fyndið að fylgjast með ásökununum Davíðs á hendur Sigmari þáttastjórnanda við nánast hverri spurningu. En Davíð taldi allar spurningar Sigmars bera vott um andsnúning hans gagnvart sér. Davíð narraði Sigmar með ártali og eftirleikurinn var Davíðs.

Það var líka athyglisvert að Davíð hélt því fram fullum fetum að stjórnmálamenn væru innvinklaðir í fjármálamisferli en nefndi að sjálfsögðu enginn nöfn. Hann sagði ennfremur frá því að Geir Haarde og Árni Matthisen höfðu viðvaranir hans að engu. Enn og aftur sannast getuleysi síðustu ríkisstjórnar. Óvænt skot á Sjálfstæðisflokkinn úr algerlega óvæntri átt.

Ég held að Davíð nenni ekki í pólitík en láti hótun um það hanga í loftinu aðeins lengur. Mest óttast ég að Magnús Þór Hafsteinson hafi rétt fyrir sér og ástæða óvænts upphlaups Framsóknarflokksins séu hótanir Davíðs um að segja eitthvað sem hann veit um spillingarpésa Framsóknar. Höskuldur er kominn í pattstöðu og verður að bjarga eigin skinni með því að hindra brottrekstur Davíðs úr Seðlabankanum.

Þessi farsi verður ógeðfeldari með hverjum deginum sem líður.

þriðjudagur, 24. febrúar 2009

það sem Davíð skilur ekki

Davíð Oddson er ekki bara holdgerfingur stjórnmála-spillingar á Íslandi. Hann er líka arkítektin af hugmyndafræðinni bak við hrunið. Efnahagsbólan sem sprakk var hans hugarfóstur.

Það er óþolandi að vita af því að arkítekt hrunsins sé í opinberri þjónustu. Þetta skilur Davíð Oddson ekki. Í hans huga var stefnan rétt og hugmyndafræði Flokksins hin ágætasta þrátt fyrir bitrar þrúgur téðrar stefnu.

Gjaldþrota land. Gjaldþrota fyrirtæki. Gjaldþrota einstaklingar. Gjaldþrota hugmyndafræði.

Biblía barnsins

Þessa grein er að finna í "biblíu barnsins" sem gefin er út af ríkiskirkjunni.

Dag nokkurn leit Guð niður til jarðar. "Æ, æ", sagði guð. "Fólkið hefur farið illa með heiminn." Þá mundi Guð eftir Nóa. Nói var góður maður. "Ég ætla að gera dálítið," sagði Guð við Nóa. "Ég ætla að taka til í heiminum. Og þú verður að smíða skip. Stórt skip." Nói hlýddi Guði. "Taktu fjölskyldu þína með um borð í skipið," sagði Guð. "Og þú skalt taka með þér kvendýr og karldýr af öllum lífverum jarðarinnar." Guð lét rigna. Fyrst kom einn lítill dropi og síðan steypiregn! Vatnið óx og óx. Skipið flaut á vatninu. Skipið lyftist hærra. Og hærra... Seinna sjatnaði vatnið. Skipið seig neðar og neðar. Vatnið hvarf smám sman og skipið sat allt í einu á þurru landi. "Komið út úr skipinu," kallaði Guð. Allt er gott og fallegt!" Sjáið regnbogann! Hann er merki um að aldrei aftur muni svona flóð dynja yfir heiminn. Ég lofa því.
Ekki er minnst orði á að guðinn drap alla í heiminum nema Nóa og fjölskyldu. Ég veit ekki hvort maður á að hlægja eða gráta. Annars er óumdeilt að sagan um Syndaflóðið er tekin úr mun eldra riti. Mesópótamísku sögunni um Gilgames.

Æfing fyrir stjórnmálamenn.

Getur verið að stjórmálamenn notist við annað siðferðiskerfi en almenningur? Alltaf skal vælt og snúið út úr þegar spurt er út í eitthvað óþægilegt.

Ég bíð spenntur eftir þingmanninum sem segir bara eins og er. Talar mannamál og teygjir ekki lopann út í silkiþráð. Meðfylgjandi er textabrot sem þigmenn geta prentað út og æft sig á.

Gerðir þú mistök?

-Já ég gerði mistök. Þau voru fólgin í ___________og ábyrgðin er mín og bara mín. Ég hefði átt að stoppa þetta en því miður gerði ég það ekki. Þó að fleiri hafi komið að þessum mistökum, lendir ábyrgðin á mér og ríkisstjórninni allri. Mér þykir þetta verulega leiðinlegt og mun íhuga að segja af mér. Ekki þó fyrr en hafa ráðfært mig við flokksforrystuna og stuðningsmenn mína. Svarið við þeirri spurningu kemur í dag.

Atlagan að Guðlaugi Þór.

Baldur McQueen bendir á í frábærri færslu að upp hefur hafið raust sína grátkór meðal stjórnmálamanna. Mér leiðist svona væl eins og sjálfsagt öllum Íslendingum og verður hugsað til ljóðlína Jónasar Hallgrímssonar þegar hann segir:

  • Ísland, farsælda frón og hagsælda hrímhvíta móðir, hvar er þin fornaldar frægð frelsið og manndáðin best.

Lítið fer fyrir manndáðinni meðal kórfélaga vælukórsins. Dáðadrengirnir vilja láta vorkenna sér. Mig skortir einnig hugmyndaflug til að skilja það hvernig það sé "atlaga" að benda á verk einhvers einstaklings. Segjum sem svo að einhver skammi mig fyrir eitthvað sem ég skrifa á Eimreiðina og vísar í Eimreiðarfærslu málin sínu til stuðnings, hvernig getur það flokkast sem atlaga? Er það atlaga að smið þegar honum er sýnt eitthvað fúsk sem hann hefur smíðað?

-Lítið fer fyrir manndáðinni meðal vælukórsins.

Eitrað fyrir Árna Johnsen

Einhver sérstakasta frétt Íslandssögunnar er sú fullyrðing Árna Johnsen að honum hafi verið byrlað eitur. Hann skýrir bjúg í höndum á þann hátt að eitri hafi verið komið fyrir í heilsu-dufti sem hann neytti. Þó að pólitíkin á Suðurlandi sé stundum hatrömm, þá hvarflar ekki að mér að einhver vilji koma Árna fyrir kattarnef.

Líklegra þykir mér að tóneyranu sem reynt var að græða í Árna, hafi vakið upp sterk ónæmisviðbrögð og líkaminn hafnað tóneyranu með þessum afleiðingum.

Munirinn á ábyrgð og sekt.

Maður sem stendur mér nærri var eitt sinn í sumarvinnu sem verkamaður hjá litlu verktakafyrirtæki. Eitt sinn var honum skipað að vinna í raðhúsi sem stóð tómt. Hann átti að "hreinsa" út baðinnréttingu og henda í gám. Þessi maður er hamleypa til verka og gekk í verkið með fítonskrafti með kúbein og kúst að vopni. Hann hreinsaði gersamlega allt út á á nokkrum klukkutímum. Henti baðkarinu í gáminn. Vaskurinn og sturtuklefinn fóru sömu leið. Þess utan fóru allar flísarnar á baðherberginu út svo gýndi í gráa steypuna. Því næst sópaði hann eftir sig og fékk sér kaffi og rúnstykki. -Bara nokkuð sáttur við dagsverkið.

Það var ekki fyrr en eftir að smiðurinn kom og tók út verkið að mistökin komu i ljós. Vinur minn hafið farið inn í vitlausa íbúð. þessutan átti hann bara að rífa út sturtuklefann.

Nú kemur að boðskapi sögunnar sem þingmenn og fjármálasnillingar ættu að lesa vel.

Vinur minn var "sekur". Hann gerði vitleysuna. Ábyrgðin hinsvegar, lendir á eiganda verktakafyrirtækisins. Smiðnum góða. Smiðurinn getur ekki varpað ábyrgðinni á sumarstarfsmanninn. Hann getur ekki sagt: Hey! Þetta er ekki mér að kenna. Þetta er sumarstafsmanninum mínum að kenna.

Það sama gildir um þa sem stjórnuðu landinu í 18 ár og fjármálasnillingana sem settu landið á hausinn. Bankastjórnarnir og meðlimir í Fuckup-Group eru sekir en ábyrgðin er hjá stjórnvöldum.

