EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

fimmtudagur, 30. apríl 2009

Við erum klan.. Ekki þjóð.

Íslendingar eru ekki þjóð. -Þeir eru klan.

Svíum finnst ferlega fyndið að allir Íslendingar eru skyldir og öllum ættartengslum Íslendinga sé hægt að fletta upp á netinu. Þjóðin er svo mannfá að allir þekkja í raun og veru alla. Ég hef oft heyrt þessa fullyrðingu en aldei fattað hana almennilega. -Fyrr en í gær. Þá var frétt um Ísland og íslensk stjórnmál og mér til furðu þá þekkti ég persónulega eða kannaðist persónulega við nánast alla sem sáust í fréttinni!

Þegar það kom mynd af Jóhönnu Sigurðardóttir forsætirsráðherra. Hún í fjölskyldu konu minnar. Þá var myndavélinni snúið að stjórnarmyndunarviðræðum sem í gangi voru á heimili Jóhönnu vestur í bæ. Jú þar er ég á hverju ári í jólaboði. Næst kom mynd af Bjarna Ben. Einhver tengsl? - Jú smá.Ég hitti hann stundum á foreldrafundum í Garðaskóla. Það glitti í Illuga Gunnarsson í fréttinni. Ég vann með honum eitt sumar á Flateyri. Össur var eitthvað að þvælast fyrir sjónvarpsmanninum. -Þekk'ann! Vann með mömmu í gamla daga á Þjóðviljanum og við erum málkunningjar. Steingrímur J? - drakk með honum kaffibolla með bróður mínum í Kaupmannahöfn fyrir nokkrum árum.

Svo lauk þessar frétt um kunningja mína og venslafólk á Íslandi. Þá tók ekki betra við. Í menningaþættinum á eftir var smá innslag um íslenskt popp. Þar sást auðvitað í Björk. En ég hef verið á fylleríi með henni back in the day. Vælið í Sigurrós heyrðist líka. Úpps! -Þekki Jónsa pínulítið. Þættinum lauks svo á stuttri yfirferð um sinfóníuhjómsveitina og þar sá ég pabba minn í vera eitthvað að pródúsera með hárið flaxandi, skipandi fyrir.

Þetta er ekki normalt.

Ég er ekki að segja að ég "þekki alla" eða þvíumlíkt. Ég þekki bara sama fólk og þið ágætu lesendur. Við erum öll tengd á einn eða annan hátt . Takið eftir þessu næst þegar þið lesið eða horfið á fréttir. Maður þekkir ýmist alla sem eru í fréttum eða kannast við þá á annan hátt.

-Við erum nefnilega klan. -Ekki þjóð.

miðvikudagur, 29. apríl 2009

Minning

lagið Little Fluffy Clouds vekur upp afar sterkar minningar í huga mínum. Ég er standdur í Kaupmannahöfn 94 eða 95 og það er dögun. Ég er að djamma eins og enginn sé morgundagurinn. Félagar mínir eru hinir og þessir, Íslendingar, Danir og Frakkar. Mikið stuð og mikið þvælst um borgina á gamalli Toyotu með þetta lag í botni. Kyrrð, sól, tígulsteinar, fuglakvak og fleiri ávextir dögunarinnar erta skynfærin. Þetta var bara fallegt.

Alveg eins og lagið og þessi mónólóginn hjá Ricky Lee Jones þar sem fyrir tilviljun slær einhverja strengi sem virka.



Hérna er textinn:
Interviewer: "What were the skies like when you were young?"
Jones: "They went on forever – They - When I w- We lived in Arizona, and the skies always had little fluffy clouds in 'em, and, uh... they were long... and clear and... there were lots of stars at night. And, uh, when it would rain, it would all turn - it- They were beautiful, the most beautiful skies as a matter of fact. Um, the sunsets were purple and red and yellow and on fire, and the clouds would catch the colors everywhere. That's uh, neat cause I used to look at them all the time, when I was little. You don't see that. You might still see them in the desert."

Hugmynd fyrir ESB - andstæðinga

Hversvegna stofnið þið ekki vefsíðuna sveiattan.is sem vetvang fyrir myndun raka gegn aðildarviðræðum og meintri inngöngu Íslands í ESB?

Það hlýtur að vera þörf á einhverskonar "think tank" til þess að finna almennileg rök gegn aðildarviðræðum ellegar meintri inngöngu í ESB.

Katrín Jakobsdótttir telur það veigamestu rökin gegn aðild Íslands að ESB að í þeim löndum sem eru í ESB-klúbbunm sé ástundað, skipulagt dýraníð. Tiltekur meir að segja að Foi Grais standi í vegi fyrir mögulegum við ræðum um aðild! Sem næstbestu rök segir Katrín að kvennréttindi gangi hægt fyrir sig (fyrir utan norðuröndin sem eru reyndar einnig í ESB).. Þetta eru svosem rök og allt það, en að þungaviktarmanneskja í íslenskum stjórnmálum beri fyrir sig þessu lélegu rök er fyrir neðan allar hellur..

Athugið að ein af rökunum með þvi að ganga í ESB er að vaxtakostnaður hverrar fjölskyldu minnkar um krónur 500.000 á ári. -Þetta þykja mér góð rök með aðildarviðræðum ellegar umsókn.

Flokkar:

Fréttir frá ESB landi.

Þegar ég var krakki kom inn á heimilið ferlega skemmtilegt blað. það hét "Fréttir frá Sovíetríkjunum". þetta blað nokkuð dularfullt því enginn hafði pantað áskrift af blaðinu og aldrei var rukkað fyrir blaðið. Ég er viss um að þetta dularfulla blað sem kom reglulega inn um lúguna hjá fjölskyldinni að Vesturbergi 95, var afleiðing þess að pabbi minn var framarlega í menningarlífi Íslendinga (og er reyndar enn).

Þetta blað veitti "opinbera" innsýn inn í lífið í stórveldinu, þessari risastóru samfélagstilraun sem reyndist vera einfalt reykský stjórnað af vænissjúkum glæpamönnum. Ég hafði gaman af þessu blaði. Þetta var svona stemmningsblað þar sem brosandi fólk var sýnt ásamt furðusögum úr landbúnaði og manni sem var með ótrúlegt minni. Allskonar bjartsýni og pepp. Þessi bjartýni var reyndar á skjön við skoðun heimilisfólks á Sovíetríkjunum og reyndar flestra Íslendinga því allir vissu að lífið í Sovietinu var ekki eins og þeir vildu láta vera

Nú líta margir Íslendingar á að ESB hafi tekið við af Sovíetríkjunum sem hið framandi og hið ógnvænlega land sem allt vilji gleypa, steypa í sama mót skrásetja hvert einasta smáatriði hvers einasta lífs til hins ýtrasta og arðræðna auðlyndir allra þjóðanna svo að ekki sé eftir stingandi strá né svo lítið sem hálf loðna í hafinu. Sumir halda jafnvel fram að skipulegt dýraníð eigi sér stað innan landa ESB og að tilgangslaust dráp á fiski sem ekki er í staðlaðri stærð, sé beinlínis skylda allra ríkja ESB. Furðu vekur að þungaviktarmanneskja í íslenskum stjórnmálum er þessarar skoðunar.

Þessa skoðun má helst finna meðal þeirra sem eru yzt til hægri ellegar yzt til vinstri. -Þetta er þónokkur hópur fólks og sumir hverjir svo heitir í þessar sannfæringu sinni að undrum sætir. Þumalputtaregla er að þegar yzta hægrið og yzta vinstrið sé sammála um eitthvað, þá er það pottþétt ávísun á vonda niðurstöðu. Þannig er það með ESB. Vinstrið segir að ESB sé alltof til hægri, en hægrið segir að ESB sé alltof til vinstri. -Þetta boðar á gott.

Nú er það svo að ég bý í landi sem er í ESB. -Já þið lásuð rétt. Ég bý í landi sem er í ESB! Svíþjóð er nefnilega í ESB. Lika Finnland og Danmörk! Já ég endurtek. Öll stærstu norðurlöndin eru í ESB. Ég fullyrði án þess að blikna að þegar Johan Svensen vaknar upp á morgnanna er þessu hugsun ekki ríkjandi í huga hans.

Mikið er gaman að vakna glaður og reifur í ESB-landi.

Satt best að segja þá hugsar Johan Svensen ekki mikið um ESB. Vera Svíþjóðar í þessu bandalagi eða aðilid Svíþjóðar af þessum samningi, hefur ekki mikil áhrif á daglegt líf Svíþjóðar eins og Sovíeski kommúnistaflokkurinn hafið áhrif á daglegt líf þegna Sovíetríkjanna. Hérna í ESB landinu Svíþjóð ganga hlutirnir fyrir sig rétt eins og annarsstaðar. það er verið að fletta ofan af spilltum lífeyrisstjóðs-stjórum, Splunkunýr fótboltaleikvangur skekur allt hverfið þegar áhorfendur hoppa í takt, sem þýðir óheyrilega dýrar framkvæmdir, Svíum vantar ekki rafmagn. Hér er kjanorka, vatnsorka og vindorka. O.s.fr.

Hér er atvinnuleysi um 7% og þykir mikið. Áhrif efnahagskreppunnar er einna helst það að ríkið er að lækka vexti (nokkuð sem er óhugsandi á Íslandi) Stýrivextir eru nú um hálft%. Þetta er gert til að örva fólk til að taka lán og koma tannhjólinu á stað. Svíar eru mjög uppteknir af umhverfismálum og eru leiðandi í heiminum á því sviði. Hérna er hagsæld og hérna eru nýjir íbúar boðnir velkomnir.

Flóttafólk frá öllum heimshornum hefur sest hér að og byrjað nýtt, friðsælt og öruggt líf. Hérna er barasta gott að búa þrátt fyrir ESB og allt það. Ég er algerlega sannfærður að Svíar líta á veru sína í ESB sem þáttakendur í samstarfi, ekki sem "þegna" einhvers ofurríkis eins og sumir Íslendingar virðast halda fram.

Þetta er samningur um að sömu reglur gildi allstaðar. Sumum kann að finnast þetta afar ógeðfelt af ástæðum sem ýmist eru yst á hægrinu eða yzt á vinstrinu, en um þetta hefa ríki Evrópu komið sér saman um. Það er t.d sömu reglur um stærð póstlúga í Evrópusambandinu. Ekki af því að einhver kommisar er með stjórnsemis-þráhyggju, heldur eru staðlaðar stærðir á póstlúgum gott mál. stöðluð umslög passa í staðlaðar lúgur. Þetta eiga sumir erfitt með að skila og telja mikið inngrip inní "frelsi einstaklingsins" eða "fasíska stjórnsemi" sem er komin út fyrir allan þjófabálk. Dæmið um bréfalúgurnar má svo yfirfæra á gríðarmargar hluti. Sumt er kjánalegt, annað ekki.

Ef að ESB myndi gera eitthvað sem gengur gegn vilja sænsku þjóðarinnar myndu Svíar einfaldlega segja sig úr samningnum. Punktur - basta. Sama var reyndar ekki upp á teningnum í Sovíetríkjunum þrátt fyrir að margir (andstæðingar ESB) héldu hinu gagnstæða fram.

-En það er önnur saga.

Flokkar:

þriðjudagur, 28. apríl 2009

Katrín Jakobsdóttir og brottkast sjávarafla.

Katrín Jakobsdóttir hélt því fram á blogginu hans Illuga Jökulssonar að brottkast (undirmálsfisks) væri stefna eða skylda í sjavarútvegsstefnu ESB. Orðrétt segir Katrín:

Sjálfbæra þróun nefndi ég í tengslum við umhverfismál, landbúnaðarstefnu og sjávarútvegsstefnu. Sjávarútvegsstefna ESB þar sem brottkast er skylda hefur því miður ekki gefist vel og umhverfissjónarmið hafa ekki ráðið þar nægilega för.

Nú væri gaman að sjá rökstuðing Katrínar við þessum rosa-fullyrðingum. Nú bý ég í landi sem er í ESB og hér er önnur hver frétt um umhverfismál. Nýjasta er að þorskstofninn í Eystrasalti er víst á góðri uppleið og allt lítur betur út en fyrr var talið. Það er eins og náttúran sjálf sé að lækna sjálfa sig.

