EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

þriðjudagur, 30. júní 2009

Áhrif "King of Pop" á Framsóknarmenn

Ég sá að uppáhaldslag Björns Inga Hrafnsonar er "Ben".

-Fyndið.

Ég var alveg viss um að hann héldi meira upp á "Smooth Criminal".

Flokkar: ,

mánudagur, 29. júní 2009

Bullið er búið.

Það var frétt í útvarpinu fyrir rúmri viku sem vakti athygli mína. Frétt þess efnis að ríkisstjórnin sé að skera massíft niður á sviðum sem áður voru einskonar heilagar kýr ríkis-yfirstéttarinnar. Þarna er ég að tala um sértakar greiðslur fyrir nefndarsetur ofan á mánaðarkaupið osfr. Draga á úr ferðakostnað ríkisins um 30%

Það sem mér þykir mest um eru fréttir um að handhafar forsetavalds (forsetisráðherra, forseti hæstaréttar og forseti Alþingis) fá ekki lengur laun (ofan á mánaðarlaunin sín) fyrir það að vera til þegar Ólafur Ragnar fer til útlanda. Sparnaður ríkisins fyrir þessa einföldu aðgerð mun nema 2.5 til 3 miljónum á ári.

Þó að þessi sparnaður sé ekkert sérlega mikill í krónum talið þá má samt ráða einhvern atvinnualausan í eitthvað verðmætaskapandi fyrir þennan pening. Fyrst og fremst er þessi spanaður táknrænn. Jóhanna er beinlínis að segja við ríkiselítuna: -Bullið er búið.

Það er gott og löngu tímabært.

Flokkar:

Lokað á athugasemd frá mér.

Guðmundur Gunnarsson birti ekki athugasemd sem ég skrifaði við færsluna "Íslenska efnahagsundrið -Skyldulesning?". Guðmundi hefur sennilega fundist athugasemdir mínar óþægilegar eða eitthvað.

Ástæðan fyrir að ég skrifaði þessa athugasemd sem Guðmundur neitar að birta, er efni téðarar bloggfærslu Guðmundar en þar þreytir Guðmundur af kappi hina séríslensku líst að ráðast með rætni og hálfkveðnum vísum á Jón F. Thoroddsen höfund nýútkominnar bókar sem heitir "Íslenska efnahagsundrið".

Eitthvað virðist Guðmundi Gunnarssyni verklalýðsbossa, mislíka efni bókarninnar eins og lesa má um í bloggfærlsu hans.

Mér mislíkar hinsvegar þessi bloggfærsla Guðmundar. Mér er skítsama hvaða skoðanir Guðmundur hefur á hinu og þessu en það er regla meðal siðaðara að rökstyðja mál sitt. Guðmundur Gunnarsson verkalýðsbossi, segir um Jón F. Thoroddsen

T.d. er ljóst að hann [Jón F. Thoroddsen]hefur ekki mikla þekkingu á uppbyggingu og hlutverki lífeyrissjóða, það kemur glögglega fram í bókinni og eins í ummælum hans í fjölmiðlum og ég velti því óneitanlega hvort það eigi við um aðra hluti.

Guðmundur nefnir engin dæmi til þess að styðja ávirðingar sínar. Ekki eitt einasta dæmi. Eitt og sér væri svona lagað ekki tilefni til að pirrast yfir. Fullt af fólki skilur ekki tilgang raka eða gagnsemi þeirra. Slengir bara einhverju bulli út í loftir bara, voðalega ánægt með að hafa "látið helvítið heyra það", og bíður eftir klappi á bakið frá öðrum misvitrum. - Þetta rakaleysi Guðmundar er ekki ástæða þessarar færslu á Eimreiðinni heldur það sem eftir kom.

Guðmundur reynir svo að gera lítið úr persónunni Jóni F. Thoroddsen.

Jón kynnir sig eðli málsins samkvæmt sem fyrrverandi verðbréfamiðlara Byr þó hann hafi lengi vel unnið fyrir NordVest verðbréf, fyrirtæki sem varð nánast gjaldþrota. FME framkvæmdi athugun á starfsháttum NordVest í febrúar 2007 og gerðar voru alvarlegar athugasemdir við fjölmörg atriði á þeim tíma.

Guðmundur tengir Jón F. Thoroddsen við fyrirækið NordVest verðbréf með því að hann hafi, samkvæmt Guðmundi, unnið "lengi vel" fyrir þetta voðalega fyrirtæki. Nú skyndilega rökstyður Guðmundur mál sitt og nefnir dæmi úr skýrlsu FME um NordVest. Svona trikk er kallað í rökfræðinni "sök vegna tengsla" og segir ekkert um persónuna Jón F. Thoroddsen. Ég veit ekkert hvenær Jón vann hjá þessu fyriræki, eða hvort hann vann þar yfir höfuð, hvort hann hafi verið sendill eða forstjóri. -Ekkert! Áþekkt dæmi væri að gera lítið úr einhverjum vegna þess að afi viðkomandi hafi verið kommúnisti.