Mér var hugsað til sögunnar um baðinnréttinguna þegar ég sá Geir Haarde í viðtali á BBC segjast ekki bera ábyrgð á því hvernig komið var fyrir þjóðinni.

-Maðurinn kannast ekki við munin á sekt og ábyrgð.

Fyrirtaksdæmi um traustið sem ríkir

Það er alveg dæmigert fyrir ástandið í samfélaginu á Íslandi að það vekur athygli þegar ráðherra velur hæfan starfskraft í embætti. Flenni-frétt DV um að Ásta Ragnheiður Félagsmálaráðherra hafi skipað faglega í embætti er dæmigerð fyrir traustið sem ríkir milli ráðamanna í þjóðarinnar. Ég ætla ekki að hrósa Ástu fyrir að vera ekki spillt. Svoleiðis hrós er niðurlægjandi. Hún er einungis að vinna vinnuna sína. það á ekki að þakka fyrir slíkt.

Heil starfsgrein eyðilögð

Efitr 18 ára þaulsetu Sjálfstæðisflokksins í landsstjórninni og efnahagstilraunum Davíðs Oddsonar, stendur eftir sviðin jörð. Skuldir landsins eru einfaldlega of miklar til þess að hægt sé að greiðar þær upp. -Dæmið gengur ekki upp!

Þjóðin er tæknilega gjaldþrota.

Burt séð frá þessu hefur þessi stefna Sjálfstæðisflokksins eyðilagt heila starfsgrein sem er í mörgum ríkjum ein af aðal-stoðum efnahagslífsins. Fjármála-umsýsla.

Orðspor íslenskra banka-bófa er með þvílíkum eindæmum að útilokað er fyrir íslensk fjármálafyritæki að ástunda viðskipti utan Íslands. Þetta ástand mun vara a.m.k 50 ár. Sennilega lengur því Evrópa gleymir ekki svo glatt svindlandi bankaþjófum. Orðið Íslendingur mun hafa á sér áru spillingar og fjármálaótta. Nokkuð sem vekur upp óbragð í munni Þjóðverja, Svissara, Norðurlandabúa, íbúa Niðurlanda og Suður Evrópu allrar.

Skaðinn af efnahagsstefnu Davíðs Oddsonar og Sjálfstæðisflokksins er með ólíkindum.

-Algerum ólíkindum.

VR kosningar - Kjósum Kristinn Örn!

Nú standa yfir kosningar í VR. Sögulegur viðburður þar sem tækifæri hefur skapast að losna við VR-bófann sem nú "á" VR.

Nú er lag að kjósa burt VR-bófann.

Þótt ég sé ekki með kosningarétt þá er VR mitt félag. Ég fylgist því vel með og styð Kristinn Örn í formannssætið. Þar fer maður sem er heill í gegn. Klár og réttsýnn. Honum er treystandi fyrir að leiða VR inn á lýðræðisbraut.

Félagið hefur verið "eign" ákveðnar klíku sem stjórnað hafa VR eins og mafíu. Mokað undir sjáfa sig ofurlaunum og sporlsum sem ná engri átt. Formaður VR er t.d á ofur-jeppa sem kostar 10 miljónir. Þessi jeppaeign er verkalýðsformans er einsdæmi og aðrir verkalýsforkólfar keyra bara á sinum eigin bílum. En ekki VR-bófinn.

Talíbanar Sjálfstæðisflokksins

Sú fáheyrða aðgerð Sjálfstæðisflokksins að heimila hvalveiðar, korteri fyrir stjórnarskipti er einhver andstygglilegasta stjórnsýsla í Íslandssögunni.

Illa þefjandi skítafýlu-bombu var plantað í faðm nýju ríkisstórnarinnar sem þarf að díla við þetta rugl. Heimskir þingmenn í öllum flokkum styðja þessi skrípa-lög.

Hvalveiðar hafa öðlast einhvern þjóðrembu-sess í hugum margra og sumir telja þetta vera prinsippmál er varðar sjálfstæði landsins. Þetta minnir mig um margt á þegar talíbanar í Afganistan sprengdu upp æva-fornar styttur af Búdda með nákvæmlega sömu rökum. Þeir máttu þetta, enda við stjórn landsins. Þeir hertust bara við andstöðu alþjóðasamfélagsins og sprengdu hinar 2000 ára styttur í tætlur (líkneski eru nefnilega bönnuð í Islam).

Ég gæti alveg sætt mig við hvalveiðar af einhverri sort svo fremi að þetta væri bissness. En svo er ekki. það vill enginn kaupa hval-ket. Ekki kjaftur. Hrikalegar byrgðir af gömlu hval-keti eru geymdar í dýrum geymslum út um allt Japan. Enginn vill kaupa.

Sjálfstæðisflokkurinn

Eftir að hafa rústað landinu, þá snúa þeir nú bökum saman til að standa í vegi fyrir björgunaraðgerðunum.

-Þokkaleg pólitik hjá Sjálfstæðisflokknum, ekki satt?

Íslenska lopapeysan.

Það hefur vakið nokkra athygli mína, eftir að ég flutti til Fyrirmyndarríkisins, að tísku-hirð Gautaborgar klæðist gjarnan íslenskum lopapeysum. Ekki er óalgegnt að sjá slánalega táninga með hýjung og gleraugu með þykkri umgjörð bíða eftir sporvagni í íslenskri lopapeysu. Gjarnan er grænleit strigataska kæruleysislega hengd á lopa-öxlina. Glittir í Ipod og heyrnartól.

Ég á tvær lopapeysur og nota þær nokkuð reglulega. Þess ber að geta að ég fékk á dögunum ferlega góða hugmynd af lopapeysu fyrir tölvunörda. Ég mun hafa samband við handiðnaðarsambandið, hannyrðadeild og læra að teikna upp lopapeysu.

Munstrið er lykilatriði í Teits-peyslunni og mun vekja lukku og tregafulla eftirsjá eftir níunda áratuginum.

Óháður seðlabanki

Kostulegt hefur verið að fylgjast með vælinu í Davíð Oddsyni og náhirðinni í kringum hann þegar kemur að umræðunni um yfirvofandi brottvikningu hans úr Seðlababankanum.

  • Náhirðin segir hann vera eina manninn sem hafi varað við hruninu! (niðurstaða sem krefst ólympíumeistaratitils í hugarleikfimi og útúrsnúningum á tvíslá)
  • -Davíð sjálfur segir að ríkið megi ekki reka sig né skipta sér af starfi Seðlabankans. Seðlabankinn sé óháð stofnun sem á að veiti ríkinu og fjármálastofnunum nauðsynlegt aðhald.
Þetta er ágætur punktur hjá Davíð. En hvar var hinn óháði Seðlabanki þegar Davíð sjálfur réð sig í stól seðlabankastjóra þegar hann hætti í forsætisráðuneytinu? Það er lágmarkskrafa í orðræðu að taka bjálkann úr eigin augum skuli maður gagnrýna nærsýni andstæðinga sinna.

mánudagur, 23. febrúar 2009

Yeah...Right...

Spélegt hefur verið að fylgjast með viðbrögðum frjálshyggjufólks við Davíðshruninu. Viðbrögðin minna nefnilega æði margt á viðbrögð kommúnista við fall Sovíetríkjanna. Kommúnistar á Íslandi og víðar sögðu nefnilega að í Sovíetríkjunum hefið aldrei verið ástundaður kommúnismi, heldur eitthvað allt annað.

- Yeah... Right...

Frjálshyggjumenn á Íslandi telja að ástæður hrunsins séu þær að reglur hafi í raun verið of margar og að ríkisafskipti í formi eftirlitsstofnanna osfr, hafi brenglað markaðinn. Það hafi ekki verið frjáshyggja í gangi heldur eitthvað annað.

- Yeah... Right...

Þessi ályktun frjálshyggjufélagsins er kostuleg lesning. Blanda af rugli, losti, gremjuflullri kímni og þvælu.

Sérstakur skattur á trúlausa.

Þeir sem ekki vita það nú þegar þá borgar hver og einn borgari s.k sóknargjald. Þeir sem vilja ekki greiða trúfélagi sóknargjald, borga nú samt.

Þeir borga þess í stað til Háskóla Íslands í s.k Háskólasjóð.