Fullyrðing Katrínar er á sannarlega erindi í sænska fjölmiðla. Það væri gaman að sjá hvaða ályktun þeir draga af þessum mótrökum gegn ESB.

Flokkar:

Katrín Jakobsdóttir og dýraníðingshátturinn

það er eitt svolítið sérkenniegt við svar Katrínar Jakobsdóttur við spuringum Illuga Jökulsonar frá því í desember á síðasta ári. Það er fullyrðing Katrínar um dýraníðingshátt sem ástundaður er í ESB. Katrín nefnir belgíska kálfa og franskar gæsir náli sínu til stuðnings.

Gott og vel. það er öruggleg rétt að sumar fóðrunar og slátrunaraðferðir í ESB eru ógeðslegar. En þær eru samt ekki bannaðar! Það sem Katrín virðist halda að þessar ógeðslegu slátrunar -og fóðrunaraðferðir séu eðlilegt norm og viðmið í slátrun og fóðrun! Án þess að ég viti neitt um það þá grunar mig að þessar ógeðslegu aðferðir séu menningarleg sérkenni ákveðinna hópa en ekkert endilega sérkennandi fyrir Belga, Frakka eða alla sem búa í Evrópusambandinu.

Þetta er einmitt prýðilegt dæmi um umburðarlyndi ESB frekar en dýraníðingshátt.

En það er nú oft þannig að sumir skilja ekki fleiri en eina "vídd" í einu.

Dæmi:
Í einu ríki í ESB er korni troðið ofan í gæsir til þess að stækka lifrina í henni. Gæsalifrin er síðan seld dýrum dómum.

Ályktun Katrinar Jakobsdóttur: Í ESB er ástundaður níðingsháttur gagnvart dýrum og siðlaust að eiga samneyti við þetta hyski.

það sem Katrín fattar ekki er að samhliða þessari ógeðslegu fóðrunartækni, er reglugerða-bákn sem sérstaklega kveður á um mannúðlega meðferð á dýrum og fóðrum þeirra. Ég fullyrði að ástand dýra-mála í heiminum er best í ríkum ESB af öllum ríkjum heimsins. -Mikið betra en á gamla góða Íslandi.

Hvað er það eiginlega við okkur Íslendinga að setja okkur á háan hest hvað aðrar þjóðir varðar, dæma þá sem níðinga og þorpara, og vilja ekki samneiti við þá af þeim sökum?

Ef þetta er rétt hjá Katrínu, þá ættum við helst ekki að hafa samneyti við neinar þjóðir því að ef að meint dýraníð er ástæða til að dissa heila heimsálfu er skít-einfalt að finna betri ástæður fyrir að dissa restina af heiminum.

Flokkar:

Hversvegna ekki ESB að mati Katrínar Jakobs

Illugi Jökulsson sendi Katrínu Jakobsdóttur einusinni póst og bað þá um að nokkrum spurningum varðandi ESB. Karín svaraði . Svar hennar er hér fyrir neðan.

Heill og sæll aftur!

Ég get auðvitað svarað þessu aðeins ítarlegar ef þú vilt. Ég tel að kjaramálin (Vaxholm-dómurinn) sem ég vísaði í í fyrra svari séu að sjálfsögðu nátengd félagshyggjuhugsjónum Vg og vinstriflokkar í ESB-löndum hafa einmitt gagnrýnt sambandið fyrir nákvæmlega þetta - að stuðla að láglaunastefnu og niðurbroti starfsréttinda með því að leggja ofuráherslu á frjálsa för fjármagns en félagsmálin fylgja ekki þeirri þróun.

Sjálfbæra þróun nefndi ég í tengslum við umhverfismál, landbúnaðarstefnu og sjávarútvegsstefnu. Sjávarútvegsstefna ESB þar sem brottkast er skylda hefur því miður ekki gefist vel og umhverfissjónarmið hafa ekki ráðið þar nægilega för.

Sambandið hefur fremur einbeitt sér að verksmiðjubúskap en t.d. lífrænni ræktun í landbúnaði og lætur viðgangast ótrúlega hluti í landbúnaðarmálum - t.d. mjólkurkálfana í Belgíu og gæsirnar í Frakklandi sem eru "framleiddar" fyrir foie gras - s.s. ekki mjög sjálfbær stefna.

Utanríkisstefnuna var ég búin að nefna en þar sem þú nefnir SÞ þá er ég ekki sammála því að hægt sé að kalla SÞ hernaðarbandalag - finnst það satt að segja undarlegur skilningur á SÞ þó að Öryggisráð SÞ sé eina stofnunin í heimi sem getur ákveðið að beita valdi löglega - en hins vegar eru meginmarkmið SÞ einmitt að stuðla að friði.

SÞ er samræðuvettvangur flestallra ríkja í heiminum - hitt er ríkjabandalag ríkra þjóða sem margar hverjar hafa lagst gegn kjarnorkuafvopnun og eru meðal mestu vopnaútflytjenda í heimi. Innan ESB hafa hins vegar verið uppi hugmyndir um að ESB geti tekið við af NATO sem hernaðarbandalag Evrópu og það er meðal þeirra breytinga sem reynt var að koma á í stjórnarskrá ESB sem var fellt og er enn að hluta inni í Lissabon-sáttmálanum - að þétta raðir aðildarríkja með því að sameinast um utanríkis- og varnarmálastefnu.

Mér finnst þetta eðlisólík samtök og get ekki tekið undir að þau séu sambærileg.

Kvenfrelsinu gleymdi ég í mínu skjóta svari áðan - en þær konur sem ég hef rætt við á Norðurlöndum innan ESB telja þróun kvenfrelsismála hæga á norrænan mælikvarða innan sambandsins - baráttan gegn mansali gangi hægt svo dæmi sé nefnt og þó að jafnréttismálum hafi miðað áfram í sumum löndum sambandsins þá hafi hægst á þróuninni í þeim löndum sem fremst standa.

Viðmælendum mínum í Svíþjóð finnast t.d. Norðmenn standa sig betur því að þeir geti einbeitt sér að kvenfrelsismálum í sínum ranni og þar hafa t.d. verið settir kynjakvótar, ólíkt öðrum norrænum ríkjum. Þær frjálshyggjuáherslur sem troðið hefur verið inn í stjórnarskrá Evrópusambandsins leggja því miður stein í götu þeirra sem vilja rétta hlut kvenna í samfélaginu.

Og þú nefnir Svíþjóð þar sem ESB-aðild var mjög umdeild - löngu eftir að hún var samþykkt. Hún er enn umdeild þó að stuðningur hafi aukist en í mörg ár var nánast jafnt hlutfall með og á móti aðild í Svíþjóð, löngu eftir að Svíar gengu inn.

Vinstriflokkurinn þar hefur verið afar gagnrýninn á sambandið. Sama má segja um einn fremsta heimspeking Svía, Torbjörn Tannsjö, sem áður var ESB-sinni en segir nú að ESB sé orðin valdablokk sem standi í veginum fyrir alþjóðlegu lýðræði og algildu félagslegu réttlæti. Þannig að þó að ég þekki ekki Svíþjóð betur en hver annar hefur mér sýnst að gagnrýnin sé sterk þar eins og annars staðar.

En að undanförnu hefur verið hægristjórn í Svíþjóð eins og þú þekkir og hún hefur verið fullfær um að vinna gegn velferðarkerfinu án hjálpar ESB - eins og nýi einkavæddi barnaspítalinn í Stokkhólmi er gott dæmi um.

Eins og ég sagði áðan hefur ESB kosti og galla. Stærsta gallann að mínu mati nefndir þú ekki í spurningum þínum en það er lýðræðishallinn. Í ferð Evrópunefndar til Brussel í september sl. spurði ég og fleiri ítrekað um mat fulltrúa ESB á þjóðaratkvæðagreiðslunni í Írlandi þar sem Lissabon-sáttmálinn var felldur.

Samdóma álit kommissara og annarra fulltrúa ESB var að þessar þjóðaratkvæðagreiðslur væru óheppilegar enda málið allt of flókið fyrir almenning. Þar er ég ósammála ESB enda vil ég að Íslendingar greiði atkvæði um ESB-aðild eins og önnur mikilvæg mál. Ég held því ekki fram að málefni friðarsinna, lýðræðissinna og félagshyggjufólks séu betur komin á Íslandi nútímans en í ESB.

Spurningin er hins vegar hvort aðild að ESB muni hjálpa okkur eða hindra við að berjast fyrir betra samfélagi og þessum markmiðum. Markmiðin eru í mínum huga aðalmálið og hvernig við getum náð þeim.

Fyrir vinstrimenn sem hafa trú á félagslegu réttlæti og vilja berjast gegn kúgun þeirra sem minna mega sín þá getur innganga í ESB aldrei verið prinsipp-mál í sjálfu sér, ef ESB er leiðin til að tryggja hagsmuni hinna kúguðu og ná þessum markmiðum - þá skulum við skoða það, ég hef hins vegar enn ekki heyrt nægilega sannfærandi rök fyrir því.

Með bestu kveðjum,
Katrín.


Í hnotskurn:

  • Í Evrópusambandinu á sér stað dýraníð, láglaunastefna, niðurbrot starfsréttinda og verskmiðjubúskapur.
  • Brottkast sjávarafla er skylda í ríkum ESB.
  • Þess utan er þróun kvenfrelsismála hæg (á norrænan mælikvarða) og hugmyndir eru um sérstakan evrópskan her.
  • ESB stendur í veginum fyrir lýðræðisþróun í heiminum.



Þessu fólki er ekki viðbjargandi. -Ég sver það.

Flokkar:

mánudagur, 27. apríl 2009

Ísland í fréttum.

Ég er áskrifandi af Gautaborgarpóstinum, fyrirtaksblað sem hægt er að lesa sundur og saman. Ég hélt í raun og veru að dagblöð gætu ekki verið svona góð. Blöð á Íslandi þjást fyrir smæð markaðarins. Það þarf amk 500 þús lesendur til að standa undir sæmilegu blaði. Undantekningin er sennilega Alþýðublaðið á tíma Hrafns Jökulssonar sem var bara 4 síður en stútfullt af góðu efni. Hér í Svíþjóð fylgjast allir fjölmiðlar vel með því sem gerist á Íslandi. Spillingarmál Sjálfstæðisflokksins hafa oft borið á góma í fréttum sjónvarpsins, bæði á sv1 og sv2. En Gautaborgarpósturinn stendur mér nærstur. Flott blað og vandað.

Hérna er frétt daginn fyrir kosningar:

















Svo komu úrslitin:



















Svo var líka frétt af Hreiðari Guðmundsyni sem átti góðan dag í markinu með liði sinu.





























ð

Rörtittlingar á AMX

Besti fréttavefur landsins heitir í höfuðið á bifreið hvers framleiðandi er varð gjaldþrota á öndverðri síðustu öld. AMX frá American Motor Company var aðeins framleiddur í 3 ár og þótti misheppnaður.

Fréttavefurinn AMX er ekki gjaldþrota, -síður en svo að vefnum standa fjórir ferskir sveinar, vígmóðir og reifir.

Inn um gluggann á skrifstofunni hjá AMX fljúga stundum fuglar sem sjá allt og heyra allt. Ekki er um að ræða goðverurnar Huginn og Munninn heldur smáflugla sem heita á fræðimáli Pluvialis apricaria en kallast á íslensku Rörtittlingur og eru þekktir meðal fuglaáhugamanna fyrir gríðalega rör-sýni. Þessir fuglar kunna best við sig ofan í gjótu eða opnu röri þar sem aðeins sést í eina átt út .

Sjónsvið rörtittlingar er því afar takmarkað og eignlega ekkert. Bara bein lína eða strik. Því sætir það furðu að nokkrir rörtittlnigar virðast hafa vanið komur sínar á skrifstofur AMX og ljá þeim í eyra sögur sem þeir heyra og sjá úr rörinu. Bansettir rörtittlingarnir hafa nú hvíslað einhverri þvælu í eyru vinar míns Óla Björns Kárasonar því í nýlegri færslu er fullyrti að ég sé "ákafur vinstri maður"

Þessu mótmæli ég allur. Ég frábið mér allar bríkslanir um hægri eða vinstri, sér í lagi ef bríkslið á sér rót í smjatti rörtittlinga.