Guðmundur veit vel að þótt einhver vinni hjá einhverju skítafyrirtæki, þýðir það ekki að viðkomandi sé skíthæll.

Guðmundur segir ennfremur:

Er ekki þarna maður sem reyndi árangurslaust hvað hann gat til að komast inn í bankana þegar vel gekk

Dylgjar s.s að Jón F. Thoroddsen sé svo ómerkilegur pappír og lélegur verðbréfamiðlari að hann hafi ekki einusinni unnið hjá bönkunum heldur bara hjá skítafyrirtæki sem ekkert gat. -Hafið þið ágætu lesendur nokkurntíman séð önnur eins skrif?

Hví heldur Guðmundur þessu fram? Hví leggst hann svo lágt? Nú ætla ég að bregða mér um stund í skíta-stígvélin hans Guðmundar verkalýðsbossa og spyrja einnar spurningar.
-Hvað er það í bók Jóns F. Thoroddsen sem vekur upp þessi harkalegu viðbrögð verkalýðsbossans? -Hvað er svona viðkvæmt? Heilbrigð skynsemi segir mér að eitthvað í bókinni "Íslenska efnahagsundrið" hafi komið verulega við kauninn á Guðmundi verkalýðsbossa. En hvað skyldi það nú vera?

Ég læt lesendum Eimreiðarinnar eftir þá spurningu og læt að lokum fylgja afrit af athugasemdinni forboðnu sem Guðmundur Gunnarsson verkalýðsbossi telur svo skaðlega að hann neitar að birta á blogginu sínu.

Þú ert ótrúlegur. -Alveg ótrúlegur.

Rökstyddu frekar ávirðingar þínar um Jón F. Thoroddsen frekar en að þvæla um "óskhyggjuna" og delerí í kringum "íslenskan veruleika".

Rökstyddu ávirðingar þínar um bók Jóns F. Thoroddsen. Þetta hérna sem þú skrifaðir:

  • .."En þar er farið á yfirborðskenndan hátt yfir ákveðna þætti og mikið um ásláttarvillur og málvillur sem segir manni að ekki hefur verið vandað til verka við útgáfuna. Það ásamt staðreyndarvillum draga úr trúverðugleika bókarinnar".

.....Er ekki rökstuðingur. Þú dregur þá hæpnu álykturn að vegna þess að það eru innsláttarvillur og málvillur (sem þú þó hvergi tekur dæmi af) þá hljóti bókin að vera hæpin efnislega!!!

Gangið þér heill til skógar Guðmundur?

-Er þetta retóríkin sem ástunduð er í verkalýðshreyfingunni? Það myndi reyndar skýra margt.

Rökstuddu ávirðingar þínar! Komdu með dæmi! Annað er bara þvaður og skrum. Ég hvet þig eindregið að tala 15 mínútur af þínum tíma og gagnrýna bók Jóns F. Thoroddsen eins og maður en ekki eins og dylgju-lydda.

Dylgju-lydda segji ég. Hér kemur rökstuðningur fyrir þessar nafngift.

Þú segir bók Jóns vera lélega (nefnir enginn dæmi) Segir hann ekki hafa vit á lífeyrissjóðum (nefnig enginn dæmi) Því næst dylgjar þú um að hann hafi hvergi fengið vinni sem verðbréfasali nema hjá glæpakompaníi og nefnir dæmi um hve kompaníið sé slæmt!

Rökvillurnar sem þú beitir eru tvær. Ad hominem og það sem hefur verið kallað "sök vegna tengsla". Frekar ómerkilegt alltsaman

Svo notar þú einhverskonar kumpánlega kurteisis kveðju til þess að draga fjöður yfir dónaskap þinn í garð Jóns F. Thoroddsen.

Eins og ég sagði: Ef þú hefur sómatilfinningu til að bera á ættir þú að skammast þín fyrir þessi rætnu skrif. Ég hvet þig til að eyða þessari færslu þinni og byrja á annari og hafa hana sómasamlega en ekki rætna og fulla af dylgjum.


-Fyrir samsærisþyrsta er mér ljúft og skylt að fullyrða að ég þekki Jón F. Thoroddsen ekki rassgat.

Flokkar:

sunnudagur, 28. júní 2009

Fysta prófið.

Ég þoli ekki þjóðfélagsumræðuna nú um stundir. Aðstæður eru allar harkalegar, mikið rifist um IceSave og aðrar hörmungar. Ég held að nú fyrst séu afleiðingar Davíðshrunsins að koma fram.

Við höfum bara hlustða á upptaktin af þessari hörmungarsinfóníu hingað til.

Kunnugleg staða er komin upp. Kratar og VG eru byrjaði að rífast innbyrðis. Talað er um að slíta þessu stjórnarsamstarfi og Brennuvargarnir í Framsókn og Sjálfstæðisflokki eygja nú von um að komast að kjötkötlunum með skelfilegum afleiðingum fyrir íslenska þjóð. Þessi þrá Hrunsflokkana (fyrir utan Samfylkingu) um að komast að slökkvistarfinu er mér ráðgáta og gersamlega óhugsandi.