Þar til nú. Nú hirðir ríkið peningana sem áttu að fara í Háskólasjóð. Peningar trúleysingja fara s.s beint til ríkisins.

Skattur á þá sem ekki trúa á yfirnáttúrulega veru í himninum hlýtur að vera einhver óvenjulegasta skattheimta í veraldarsögunni. Asnalegri en "rauðhærðraskatturinn" illræmdi sem var við lýði í Svíþjóð á fimmta áratug síðustu aldar.

Þegar þetta mál kom upp á sínum tíma vakti það litla athygli fjölmiðla og sætir það undrum. Nú er lag að fjalla um þennan asnalega órétt.

Dyggur lesandi Eimreiðarinnar.

Formaður Framsóknar segir að Samfylkinin hafi hafið rógsherferð á hendur sér og vísar í bloggheima. Ég fylgist náið með blogginu og hef hvergi séð meintar árásir Samfylkingarinnar. Ég hef reyndar bloggað undir yfirskyni viss kerksnisfulls gyss að Framsókn væri skítaflokkur (sem hann er)

Hér og hér.

Ég tel að Sigmundur formaður Framsóknar sé dyggur lesandi Eimreiðarinnar og hafi farði á taugum þegar hann sá nýja Framsóknar-lógóið.

Samtryggingin sigraði.

Hugmyndir um að kosningakerfi væri breytt þannig að kjósendur veldu sjálfir þingmenn á lista samhliða flokkakosningu hafa verið slegnar af. Þetta hefið þýtt að prófkjör hefðu heyrt sögunni til. Það má segja að með þessu hafi samtryggingin sigrað lýðræðið því að hagsmunir flokksræðisins séu best borgið með dýrum og ólýðræðislegum prófkjörum. Prófkjör þýða i rauninni að þeir sem eru ríkastir eða hafa greiðastan aðgang að ríkum vinum, eru í bestri stöðu.

Þetta ógeðfelda kerfi er bakbeinið í flokksræðinu og tryggir alltaf litlar sem engar breytingar á flokkakerfinu. Flokkaforystan vill nefnilega ráða hvernir raðst inn á lista. Nýtt fólk á lítinn sjens í dýr prófkjör enda ekki með spillingar-tengsl við fyrirtæki og valdablokkir í kerfinu.

Þetta kerfi er eitt það ljóstasta í lýðræðissögu landsins. Mér er t.d tjáð að kosningabarátta Gísla Marteins í slagnum um oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hafi kostað yfir 20 miljónir. Ekki veit ég hvaðan þessir peningar komu en rökrétt er að álykta að einhverjum greiða hafi verið lofað fyrir hverja miljón sem fóru í sjóðinn.

Mér er einnig tjáð frá fólki úr innviðum stjórnkerfisins að þessar breytingum hafi hæglega verið hægt að keyra í gegn með einföldum meirihluta. Gamlir flokkshundar úr öllum flokkum réru gegn þessu öllum árum og uppskáru sigur undir yfirskyni að "sátt væri nauðsynleg í þessu stóra máli".

Enn og aftur eru flokkshagsmunir settir skörinni lægra en þjóðarhagsmunir.

Sjálfstæðisflokkurinn verður smáflokkur

Næstkomandi kosningar koma á versta tíma fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Flokkurinn hefur staðið sig hlægilega í stjórnarandstöðu með ósönnum ávirðingum og gremjukenndri þvælu. Helst hefur Sjálfstæðisflokkurinn reynt að gera nýju stórninni erfitt fyrir með málþófi og þvíumlíku. Nokkuð sem er flokknum til ósóma.

Þess utan fer ástandi versnandi með hverjum deginum og fólk mun fatta og fólk mun skilja hverjir bera ábyrgðina á hruninu. Sjálfstæðisflokkurinn er á berangri og hlúir honum hvorki börkur né barr.

Þetta er sérstaklega bagalegt í ljósi þess að flokkurinn hefur aldrei (0g mun aldrei) beðist afsökunnar á Davíðshruninu. Það næsta sem hefur komist við iðrun eða afsökun voru orð Guðlaugs Þórs sem sagði að flokkurinn hefði "að einhverju leiti sofið á verðinum".

Ég hvet Sjálfstæðisfólk sem getur ekki hugsað sér að kjósa aðra flokka að skila auðu í næstu kosningum.

Geir Haarde og orðræðan

Ummæli Geirs Haarde sæta furðu. Í þætti á BBC sagðist hann ekki ætla að biðjast afsökunar á Davíðshruninu. Sagði að það hrunið væri útlendingum að kenna og möguleg afsökun kæmi hugsanlega eftir að nefnd (sem hann skipaði) kæmist að þeirri niðurstöðu að afsökun ætti við. Hann sagði ennfremur að "á þeim tíma sem ákvarðanirnar (sem leiddu til hrunsins) voru teknar, voru þær réttar".

Geir Haarde til upplýsingar þá má segja hið sama við allar slæmar ákvarðanir sem teknar hafa verið í mannkynssögunni. Ég veit um mann sem tók vitlausa beygju í Frakklandi og endaði í Belgíu. Þessi maður varði sig með sömu rökum og Geir Haarde. Á þeim tíma sem hann tók vitlausa beygju, sýndist honum að ákvörðunin hafi verið rétt.

-En hún var röng!.

Geir beitti svipaðir rörkfærslu þegar hann var staðin af bull-ásökunum í garð Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Hann sagði að "hann hefi haft rétt fyrir sér svo langt sem það náði".

-Þessi maður var forsætirráðherra meðan Davíðshrunið dembdist yfir þjóðina. Það er ekki að undra að hann hafi beiðið guðinn sinn um að passa upp á þjóðina meðan á þessu stóð.

Batteríslaus rafmagnshjólastóll.

Össur Skarphéðinsson er batteríslaus rafmagnshjólastóll. Sniðugur en gagnslaus. Virkaði einu sinni en er búin að vera. Ítrekaðar yfirlýsingar um miljóna-skriljónir handan við hornið duga ekki lengur (laxeldi-raforkusala í gegnum REI og nú síðast olíulindir í norður íshafi).

Össur á að hætta og hleypa nýju fólki að. Ég veit ekki hvað Össur ætlar að standa fyrir næsta kjörtímabil. Ég veit ekkert hvaða pólitík Össur aðhyllist nema þá fyrirgreiðslupólitik að hætti Davíðs Oddsonar. Það dugar ekki að vera "skemmtilegi þingmaðurinn" og reyta af sér brandara ofna saman við þjóðlegan fróðleik og lókal djóka úr einherjum sýslum frá tímum haftaáranna. -Það bara dugar ekki

Einhversstaðar á leiðinni gleymdi Össur að vera krati og varð þurrprumpulegur kerfiskall án tilgangs nema þess að halda sér og sínum við ket-katlana. Þetta er sorglegra en tárum taki.

Kristján Möller er til óþurftar.

Jarðganga-Möller er fortíðin holdi klædd. Hefðbundin skrílkrati sem heldur að stjórnmál snúist um að bora göt í fjöll. Atkvæðasmali af gamla skólanum, studdur af spilltum já-bræðrum sem telja að með stuðningi við Jarðganga-Möller, fái þeir dúsu af einhverri sort. Dúsan getur verið allt frá samningi við ríkið um einhverja þjónustu, djobb í sundlauginni á Siglufirði eða bara að komast á boðslista í Þorrablót.

Svona stjórnmálamenn eru til vansa fyrir íslenskt samfélag og eru dragbítar á framfarir.

Möller ætti bara að hætta og fara á ofur-eftirlaun frá skattgreiðendum.

Nýtt fólk til forrystu.

Ég er ósegjanlega ánægður með þá sem ætla að skora flokksræðið á hólm í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir næstu kosningar. Ég er alveg í skýjunum yfir að Dofri ætli fram. Sömuleiðis Anna Pála og svo ekki talað um Pétur Tyrfings. Þetta er allt fólk sem er gegnumheilt og gott. Ég sé ekki neinn tilgang að kjósa Össur, Ingibjörgu, Þórunni Sveins, Jarðganga-Möller og alla hina sitjandi þingmennn flokksins.