Rörtittlingar halda nefnilega að sá sem gagnrýnir Sjálfstæðisflokkinn sé vinstri maður. Þeir halda líka að sá sem gagnrýnir Samfylkingu eða VG hljóti að vera hægri maður. Þetta er afar einföld heimsmynd og bjánaleg (en skiljanleg í ljósi þröngs sjónsviðs rörtittlinga).

Ef ég á að vera alveg heiðarlegur þá er ég hægri maður. Ég þoli ekki þá staðreynd að ekki sé til flokkur sem ég get samsvarað mig með. Ég er sennilega það sem kallað er "hægri-krati" en rörtittlnigar skilja ekki hugtakið frekar en annað sem hefur einhverjar dimmensjónir.

Ég er afar svekktur yfir því hvernig Sjálfstæðisflokknum hefur tekist að blekka kjósendur sínar (og landsmenn alla) um að hann sé einhver sérstakur hægri flokkur. Flokkur sem jók hér skatta á almenning s.l 18 ár, jók öll ríkisafskipti, kom á óréttlátu kerfi þar sem fáum útvöldum var afhentar náttúruauðlindir landsins, flokkur sem þykist vera "flokkur atvinnulifsins" en er í raun bara flokkur afar þröngrar kreðslu í atvinnulífinu. Flokkur sem einka(vina)væddi ríkiseigur, en passaði upp á að hér væri aldrei til staðar samkeppni.

-Það er einfaldlega ekkert "hægri" við Sjálfstæðisflokkinn.

Sjálfstæðisflokkurin er í dag brunninn og tættur eftir Davíðshrunið (sem hann lagði sjálfur grunninn að). Stútfullur af hæfileikalausu og vanhæfu liði sem byrjað hefur stjórnmálaferilinn á því að skúra gólfið í Valhöll, síðan færst sig upp á skaftið og byrjað að afgreiða í sjoppunni. -Eru núna þingmenn. Fólk sem hangir í gjaldþrota hugmyndafræði og galar eitthvað ótrúverðugt þvaður um "frelsi einstaklingsins". Ekki þarf að renna augum lengi yfir þingmannalista Sjálfstæðisflokksins til að sjá að þar fer um laskað lið.

Ég er svo lítill vinstri maður (þrátt fyrir tístið í rör-tittlingunum) að ég heiti því að ef Bjarna Ben tekst að breyta Sjálfstæðisflokknum í almennilegan hægri flokk þar sem allir eiga að njóta sömu tækifæra og allir hafi sama rétt, að allir fari eftir einföldum, réttlátum og skýrum reglum, þá skal ég glaður styðja þann flokk hvenær sem er.

Sjálfstæðisflokkurinn þróaðist í áttir sem eru svo ógeðfeldar og ólýðræðislegar að það jaðrar við að sé glæpsamlegt. Krukkaði í dómskerfinu, krukkaði í sölu ríkiseigna, krukkaði í embættismannakerfnu. Stjórnarskráin var í huga Halldórs Blöndals bara plagg til viðmiðunar. Björn Bjarnason taldi það sínar ær og kýr að njósna um landsmenn. Útslagið gerði svo Hrafn nokkur Gunnlaugsson, menningar-flokksdindill Sjálfstæðisflokksins með kvikmyndinni "Opinberun Hannesar", byggða á smásögu Davíðs Oddsonar. Frumsýnt í sjónvarpinu, fyrir skaupið svo enginn missti af snilldinni. -Kim Jong Il hefði ekki gert betur.

Gallinn við Sjálfstæðisflokkinn er að hann er miklu meiri íhaldsflokkur en hægri flokkur. Ég vona að rörtittlingarnir skilji þetta, en trúi því trauðla. Tveggja hugmynda bræðingur er of mikið fyrir rör-fuglana.

Ummæli Hrunsins

Við borgum ekki fyrir óreiðumenn - Amma mín kenndi mér það.
-Davíð Oddson Kastljós


Við skulum ekki leita að sökudólgum.
-Pétur Blöndal Fréttir RÚV

Guð hjálpi Íslandi
-Geir Haarde ávarp forsætisráðherra RÚV

Ég er ekki 9 miljarða virði.
-Illugi Gunnarsson Kastljós

Ég er sá eini sem varaði við hruninu.
-Davíð Oddson Kastljós

Samfylkingin hefur axlað ábyrgð með því að slíta
stjórnarsambandinu við Sjálfstæðisflokkinn.
-Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Fréttamannafundur

Við viljum vinnufrið.
-Lúðvík Bergvinsson Kastljós

Helvítis Fokking Fokk
-Mótmælandi á Austurvelli

"Búsáhaldabyltingin"
-Facebook grúppa.

Ísland: Ctrl + Alt Delete
-Mótmælandi á Austurvelli

Er einkaréttur á mótmælum?
-Kolfinna Baldvinsdóttir

Öllum steinum verður velt.
-Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Alþingismaður

Maybe I should have.
-Geir H. Haarde BBC

Viljum við ríkisstjórnina burrrrrt?
-Hörður Torfason trúbador

Átt þú ekki að segj af þér?
-Davíð Oddson við blaðamann í Seðlabankanum

Gott er að hafa Davíð við völdin
Græðum á daginn og grillum á kvöldin
-Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor við HÍ

Það er of lítill ójöfnuður á Íslandi
-Pétur Blöndal Alþingismaður

Þið eruð ekki þjóðin!
-Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á mótmælafundi í Háskólabíói

Þetta eru spennandi tímar fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
-Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Alþingismaður

It's the fault of the left-wing intellectuals, who should have
been giving a counter-view
-Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor HÍ


Flokkar:

Ég er óþverri.

Ég skrifaði blogg um daginn þar sem ég færði rök fyrir því að ég væri ömurlegur. Því miður er ég ekki bara ömurlegur, ég er líka óþverri.

Ég gleðst jafn mikið yfir óförum Sjálfstæðisflokksins og ég gleðst yfir gengi flokksins sem ég kaus. -Þetta er óþverraskapur sem ég skammast mín fyrir.

Reyndar er ég ekki einn um að burðast með óþverraháttinn því margir sem ég þekki eru óþverrar eins og ég. Einn mesti óþverri sem ég þekki snýr alltaf sigurtilfinningu við, og á sigurstundum í lífinu verður gleðin vegna ósigurs andstæðingsins sterkari en gleðinni yfir eigin sigri. -Þetta er jafn öfugsnúið og það er andstyggilegt.

Ég man að einu sinni í fyrndinni, þegar Hólmfríður Karlsddóttir var að landa sigri í heimsmeistaramótinu í fegurð 86´þá komst þessi óþverri (sem ég vil ekki nafngreina) ekki yfir gleðina yfir því að stúlkan í öðru sæti tapaði fyrir Hófí. Meðan aðrir voru að skála og gleðjast yfir glæsilegum sigri Hófíar muldraði óþverrinn eins og í leiðslu.

-Djöfull var þetta gott á helvítis Venesúela tussuna ,

Mogginn skúbbar eins og enginn sé morgundagurinn

Ömurlegur stjórnmálaflokkur

Magnús Þór Hafsteinsson fyrrverandi varaformaður Frjálslyndaflokksins bloggar um að úrslitin í kosningunum um helgina hafi verið "ömurleg".

Þetta er fullkomið ofmat hjá Magnúsi.

Staðreyndin er sú að það er Frjálslyndiflokkurinn sem er "ömurlegur". Eins-málefnisflokkur sem gat ekki einu sinni kynnt fyrir þjóðinni þetta eina helvítis málefni þrátt fyrir ríflegan árafjölda á Alþingi.

Hefði Frjálslyndi flokkurinn bara haldið sig við "málefnið" og sýnt fram á skaðsemi kvótakerfinsins með afgerandi hætti (í stað þess að flokksmenn eyddu tímanum i það að raða hnífasettum í bak hvors annars) þá væri þessi flokkur ennþá til. Það var því fyrir aumingaskap, heimsku og heigulshátt forystunnar að það fór sem fór.

Hversvegna var ekki sagt nákvæmlega frá þeim ógurlegu hörmungum og því ógeðslega óréttlæti sem kvótakerfi hefur í för með sér? Hversvegna var ekki búin til nokkur vídeó fyrir YouTube. Nokkar blaðagreinar þar sem sukk kvótagreifanna væri tíundað? Eitthvað fast í hendi, eitthvað til að kynda bálið með.

-Einhvað annað en ótti við palestínskar ekkjur á Akranesi (en téður Magnús Þór reit miklar greinar þar sem hann varaði við komu þessara ekna)

Nú taka aðrir við keflinu í gagnrýni á kvótakerfið. -Aðrir sem nenna að vinna. -Aðrir sem geta betur.

sunnudagur, 26. apríl 2009

Systir Tortímandans

Jónas Kristjánsson kallar Davíð Oddson stundum "tortímandann" með réttu. Önnur eins skemmdarverk á stjórnkerfinu og spjöllinn á orðspori Íslands eiga sér ekki fordæmi í Íslandssögunni.

En Davíð á sér einskonar systur í skemmdarverkastarfsemi í liðinu sínu. Kolbrún Halldórsdóttir reytti fylgið af VG síðustu daga kosningabaráttunnar með ummælum sem verða lengi í minnum höfð. Í óskaplega viðkvæmu andrými bombar Kolbrún þvi inn í umræðuna að ekki skuli kannað hvort olía leynist á Drekasvæðnu og eyðileggur fyrir marga síðustu vonarglætuna fyrir hnýpna þjóð í krísu.

laugardagur, 25. apríl 2009

Kolbrún Halldórs er drekinn

Að minnsta kosti 4 vinir mínir hættu við að kjósa VG eftir heimskuleg ummæli Kolbrúnar Halldórs um Drekavæðið. - Ég veit ekkert hvað þeir kjósa í staðinn.

Kolbrún Halldórs er skaðvaldur hvort sem er á landsvísu ellegar í smærra mengi. Hún hefur eyðililagt óskaplega mikið í heimsku sinni og fávísu blaðri.

Kjósendur ættu að dreka hana.

Ég er ömurlegur.


Ég er alltaf svona 5 til 15 árum á eftir tízkunni. Ég uppgötvaði Sex Pistols komin langt á þrítugsaldurinn. Metaliku byrjaði ég að hlusta á eftir útkomu "svörtu plötunnar". -Besta stöffið var orðið frekar gamalt.

Í síðustu viku var ég svo að uppgötva Notorious B.I.G/Biggie Smalls / Big Poppa sem var dó árið 1997

-Þvílíkt stöff. Hér er ég í eldhúsinu með Hipnotize á fullu blasti að sveifla lendunum í seiðandi takti þessa 250 kílógramma risa. Ekki er verri dúettinn með Faith Evans (eiginkonu Biggie Smalls / AKA Notorious B.I.G / Big Poppa) "One More Chance" Annars er Eminem í miklu uppáhaldi hjá mér. Annar eins texti er vandfundinn. Hann er kjarn-yrkinn. -Baneitraður beinlínis.

Ég er pínu svekktur að hafa misst af "gangster-rappinu".

KOSNINGAÁHEIT.

Ef að Sjálfstæðisflokkurinn fær undir20% í kosningunum í kvöld ætla ég að gefa ógæfumanni kassa af bjór.

-Lesendur eru hvattir til að toppa þetta.

Eimreiðin komin á Eyjuna.

Frá og með deginum í dag er ég orðin Eyjubloggari. Bloggið mitt, Eimreiðin, verður nú innan vébanda Eyjunnar. Sem fyrr verða efnistök Eimreiðarinnar þau sömu og fyrr. Áhersla verður á létta afþreyingu í amstri dagsins. Sú nýbreytin verður tekin upp að reglulega verða á "boðstólnum" léttir leikir, getraunir og fleira sem getur vonandi hjálpað venjulegu vinnandi fólki frá niðurdrepandi fréttum sem dynja á okkur alla daga.

Sem dæmi um hin nýju efnistök er lesandakosning um hvort rassinn á Jennifer Lopez sé stór eða ekki. Næsta kosning verður svo um hvort Jessica Simpson sé feit eða ekki. Þessar kosningar verða svo að föstum liði á föstudögum og kallast "Fastur liður á föstudegi".

Myndir verða meira áberandi og lesendur Eimreiðiarinnar eru hvattir til þess að senda mér myndir til birtinar. Ljosmyndakeppni verður haldin um hvaða hundur er líkastur eiganda sínum (má ekki vera með sólgleraugu).

