Prófkjör Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi stendur fyrir dyrum. Ég hvet allt Samfylkingarfólk til að kjósa og kjósa nýtt fólk. Kjósa endurnýjun en ekki endurvinnslu. Trúverðugleiki flokksins hangir á spýtunni og krafan er skýr.
Endurnýjun - Ekki endurvinnsla.
Þetta er kjördæmi Jarðganga-Möllers sem hefur verið erkitýpa gærdagsins meðal íslenskra krata. Landsbyggðarþingmaður sem býr í 300 fm villu í Reykjavík. Ofurlaunamaður með ofurlaunaeftirlaunarétt á fullu að "berjast" fyrir hugsjónum hefðbundinar jafnaðarstefnu sem þýðir í huga Möllers, að bora göng í fjöll í kjördæminu sínu. Ráðherra í hinni toxísku stjórn með Sjálfsstæðisflokknum. Ég hvet Norðvesturkjördæmis krata að kjósa hann út.
Mér líst allvel á Sigmund Erni, ekki vegna þess að hann er frægur og með seiðandi augnablik undir haukfránni brún, heldur vegna þess að ég held að hann sé heill í gegn. Ég vann með honum á DV og þekki hann af góðu einu. Benedikt Sigurðarson er einnig maður sem ég hef einhvernvegin traust til. Hann er allavega no-bullshit maður þegar hann er í sjónvarpinu. Skýr og greinargóður. Laus við moð sem er sjaldgæft meðal stjórnmálamanna. Aðra þekki ég ekki en veit að hver og einn er betri en núverandi forrysta kjördæmisins.
1. sæti
Kristján L. Möller, samgönguráðherra
1.-2. sæti
Jónína Rós Guðmundsdóttir, formaður bæjarráðs í Fljótsdalshéraði
Agnes Arnardóttir, atvinnurekandi
1.-3. sæti
Logi Már Einarsson, arkitekt
1.-4. sæti
Örlygur Hnefill Jónsson, lögmaður og formaður stjórnar Byggðarstofnunar
1.-6. sæti
Benedikt Sigurðarson, framkvæmdastjóri
1.-8. sæti
Óðinn Svan Geirsson, verslunarstjóri
2. sæti
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Einar Már Sigurðsson, alþingismaður
2.-4. sæti
Guðrún Katrín Árnadóttir, sérkennari
3.-4. sæti
Helena Þ. Karlsdóttir, lögfræðingur og bæjarfulltrúi á Akureyri
Herdís Björk Brynjarsdóttir, nemi og verkakona
Jónas Abel Mellado, afgreiðslumaður
4.-5. sæti
Aðalbjörn Björnsson, skólastjóri
4.-6. sæti
Gísli Baldvinsson, náms- og starfsráðgjafi
2.-4. sæti
Stefanía G. Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri
3.-4. sæti
Þorlákur Axel Jónsson, framhaldsskólakennari
3.-5. sæti
Svala Jónsdóttir, sviðsstjóri