Þetta væri álíka og að nasistaflokkur Þýskalands kæmist til valda í fyrstu kosningunum eftir aðra heimsstyrjöld þar í landi.

Við meigum ekki gleyma hverjir "eiga" hrunið. Sjálfstæðisflokkurinn 75%, Framsókn 20% og Samfylking 5%. Nú treysta hrunsflokkarnir á alþekkta gleymsku íslenskra kjósenda og telja sig "vera með þetta". -Það má ekki gerast.

Ef að VG og Samfylking klúðra þessu stjórnarsamstarfi þá verður einfaldlega ekki líft á Íslandi. Ef að brennuvörgum Íslands verða afhentir lyklarnir af samfélginu, rétt einn ganginn mun verða fólksflótti sem verður engum líkur. Þeir einu sem verða eftir verða meðlimir Engeyjarættarinnar og nokkrir framsóknardindlar.

Nú reynir á ríkisstjórnarflokkana. Nú er fyrsta prófið. Það yrði skammarlegt að falla á því. Skammarlegt.

Flokkar:

laugardagur, 27. júní 2009

Uppáhaldslagið mitt með MJ. - - P.Y.T

Pretty Young Tning af Thriller.

Flokkar:

Uppáhaldslagi

Flokkar:

fimmtudagur, 25. júní 2009

Ísbjörg = IceSave

Bílddælingurinn Bjarni Þór Sigurðsson gefur út geisladiskinn Ánþínlegt á morgun, 26. júní

Þetta er fyrsti einherjadiskur Bjarna Þórs en áður hefur hann gefið út diska með hljómsveitunum Græni bíllinn hans Garðars og XD3 auk þess að flytja lög á safndiskum.

Ánþínlegt inniheldur 9 lög, flest eru eftir Bjarna Þór en auk þess koma nokkrir félagar hans að lagasmíðum og textagerð. Upptökur hafa farið fram að undanförnu í Stúdíó Stöðin og Default Studios, auk þess sem heimahljóðver Bjarna Þórs hefur verið nýtt í verkið.

Auk Bjarna Þórs koma fram á disknum fjölmargir hljóðfæraleikarar þar á meðal Matthías Ágústsson bassaleikari og félagi Bjarna Þórs úr Græna bílnum hans Garðars, Jósef Gíslason píanóleikari og Gunnar Reynir Þorsteinsson trommari.

Bjarni Þór frumflytur lög af disknum á Bíldudals grænum.... Um næstu helgi og verður diskurinn þar til sölu á hóflegu verði.

Eimreiðin mæli sterkega með þessu framtaki og hvetur fólk til að gefa þessu framtaki gaum.
Fyrsta lagið af disknum er komið í spilun, það heitir Ísbjörg og má nálgast hér.

Texti lagsins er ferlega sniðugur og ætti að vera skyldulesning hverjum Íslendingi með menningalegan metnað.

Flokkar:

þriðjudagur, 23. júní 2009

Óréttlæti ríkiskirkjufyrirkomulagsins.

Nú er svo komið að þeir sem eru skráðir utan trúfélaga greiða "sóknargjald" til ríksisins. Alls eru þetta um 13.ooo krónur á ári þannig að um munar. Áður fyrr runnu þessir peningar þeirra sem kjósa að standa utan við trúfélög, til Háskóla Íslands en það er úr sögunni núna. Nú rennur "sóknargjald" þeirra sem vilja ekki tilheyra neinu trúfélag beint í ríkissjóð.

Skattur á trúlausa gæti einhver sagt.

Trúlausir hafa oft bent á óréttlætið sem felst í þessu sóknargjaldakerfi og ítrekað að trúfélögin ættu bara að rukka sín félagsgjöld án aðkomu ríkisins.

Flokkar:

Fiskur í tjörn

Í viðtali á ABC fréttastöðinni sagði Geir Haarde að lærdómurinn af hruninu væri að betra væri "að vera stór fiskur í lítilli tjörn en lítill fiskur í stórri tjörn".

-Einmitt.

Þetta "sniðuga" svar Geirs afhjúpar algerlega viðhorf arkítekta hrunsins því það sem Geir er í raun og veru að segja er að:

  • best sé að fá að leika lausum hala þar sem maður getur beygt reglurnar en að hætta sér þangað þar sem maður getur það ekki.

Þetta er lærdómurinn að mati Geirs Haarde? Takið eftir að hann er ekki að tala fyrir hönd íslensku þjóðarinnar í þessu tilfelli, enda passar líkingin engan vegin við þá skýringu.

Hann er að tala um Davíðsklíkuna. Skilaboðin eru skýr.

  • Við ættlum bara að einbeita okkur að Íslandi í framtíðinni. Þar komumst við upp með allt.
Góðar fréttir fyrir Ísland eða hitt þó heldur.