Á þessum tímamótum þá óska ég Íslendingum til hamingju með daginn og vona að nýja slagorð Eimreiðarinnar ómi um allt Ísland.

- Niður með leiðindin - Upp með hressleikann!

föstudagur, 24. apríl 2009

Áhyggjuefni.

Fyrir mér er búsáhaldabyltinginn einhver glæsilegast atburður í Íslandssögunni. Þjóðinn reis upp og hrakti vanhæfa ríkisstjórn út, krafðist breytinga sem voru löngu tímabærar. Ég er reyndar ekki einn um þessa skoðun. Margir sem ég þekki eru sama sinnis.

Sumum finnst búsáhaldabyltinginn einn af lágpunktum Íslandssögunnar. Óður skríll sem ræðst á Alþingi, berst við lögreglu og skemmir ríkiseigur. Margir sem ég þekki eru þessarar skoðnnar

Það er áhyggjuefni hvað fólk hefur mismundandi sýn á þennan atburð. Fólk er ósammála alveg í grunninn.

Flott auglýsing hjá Samfylkingu...

Lógó Ungra Jafnaðarmanna í lok auglýsingarinnar er bara snilld. -Svona á að gera þetta.. :)

Ekki skila Auði !

Auður frænka er með húmorinn í lagi...

Skelfingu lostin flugfreyja


Ég þjáðist einu sinni af massífri flugrhræðslu. Hvert einasta hljóð sem kom frá hreyflum vélarinnar vakti upp ótta í huga mínu. Brak í sætum og dularfullur ljósagangur. Ég var löngu hættur að trúa orði sem flugstjórinn sagði um "ókyrrð" og þvíumlíkt og horfið þess í stað á andlitdrætti flugfreyjanna. Svipur þeirra var í mínum huga einskonar gluggi inn í raunverulegt ástand flugvélarinnar. Þær hafa jú "first hand" upplýsingar úr flugstjórnarklefanum.

-Svipbrigði fólks dylur sjaldan sannleikann.

Siv Friðleifsdóttir var skelfingu lostin á svipinn þegar hún var að segja frá trúnaðarskýrslu varðandi ICESAVE. Hún sagði eitt en á svip hennar mátti dæma að tíðindi skýrlsunnar væru uggvænlegar. Rödd hennar var einnig við það að bresta.

-Nú á ég ekki til aukatekið orð og er skelfingu lostinn.

Eftir á að hyggja

Eftir á að hyggja skiptir það eitt máli í kosningunum á morgun að SjálfstæðislFLokkurinn komist ekki í stjórin. Í raun er atkævæði til hinna flokkanna ávísun á einhverja von, eitthvað gott, eitthvað satt.

Atkvæði greitt Sjálfstæðisflokknum er atkvæði greitt skemmdarvörgum Íslands. Fólksins sem fór um landið með logandi brandi skildi eftir sig sviðna jörð. Fólksins sem dásamar misskiptingu og hatar hugmyndina að samfélag geti átt eitthvað saman, þar með taldar náttúruauðlyndir landsins. Stundum virkar Sjálfstæðisflokkurinn alveg öfugt og er flokkur mikilla ríkisafskipta þegar það á við. Þannig hefur Sjálfstæðisflokkurinn t.d troðið "sínu" fólki á alla pósta í stjórnkerfinu. Fólki sem brást á ögurstundu. Meir að segja dómskerfið er maðkétið eftir inngrip Sjálfstæðisflokksins. -Ekkert er heilagt.

Atkvæði greitt Sjálfstæðisflokknum er atkvæði greitt stjórnmálamönnum sem eru i rassvasanum á stórum fyrirtækjum. Ekki bara að Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur hafi þegir miljóna-tugi frá stórfyrirækjum, hleldur hafa einstakir þingmenn þegið áþekka "styrki" líka.

Þetta styrkjakerfi skýrir m.a dauglausa stefnu gagnvart bönkunum og regluverki í kringum þá þegar mest á reyndi. Hafa ber í huga að Sjálfstæðisflokkurinn hefur barist hatrammlega gegn öllum hugmyndum um gegnsæi varðandi styrki og sporslur sbr ítrekaðar ályktanir þingmannanna Sigurðar Kára og Birgi Ármannsonar. -Þeir vilja hafa styrkjamálin í skugganum. Lögbinda skuggakerfið og banna að varpað sé ljósi in í myrkraherbergið.

Illugi neitar að birta gögn

Illugi Gunnarsson bætist nú i hóp þeirra fjölmörgu frambjóðenda sem neitar að birta gögn nema allir "hinir" geri það líka.

-Hvað er það sem er svona hræðilegt við þessar upplýsingar?

-Ég hvet fólk til þess að strika út spillingarliðið í kosningunum á morgun.

fimmtudagur, 23. apríl 2009

Samtryggingin afhjúpuð..

Þiggjendur "styrkja" úr prófkjörsbaráttunni segja nú hverjir um annan þveran að þeir ætli að birta gögn yfir "styrk"veitendur ef aðrir geri það líka.

Þetta er jafn huglaust og það er aumingjalegt.

Þegar manneskja hefur verið í stjórnmálum í ákveðin tíma, hættir hún að notast við siðakerfi samfélagsins og tekur upp annað siðakerfi.

Við skulum ekki gleyma að þessir þingmenn eru í vinnu hjá okkur. Þeir eru með einhverja skömm í hattinum sem þeir vilja ekki sýna okkur. Snúum nú dæminu við og athugum hvernig VIÐ myndum bregðast við ef að VIÐ værum í sömu stöðu og þessir spillingarþingmenn. Við værum kölluð til yfirmanns okkar sem vildi fá að vita hvort við værum að spila tveimur sköldum. Við svörum út í hött og neitum að sýna fram að gögn sem gætu sýknað okkur af áburðinum.

-Við yrðum bara rekin á staðnum.

Árslaunin mín árið 2006

Hafi einhver efast um veruleikatenginu Guðlaugs Þórs, 1. þingmanns Reykjavíkurkjördæmis Norður, ætti sá hinn sami að lesa þetta.

Þarna afsakar Guðlaugur styrkina til sjálfs sín frá Baugi og FL-group (samtals 4 miljónir .......Að þetta voru ekkert háir styrkir þegar þeir voru veittir....

Ég er vanur fá blöður á eggjastokkana þegar ég heyri svona þvætting en þegar ég las þetta þvaður þá hreinlega fékk ég leg-sig.

Eru 4 miljonir ekki miklir peningar? Ég er nú ekki í sömu (spillingar) kreðsu og Guðlaugur en mér finnst 4 miljónir vera miklir peningar og fannst það líka árið 2006. Árslaun margra ná t.d ekki þessari tölu sem Guðlaugi finnst svona ómerkileg.

-Árslaunin mín náðu t.d ekki 4 miljónum árið 2006.

Þessi afsökun Guðlaugs Þórs er særandi, móðgandi og alls ekki sæmandi þigmanni landsins okkar.

Reyndar mun það vera svo að veruleikafyrring Guðlaugs Þórs sé svo alger að hann kalli sjálfan sig nú "Sigga" þegar blaðmenn hringja í hann. (..og þetta er ekki grín þótt blöðrurna á eggjastokkunum kunni að vera það)

Strikum út! - Strikum út - Strikum út.

Strikum út skítapakkið.

það er eina svar kjósenda gegn spilltum þingmönnum.

-Strikum út skítapakkið!!!

Stutt í 800 manna markið

Félagið Vantrú hefur nú aðstoðað 779 manns við að leiðrétta trúfélagaskráningu sína. Nú styttist í 800 manna markið. Ég hvet lesendur Eimreiðarinnar að leiðréttta trúfélagaskráningu sína hið fyrsta.

Óréttur ríkiskirkjufyrirkomulagsins er óskaplegur.

Eina vopnið gegn þessum órétti eru úrsagnir úr Ríkiskirkjunni.

Tiltölulega einfalt er að segja sig úr Ríkiskirkjunni. Prenta þarf þar til gert eyðublað og senda síðan niður á Hagstofu. (fax eða póstur)

Strikum út...!

Strikum út skítapakkið...

Notum þessa leið, þótt máttlaus sé til að segja skoðun okkar á spilltum þingmönnum í flokknum sem við kjósum. -Ekki strika út spillta þigmenn annara flokka en þú kýst því þá ógildir þú atkæði þitt. *

.....Spillingarliðið þráir ekkert heitar en fjöldann allan af ónýtum atkvæðum.



*Sjálfstæðismenn á suðurlandi hringja nú massíft í þá sem EKKI ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og biðja þá um að strika út Árna Johnsen, nokkuð sem myndi ógilda atkvæðið.

Heilsíðuauglýsing í Fréttablaðinu óskast

Þar sem ég á ekki neitt, er í stöpulli vinnu og hálfgerður ræfill þá óska ég eftir þvi að einhver góðhjartaður náungi gefi mér peninga svo ég geti keypt heilsíðuauglýisngu í Fréttablaðinu. Svoleiðis kostar eitthvað á bílinu 300 - 500 þúsund krónur.

Inn í auglýsingarplássið myndi ég síðan setja þennan texta.



-STRIKIÐ ÚT SPILLINGARLIÐIÐ!


Ekkert flókið, ekkert meiriháttar bara tilkynningu að hver og einn kjósandi ætti að strika út spilltan þingmann á sínum lista (ekki annara, það ógildir seðilin eins og Sjálfstæðismenn á suðurlandi vita).

Sjálfstæðismenn ættu að strika út Guðlaug Þór, Illuga og Guðfinnu og alla hina stórlöskuðu frambjóðandur þessa lánlausa flokks.

Samfylkingin ætti að strkia út Steinunni Valdísi, Hjörvar og fleiri "góða".

Vinstri Grænir ætti að strika út Kolbrúnu Halldórs vegna heimskulegra ummæla í sjónvarpinu.

Framsóknarmenn ættu að strika út Sigmund því hann er flæktur (óviljandi reyndar) inn í hið ógeðfelda Kögunarmál.

Borgarahreyfingin ætti að strika út þann sem þeim líst verst á.

Frjalslynda ætti alla að stroka út.

Lýðræðishreyfingin ætti að stroka út Ástþór þvi sá fugl á sér hvergi hvílustað og rekst fyrr eða síðar illa í flokki.

Kolbrún.. Beat it. - Just beat it.


Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður VG sá til þess að annars vel stillt kosningamaskína VG hikstaði og hrökk úr gír um stund eftir einhver grát -og meinlegustu umæli í lýðveldissögunni.

Eina vonarljósið í allri hörmungarsögu Davíðshrunsins eru fréttir þess efnis að olíulindir kunni að leynast í lögsögu landsins. Aðspurð gaf Kolbrún Halldórsdóttir sterklega í skyn að ekkert yrði úr olíuleit eða þvíumlíku. Málið yrði skoðað í nefnd og drepið með hamri og hent ofan í kalda gröf

Við þessi ógeðflendu orð Kolbrúnar fóru afturgöngur í kreik. Allar sögurnar um "þröngsýnis-flokkinn VG" lifnuðu við eins og fyrir einhvern galdur. Risu upp úr gröfunum eins og í myndbandi Michaels Jacksons, "Thriller". Þarna var líkið af grasafræðingunum með stækkunarglerið sitt að skoða lyng. þarna var einn mótmælandi gegn NATO, þarna var líka hópur sem vild taka upp harðkjarna áætlunarbúskap og loka landinu og skella því í lás. Þarna var glaði maðeurinn sem var að "gera upp" (s.k "panel-kommi"), þjóðlegi VG maðurinn með pípuna sem safnaði Lödum.... Allt fúavarnarliðið reis upp úr gröfunum sínum við þessi heimskulegu orð Kolbrúnar og steig langþráðan dans.

Kolbrún Halldórs hefur skaðað flokkinn sinn mikið og ætti að skammast sín. En svona er þetta þegar vitleyisngar fá "open mic". það fer allt í háaloft

-Beat it Kolbrún, -Just beat it.

Uppfært....

Ég sagði það í blokki hér áðan að fullyrt væri í Gautaborgarpóstinum að heildarskuld hvers Íslendings væri 3 miljónir ískr. Hið rétta er að talað er um sænskar krónur.

Heildarskuld Íslendinga eftir Davíðshrunið er því um 46 miljónir og 750 þúsund.