Þetta fólk hefur ekkert meir að segja. Ekkert meira fram að færa. Þau klúðruðu svo miklu að það er efni í nokkrar þykkar og leiðinlegar bækur. Því miður því ég er nokkuð viss um að þetta fólk starfaði af ákveðnum heilindum. -En það er bara ekki nóg að hafa góðan ásetning. Fólk verður að duga eins og maðurinn sagði.

Ég ætla bara að kjósa nýtt fólk í prófkjörinu sem er framundan og hvet Samflykingarfólk til að gera hið sama.

-Út með gamla liðið. Inn á með nýtt fólk.

Samfylkingin mín

Ég er rétt mátulega ánægður með Samfylkinguna mína þessa stundina. Mér sýnist á öllu að flestir þeir sem stóðu vaktina meðan óveðursskýin hrönnuðust upp og brugðust á ögurstundu, ætli að bjóða sig til áframhaldandi starfa fyrir Samfylkinguna. Þetta þykir mér miður og til vansa.

Ingibjörg Sólrún sagði að flokkurinn hefið axlað ábyrgð með því að slíta stjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn. Þetta er bull og þvæla hjá Ingibjörgu og minnir óþægilega mikið á orð Vilhjálms Þ. fyrrverandi borgarstjóra, þegar hann sagði að Sjálfstæðisflokkurinn hefði axlað ábyrgð á REI-hneykslinu með þvi að hrökklast frá völdum.

Að axla ábyrgð er ekki að hrökklast frá völdum. Þetta veit Ingibjörg mæta vel þótt Vilhjálmur sjái ekki muninn. Ingibjörg Sólrún verður að breyta samkvæmt því sem rétt er Annars er trúverðugleiki flokksins alltaf dregin í efa.

Ingibjörg á að stíga til hliðar og láta annað fólk stýra flokknum en hana sjálfa og já-hirðina í kringum hana. Hún brást eins og allur þingflokkurinn. Í eitt og hálft ár gerði flokkurinn ekki rassgat til að hindra Davíðshrunið og verður að axla ábyrgð á því fíaskói.

föstudagur, 20. febrúar 2009

Hvaða dúsu fær Lúðvik Bervinsson?

Það verður spennandi að fylgjast með þvi hvaða dúsu Lúðvík Bergvinsson þingmaður Samfylkingarinnar fær þegar hann hættir þingmennsku.

Útlilokað er að Lúðvík leiti sér að vinnu eins og allur almenningur.

-það er búið að ráðstafa fyrir hann feitum bita. Það kemur í ljós á næstu dögum hver sá biti er. Sennilega sendiherrastaða.

Enn og aftur munu íslenskir borgarar horfa upp á flokksspillinguna hygla vanhæfu fólki á kostnað almennilegs fólks. Enn og aftur mun flokksskírteini vera hærra metin en prófskírteini.

-Því miður. Gamla Ísland er ekki í fjörbrotunum. Það er sprell-lifandi enda haldið á lífi af spilltum stjórnmálamönnum.

miðvikudagur, 18. febrúar 2009

Óskar Bergsson G R I L L A Ð U R.......

Þóra Arnórsdóttir grillaði Óskar Bergsson í Kastjósinu í gær. Hárréttar spurningar og ýtin við að fá svör við þeim. Fréttamenn detta oft ofan í þá gryfju að sætta sig við bull-svör víð ágætum spurningum. -Ekki Þóra.





Fréttir herma að Óskar hafi keyrt eftir grillunina, beinustu leið á Feita Dverginn við Gullinbrú og pantað sér flösku af Tekíla sem hann slammaði á hálftíma með nokkrum gestum veitingahússins Domínos sem er í næsta húsi.

föstudagur, 13. febrúar 2009

Nýtt Lógó Framsóknarflokks

Eftir að Sigmundur Guðlaugsson var kosinn til formanns Framsóknarflokksins og blés þannig nýju lífi í flokkinn var þótti mörgum tilhlýðilegt að breyta Lógói flokksins í kjölfarið. Nú hefur litið dagsins ljós nýja Lógóið og Eimreiðin fékk sent sýnishorn eftir skuggalegum krókaleiðum.

Lógóið á að fyrirstylla þá fjölbreytni sem ríkir í Framsókn og gleði yfir því að vera til. Litir dansa á hvítum grunni og stafirnir falla hver yfir annan, rétt eins og þegar stjórnmálamenn ná sátt milli tveggja leiða. Framsókn er ekki lengur opin í báða enda heldur á að notasti við "al-flæði". Framsókn er eins og svampur sem er opin, ekki bara á endunum, heldur á öllum köntum og öllum hliðum. Auglýsingastofan Marcus, Finnenbeck & Huffington í London tók verkið að sér en þeir störfðu nokkuð fyrir Gamla Landsbankann fyrir nokkrum árum með góðum árangri.

Hér er Nýja lógóið

Góð list og vond list

99 % af allri list í heiminum er rusl

þetta eina prósent sem eftir stendur gerir lífið þess virði að lifa því.


-o-o-o-o-

Fyrir neðan er það listaverk sem ég hugsa oft um. Málverkið Guernika eftir Picasso. Verkið er málað eftir fólskulega árás fasista á baskneska bæinn Guerniku. Árás sem markaði tímamót í nútíma hernaði því þarna voru nasistar að æfa sig í því að sprengja borgir í loft upp. 26 sprengjuflugvélar gerðu árás á Guerniku og lögðu þorpið í rúst og drápu hundruðir bæjarbúa. Tala fallinna er á reiki allt frá 250 til 1600 manns eru nefndar í þessu samhengi. Táknin í verkinu eru mörg og ólíkt lélegri list, þá eru tákin afar skýr. Sagan er ekki hulin persónulegri upplifun áhorfandans nema að takmörkuðu leiti. Örvringlaðar mæður, brotið sverð, nautshöfuð (nautið er tákn Spánar), trylltur hestur. Saga verksins er einnig mögnuð. Picasso neitaði að sýna verkið á Spáni undir Franco og Guernika var sýnd út um allan heim þess í í stað. Verkið hefur síðan það var málað skýrskotað til nútímans og fram í tíman. Verkið er fyrir fyrir fórnarlömb drápsæðis og sprengjuárasá á varnarlaust fólk. Þegar tæknin er notuðu til að drepa bræður okkar og systur.

-Vondu kallarnir skammast sín þegar þeir horfa á Guerniku.

fimmtudagur, 12. febrúar 2009

Absolut spilling




Ríkisstjórn Vesturbæjar.

Nýju ríkisstjórnina mætti kalla Vesturbæjarstjórnina. Eftirfarandi ráðherrar búa í Vesturbænum.
  • Jóhanna Sigurðardóttir
  • Össur Skarphéðinsson
  • Katrín Jakobsdóttir
  • Ögmundur Jónasson
  • Ásta Ragnheiður
  • Ragna Árnadóttir
  • Kolbrún Halldórsdóttir
  • Gylfi Magnússon (Setjarnarnes er úthverfi Vesturbæjar og telst til Vesturbæjar skv. Jónsbók og "Nornahamrinum")


Aðeins Steingrímur J. og Kristján Möller búa annarsstaðar.



-Enda eru þeir lúðar.

Ragnheiður von Staufenberg

Nú er í kvikmyndahúsunum bíómyndin Valkyre þar sem Tom Cruise leikur Claus von Stauffenberg þjóðhetju Þjóðverja sem skipulagði tilræði við Adólf Hitler. Tilræðið mistókst og Stauffenberg og allir launráðamennirnir voru teknir af lífi. Meðtaldir voru margir hverjir af bestu herforingjum Þjóðverja, stór hluti intelígensíu þriðja ríkisins þar með talinn guðfræðingurinn þekkti, Dietrich Bonhoffer.

Ragnheiður Ríkhasdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins á ýmislegt sameiginlegt með Stauffenberg. Hún var fyrsti þingmaðurinn í röðum Flokksins sem gagnrýndi Foringjann opinberlega og mæltist fyrir um að hann yfirgæfi bunkerið í Svörtuloftum.

-Síðan þá hefur hún verið í skugganum.