Flokkar:

mánudagur, 22. júní 2009

Lýðskrum 101 kennt á Bifröst?

Dr. Herdís Þorgeirsdóttir ritar grein í Fréttablaðið. Þessi grein vakti töluverða athygli einhverra hluta vegna. Ég var ekki hrifinn af þessar grein dr. Herdísar og aðallega vegna þeirrar skammlausu þjóðrembu sem í henni birtist. Efnilega er greinin rýr og auðsvaranleg. Dæmi um þjóðrembuna er að finna í fyrstu greinaskilum.

  • Fámenn þjóð á hjara veraldar stendur ein andspænis voldugum nágrannaríkjum, þjóðum sem hún til langs tíma hefur álitið vinaþjóðir. Þessari þjóð sem háð hefur harða lífsbaráttu á mörkum hins byggilega heims í meira en þúsund ár er gert að kokgleypa samning um óviðráðan­legar skuldir sem kunna að gera út af við efnahagslegt sjálfstæði hennar og skerða grundvallarréttindi þeirra sem áttu engan þátt í að stofna til þeirra. Skuldir sem urðu til í útrás fjármálafyrirtækja, sem uxu ríkinu yfir höfuð þegar þau tóku þátt í darraðardansi óheftrar markaðshyggju.

Frekar dramatísk lýsing hjá doktornum. "Hörð lífsbarátta á mörkum hins byggilega heims", "Þúsund ár", "gert að kokgleypa" osfr. Ég fæ alltaf bjánahroll þegar ég les svona texta frá fullorðnu fólki.

Ein af aðalástæðunum fyir hruninu er einmitt þessi hugsunarháttur. Þetta er nákvæmlega það sem Óláfur Ragnar jarmaði svo oft um (en þykist ekki kannst við í dag) um að íslenska þjóðin væri svo sérstök frá náttúrunnar hendi að hún ætti ekki sinn líka í víðri veröld. Svo langt gekk þessi heilaþvottur að blaðmenn og virðulegir kennarar (eins og Herdís er hvorutveggja) gengu um götur, hristandi höfðuðið brosandi yfir spurningunni einu: -Hversvegna erum við svona frábær? Allskonar fólk, hámenntað í allskonar fræðum klóraði sér brosandi í hausnum yfir spurningunni einu. Hálffasísk hugmyndakerfi um ofurmennsku Íslendinga var hampað af forsetanum og toppfólki í viðskiptalífinu. Þetta var svona "Happy þjóðremba". Í dag sjáum við hinsvegar ljótu hliðina en þá þarf að búa til óvini. Doktor Herdísi tekst bara dável til í þeirri viðleitni sinni. Sumt í grein Herdísar er svo sérkennilegt að ég hef lesið það yfir nokkrum sinnum án þess þó að fá botn í málið annað er bara þvæla.

  • .....[og] minna má Hollendinga á óráðsíu og sífelld gjaldþrot Rembrandts. Sem betur fer voru skuldunautarnir ekki utanlands því þá hefðu meistaraverkin verið flutt úr landi.

Ha? Bíddu.... Íslenskt fyrirtæki opnar netreikninga í Hollandi. 100.000 manns glepjast og bíta á agnið. 4 mánuðum síðar læsast þessir reikningar fastir eins og hendi væri veifað. Hollendingar eru brjálaðir. Ætlar doktorinn að þvaðra eitthvað um að Rembrant frá Rín hafi alltaf verið með allt á hælunum peningalega! Að meistarverkin hafi ella "endað í útlöndum" Hvað í andskotanum á doktorinn við? Hvað er svona slæmt við útlönd? Stundum er bara best að sleppa einhverjum viskumolum í greinaskrifum sér í lagi þegar þeir tengjast ekki efni greinarinnar á neinn hátt.

Hollendingar eru brjálaðir og það með réttu. Bretar líka. Þetta var svívirða af Landsbankanum að opna þessa svikareikninga (sér í lagi þá Hollensku því þá þegar var ljóst að Landsbankinn væri farinn á hausinn)

Herdís vill fara "dómstólaleiðina" í stað þess að semja beint við Hollendinga og Breta. Eins og Mörður Árnason hefur bent á þá væri það alveg fínt ef að neyðarlögin íslensku hefðu ekki beinlínis gengið út á að mismuna innistæðuhöfum eftir þjóðerni! Og þarna erum við aftur komin að þjóðrembunni. Hún er að reynast okkur æði dýr þjóðremban. Ætlar doktorinn að mæta fyrir alþjóðadómstól með þessi ömurlegu neyðarlög og fá ásættanlega niðurstöðu. Neyðarlögin eru svo skelfileg að undrum sætir. Þau eru svo á pari við hugsunina hvað við séum frábær að sparnaður Íslendinga er álitin merkilegri en sparnaður Hollendinga og Breta! -Er þetta nógu skýrt? Þarf virkilega að ræða þetta frekar? Ætlar Herdís með þetta keis fyrir alþjóðadómstól?