Meðvirkni og markvisst fúsk

Þetta er svo óraunverulegt alltsaman. Þjóðin mín er í svo miklum vanda að ómögulegt er að sjá fyrir endan á honum. Í Gautaborgarpóstinum í dag er það fullyrt að hver Íslendingur skuldi 3 milljónir ískr.

Þetta eru skuldir sem örfáir spilasjúklingar stofnuðu til en þjóðin þarf að borga. Ennfremur hefur komið í ljós að flestir stjórnmálaflokkar landsins voru í rassvasanum á útrásarfyrirækjunum og skýrir það sleifarlagið á öllu eftirliti og eftirgefandasemi gangvart kröfum útrásarinnarvíkinganna.

Sjálfstæðismenn vilja bregðast við því að fara í sama frjálshyggjugírinn til að redda okkur úr vandanum. Tela að skattahækkanir séu óheillaspor. Gömlu trikkin sem notðuð voru s.l 18 ár séu brúkleg (þrátt fyrir hrunið)

-Gleyma þó að taka fram að þessar örvæntingaraðgerðir eru tilkomnar vegna meðvirkni og markviss fúsks SjálfstæðisFLokksins í efnahagsmálum, innri spillingar og afdalamennsku.

FJÖLDA-ÚTSTRIKANIR ! ! !

Spillingar-þingmennirnir ætla EKKI að birta yfirlit yfir þá sem "styrktu" þá... Ekki fyrr en eftir kosningar, þá....

-hugsanlega verður það gert.

Þarf frekari vitnanna við? Landinu hefur verið stýrt af fólki sem var í rassvösunum á auðjörfum og fyrirækjum. þetta fólk vill nú fá endurnýjað umboð til þess að stýra landinu áfram..

Ég hvet til fjölda-útstrikanna á kosningadag.

miðvikudagur, 22. apríl 2009

Svo óskaplega flókið - - Svo óskaplega flókið

-Össur segist ætla að birta prófkjörsbókhaldið sitt ef aðrir geri það.

-Steinunn Valdís segist ætla að birta prófkjörsbókhaldið sitt ef aðrir geri það.

-Guðlaugur Þór segist ætla að birta prófkjörsbókhaldið sitt ef aðrir geri það.

..... Eftir hverju eruð þið að bíða? Á að fá samþykki allra frambjóðanda allra flokka í prófkjörum árið 2006? Segja að þetta sé svo óskaplega flókið og aðrar aðstæður ríki nú en fyrir 3 árum. Segja að ekki náist í suma frambjóðendur og að samþykki styrkveitandans þurfi að vera á hreinu...... og allur moð-pakkinn.

-Birtið þessar upplýsingar strax!

-Fyrir kosningar! Ekki eftir kosningar þegar spilltir þingmenn telja sig geta beðið hríðina af sér inn í sölum Alþingishússins.



-Birtið þessar upplýsingar strax!

Þetta verður útskýrt sem einskær tilviljun

Guðlaugur Þór og Björn Ingi Hrafnsson, (REI-plottarar) fengu hæstu styrkina frá Baugi/Glitni.

Stundum þarf að tengja saman punktana til þess að fá heildarmyndina.

Hér til hliðar má sjá mynd af ófullgerðum snjókalli sem er búin að fá "styrk" frá stóru fyrirtæki.



-

Þöggun Framsóknarflokksins.

Ég er sár og ég er móðgaður. Ég komst ekki á óvinalistann hjá Framsókn. Mér er nærri lagi að hætta bara það blogga. Þetta blogg mitt er greininlega máttlítið tíst í ægistormi sem enginn heyrir.

Ég gleðst þó innilega með þeim bloggurum sem komust á óvina-listann. Ég veit ekki hvað skal taka til bragðs en ég tel þó að ég spýti í lófana ferkar en að leggja upp laupana.

-Næsta vika verður helguð Framsóknarflokknum.

Fréttir á Stöð 2 í kvöld

Ég hef sjaldan verið eins spenntur fyrir einum fréttatíma og í dag. Ef að Stöð 2 heldur áfram með fréttina um prófkjörs"styrkina" og birtir nöfn "styrk"þega held ég að það verði mónumental.

Þessi prófkjösspilling hefur grasserað svo lengi að fólk var byrjað að líta á það sem sjálfsagðan hlut að stórfyritæki borguðu miljónir í vasa stjórnmálamanna. Þetta mál verður að draga fram í dagsljósið.

"Styrkþegar" verða að gera hreint fyrir sínum dyrum. Hvaða þigmenn og ráðherra voru í vasa stórfyrirækjanna?

Þetta er stærsta frétt ársins. Stærra en mútumál SjálfstæðisFLokksins. Fréttastofa Stöðvar 2 er sannarlega að standa sig í stykkinu. -Trúverðug og óvægin.

Sérkenniegt siðferði Steinunnar Valdísar.

Nú eru loksins að koma upp á yfirborðið upplýsingar um tengsl risa-fyrirtækja við stjórnmálamenn. Almenningur hefur að sjálfsögðu vitað um þessi tengsl en ekkert var í hendi því farið var með upplýsingarnar eins og mannsmorð.

Svona eins og ástandið í fjölskyldu ofbeldismanns. Allir vissu um ofbeldið en enginn gerði neitt.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir þingmaður og fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík er en þeirra sem þáð hefur risastyrki frá stórfyrirtækjum. Hún kom af fjöllum þegar DV hafði samband við hana. -Eða þannig. Sjálfsagt var hún að prjóna einhvern afsökunarspuna til þess að reyna að bera í bætifláka fyrir þessar mútur. Hún segir:

„Ég hef ekki séð fréttina þannig að ég veit ekkert um hvaða frétt þú ert að tala en það sem ég get sagt er að það mun ekki standa á mér að opna bókhald mitt varðandi prófkjör ef aðrir gera það og ef flokkarnir sammælast um það. Þá geri ég það að sjálfsögðu líka. Ég skilaði öllu mínu inn til skattsins á sínum tíma, bæði fylgigöngum, bókhaldsgögnum og öllu slíku þannig að það er þá bara mitt svar við þessu,“ segir Steinunn Valdís.
Það sem vakti athygli mína við þetta svar fyrrverandi borgarstjórans míns var þessi partur.
[Mun] ekki standa á mér að opna bókhald mitt varðandi prófkjör ef aðrir gera það og ef flokkarnir sammælast um það. Þá geri ég það að sjálfsögðu líka.
Af hverju getur hún ekki bara sýnt fram á "styrkina" til sín? Hví þarf hún að sammælast við aðra frambjóðendur? Eru mútuþegar einhverskonar félagsskapur með aðalfundi og stjórn? Eru félagið með skrifstofu í Ármúla?

Ég hef velt því fyrir mér af fullri alvöru að þeir sem ílengjast í stjórnmálum taki upp annað siðakerfi en það sem er í gildi í samfélaginu. Núna er ég sannfærður um að svo sé.

Þessar upplýsingar verða að koma fram. Það er jafn nauðslynlegt lýðveldinu og súrefni fyrir okkur mannfólkið. Það var einmitt þetta sem hratt af stað búsáhaldabyltingunni. Samkrull viðskiptalífs og stjórnvalda sem gekk meira og minna út á að afhenda útvöldum ríkiseigur. Það var nefnilega ólýðræði, þjófræði og spilling sem felldi Ísland.

VG eru til fyrirmyndar.

Núna hefur komið í ljós það sem allir vissu. Að það voru ekki bara stjórnmálaflokkar sem þáðu mútur, heldur líka einstaka þingmenn. Stórfyriræki sem hafa hagsmuna að gæta í því að "þægir" þingmenn sætu á Alþingi "styrktu" prófkjör vissra þingmanna um miljónir ofan á miljónir.

-En ekki þingmenn eða prófkjörskandídata Vinstri grænna.

Vg eru algerlega til fyrirmyndar varðandi umgengni við peninga frá fyrirtækjum. Bókhald flokksins hefur t.d alltaf verið birt á netinu, öllum til aflestrar. Engir "styrkir" hafa farið frá stórfyrirtækjum til að kosta rándýr prófkjör. Prófkjör Vg eru til fyrirmyndar. Hámark sett á kostnað og reglur skýrar. Enginn vindbelgsgangur né póleraður popúlismi að hætti ímyndarsérfræðinga. -Bara fólk sem velur fólk.

Nú er lag fyrir þjóðina að segja álit sitt á þessum ógeðfeldu tengslum peningaaflanna og Alþingismanna og stjórnmálaflokka. Ég fagna öllum atkvæðum sem falla Vg í skaut í komandi kosningum.

p.s

Siggi Kári og Birgir Ármannson Sjálfstæðisflokki börðust hatramlega gegn því að styrkir frá fyrirækjum til handa stjórnmálaflokkum og alþingismönnum væru gerðir opinberir. -Pælið aðeins í því.

þriðjudagur, 21. apríl 2009

HVAR ENDAR ÞETTA ! !

Nú er komið í ljós að Tryggvi Þór Herbertsson varaði sterklega á móti einhliða upptöku evru fyrir nokkrum vikum. Nú er hann búin að skipta um skoðun. Rétt eins og formaðurinn í málefnum ESB.

Ætlar ógæfa Sjálfstæðisflokksins engan enda að taka? -Hvað gerist næst? Hrapar hluti úr MIR geimstöðinni ofan á Valhöll með tilheyrandi braki og brestum. Veltur sjálfstæðisrútan á leiðinni til Grindavíkur? Verður Siggi Kári á hækjum og með lepp fyrir auganu á síðustu dögum kosningabaráttunnar?

-Maður spyr sig.

Málfræðiumvandanir flokksdindils.

Eiður Guðnason fyrrverandi sendiherra og flokksdindill heldur úti bloggi um æskilegt málfar. Þar kennir ýmissa (málhreinsunar) grasa eins og gefur að skilja. Eiður virðist liggja yfir fréttatímunum hjá RÚV og ritrýna þá eftir máltilfinningu sinni, smekkvísi og málfræðilegri rétthugsun. Aðallega rétthugsun þess sem alinn hefur verið upp af hinni altumlykjandi goggunarröð flokkanna sem lá eins og mara á samfélaginu þar til búsháhaldabyltinginn glamraði spillinguna fram í dagsljósið. -En nóg um það.

Ég get ekki látið vera að í einu bloggi Guðnasonar er að finna setningu sem truflaði mína máltilfinningu, smekkvísi og rétthugsun. Það var setning sem er að finna hérna.

Setninginn sem setti mig út af laginu var þessi:
Það kæmi ekki á óvart. Þetta bendir til, að Mogginn sé nú að feta sig inn á gömlu flokksblaðaslóðina, sem maður var að vona að sandar tímans hefðu fært í kaf
Mér þykir þetta kauðsleg vísun sem augljóslega á sér rætur í ensku. Eiður ætti kannski að ritrýna bloggið sitt í næstu færslu. Bubbi Morthens gæti gert betur en þetta klastur.

5% múrinn

Hefur einhver hugleitt það óréttlæti sem felstt í þessum 5% múr? Hvað með það þótt að á Íslandi komist að lítil framboð, lítlar hreyfingar.

Ljóst er að flokkarnir sem stóðu að þessum breytingum voru að búa til girðingar til þess að auðvelda sér lífið enda er sjálfsasgt betra að vinna með einhverjum sem maður þekkir en einhverjum skríl sem er að abbast upp á dekk.

Grundvallaratriði í lýðræðisríki er einn maður - eitt atkvæði.

-Þetta eiga sumir erfitt með að skilja.

VG og Samfylking rífast um ESB

Nú er Samfylking og VG að þrasa um ESB. Í mínum huga er bara ein lausn á þessum hnút.

Það á að láta þjóðina ráða för í Evrópumálinu.

Ég geri mér grein fyrir því að þessi hugmynd er byltingarkennd og nánast órakennd í hugum þing-hunda gömlu flokkanna en ég sé ekki neina aðra lendingu.

Gömlu flokkarnir hafa aldrei skilið að í landinu búa borgarar. Þeir telja að í landinu búi þegnar. Það er stór munur á þessu tvennu. Þetta er spurning um mannskilning. Þegninn hlýðir meðan borgarinn vill taka þátt.

Það er löngu komin tími á að Íslendingar hætti að lita á sig sem knýtta þegna einhvers yfirvalds.

-Við erum borgarar!. Borgara sem taka ábyrgð á framtíð sinni. Borgara sem taka ábyrgð á framtíð landsins sem við elskum.