-o-o-o-

Árið 1994 var ég staddur hjá bróður mínum í Berlín og þá var verið að minnast 40 ára afmælis tilræðisins. Ég hafði aldrei heyrt um Stauffenberg áður, en þekkti tilræðið. Það kom mér mikið á óvart hvað Stauffenberg nýtur mikillar virðingar meðal þýskra. Allir fjölmiðlar voru fullir af fréttum um tilræðið og allar fréttirnar voru litaðar einskonar trega því að ef tilræðið hefði heppnast væri sagan öll önnur en hún er í dag. Síðar þá sá ég þýska kvikmyndina
Sofhie Sholl en í henni greinir frá andspyrnu þýskra námsmanna i Munchen gegn nasistum. Afar áhrifamikil mynd um hugrekki sem ég mun ugglaust aldrei skarta.

Ég hvet lesendur Eimreiðarinnar að kynna sér Stauffenberg og leynifélag hvítu rósarinnar.

VR-fólk !! - - - - - Lesið þetta !!!!

Tilkynning!!

Kristinn Örn Jóhannesson fer fram á allsherjarkosningu í VR .


Eftir framboðsfund með starfsmönnum Lífeyrissjóðs verslunarmanna sem hefst klukkan 08:00 í dag 12. febrúar á skrifstofu sjóðsins mun ég afhenda kjörstjórn VR beiðni um allsherjarkosningu um formann VR fyrir kjörtímabilið 2009-2011 ásamt viðbótar meðmælendum eins og lög félagsins kveða á um.

Núverandi formaður hefur virt beiðni félagsmanna VR að vettugi um að stíga til hliðar á meðan að rannsókn á málefnum gamla Kaupþings fer fram en grunur leikur á alvarlegum brotum stjórnar og stjórnenda bankans. Núverandi hefur reynt að gera hlut sinn í málefnum Kuapþings sem minnstan á meðan hann hreykir sér af góðum störfum innan VR. Því miður verða þessi verk ekki aðskilin og fær formaðurinn því falleinkunn.

Ég tel það því nausynlegt að félagar í VR fái að sýna það í verki, með beinum kosningum að þeir hafi misst trú og traust á núverandi formanni félagsins, en hann hefur orðið uppvís af alvarlegu dómgreindarleysi í störfum sínum og athafnaleysi sem stjórnarmaður í Kaupþingi og lánanefnd bankans, en þar sat hann í krafti embætti síns sem formaður VR.

Eins og við höfum séð að undanförnu er rík samfélagsleg krafa um breytingar og að menn axli ábyrgð á gjörðum sínum. Sú krafa er einnig ríkjandi í VR. Við höfum upplifað ríkistjórnarskipti, afsagnir ráðherra, forstjóra FME vikið úr starfi og seðlabankastjórar munu víkja með góðu eða illu.

Eftir að ég hef lagt beiðni mína fram mun ég vera á framboðsfundum með starfsfólki Terra Nova kl.10:00 og svo á hádegisfundi með starfsfólki Johan Rönning.

-o-o-o-

VR er stærsta stéttarfélag landsins með um 28 þúsund félagsmenn. Trúnaðarráð kaus í fyrsta sinn um formann í sögu félagsins sem launþegahreyfingar þriðjudaginn 27. janúar.

Um Kristinn Örn Jóhannesson:

Kristinn er 42 ára almennur félagsmaður í VR og starfar hjá flugfélaginu Primera Air.

Er í sambúð og á þrjár dætur, þriggja og fimm ára.

Sjá einning: http://vrkristinn.blog.is/blog/vrkristinn/


miðvikudagur, 11. febrúar 2009

Eyddi færslu

Ég eyddi færslunni þar sem ég bað Birgi Ármansson að þegja.

þetta var bara hallærislegt.

Baggalútur kaupir fréttavefin AMX

Félagarnir í Baggalúti hafa nú gengið frá kaupum á fréttavefnum AMX. Verðið er trúnaðarmál en að sögn Óla Björns Kárasonar er verðið "ásættanlegt". Á næstu dögum verða lesendur varir við eigendaskiptin því að ritstjórnarstefan mun verða "léttari" og aukin áherlsa verður á dægurmál.

"Það veitir ekki af í öllu þessu kreppukaftæði" segir nýbakaður framkvæmdastjóri AMX og Kristinn Snær Agnarson trumbuleikari Baggalúts. "Við ætlum að vera með fréttir sem hæfa amstri dagsins og hugsum fyrst og fremst um að létta lund landans"

Fyrstu dæmin um kaupin eru kostuleg skrif Friðbjarnar Orra Ketilsonar (áður Enter) um búsáhaldabyltinguna.

Uppskera 18 ára valdatíma Sjálfstæðisflokksins

Spessi ljósmyndari hefur tekið ótrúlegar ljósmyndir frá búsáhaldabyltingunni. Serían öll gæti heitað "Uppskera 18 ára valdatíma Sjálfstæðisflokksins".

Hérna er ein mynd úr þessari seríu birt með leyfi Spessa.


Þetta eru þrúgurnar sem Sjálfstæðisflokkurinn skilur eftir sig. Gjaldþrota land, gjaldþrota þegnar, gjaldþrota fyrirtæki, gjaldþrota stjórnkerfi, gjaldþrota þjóðaræra. Ekkert nema vonleysið og skuggi þess.

-Reiðin.

Útlendingar horfa ekki á Kastljósið.

Davíð Oddson sagði á glettnisfullan hátt frá því í frægri ræðu á dögunum, að útlendingar horfðu ekki á Kastjósið og uppskar mikinn hlátur fyrir.

Auðvitað var þetta rugl hjá Davíð enda hefur það komið á daginn. Hvað heldur Davíð eiginlega að starfsfólk erlendra sendiráða á Íslandi hafi fyrir stafni? Bretar fylgjast vel með öllu sem gerist á Íslandi. Þjóðverjar líka. Rússar einnig. Bandaríkjamenn, Frakkar og Kínverjar.

Davíð Oddson er tákngerfingur fyrir heimsku, hroka og ósóma

Bjarni Ben verður formaður

Það er deginum ljósara að Bjarni Ben verður formaður Sjáfstæðisflokksins. Hann er ekki hluti af Davíðs-geðveikinni sem rústaði landinu. Hann stendur fyrir gömlu gildin í Flokknum. -Sem er gott. Hefðbundin, hófsaman og mannlegan íhaldsflokk hefur vantað í landið um langt skeið. Svoleiðis stjórnmálaflokkur á sannarlega erindi inn í litróf stjórnmálanna.

Hann þarf hinsvegar að setja sig í fótspor Krúsjoffs aðalritara eins kaldhæðnislega og það hljómar, og gera upp Davíðstímann. Það verður ræða sem á eftir að fara í sögubækurnar og Bjarni ætti að fara að hripa niður punkta fyrir ræðuna nú þegar.

Aðrir frambjóðendur í formanninn eiga ekki sjens í Bjarna. Þorgerður Katrín er innvínkluð inn í Kaupþings-sukkið og skuldir Þorgerðar og eiginmanns hennar munu ugglaust lenda á skattgreiðendum þegar allt er gert upp. Svoleiðis lík í farangrinum er til trafala.

Sómaleysi Sjálfstæðisflokksins

Eftir að hafa stýrt landinu í 18 ár með hrikalegum afleiðingum, sitja nú þingmenn Sjálfstæðisflokksins í gremjukasti og vilja láta vorkenna sér. Tala um svik og rýtingsstungur.

Ástandinu má líkja við þegar ofbeldisfullur heimilisfaðir er tekin til hliðar frá fjölskyldu sinni efir óskapanótt. Ofbeldisfaðirinn er úti á tröppum, klæðalítill og ringlaður meðan lögreglan talar við fjölskyldufólkið. Fjölskyldan hefur ákveðið að pabbinn fái ekki að koma inn á heimilið aftur og reynir að greiða úr þeim óskaplega ástandi sem blasir við eftir 18 ára sambúð. Hvar sem litið er blasa við rjúkandi rústir.

Á meðan þessu stendur er heimilisfaðirinn fyrir utan húsið í brjálæðislegu gremjukasti að eyðileggja það sem hann getur fyrir fjölskyldunni. Hann ræðst á bílinn, rífur upp trén í garðinum og hvolfir úr ruslatunnunni.

Svona er komið fyrir Sjálfstæðisflokknum. Í stað þess að skammast sín, hugsa mál sitt, ákveður hann að skemma fyrir nýju stjórninni að öllum sínum mætti. Notar til þess þóf, lagasmugur og upphrópanir. Ef að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hefðu sómatilfinningu þá settu þeir sjálfan sig í hlutlausa gírinn og reyndu að hjálpa til við uppbygginguna og láta aðra um að stýra ferðinni.