Það er svolítið póetískt við það að þessi neyðarlög sem áttu að redda öllu fyrir horn, gerðu okkur berskjölduð fyrir öllu. Aðallega vegna þess að í þeim fólst fáséð þjóðremba og mikilmennskuhugsun sem Evrópa hatar eins og pestina enda hafa íbúar Evrópu bitið ærlega úr nálinni þegar kemur að þjóðrembubelgingi.

Meir að segja Sjálfstæðismenn fatta að hæpið sé að fara "dómstólaleiðina" því eini lögfræðingurinn sem þeir fundu til að gagnrýna ICESAVE-drögin var enginn annar en Flösku Mangi. -Brennivíns Magnús. -Magnús Thoroddsen fyrrv. forseti hæstaréttar sem missti embættið vegna þess að hann misnotaði asnaleg lög um brennivínskaup forseta Íslands sér til hagsbóta. Alls um TVÖ ÞÚSUND flöskur af brennivíni.

Það sem er mest pirrandi við grein doktorsins er tónninn í henni. Efnislega er hún veik eins og áður sagði. Fjallar mestmegnis um áhyggjur doktorsins um að Evrópusambandið sé að svíka eitthvað grunnstef með meintu ofbeldi gegn Íslandi. Mesta þvælan en sú sem kannski kristallar mest hugsunarhátt þjóðrembunnar er að finna í þessum greinaskilum doktorsins

  • Hvar er evrópska samkenndin? Vilja þeir að ungir Íslendingar yfirgefi landið sitt þannig að því blæði? Vilja þeir hneppa næstu kynslóð í fjötra skulda? Vilja þeir draga niður lífskjör heillar þjóðar til framtíðar? Vilja þeir Gullfoss, Geysi og Þingvelli?

Vilja "þeir" (vondu) Gullfoss, Geysi og Þingvelli..... Einmitt það já. Ef hægt er að finna erkidæmi um lýðskrum þá er það hér. Nú skilst mér að doktor Herdís sé kennari á Bifröst í Borgarfirði og í tilefni uppbyggingunnar ætla ég að gefa doktornum alveg ókeypis nýsköpunar-ráð. Hún ætti að leggja drög að nýjum áfanga fyrir laganema Bifrastar. Lýðskrum 101 því ljóst er að skrumið stendur henni nærri. Lokasetningin í þessum lýðskrums og þjóðrembu sjeik slær svo botninn úr tunnunni.

  • Við [góðu] myndum aldrei gera kröfu um Shakespeare og Rembrandt. Á maður að trúa því að eftir 60 ár af evrópsku samstarfi þá standi aðeins ein evrópsk þjóð með íslensku þjóðinni - og hún er enn fámennari.
Eh... Myndum "við" gera kröfu um Shakespare eða Rembrant? Eru eitursveppir í Borgarfirðinum nú um stundir? Hvaða þvæla er þetta eiginlega? Ef ekki væri að hámenntaður doktor hefði stungið niður penna og ritað þessi orð þá héldi ég að svona lagað kæmist ekki einu sinni inn í rifrilldisstöðvarnar eða inn á malaefnin.com. Þetta er eins eins og setning upp úr unglingarifrildi.

En til að kvelja lesendur aðeins meira er gaman að skoða þetta nánar því að baki býr hugsunarháttur sem er tiltölulega algengur.

Undir hvaða kringumstæðum ættu Íslendingar að gera kröfu um Rembrant? Er það ef Hollendingar opnuðu á Íslandi svikareikninga og rændu miljörðum frá landsmönnum og að Hollendingar neituðu svo að borga krónu og að Íslendingar "kúguðu" Hollendinga til að borga (í samræmi við reglur sem allir hafa skrifað uppá), Þá ættu Íslendingingar kröfu á "Rembrant".

Ég hef skrifað mikið og misgáfulegt en þetta er það heimskulegasta sem ég hef skrifað á æfinni. Afsakið ég. ......-Gera kröfu á Rembrant.

Grein Herdísar er fyrirtak. Hún sýnir vel að ærlegasta fólk getur breyst í hálfbjána við það að þjóðremba og lýðskrum ná tökum á því. Ef ég væri kennari Herdísar myndi ég henda þessari grein aftur í hausinn á henni og krefjast nýrrar hið snarasta.

Þessi grein doktorsins er ósæmileg.

Flokkar:

Eimreiðin styður ICESAVE samningana.

Eftir töluverða yfirlegu hefur ritstjórn Eimreiðarinnar náð lendingu í erfiðasta máli Íslandssögunna. Það gekk á ýmsu og ritstjórn viðurkennir fúslega að hurðum var skellt og fúkyrðaflaumur streymdi frá báðum sjónarhornum líkt og daunillt jökulhlaup úr Vatnajökli mætti öðru ekki síður fúlla út Mýrdalsjökli. Fúlasti jökulárhryggur míns hrunda huga blasti við hvarvetna sem ég leit. Dimmur, sótugur, daunillur og brennisteinsmettaður. Sigurjón Rist hvergi sjáanlegur.