Þegar teningunum verður kastað.

Allir sem ég tala við eru óákveðinir í því hvað þeir ætla að kjósa. Allir taka fram að Borgarahreyfingin sé sterklega inn í myndinni.

Ég held að þegar teningunum verður kastað fær Borgarahreyfinginn betri kosningu en fólk órar fyrir.

Þessvegna kýs ég ekki Samfylkinguna.

Fyrir síðustu kosningar setti Samfylkingin saman nokkuð góðan loforðapakka sem bar heitið "Fagra Ísland". Fyrir vikið náði Samfylkingin mörgum kjósendum.

Til að gera langa sögu stutta var allt svikið sem kom fram í þessu fagra plaggi. Mengunarkratar náðu yfirhöndinni í flokknum og náttúruverndarsinnar í Samfylkingunni þorðu ekki að spyrna við fæti. -Þótti of vænt um brakandi leðurstólanna í ráðuneytunum sínum.

Ég treysti Samfylkingunni einfaldlega ekki.

Flokkurinn hefur sýnt það afar skýrt að hann skyrrist einskis til þess að veiða atkvæði með loforðaflaumi og svikja síðan alltsaman. Farið er með bókhald Samfylkingarinnar eins og mannsmorð þar sem allt er á huldu. Aðeins eitt ár var birt úr sögu Samfylkingarinnar. Nýlegar fréttir um að rangt hafi farið með birtingar á þessum upplýsingum koma mér ekki á óvart. Birtu bara hluta af "styrkjum"sem Samfylkining hefur fengið frá stórfyrirtækjum.

Það er ekki traustvekjandi.

Góður punktur hjá Hjálmari Hjálmarssyni

Sjálfstæðismaður með sómatilfinningu.

-Eftir að hafa stjórnað landinu í 18 ár.

-Eftir hafa skipað hæfileikalaust fólk á helstu eftirlitsstofnanir fjármálageirans

-Eftir einkavinavæðinguna

-Eftir gjafakvótakerfið

-Eftir að hafa keyrt efnahagskerfið klessu

-Eftir að hafa rústað orðspori þjóðarinnar á alþjóðavetvangi

-Eftir bankahrun

-Eftir mútumálið sem þáverandi forsætisráðherra var flæktur inn í .

-Eftir Davíð Oddson

-Eftir Árna Johnsen

-Eftir "Opinberun Hannesar" í sjónvarpinu

-Eftir hringlandahátt varðandi ESB

-Eftir þýlindi við útgerðargreifana


....Er það eina sem Sjálfstæðisflokkurinn býður upp á í þessari kosningabaráttu hræðsluáróður um skattahækkanir og þjóðrembuhugmyndir gegn inngöngu í ESB.

Ég hef líkt aðgerðum Sjálfstæðisflokksins eftir Davíðshrunið við það þegar lögregla hefur skakkað leikinn eftir ógnarnótt hjá fjölskyldu ofbeldismanns. Lögreglan reynir að róa fjölskylduna meðan heimilisfaðirinn æðir um í tyllingi út í garði. Lemur rúður og kastar til ruslatunnum. -Froðufellandi af gremju.

Nú er nokkuð um liðið.

Ofbeldismaðurinn er ennþá út í garði þótt lögreglan sé farin af svæðinu og hrópar ókvæðisorð að fjölskyldunni í bland við væl um að fá að komast aftur inn. Komið er í ljós að fjármál heimilisins sem voru á könnu ofbeldismannsins eru rústir einar. Rukkunarbréf berast inn reglulega með tilheyrandi spennu. Ofbeldismaðurinn veit þetta og æpir í sífellu að ekki sé upp á hann að sakast að fjármálin séu í klessu. Að hann viti hvað gera skuli. Hann hrópar ítrkekað að "þið munið aldrei komast út úr þessu án mín". Hleypið mér aftur inn og ég skal redda þessu. Þetta gekk svo prýðilega þegar ég sá um fjármálin.

Svona er þetta.

Ég hef stundum sagt í hálfgerðum kvikyndisskap að ekki fyrirfinnist Sjálfstæðismaður með sómatilfiningu. -En ég sé nú að mér er full alvara.

Ef að til er Sjálfsstæðismaður með sómatilfinningu, -þá kýs hann eitthvað
annað en Sjálfstæðisflokkinn.

Kaus í gær.

Eftir að hafa skutlað strákunum á leikskólann fór ég til íslenska ræðsmannsins í Gautaborg og kaus. Það var svolítið falleg upplifun.

Ég mætti inn á litla, afskaplega hófsama skrifstofu ræðismannsins og átti við hann nokkur orð. Skrifaði því næst nafnið mitt í einhverja bók og fékk stypmil. Þvínæst fékk ég umslag í hendur og skrifaði á það nafn, kennitölu og síðasta heimilisfang á Íslandi. Þá loks fékk ég kjörgögnin í hendur. Ræðismaðurinn var afskaplega faglegur og yfirgaf skriftstofuna meðan ég merkti við bókstaf þess flokksins sem ég kaus. Þegar því bókstafurinn var kominn lét ég svo kjörseðilinn í umslag og afhenti ræðismanninum. Hann setti svo umslagið í annað umslag og afhenti mér til þess að senda í pósti.

Áður en við kvöddumst spurði ég ræðismanninn út í kosningaþáttökuna og hann sagði mér að hún væri óvenju góð. Þetta þykja mér pínulitlar fréttir og sannarlega efni fyrir blaðamenn að hringja í ræðismenn Íslands og fræðast um kosningaþáttökuna.

Á leiðinnni heim þá hugsaði ég um að þrátt fyrir allt rifrildið og hörkuna ástundum í íslenskri pólitík eru allir algerlega sammála um þetta fyrirkomulag. Lýðræðislegt kosningafyrirkomulag eru einhvern vegin æðra en allt annað. Æðra gildi sem allir eru sammála um. Það er góð tilfinning að hugleiða þetta.

Útfærslan er síðan annað mál og gagnrýniverðara. það er t.d ömurlegt (svo ég noti orðfæri margra Sjálfstæðismanna í kringum mútuhneyksklið) að sumstaðar vegur eitt atkvæði meira en tvö eftir því hvar viðkomandi borgari býr á landinu. -Þennan órétt verður að laga.

Onedin skipafélagið

Einu sinni fyrir mögum árum var sjónvarpsþátturinn Onedin skipafélagið á dagskrá RÚV. Ég man lítið eftir þáttunum sjálfum enda var ég barn að aldri. Ég gleymi samt aldrei kyningarlaginu fyrir þáttinn. Þetta lag var bara fast í höfðinu á mér í áratugi. það var svo fyrir nokkrum árum að ég rambaði á hvaða lag þetta var.

Ég talaði við pabba minn sem er gangandi alfræðiorðabók í tónlist og hann sagði mér að þetta væri eftir Armenann Khachtaturian nánar tiltekið úr óperunni Spartacus. Síðar gaf hann mér diskinn sem ég spila stundum, en alltof sjaldan.

- Þvílít tónlist.

Hérna er tónlistinn úr upphafssenu Onedín skipafélagsins.



Hérna er píanóútgáfa af "Adagio of Spartacus and Phrygia". Mér þykir þessi útgáfa alveg óskaplega falleg.



Moðreykur Sjálfstæðisflokksins

Það hafa alltaf verið nokkrir hlutir varðandi Sjálfstæðisflokkin sem ég hef aldrei skilið.

Flokkurinn segist vera flokkur lítilla ríkisumsvifa

  • En staðreyndin er að á valdatíma Sjálfstæðisflokksins hefur "ríkið" þanist út og skattbyrðar aukist.



Sjálfstæðisflokkurinn segist vera flokkur hvers grundstoð eru jöfn tækifæri þegnanna.

  • Staðreyndin er sú að á valdatíma Sjálfstæðisflokksins eru jöfn tækifæri sannarlega ekki til staðar. Nokkrum einstaklingum er afhent á silfurfati náttúruauðlyndir hafsins sér og sínum til ráðstöfunnar. Útilokað er fyrir duglegt fólk að hasla sér völl í sjávarútvegsgeiranum. Mannaráðningarspilling er einnig landlæg og flokkskírteini eru iðulega rétthærri en prófskírteini.
Ljóst er að ofantalin grundvallaratriði í stefnu Sjálfstæðisflokksins er bara reykský sem þyrlað er upp í aðdraganda kosninga. -Reykský til þess að blekkja kjósendur til fylgilags við sig. Sjálfstæðisflokkurinn er fyrst og fremst hagsmunasamtök Landsambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ).

-Allt umfram það er blekking og reykur.

Jón O. Edvald og Finnbogi.

Þegar ég var yngri þá hélt ég að Jón O. Edvald væru tveir menn. -Jón og Edvald.

"Þýðandi og þulur er Jón og Edvald".

Svakalegt alveg en ekki þó jafn kjánalegt og þegar ég uppgötvaði að mannsnafnið Finnbogi væri með "enni". Ég hélt að nafnið væri skrifað "Fimm-bogi".

-Svona get ég verið takmarkaður.

mánudagur, 20. apríl 2009

Sjálfstæðisflokkurinn í frjálsu falli

Einhver ánægjulegasta kvikmynd síðustu ára að mínu mati var bíómyndin Hot Rod. Helvíti fyndin mynd sem kom verulega á óvart. Ég og Hjalli frændi grenjuðum úr hlátri yfir þessari dellu. -Næstum þvi fertugir mennirnir.

Það er ein sena sem úr þessar mynd sem kom upp í huga minn þegar ég las fréttir um að evru-upptöku hugmyndir Sjálfstæðisflokksins væru afskrifaðar sem "Rent nonsens". Ég sá fyrir mér mann sem dettur niður fjall og ætlar aldrei að stoppa. Dettur bara og dettur.


Að hafa húmorinn í lagi


Þótt ýmislegt megi segja um Sjálfstæðismenn þá eru þeir með húmorinn í lagi. Þeir hafa nú sett fram einhverskonar grín-myndband sem er algerlega kostulegt. Jón Gnarr fer á kostum í ótrúlegu gerfi Þórarins Stefánssonar og leiðir gysið. Þvínæst kemur fyrir Orri Hauksson félagi minn sem sýnir góða takta.

Myndbandið sýnir vel að þrátt fyrir að pólitíkin sé stundum hörð og óvægin megum við ekki gleyma að kímnin sameinar okkur. Sjálfstæðisflokkurinn fær sannarlega prik í kladdann fyrir þetta frábæra myndband.

Ummæli vikunnar komin fram...

"Atli nauðgaði vændisfrumvarpi"

Nánar hér.

laugardagur, 18. apríl 2009

Boðskapur Guðlaugs Þórs....

Guðlaugur Þór þingmaður SjálfstæðisFLokksins mun hafa látið eftirfarandi út úr sér í dag.

Kostirnir hefðu ekki verið jafn skýrir lengi og nú. Vinstri flokkarnir byðu upp á gamaldags leið ríkisafskipta sem Íslendingar hefðu löngu hafnað. Í kosningunum nú væri ekki aðeins vegið að Sjálfstæðisflokknum og sjálfstæðisstefnunni heldur öllu því sem væri íslenskt.
Þar höfum við það ágæti lesendur. Ég vil þó við þetta bæta að það er einmitt Sjálfstæðisstefnan sem vegið hefur að Íslandi, lýðræðinu og öllu því sem íslenskt er.

föstudagur, 17. apríl 2009

Þarf frekari vitnanna við?

Fjórflokkurinn hefur tekið fyrir að önnur framboð geti kynnt sig á RUV...

Allt um málið hér.

Nú sést vel hvernig þessi fjórhöfða þurs vinnur. Þetta eru smáskref til ólýðræðis.

-Smáskref með það að skammta sér ríflega peninga frá hinu opinbera (samhliða "styrkjum" frá
fyrirtækjum)

-Smáskref með að krefjast 5% lágmarks til þess að fá mann inn á þing (hefur einhver pælt í hve ólýðræðisleg þessi krafa er?)
-Smáskref með að útiloka önnur framboð frá lögbundinni kynningu í RUV.


Leiðin til ólýðræðis og fasisma er tekin í smáskrefum.... Munum það.

10 kílóa þorskur....