þriðjudagur, 10. febrúar 2009

Svíi í viðskiptaerindum

Auglýsingar hér í Svíþjóð eru margar hverjar alveg frábærar. Telenor hefur verið að auglýsa síma-áskrif sem er sérsniðin fyrir viðskiptalífið. Í aðalhlutverki er Svíi sem fer vítt og breytt um heiminn til að gjöra viðskipti. Í auglýsingunni er gert grín af frekar grunnhyggnum Svíanum sem þó lærir inn á viðskiptamenningu þeirrra landa sem hann heimsækir. Nýjasta auglýsingin er ekki komin á YouTube en í henni fer Svíinn viðkunnanlegi til Kúveit. það er kostuleg auglýsing.

Japan



Bandaríkin



Rússland

Íslenska er málið

Konan mín vinnur á spítala og er smám saman að komast inn tungumálið, starfið og skýrsluskrif sem því því fylgja Hún tók eftir því að sagnir enduðu ýmist á dé-i eða té-i. Hún spurði starfsfélaga sína hverju þetta sæti. Enginn vissi það. Allir skildu spurninguna en svörin voru þvers og kruss. Leikar fóru svo að ein kona ætlaði að spyrja son sinn út í málið en sá er sænskumaður.

Nokkrum dögum síðar kom svarið. Eftir að hafa hlustað á spurningingu móður sinnar hváði sænskumaðurinn á móti hvort fyrirspurnin kæmi frá Íslendingi. -Jú, það stemmdi.

Kemur upp úr dúrnum að alkunna er meðal sænskra að íslendingar eiga óvenju létt með að læra sænska stafsetningu. Það er vegna þess að mörg orð í sænsku hafa sömu sifjar og íslensk orð. Íslendingar eiga því létt með að skilja sænsk orð og hvað stendur að baki þeirra. Íslenskir krakkar í sænskum grunnskólum eru oft og tíðum best í sínum bekk í stafsetningu.

Þetta þykri mér gaman.

Annars er sænska alger grautur af orðum sem koma víða frá. Frönsk og hollensk orð eru t.d ekki óalgeng. Því miður þá hafa Svíar litla sómatilfinningu gagnvart tungumálinu sínu. Þeim er í raunninni alveg sama hvernig hún er töluð eða jafnvel skrifuð. Hreintungustefna er eitur í þeirra beinum og þeir mega ekki heyra á hana minnst. Afstaðan til tungumálsins er eiginlega fjálshyggja. Ef orði virkar, þá er orðið samþykkt. Auglýsingar hér eru t.d of beinlínis á ensku. Stærsta símafyrrtæki Svíþjóðar er t.d að keyra auglýsingaherferð hver slagorð er "Born to be Cheap" en þar fer rolla (sheep) með aðalhlutverkið.

Þetta er reynar fyndið því að sænskir eiga í erfiðleikum með ensk orð sem byrja á -ch. Þeir segja t.d ekki "tsjís-burger" heldur "sjís-burger". Michael Djackson verður t.d Michael Jakson. Auglýsingaherferð símafyritækisins hljómar því annkannalega því að hún er byggð í krinum orðið "tjíp" (sheep) en maðurinn í auglýsingunni segir alltaf "sjíp"

En þetta var útúrdúr.

mánudagur, 9. febrúar 2009

Ólafur Klemenzson eltur !!

Eimreiðin fékk þennan póst rétt í þessu:


Nú rétt í þessu gengu hér fram hjá skrifstofunni minni tveir mótmælendur með gríðarlega háværan pottapönnuslátt.


Á undan þeim gekk Ólafur Klemenzson starfsmaður Seðlabankans og ofbeldismaður


Hann var að fara í hádeginu í verslunina Vísi.


Þeir eltu hann hvert fótmál cirka 2 metra á eftir honum.


Biðu eftir honum meðan hann var inni í Vísi og byrjuðu svo aftur með gríðarlegan hávaða um leið og hann kom út

-Eltu hann svo aftur niður í Seðlabanka.














Skortur á sómatilfiningu

Eins og ég hef margoft á þessu bloggi mínu tönglast á, eru viðbrögð Sjáfstæðismanna eftir Davíðshrunið, mér gersamlega óskiljanleg. Nú þekki ég mikið af fólki sem er annað hvort í þessum flokki, ellegar styður hann í orði og æði.

Þetta er alltsaman ágætis fólk skal ég segja ykkur og þessvegna eru viðbrögðin í kjölfar Davíðshrunins mér alger ráðgáta. Sjálfstæðismenn eru í sárum vegna stjórnarslitanna og skeytin fljúga í allar áttir nema eina.
  • Sjálfstæðismenn benda á rýtingsstungu Samfylkingarinnar
  • Benda á í landinu starfar nú minnihlutastjórnin.
  • Mótmæla kröftuglega yfirvofandi brottvikningu Davíðs Oddsonar úr Seðlabankanum
  • Beina nú spjótum sínum að rithöfundinum Hallgrími Helgasyni vegna þátttöku hans í mótmælunum.
  • Tala um "óðan skríl" um þá sem tóku þátt í mótmælunum
Alltsaman hálf máttlaus skeyti..

Það sem Sjálfstæðismenn ættu að hugsa um núna í stað þess að tuðast þetta á ómerkilegum hlutum er að heimsmyndin sem flokkurinn er byggður á er hruninn. Töfraformúlan var ban-eitruð. Hvar er þessi umræða? Ég hef ekki séð staf skrifaðan um þessa staðreynd en hef þó séð kröfuna um að þessi endurskoðun fari fram. Allt hverfist nú um aðra hluti og ómerkilegri

Enginn Sjálfstæðismaður þorir að horfast í augu við þá staðreynd að eftir 18 ára valdasetu Flokksins var landið í rjúkandi rúst. Stjórnkerfið gerspillt af hæfileikalausum flokksdindlum á öllum póstum og þrískipting valdsins orðin óskýr í meira lagi. Fölskvalausar flokksdindla-ráðningar voru orðnar svo margar að fólk missti sjónar af því hvernig almennilegt samfélag á að virka. Þegar svo flokksdindill Sjálfsstæðisflokksins, sýslumaðurinn á Selfossi gaf út handtökuskipanir á mörghundruð manns vegna Davíðshrunsins, þá brast eitthvað hjá þjóðinni.

það var bylting.

Uppbygging samfélagsins er óhugsandi með aðkomu Sjálfstæðisflokksins. Þeir ættu að sjá sóma sinn í því að hætta að væla og sitja bara hjá í umdeildum málum. það er verið að taka til eftir þá. Landið er í rúst eftir þá. Fjölskyldur flosna upp eftir þá. Einstaklingar eru fullir örvæntingar eftir þá. Það tekur áratugi að laga til eftir þá og mannorð Íslendingar er flekað um ókomin ár.

-Sjálfstæðismenn ættu bara að þegja. Þegja og skammast sín.

VR félagar. - Lykildagsetningar

Hér eru lykildagsetningar varðandi kosningarnar í VR: Félagsmenn VR ættu að kynna sér vel þessar dagsetningar. Eina leiðin til að kjósa út Gunnar Pál er að taka þátt.

  • 12. feb -Skilafrestu meðmælandalista og kröfu um allsherjarkosningar, aðeins þeir sem voru í kjöri 27. eru gjaldgengir.
  • 12-13. feb- kjörstjórn úrskurðar umlögmæti framboða/meðmælenda
  • 23. feb. VR heldur framboðsfund í R.vík
  • 23-25. feb Veflyklar sendir út til félagsmanna, aðgangur að vefkosningu - kjörgluggi opinn í tvær vikur eftir það!
  • 26. feb. VR heldur framboðsfund í Vestmannaeyjum
  • 03. mar. VR heldur framboðsfund á Egilsstöðum
  • 12. mar. Útslit kosninga.

VR munu gefa út kosningablað til félagsmanna og setja á laggirnar kosningavef, jafn aðgangur fyrir frambjóðendur, ekki miðlæg ritstjórn á vef.