Ég náði lendingu, sem betur fer, því ástandi var orðið óbærilegt. Ég styð þessi samningsdrög um ICESAVE og vona að þau verði samþykkt á Alþingi. Mörður Árnason tæklar þetta mál af skynsemi og með einfaldri afleiðslu. það eru exit í þessum samningi sem hægt er að grípa til ef hlutirnir þróist á versta veg. Ég hvet fólk til að kynna sér þennan samning í þaula. það er hægt hér. Ég er sannfærður að ef að ríkisstjórnin hefði kynnt þetta mál fyrir almenningi en ekki pukrast með þetta eins og mannsmorð, væri ekki þessi klofningur "með eða á móti" í samfélaginu. Þetta er eitthvað það versta PR-fúsk sem ég hef orðið vitni af og hausar hljóta að fjúka í ráðuneytunum ef að eitthvað er í þau spunnið.

Það eru mikilvæg atriði sem hjálpuðu mér að ná lendingu í þessu ömurlega máli.
  • Íslendingar skrifuðu sannarlega undir EES samninga sem kveða á um lágmarks-tryggingu á bankareikningum (20.000 evrur) ef að banki færri á hausinn. Þetta er óumdeilt. Allar vangaveltur um annað eru í mótsögn við lögfræðiálit allra ríkja Evrópu -Og Noregs!
  • Ef að við segjum bara eins og margur vill, "Fokk jú fokking Júróp", þá er allt komið á flot. Allir samningar í lausu lofti, öll viðskipti, allt sem hugsast getur. -Við færum aftur á steinöld. Pínu heillandi sem eitthvað sósíalexperiment en við erum að tala um landið okkar, Ömmu okkar og afa. Mömmur og pabba. Jú og auðvitað börnin okkar margumtöluð.
  • Höfum hugfast að 300.000 manns áttu fé inn á ICESAVE reikningum þegar Landsbankinn féll. Í Hollandi voru þessir reikningar opnaðir með pompi og prakt en lokuðu 4 mánuðum seinna á -einni sekúndu. Hvað myndu Íslendingar segja ef að hollensk svikamylla færi svona að á Íslandi? Myndum við ekki trompast út í Hollensk stjórnvöld? Myndum við ekki fara á límingunum ef að hollensk stjórnvöld segðu að þetta komi hollenskum stjórnvöldum ekkert við (þrátt fyrir að hafa skrifað upp á reglur sem kveða á um hið gagnstæða). Hvernig getur fólk ekki sett sig í spor Hollendinga og Breta? Erum við svo andskoti merkileg að finna ekki til með öðrum?
  • Höfum einnig hugfast að við borgum "bara" lágmarkstrygginguna (20.000 evrur) en ekki alla summuna. Bretar og Hollendingar borga það sem vantar uppá. Risa-inneignaraðilar eins og líknarfélög og þ.h töpuðu öllum innistæðunum sínum. Þessar 20.000 evrur frá Íslandi eru sem dropi í hafið miðað við heildarskaða sumra reikningseigenda.
  • Auðvitað skulum við lika vona að eignir Landsbankans muni ná upp í þessa óhræsis-skuld og munum að ef allt þróast á versta veg, þá eru exit í þessum saminingi sem hægt er að grípa til. Fróður og sannspár peningamaður sem ég þekki (tapaði ekki krónu á hruninu og sá það fyrir með 6 mánaða fyrirvara) segir mér að eignir LB muni sennilega duga. Margt getur gerst á 7 árum og uppsveiflan er jú óhjákvæmileg hvenær sem hún svo streymir undir mígleka þjóðarskútuna.
  • Auðvitað er alltaf hægt að segja sem svo "við hefðum getað náð betri díl" en svona pælingum er alltaf hægt að slengja fram. Sumir (fyrrrverandi) bankamenn sem ég þekki hnusa í vandlætingartóni um að samninganefnd Íslands séu eintómir "pappakassar" en að mínu viti mun samninganefndin vera skipuð topp-fólki. Aðkoma Svavars Gestssonar gæti truflað einhvern en eftir að hann kom að borðinu munu hlutirnir hafa losnað úr hjólförunum og náð lendingu. Því ber að fagna með stuttum gleði-dansi. Hinir raunverulegu "pappakassar" eru þeir sem settu bankana á hausinn (á 4 árum...) og í hroka sínum og vandlætingu segja að engir aðrir en þeir, kunni samningatækni við útlendinga.
Hitt er verra að enginn vilji virðist vera fyrir hendi að draga ICESAVE bófana fyrir dómstóla og læsa þá síðan inn í fangelsi. Ég sé trauðla fyrir mér Sigurjón bankastjóra færðan í járnum yfir í Svörtu Maríu með landsbankaflísið yfir smjörgreiddum latíno-lokkunum. Ég sé hann bara fyrir mér svindla meira og meira. -Hann mun svindla þar til mig sundlar.