Eins og komið hefur fram í fréttum þá skuldar útgerðin 5- 700 miljarða. Kvótagreifarnir veðsettu kvótann "sinn" (eða "nýtingarrétt" eins og Sjálfstæðisflokkurinn kallar það) upp undir rjáfur. Lánsféð notuðu þeir síðan til að braska á hlutabréfamarkaðinum og töpuðu öllu.

Til að skilja hve veðsettur kvótinn er þá er 10 kílóa þorskur sem veiðist, veðsettur fyrir 40 þúsund kall.

Ósvífni og fyrirsláttur

Bjarni Ben sagði að Sjálfstæðisflokkurinn væri ekki að ganga erinda sægreifanna í fréttum RUV í kvöld. (Athyglisvert að hann notaði orðið "sægreifi")

-Að stjórnarskrár málið snérist um hugtakið "þjóðareign".

Þetta er ósvífni og fyrirsláttur. Allir landsmenn vita að SjálfstæðisFLokkurinn hatar hugmyndina um að hópur fólks, ellegar samfélag fólks eigi eitthvað saman. Auðlyndir landsins skulu vera eign klíkunnar. Fiskur, orka, náttúrperlur og jafnvel andrúmsloftið sjálft.

Ekki þarf að líta lengra en til Noregs til að sjá að þeir eiga allir olíuna saman. Þjóðin á olíuna. Þjóðin nýtur ávaxta auðlyndarinnar.

-Sjálfstæðismenn vilja að einhverjir vinir Davíðs Oddsonar eigi auðlyndir okkar Íslendinga. Um þetta snúastt þessar kosningar. Viljum við að vinir Davíðs Oddsonar eigi auðlindir landsins eða viljum við að öll þjóðin eigi auðlindirnar. -Ekkert flókið.

Fyrirsláttur með hugtökum á borð við "nýtingarréttur" og að orðið "þjóðareign" sé svo óskýrt er ósvífinn fyrirsláttur

fimmtudagur, 16. apríl 2009

Hvern á maður að kjósa?

Ég hef velt töluvert vöngum yfir því hvern ég ætti að kjósa. Kostirnir eru aðeins tveir í mínum huga. VG eða Borgarahreyfingin.

Ég er félagsmaður í Samfylkingunni en fékk upp í kok þegar Vanhæfa ríkisstjórnin klúðraði öllu sem hægt var að klúðra. Kosningasvikum í kringum "Fagra Ísland" og álvers-klikkun sumra í forrystunni. Nú og svo auðvitað útrásar-dekrinu, spillingunni, mannaráðningafúskinu og fleira og fleira. Ég kýs ekki flokkinn "minn" í þessum kosningum. Svo mikið er víst.

Ég hef taugar til Borgarahreyfingarinnar. Þessi Birgitta fer reyndar í taugarnar á mér af ástæðum sem eru mér ókunnar, en allir aðrir eru frambærilegir og sumir rúmlega það. Ég er nokkuð viss um að margir flokkar vildu hafa Saari eða Skagfjörð í sínu liði. Svo ekki sé minnst á Bertelson. Fullt af fínu fólki, heilsteyptu og óspilltu. Sönnum Íslendingum sem vilja búa til betra samfélag eftir Davíðshrunið. Svo væri það náttúrulega stórkostlegt að sjá Búsáhaldabyltinguna á Alþingi.

Svo er það VG. Í gegnum tíðina hefur málflutingur VG pirrað mig.

En!!!!

Þrátt fyrir að það sé erfitt fyrir mig að viðurkenna það, þá höfðu þau rétt fyrir sér allann tímann! Siðferðisstuðull VG er í lagi en ekki í klessu eins og hjá öðrum flokkum. Bókhaldið er t.d bara haft á netinu meðan farið er með bókhald hinna flokkanna eins og mannsmorð. Þeir höfðu líka rétt fyrir sér í álvers-tryllingnum. Rétt fyrir sér með geðveikis-kapítalismann sem réð hér ríkjum. Kapítalisma sem þróaðist reyndar út í Kleptókratí eins og Egill Helgason hefur bent á. - Stefnan hefur verið heil og rétt! Ég fékk svona léttistilfinningu þegar Katrín Jakobsdóttir sagðist bregðast við ástandinu með lækkun launa og hækkun skatta. Hún sagði það sem allir hugsa en engin (stjórnmálamaður) þorir að segja. Bravó Katrín! Ástandið eftir Davíðshrunið verður ekki reddað með einhverjum fiffum eins og SjálfstæðisFLokkurinn segirst ætla að gera. Mér þykir VG vera vel mannaður flokkur en er þeim hjartanlega ósammála um Evrópu. -Ég vil nefnilega láta þjóðina ráða hvort hún fari í ESB eða ekki. Þau hafa reyndar gefið það í skyn að svo megi verða og það er vel. Líklegt er þó að þetta verði svikið þegar á reynir.

Þegar maður gerir upp á milli tveggja kosta, þá verður maður að "besta". Í raun er maður að velja skásta kostinn því maður fílar jú ekki alla á listanum og það sama má segja um málefnin. Svo er líka mikilvægt að spyrja sig: "Hvaða flokkur er líklegastur til þess að standa við stóru orðin". Ekki ljúga eins og Samfylkingin gerði með "Fagra Íslandi". Hverjir eru líklegastir til þess að raunverulega meina það sem þeir segja. Hverjir eru "4real" og hverjir ekki.

Hverjir eru og hverjir eru ekki að ljúga. -Þar er efinn

SjálfstæðisFLokkurinn fær fyrstu verðlaun

Útkoma Sjálfstæðisflokksins í nýjustu könnnun Gallup er slæm miðað við síðustu kosningar (sem þó var ein versta útkoma FLokksins)

SjálfstæðisFLokkurinn fær samkvæmt þessari nýju könnun 23.3 % fylgi. Þetta er að mínu mati góður árangur hjá FLokknum því þeim hefur einhvernvegin tekist að sannfæra fjórðug þjóðarinnar um að Hrunið sé ekki þeim að kenna.

Að Hrunið sé eitthvað frá útlöndum.

Fyrir þetta PR stunt fær SjálfstæðisFLokkurinn fyrstu verðlaun.

Heilræði til handa Bjarna Ben

Losaðu þig við allt gamla liðið. (Illuga, Sigga Kára, Þorgerði, Johnsen, Möller, Blöndal, Einar K. Guðlaug Þór, Birgi, Kristján, Tryggva Þór og nokkra aðra) og lýstu því yfir að Sjálfstæðisflokkurinn ætli ekki að taka þátt í næstu ríkisstjórn.

Boðaðu hugmyndafræðilega endurskoðun og byggðu upp nýjan flokk á rústum Davíðshrunsins.

Þetta er orðið pínlegt.

Verkefni stjórnmálanna

Ég tel að það verði meginverkefni íslenskra stjórnmála á komandi árum og áratugum að hindra það að Sjálfstæðisflokkurinn komist til valda aftur í íslensku samfélagi.

Hrunsflokkurinn, Davíð og klíkan hans hefur rústað landinu æru þess og sóma. Allir hafa vitað að FLokkurinn var spilltur. Það vantaði bara sönnunargögn. Þau komu öllum að óvörum þegar bókhald FL-Group lendi í höndum ríkisins. Einn ljósgeisli inn í myrkraherbergi Valhallar var nóg til að spilaborgin hryndi.

Samsæri þagnarinnar er rofið og nýjir og betri tímar við dagsbrún.

miðvikudagur, 15. apríl 2009

Laskaðir frambjóðendur.

Pétur. H Bölndal = "fé án hirðis". Stefna sem reyndist þjóðinni dýrkeypt.


Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir = 500 miljóna kúlulúan sem lendir á landsmönnum öllum


Illugi Gunnarsson = Sjóður 9. Vafasamar millifærslur á upphafsdögum hrunsins.


Björn Bjarnason = Gamalt Kaldastríðs-náttröll og últra hægrimaður og vill eftirlit með borgurunum. Hleranir, leyniþjónustu, hervæðingu osfr.


Sigurður Kári = Brennivín í búðirnar! og andstæðingur þess að settar verði skorður að fyriræki "styrki" stjórinálaflokka


Guðlaugur Þór = Skipulagði og setti af stað "styrkjamálið" þar sem FL-Group og Landsbankinn "styrktu" Sjálfstæðisflokkinn um 60 miljónir.


Ólöf Nordal = Helsti stuðningsmaður álvera á Íslandi. Eiginkona álversforstjóra.


Tryggvi Herbertsson = Klappstýra útrásarinnar, titlaður hagfræðingur - Fyrrverandi forstjóri Askar Capital. (Askar Caput)


Bjarni Benediktsson = Olíuforstjóri sem tókst hið ótrúlega: Að skuldsetja olíuflélagið sitt upp fyrir rjáfur. Skuldin lendir á þjóðinni.


Einar Guðfinnsson = Kvótagreifi númer eitt á Íslandi. Talsmaður skuldsettustu atvinnugreinar landsins.


Árni Johnsen = Dæmdur fyrir stuld á ríkiseigum. Söngfugl og hefur aldrei lagt fram frumvarp allan sinn þingmannsferli fyrir utan breytingartillögu um persónugerð bílnúmer.

þriðjudagur, 14. apríl 2009

Búin að vera.

Ég held að Guðlaugur Þór sé búin að vera í íslenskri pólitík Það er óverjandi að hafa svona mann í forrystu fyrir stórnmálaflokk. Innmúraðir Sjálfstæðismenn tjá mér þetta.

Það nöturega við ástandið núna (ef maður er á annað borð stjórnmálamaður) er það að maður getur ekki stólað á að flokkurinn manns geti reddað manni opinberu starfi. Eftir Davíðshrunið eru nýjar leikreglur. Nú er spurt um hæfileika og skólagöngu.

-Stétt flokksdindla er í töluverðri hættu. Þeir ungu fara fyrst og þeir feitu síðast.




p.s

Gaman að því að Sigurður Kári og Birgir Ármansson börðust hatrammlega gegn lögum um takmörkun "styrkja" til stjórnmálaflokka.

Bannað Björnum

Það er bannað að tala um mútumálið við Bjarna Benediktson, formann Sjálfstæðisflokksins.

-Blaðamenn sem spyrja út í mútumálið eru með gildishlaðnar spurningar.




- - - Verður þessi farsi eitthvað fáránlegri?

mánudagur, 13. apríl 2009

Guðlaugur Þór afhjúpaður

Páll Vilhjálmsson á bloggfærslu dagsins.

-Hafi hann þökk fyrir.

Knýjandi þörf.

Það er algerlega nauðsynlegt að öll framlög fyritækja til stjórnmálaflokka verði gerð opinber. Ekki nokkur ár aftur í tíman heldur frá byrjun!

Þessar upplýsingar þarf svo að keyra saman við allar ákvarðanir Alþingis svo langt aftur sem það nær.

Það er jafn óþolandi og það er ljóst að á Íslandi hefur grasserað spilling á hæstu stöðum. Þessu verður að linna. Því ef því linnir ekki þá er ólíft á landinu okkar.

Lögreglurannsókn eins og skot!

Ljóst er að Sjálfstæðisflokknum var mútað til að liðka fyrir sölu á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja (REI-ruglð spinnst inni þetta á seinni stigum)

Fleiri komu við sögu. Atgangur Borgastjórnan Sjálfstæðisflokksins og eina fulltrúa Framsóknar, Björns Inga Hrafnsonar við REI-málið er með ólíkindum. Líklegt er að atgangurinn og sú einarða þrákelkni um að selja skuli dýrmætustu bitana út úr OR til Glitnis og FL Group eigi sér annarlegar forsendur.

Það er sjálfsögð krafa að Björn Ingi og Viljhjálmur Þ. verði kallaðir í lögregluyfirheyrslu og rannsakaðir. -Bankareikningar þeirra skoðaðir til hlítar.

sunnudagur, 12. apríl 2009

Ástþór Magnússon og tékknesku kommarnir

Nú er hann byrjaður að birta símtölin við fólk á vefnum hjá sér til að "sanna" eitthvað. Þetta nýjasta útspil Ástþórs er nöturlegt og á sér hræðilegar hliðstæður úr sögunni. Þegar Tékkland var undir járnhæl kommana þá höfðu stjórnvöld nákvæmlega þennan sið þegar þau þurftu að sverta eða koma höggi á andófsmenn.