Árnarnir og ósýnilegi maðurinn

Ef það er einhver dugur í Sjálfstæðismönnum á Suðurlandi, þá kjósa þeir Árnana út. Þeir hafa ekki bara reynst sunnlendingum illa, heldur þjóðinni allri. Það má reyndar segja það sama um Sjálfstæðisflokkinn í heild sinni, en látum það liggja milli hluta.

Rétturinn til að hafa rangt fyrir sér er óumdeildur.

Árni Matthíasen, Árni Johnsen og þessi sem gengur undir nafninu "ósýnilegi þingmaðurinn"! Eruð þið að grínast! Eruð þið ekki búnir að gera nóg? Er eitthvað ógert í þeim efnum? Elsku bestu Árnar... Hættið þið þessu! Farið á ofur-eftirlaun á Klörubar. -Þetta er komið gott. -Umfram allt hættiði.

Má ég þá biðja um hermaurinn. Hann getur ekki verið slappari en Árnarnir og ósýnilegi maðurinn.









Meðfylgjandi ljósmynd naðist af ósýnilega þingmanninum og Einari Bárðarsyni aðstoðarmanni hans á kosningafundi í Eyrarbakka á dögunum.

Davíð mærir sjálfstæði seðlabankans.

Davíð Oddson segir í bréfinu mikla að...

"Lög sem eiga að tryggja sjálfstæði seðlabanka og forða pólitískri aðför að seðlabankastjórninni hafa nú verið þverbrotin"

Þetta er ágætis punktur hjá Davíð Oddsyni. Sjálfstæði Seðlabankans er afar mikilvægt. það er miklvægt að í Seðlabankann veljist fólk sem er yfir stjórnmálastúss hafið og hafi faglega einurð að leiðarljósi.

Í þessu ljósi er fyndið að hugsa til þess að Davíð Oddson réð sjálfan sig sem Seðlabankastjóra á sínum tíma. Hvar var sjálfstæði Seðlabankans þá? -Var það ekki bara hjá Sjálfstæðisflokknum?

það sem Jóhanna er að gera núna er einmitt að tryggja sjálfstæði Seðlabankans með að reka þaðan Davíð og félaga hans. það þarf að "hreinsa" allar stofnanir ríkisins af flokksdindlum og óhæfu fólki sem flokkarnir hafa raðað á ríkisjötuna. Best að byrja á Seðlabankanum enda skemmdarverk Seðlabankastjóra með þeim ólíkindum að þau verða rituð í mannkynssöguna okkur Íslendingum til ævarandi háðungar.

Fyrir svo utan að Davíð Oddson er arkítektin af Hruninu, Maðurinn sem kom Íslandi á lista yfir hryðjuverkaríki og hefur sýnt það og sannað að hann kann ekki að stórna seðlabanka frekar en mannasiði.

laugardagur, 7. febrúar 2009

Á valdi auglýsinganna

Ég átti erindi í Clas Ohlson (sem er svar Svíþjóðar við Húsasmiðjunni) til að kaupa plastkassa. Þar sem ég var ráfaði milli rekkanna eins og rotta í tilraunastofu, rak ég augin í tæki sem mér þótti sniðugt. Það er einskonar grænmetis-skeri. Því miður fyrir mig var vídeó í gangi þar sem eiginlegikar grænmetis-skerans voru tíundaðir. Ég heillaðist. Ég dáleiddist og tók eitt stykki með mér. Ég var gagntekin þeirri tilfinningu að grænmetis-skerinn væri alveg malið fyrir mig. Nú yrði allt bjartara og grænmetið mitt yrði að óaðfinnanlegri stærð. Það var ekki fyrr en alveg við afgreiðslukassann að ég hætti við þessi kaup og laumaði skeranum milli nokkurra vasaljósa með díóðum sem hægt var að láta blikka sjálfvirkt við ákeðnar aðstæður.

Ég fattaði að ég á bara alveg prýðilegan hníf. Auðvitað á maður að skera sitt eigið grænmeti en ekki notast við eitthvað plast-rusl.

-Maður á að lifa beisikk lífi. Ekkert fiff og ekki að stytta sér leið. það er vísasta leiðin til glötunnar. Maður á að eiga góðan hníf og skurðarbretti. Skera bara sínar fokkíng kartöflur eins og maður.

Ég keypti kassana og varð aðeins ánægðari að hafa sloppið við hið dáleiðandi myndband sem villti mér sýn um stund. Hér fyrir neðan er þetta dáleiðslumyndband.

föstudagur, 6. febrúar 2009

Papar skipta um nafn

Ég las rétt í þessu að hjómsveitin geðþekka, Papar hefðu skipt um nafn og hétu nú "Hrafnar". Ástæðan er að tvær hjómsveitir störfuðu undir Papa-nafninu. Eysteinn trommari á nefnilega einkarétt á nafninu. Mér þykja svona nafnabreytingar alltaf vera skemmtilegar og man eftir nokkrum dæmum um svona ágreining.

  • Hjómsveitin "Dúmbó og Steini" hét einu sinni "Plútó og Steini", en þurftu að breyta nafninu út af samskonar ágreningi og upp er komin meðal Papa. Þegar ég var í Ármúlaskóla hlóum við bísna mikið af þessu Plútó-nafni.
  • Listamaðurinn "Erró" hét einu sinni "Ferró". Hann þrufti að breyta nafninu því að annar listamaður kallaði sig "Ferró". -Þetta þykir mér fyndið. Tvær ofur-hæpaðar listaspírur dottnar í málaferli vegna smáborgaralegra dynta.
Auðvitað á hljómsveitin sem áður hét Papar að taka upp annað nafn en Hrafnar. Það er hallærislegt nafn. Fyrrverandi Papar ættu að sjálfsögðu að taka Erró til fyrirmyndar og skýra bandið Apar. Það er hörku flott nafn.

-Apar spila í kvöld....

Sjálfstæðisflokkurinn kemur mér spanskt fyrir sjónir.

Viðbrögð Sjálfstæðismanna við hlutskipti minnihlutaflokks í landsstjórninni eru athyglisverð. Flokkurinn sem setið hefur við völd í 18 ár og sett landið á hausinn engist nú eins og nátttöll í dagrenningu.

Gamla Ísland er í fjörbrotunum.

Núna skyndilega væla Sjálfstæðisflokkurinn um skort á lýðræði og að flokkshagsmunir (andstæðinga sinna) séu teknir fram fyrir hag þjóðarinnar. Endurtekur 18 ára tuð þáverandi stjórnarandstöðu. Þegar flokksdindlar Sjálfstæðismanna eru látnir víkja er tala um "pólitískar hreinsarnir" og að ekki megi "rjúfa griðin í samfélagnu". En ofantalið er einmitt það sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur ástundað s.l 18 ár.

Ef einhver flokkur hefur rofið friðinn í landinu er það Sjálfstæðisflokkurinn með óbeislaðri ný-frjálshyggju, einkavinavæðingu og þeirri hugmyndafræði að best sé fyrir samfélög að þeir ríku beri minnstar byrðarnar.

Ég sakna þess að Sjálfstæðisfokkurinn ræði aðeins um Davíðshrunið, ástæður þess og lærdóm sem af því megi draga. -Ekkert hefur bólað á slíku.

Sniðug viðskipti.

Ég fékk í póstkassann minn sniðugan snepil. Þetta var auglýsingasnepill sem ég las sökum leiðinda yfir pulsum með franskbrauði. það sem snepillinn auglýsti var þjónusta sem ég ætla að kaupa. Þetta er s.s heimsent grænmeti í kassa frá fyrirtækinu Arstiderna. Ekólógíst (en sænskir hafa mikla trú á þeirri vitleysu) og alltaf það ferskasta hverju sinni. Kassinn getur því verið mismunandi eftir því hvað er verið að taka upp úr frjósömum jarðvegi Svíþjóðar

Ég pantaði "Mixladan" sem er grænmetis -og ávaxtablanda. Við ætlum, til að byrja með, að fá grænmetiskassann á 2 vikna fresti. Sjá
til hvernig það spilast. svoleiðs skamtur kostar 410 skr á mánuði

Ég held að við fjölskyldan spörum á þessu og borðum hollari meti.

Hér á myndinni má sjá möguleikana sem eru í boði.

þetta er góð hugmynd fyrir framtaksaman einstakling sem ræktar grænt meti.

fimmtudagur, 5. febrúar 2009

Logi á CNN

Helvíti flottur þrátt fyrir ömurð Davíðshrunsins.