-......Og hann mun sleppa eins og allir hinir skúrkarnir.

Nú líður að atkvæðagreiðslu um þetta fúla, ömrulega mál og ég vona að þessir samningar verði samþykktir. Þeir eru að mér skilst, bara góðir fyrir okkur Íslendinga. Lýðskrumarar í Framsóknarflokki og Borgarahreyfingu fá skammarverðlaun Eimreiðarinnar fyir aðkomu sína að þessu máli því upphrópanir og heimsendaspár eru ekki það sem við þurfum akkúrat núna. Birgitta í batikmussunni er sennilega orðin háð mótmælum. Það er sorglegt. Vitið fer nefnilega oft út þegar hnefinn fer á loft. Hún ætti frekar að vinna vinnuna sína fremur en að vera alltaf að mótmæla hinu og þessu. Hvað varðar Framsóknar-Sigmund þá frétti ég af honum í herraverslun Andrésar þar sem hann var að máta kápu og tuðaði stöðugt fyrir munnis sér að "loftsteinn væri á leiðinni". - Gott að vita af því Sigmundur.

Hinir sönnu töffarar nú um stundir eu ekki tréskæddir leppalúðar í batikmussum, brælandi daunillt tóbak, heldur lúsiðnir skrifstofutillar. Fólk sem þarf ekki að athygli samborgara sinna heldur vinnur vinnuna sína af alúð og þrótti. -Fyrir Ísland

Já... Fyrir Ísland.

Flokkar:

sunnudagur, 21. júní 2009

Þegiðu Björn Bjarnason

Æji þegiðu Björn.

Vertu nú sómasamlegur og þegiðu.

Flokkar:

laugardagur, 20. júní 2009

Vandinn með ríkisstjórnina...

Ríkisstjórnin er ágæt. Mér sýnist hún vera að taka á erfiðustu málunum. Hrikalegum málum sem skilja óbragð eftir í munni allra ærlegra Íslendinga. Sama þvælan er samt alltaf að koma upp aftur og aftur.

-Upplýsingaskortur.

Einhverra hluta vegna taldi ríkisstjórnin (eða nennti hreinlega ekki) að skýra þjóðinni frá ICESAVE samningnum. Fréttamenn fóru á límingunum. Bloggið brann beinlínis yfir og andstæðingar ríkisstjórnarinnar (sem ábyrgir eru fyrir Hruninu) fylltust óstrjórnlegri gleði og gleymdu um stund því að þau brenndu íslenskt fjármálakerfi niður við rótina.

Eftir skuggalegar samsæriskenningar, afhjúpanir blaðamanna og raunverulegan ótta í brjóstum Íslendinga drullaðist loksins ríkisstjórinn til að gefa út yfirlýsingu þess efnis að samsæriskenningar um fullveldisafsal væru stórlega ýktar og birti um leið allann ICESAVE samninginn eins og hann leggur sig hérna.

Hví birtu stjórnvöld ekki þennann bansetta samning strax! Hversvegna að hræða fólkið með þögninni og gefa þjóðníðingum Framsóknar og Sjálfstæðis, færi á að belgja sig út með samsæriskenningum? Hversvegna var þessi andskotans samningur ekki opinberaður strax!

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem að gjá myndast milli stjórnarinnar og þjóðar. Þessu verður að linna! Við erum nefnilega líka með í "liðinu". Við þurfum m.a að borga fyrir fúskið. Hvað er svona hræðilegt við að ríkistjórn deili upplýsingum með umbjóðendum sínum?

-Hvað er það því? -Getur einhver sagt mér það?

Ég geri mér grein fyrir því að ógnarstjórn Davíðs Oddsonar taldi það merki um aumingjaskap að upplýsa þjóðina um minnstu smáatriði og stjórnaði landinu eins og glæpahyski, en núna eru nýjir tímar.

Stöðugt og réttlátt upplýsingaflæði er best til þess fallið að skapa traust milli ríkisstjórnar og þjóðar. Þegar fólk fær það á tilfinninguna að það sé að verið að pukrast með framtíðina þess, þá skapast kjörlendur fyrir tortryggni og samsæriskenningar. Lýðskrumarar á borði við formann Framsóknarflokksins nýta sér þannig ástand sér til framdráttar.

Nú veit ég að fjöldinn allur af fjölmiðlafulltrúum eru starfandi fyrir ríkisstjórnina en því miður virðast allir þessir ágætu fagmenn vera með hugann við naflakuskið á sjálfum sér frekar en að sinna vinnu sinni af kostgæfni. Þetta fólk ætti barasta að skammast sín. Ekki bara vegna þess að þau eru að klikka persónulega , heldur líka vegna þess að nú er sögulegt tækifæri á að gera eitthvað brillíant, faglega.