Símar þeirra voru hleraðir og þegar nógu miklum skít var náð, var heilu klukkustundum af þessum símtölum útvarpað til Tékknesku þjóðarinnar.

Ég veit ekki hvar klikkun Ástþórs tekur enda eða hvar hún byrjaði, en ég hef á tilfinnningunni að Ástþóri líði ekkert vel á sálinni. Ég vona þó að Ástþór hætti þessum ljóta leik og beini orku sinni í eitthvað uppbyggilegra en birta símtöl fólks á netinu.

laugardagur, 11. apríl 2009

Ragnari Sigurðssyni líkt við David Beckham

IFK Gautaborg van Stokkhólmsliðið Djurgarden 6 - 0 í dag. Ragnar Sigurðsson er einn af máttarstólpunum í liði Gautaborgar og skoraði mark sem lengi verður í minnum haft. Svíar eiga ekki orð til að lýsa hrifiningu sinni á margi Ragnars og líkja því við eitthvað mark sem hárkvoðumaðurinn, David Beckham skoraði árið 1996.

Hérna er markið.

Nótt hinna löngu hnífa.

Hinn ótrúverðugi spuni Sjálfstæðismanna um að engum sé um að kenna að flokkurinn hafi þegið mútur er nú að framkallast. Fyrst eftir að málið komst upp sagðist Geir Haarde einn taka ábyrgð á mútunum frá FL-Group. Nokkrum mínutum síðar kemur ný saga frá Geir og hann segist líka bera ábyrgð á mútum frá Landsbankanum. Landsmenn áttu s.s að trúa því að Geir hefði ástundað þessar snýkjur (forsætisráðherrann sjálfur og formaður flokksins)

-Þetta var ekki að virka eins og gefur að skilja

Næst dúkkar upp nafn Guðlaugs Þórs. Hann segist í byrjun ekki kannast við neitt en síðar að hafa haft samband við nokkra menn til þess að safna í púkkið. Ef þetta er satt hjá Guðlaugi þá gerðist eftirfarandi:

Guðlaugur Þór tekur upp símann og stuttu síðar eru lagðar inn 55 miljónir inn á reikning Sjálfstæðisflokksins.

Gengur þetta upp? Er þetta boðlegt?

Mér skilst að til sé einhverskonar fjáröflunarnefnd Sjálfstæðisflokksins hvers tilgangur er að afla "styrkja". Augljóst er að allir í þessari fjáröflunarnefnd vissu að þessum "styrkjum". Þegar fólk vinnur að einhverju verkefni saman þá eru menn ekki hver í sínu horni. Hafi verið eitthvað átak í gangi þá frétta fjáröflunarmenn hvernig gengur innan fjáröflunarhópsins. það fréttist að fyriræki A gaf 5 miljónir. það fréttist að fyrirtæki B gaf 2 miljónir. Það fréttist sannarlega að FL-Group gaf 30 miljónir!!!

Nú er runninn upp nótt hinna löngu hnífa hjá Sjálfstæðsflokknum og "hreinsanir" hafnar. Gamlar klíkur innan flokksins takast á og augljóst er að ekki er pláss fyrir neinar óuppgerðar sakir. Eftir mun standa aðeins ein klíka. -Flokkurinn hreinn og tær.

Róla og rennibraut

Bessi og Leó fengu rólu og rennibraut gefins frá nágranna okkar. -Mjög vinsælt.


föstudagur, 10. apríl 2009

Kjartan Gunnarsson vísar á sjálfan sig.

Ótrúlega fyndin spuni er í gangi akkúrat núna. Kjartan Gunnarsson segist vita hverjir báðu um styrk fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá Lansdbankanum en vill ekki segja hver það er. Og klykkir svo út með orðunum að "þeir verði sjálfir að gera hreint fyrir sínum dyrum".

Þess ber að gera að Kjartan var á þessum tíma framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og í formaður stjórar Landsbankans....

í afsökun sinni er Kjartan í raun að vísa til sjálfs sín um að gera hreint fyrir sínum dyrum.

Vígvöllur tungumálsins

Stjórnmál á Íslandi hafa löngum snúist um að kalla hlutina öðrum nöfnum en þeir raunverulega eru. Nýjasta dæmið um það er orðræða sem snýst um mútur nokkurra stórfyrirtækja til handa Sjálfstæðisflokknum.

Þetta eru kallaðir "styrkir".

Ef að hlutirnir væru kallaðir sínum réttu nöfnum væri ástandið skárra og í sumum tilfellum hefði skaðinn aldrei skeð.

fimmtudagur, 9. apríl 2009

Auðlindir landsins... -Hver á þær?

Sjávarútvegurinn skuldar 500 miljarða (500.000 miljónir) Kvótinn sægreifanna er veðsettur upp í topp og það sem furðu sætir, langt fram í tímann!

-Þetta er staðan.

Árlegur arður af fiskveiðum við Ísland nær ekki upp í vaxtagreiðslur af þessum lánum.

Sérkennilegt að heyra suma stjórnmálamenn þvæla um að við Íslendingar verðum að passa upp á auðlindina og þessvegna jaðri aðildarviðræður við ESB við landráð. Svona málflutningur er ekki í neinum tengslum við veruleikann. Þetta er bara þvættingur.

Arður af fisk-auðlind Íslands fer beint til útlanda og ekkert verður eftir á Íslandi.

Bjargvætturinn Hannes Smárason

Óaðvitandi hefur Hannes Smárason flett ofan af einhverri mestu meinsemd íslenskra stjórnmála. -Mútum stórfyritækja til sjórnmálaflokka.

Það er ekki bara vargarnir Valhöll sem nötra, heldur einnig flokkseigandafélög Samfylkingar og Framsóknarflokksins. -VG hefur alltaf verið með sitt á hreinu og það er til fyrirmyndar.

Nú loga eldar í gamla, fúna, spillta og ógeðfelda flokkakerfinu.

-Því ber að fagna með trumbuslætti og pípublæstri.

FL Group og Samfylkingin

Gott er að Samfylkingin ætli að opna bókhaldið sitt. Það er trúverðugt og kjósendur eiga rétt á að vita hvort auðhringir eins og FL-Group hafi styrkt flokkinn.


FL Group og Framsókn

Nú er ljóst að FL Group mútaði Sjálfstæðisflokknum með 30 miljónum til þess að líðka fyrir sölu á Orkuveitu Reykjavíkur.

Spurningin vaknar um hvort FL-Group hafi einnig mútað Birni Inga og vinum hans? Allavega gekk Bingi óvenju hart fram í því að selja Orkuveitu Reykvíkinga til FL Group.

-En mistókst sem betur fer.

Björn Bjarnason um Samfylkinguna

Þetta skrifaði Björn Bjarnason fimmtudaginn 13.10.2005

„Því er enn dapurlegra að ekki aðeins formaður Samfylkingarinnar, heldur einnig sumir þingmenn hennar, eins og ömurlegt uppistand í þinginu síðastliðinn þriðjudag sýndi, virðast naumast líta lengur á Samfylkinguna sem flokk en fremur sem tiltölulega léttvægt dótturfélag auðhrings.

og ennfremur

Hið „ömurlega uppistand“, sem Davíð vísar þarna til, varð þegar Lúðvík Bergvinsson og Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmenn Samfylkingarinnar, hófu árásir á mig vegna þess, sem sagði hér í dagbókinni sl. mánudag. Framganga þeirra hafði þau áhrif á Davíð, að honum þótti þeir virðast líta á flokk sinn sem „tiltölulega léttvægt dótturfélag auðhrings“.

miðvikudagur, 8. apríl 2009

FL Group og Sjálfstæðisflokkurinn

Mér þykir ekkert merkilegt að útrásarfyrirtæki hafi dempt inn peningum inn í Sjálfstæðisflokkinn. Mér þykir merkilegt að enginn í Sjálfstæðisflokknum vissi að þessum gerningi. Ekki formaðurinn, ekki helstu lykilmenn og sennilega ekki framkvæmdastjórinn (næst ekki í hann)

Mér þykir einnig furðulegt að bregðast við þessari stöðu með því að benda á að Samfylkingin hafi ekki opnað bókhaldið sitt heldur!

Þetta er eins og maðurin sem er stoppaður er á bíl og afsakar sig með því að segja að nágranni sinn aki lika oft fullur!

-Þetta nær náttúrulega ekki neinni átt.

Mamma mín er frábær

Hún hefur verið að búa til bútsaumsteppi í gegnum tíðna. Teppin hennar mömmu hafa þróast í gegnum tíðina og nú eru þau strengd á striga eins og virka eins og málverk. -Bara saumuð.

Mamma hefur saumað nokkra helstu stjórnmálamenn þjóðarinnar á teppi. Hún hefur "tekið þá á teppið" eins og hún segir. Hérna eru nokkar myndir sem mamma mín gerði í fyrra.




Nú hef ég verið tekin á teppið og ég birti mynd af þeirri mynd innan skamms.
Mamma mín er æðisleg. Góð, blíð og full af sköpunarþrá. -Hún er engum lík.

Magnús Ármann og níuþúsund kúlurnar.

Mikið hefur verið pælt í því hvernig í andskotanum stóð á því að Magnús Ármann hafi fengið 9000 miljónir að láni frá Landsbankanum 4 dögum fyrir hrunið. Sumir segja að hann hafi verið notaður sem leppur fyrir aðra til að kaupa (vitandi að bankinn myndi hrynja) og tekið skellinn en þegir prósentur af þessum níuþúsund miljónum.

Liklegra er þó að Magnús Ármann hafi einfaldlega fengið þetta lán frá Landsbankaum. Auðvelt er að skera út um þetta. Það hlýtur að vera til kvittun í bankanum um þessi viðskipti.

Það sætir algerum undrum að sérstakur ríkissaksóknari hafi ekki beiði um þessa kvittun. Þetta mál er hund einfalt og ætti að útskýrast strax.

Risastyrkur FL-Group til Sjálfstæðisflokksins

Risastyrkur FL Group ætti ekki að koma neinum á óvart og ugglaust eru þeir mikið fleiri risastyrkirnir.

Það sem mig langar að vita er hvort Inga Jóna Þórðardóttir var í stjórn FL-Group þegar þessi styrkur var ákveðin. Ef þannig liggur í spilunum ætti að kæra þennan gjörning til lögreglunnar.

þriðjudagur, 7. apríl 2009

Fyrsta flottasta lagið sem ég heyrði.

Ég man það eins og það hefði gerst í gær þegar ég heyrði fyrsta flottasta lagið mitt. það var árið 1979 að ég heyrði tónana úr lagi KISS, I Was Made For Loving You.

Næsta flottasta lagið var To Cut a Long Story Short með Spandau Ballet. Svo man ég ekki meir fyrr en þegar Prince gaf út Purple Rain. Lagið The Beautyful Ones náði mér algerlega. Síðan koma þau svona eitt og eitt. Ég man eftir For An Angel með Paul Von Dyk, Moss með GusGus. En þau eru fleiri. -Miklu fleiri. :)

Ég er alveg hættur að hlusta á þetta meinstrím rusl. Ég hlusta bara á eldgamalt Discó (Takk Legó) og House, Elecrohouse, Progressive house eða hvað þetta nú allt heitir. Furðulegt hvað gömul housetónlist eldist vel.

-Alveg mesta furða

Ísland 30.000. Noregur 2850

að ef það finnst olía á Drekanum, (10milljarðar tunna eins og áætlað er) þá verður Ísland 3. stærsta olíuríki heims, á eftir Qatar og Sameinuðu Furstudæmunum en
Ísland væri þá með 30.000 tunnur á íbúa (barrels/head) en þess má geta að Norðmenn eru bara með 2850 tunnur á íbúa, svo að menn skilji þessa stærð.

Þetta eru rosalegar tölur og furðulegt að Össur Skarphéðinsson sem er þekktur fyrir allskonar loftkastalasmíðar (laxeldi, orkusala og nú olía) er ekki einu sinni búinn að fara til Noregs og hitta öll helstu fyrirtækin í Olíuvinnslu í Norðursjó, vísindamenn osfr.

Samvinna við Noreg í þessu stóra máli er lykilatriði til að vel takist til um framhaldið því Norðmenn eru skynsamir, varkárir og þekkja vel til olíuvinnslu á sjó. Ljóst er hvað Sjálfstæðsismenn vilja. -Þeir vilja selja olíulindirnar hæstbjóðanda.