Logi vinur minn á CNN ! !

Logi vinur minn, nágranni og nýbakaður faðir, var á CNN í gær. Það var voðalega gott að sjá Loga. Hann hefur góða návist eins og sagt er.

Hérna er fréttin á CNN

Stærsta sjónvarp í Svíþjóð

Gamla sjónvarpið okkar belaði. Skart-tengin voru orðin slöpp og ómögulegt að lóða þetta saman. Tæki í dag eru þannig úr garði gerð að það er ekki hægt að gera við þau. Þeim er bara hent á hauganna. Hver færi t.d með brauðrist í viðgerð? Þetta er öfugsnúið og ömurlegt.

En þetta er samt heimurinn eins og hann er. Lítið við því að gera. Við keyptum okkur þvi bara annað sjónvarp. Og miklu stærra en það gamla. 33" hlunk sem er í alvörunni tveggja manna tak. Ég er tæplega 1.90 á hæð, 90 kíló og rammur að afli (svo ég segi sjálfur frá) en ég lofta ekki þessum hlunk. Það tók mig 2 klukkutíma að tengja allt
draslið saman og núna virkar allt eins og í sögu.

Eina pikklessið er að DVD/heimabíóið mitt er svo langt að það passar ekki inn í sjónparpsskápinn sem fylgdi með. Ég þarf að saga út fyrir því þegar vel liggur á mér. Hlunkurinn kostaði ekki nema 500 kall sænskar og er í fullkomnu lagi. Gallinn er að fjarstýringaruglið fer ekki minnkandi. Það eykst.

Það er ég viss um að hann Trausti vinur minn hjá EJS hlær sig máttlausan af þessum risa-hlunk. Hann er nefilega tækjafrík með sér sjónvörp sem sérsvið.

Annars er ég eignlega að jafna mig á einhverjum fjáranum. Ég hef verið pirraður fram úr hófi (sem sést því miður á Eimreiðinni), orðjótur, hvatvís og rætinn. Mér líður eins og efnahagi landsins. Ég held að botninum sé náð. Nú er leiðin bara uppávið. Sú staðreynd að Baugur er á leiðinni á hausinn á sama degi og það næst ekki í seðlabankastjóra til þess að segja honum upp, er lýsandi fyrir hinn algera ósigur ný-frjálshyggjunnar. konungurinn í felum og prinsinn sem óx föður sínum upp fyrir höfuð, baugslaus um mittið og með allt niðrum sig.

-Svona er þetta skrýtið.

Bíllinn sem á að bjarga Volvo

Þetta er bíllinn sem á að bjarga Volvó. Þessi verður framleiddur í Gautaborg. Allt er lagt undir til þess að XC60 bíllinn slái í gegn. Ef þessi floppar, þá verður ekkert Volvó lengur. Það er byrjað að auglýsa XC60 en afar fáir bílar eru sem stendur á götunni. Nokkrar bílaleigur hafa fengið eintök sem þeir auglýsa grimmt. Ég rakst á þennan á bílasölu í Partille.

-Óneitanlega laglegur jeppi.















miðvikudagur, 4. febrúar 2009

Takk Davíð. Takk..

Þetta myndbrot segir allt sem segja þarf um 18 ára valdatíma Sjálfstæðisflokksins.. Mannorð Íslendingar er í ruslatunninnu.

-Takk Davíð. Takk.

Það er komið traust.!

það er furðulegt að fá það á tilfinninguna að Viðskiptaráðherra tali af viti. Hingað til hefur allt sem ráðherrar segja, verið sett í e-ð annarlegt ljós. Spurningar á borð við "hverjum ætli hann sé að hygla núna" eða "einmitt það, á að berja á þessum?"

Núverandi viðskiptaráðherra segir eitthvað og ég trúi því að hann vinni af heilindum. Ég trúi því líka að hann sé topp-maður sem hefur menntun fyrir embættið. Þetta er alger nýjung.

-Það er komið traust!

Stórkostleg hugmynd

Hugmyndin um að Mogginn verði í almennings eigu er frábær. Það er ekkert lögmál að fjölmiðlar séu í eigu vafasamra miljarðamæringa eða handbendi stjórmálaafla hverskonar. Ég er ekki frá því að ef þessi hópur kaupir upp þrotabú Árvakurs, þá muni áskrifendum Moggans fjölga til muna og blaðið mun batna.

Það væri frábært að Mogginn endurspeglaði þær miklu þjóðfélagsbreytingar sem nú eru hafnar og sér ekki fyrir endann á. Að almenningur eignaðist Moggann!

Þetta er stórkostlegt framtak.

þriðjudagur, 3. febrúar 2009

Sorlegt

Það er sorglegt að þurfi að taka það fram að næsti seðlabankastjóri verði "faglega" ráðinn.

-það er svo sjálfsagt að ekki þarf að taka það fram. Skítinn eftir áratuga misnotkun flokkakerfisins á helstu póstum samfélagsins þarf að moka út í bílförmum.

En tiltekt byrjar á einni spýtu, einum stein og að láta renna í skúringafötu.

Undarlegir dagar.

Síðustu dagar hafa verið undarlegir. kaldir, grimmir og undarlegir. Stjórnmálin á Íslandi eru í upplausn. Ekki bara Sjálfstæðisflokkurinn, heldur allir hinir líka. Þung krafa er um að byrja upp á nýtt og stofna annað lýðveldi. Sjálfstæðisflokkurinn stendur frammi fyrir þvi að forréttindakerfið er að molna niður. Viðspyrna sumra Sjálfstæðismanna er því nokkur þrátt fyrir lítinn árangur. Hinir flokkarnir eru hálf hissa.

Mikið hefur gengið á satt best að segja.

Ég sé eftir að hafa bloggað nokkrar færslur undanfarinna daga. Sumt er bara saklaust þvaður, meðan annað er rakalaust. Færsla um 50 miljóna króna mútur til handa Ingu Jónu Þórðardóttur þegar hún fór úr FL -Group er rakalaus. Ég hef þó heimildir um þetta frá aðilum sem ég tel ábyggilega. En svona er ekki hægt að skrifa án sannanna. Það er bara þannig. Ég tek út þessa færslu eftir nokkra klukkutíma. Ég sé barasta eftir þessu. Þetta er mér ekki til vegsemdarauka nema síður sér.

-Yfir og út.

mánudagur, 2. febrúar 2009

Kyssikonan ógurlega

Gísli Marteinn Baldursson fetar fyrirséða leið í bloggi sem hann birti í dag. Þar skammast hann út í nýju stjórnina og finnur hennin flest til foráttu. Þetta er ekkert undarlegt og alveg í stíl við kórinn sem nú hefur upp harmakvein. Svo skammast hann út í Ólaf Ragnar og svoleiðis.

Gremja Sjálfstæðismanna vegna stjórnarslitanna er ofsaleg. Allt liðið er sett af stað og rógsmaskína íhaldsins er byrjuð að malla. Taugaveiklun er komin í liðið. Gísli og fleiri flokksdindlar standa skyndilega frammi fyrir því að forréttindini sem Flokkurinn hefur skaffað, eru í uppnámi. Það er t.d ekkert víst að Gísli fái ofurlaunastarf hjá Reykjavíkurborg þegar hann lýkur námi. Vel mögulegt er að prófskírteini verði rétthærra en flokksskírteini þegar Gísli kemur heim. -Það er komð nýtt Ísland.


Mér finnst reyndar alveg ótrúlegt að Gísli og félagar hans í maskínunni, skuli nenna þessu væli. Hversvegna talar Gísli ekki um uppskeru 18 ára valdasetu Sjálfstæðisflokksins? Því talar Gísli ekki um Davíðshrunið? Því talar hann ekki um hraklega frammistöðu Sjálfstæðisflokksins sem varð þess valdandi að hann hrökklaðist frá völdum? Gísli hefur nefnilega ekki tekið eftir þvi að það varð bylting í landinu sem kom til vegna inngróinnar spillingar og vankunnáttu Sjálfstæðisflokksins. Gísli mun ekki fara út í þessa sálma ágætu lesendur. -Stefna Flokksins var nefnilega rétt að mati Gísla og maskínunnar. Sjálfstæðisflokknum var ekki bolað frá. Hann var svikinn af kyssukonunni ógurlegu.