En vissulega er undrum líkast hvernig skuggar naflakusksins mynda ótrúlegustu munstur á sólsmurðum maga. -Skuggaspilið glepur.

Flokkar:

föstudagur, 19. júní 2009

Guðlaugur Þór er áhyggjufullur

Það var beinlínist sjúklegt að horfa á Guðlaug Þór Þórðarsson hafa áhyggjur af viðbrögðum ríkisstjórnarinnar. Guðlaugur Þór hefur áhyggjur af atvinnuleysi. Hann hefur líka áhyggjur af skattahækkunum og að skattkerfið sé "flækt mjög mikið".

Ég hef áhyggjur af Guðlaugi Þór.

Ég held að hann sé nefnilega með Alzheimer háu stigi. Hann er greininlega búin að gleyma því að flokkurinn hans, Sjálfstæðisflokkurinn á heiðurinn af því hvernig fór í íslenskum efnahagsmálum og að sama skapi heiðurinn af þeirri ömurlegu stöðu sem ríkistjórnin og þjóðin öll stendur frammi fyrir.

Ef að Guðlaugur Þór hefið snefil af sómatilfinningu myndi hann bara þegja og lata hina taka til. Hjálpa jafnvel til ef honum sýnist svo. En hann stendur eins og "hinir löskuðu", félagar sínir í SjálfstæðisFLokknum á hliðarlínunni og reynir að eyðileggja fyrir slökkvistarfinu. Sker á vatns-slöngurnar og hrópar vísvitnandi rangindi að örvringluðum slökkvuliðsmönnum.

Guðlaugur Þór kemur sífellt á óvart. -Hann má eiga það.

Flokkar:

Vandræði.

Ég er með forláta teflón-potta sem eru byrjaðir að morknast upp. Teflonið er byrjað að flagna af svo sést í bert álið. Veit einhver hvort eitthvað sé hægt að gera í þessu vandamáli? Þarf að helda þessu? Ert til einhverskonar teflon-lakk sem hægt er að bletta ofan í sárin.

Hvað á ég að gera?

Flokkar: ,

fimmtudagur, 18. júní 2009

Hrunið og ég.

Ég verð aldrei sami maður eftir efnahagshrunið. Ég man vel þessa daga þegar bankarnir féllu hver eftir öðrum og efnahagur og mannorð landsins míns fór niður á Nígeríustall. Ég var algerlega niðurbrotin.

Ég hef alltaf verið áhugamaður um að búa í almennilegu samfélagi og á tímabili hélt ég að það íslenska væri svona 90% gott. Að frekar lítið þurfti til að gera það almennilegt. Af þessum sökum var ég t.d virkur innan Vantrúar (og er enn) og skammaðist út í klíkuskapinn og flokksræðið í kringum pólitískar stöðuveitingum og vaxandi stéttaskiptingu í samfélaginu. Við hrunið þá hertist þessi afstaða mín til muna og ég er hræddur um að ég muni hafa þessa sannfæringu þar til ég drepst. -Svona eins og gömlu kommarnir íslensku. Það er svolítið sorglegt.

Ég reiður út í sjálfan mig að hafa ekki gert eitthvað meira, verið skýrari og ákveðnari í þessari sannfæringu minni fyrir hrunið. Sannleikurinn er nefnilega sá að við hleyptum skítapakkinu alltof langt. Það fékk að ráða alltof miklu. Svo langt gekk þetta að orð eins og sósíalismi var skammaryrði sem fólk þorði ekki að taka sér í munn. Búandi í sósíalísku ríki þá fullyrði ég að ekkert fyrirkomulag er betra en evrópu-sósíalismi og sú heilbrigða togstreyta milli vinstri og hægri sem hér ríkir. Það er nefnilega einhverskonar óskrifaður sáttmáli í gildi, ólíkt því sem var á Íslandi fyrir hrunið.

Við hleyptum þeim alltof langt og afleiðingarnar eru hörmulegar. Ég hef rætt við marga hægri menn um ástæður hrunsins og furðulegt nokk þá eru útskýringarnar þeirra á hruninu að ekki var nógu mikil frjálshyggja í gangi. Nú held ég að svör á þessa lund séu einhverskonar sálfræðiviðbragð fremur en kaldhömruðu skynsemi og læt þær í léttu rúmi liggja. Hitt er annað og verra að þetta sama fólk virðist hafa miklar og góðar skoðanir á því hvernig skuli tekið til eftir partíið sem þau héldu. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur sem hafa stjórnað landinu meira og minna frá lýðveldisstofnun, titra nú og nötra yfir því hvenig uppbyggingunni skuli háttað. Og til að bíta höfðuði af skömminni hafa þessir flokkar stundum staðið í vegi fyrir nauðsynlegum björgunaraðgerðum.

Ég treysti ekki Sjálfstæðisflokknum. Ekki boffs. Ég held að hann sé úlfur í sauðargæru. Flokkur sem þykist vera í stjórnmálum en er í rauninni hagsmunasamtök þeirra ríku og spilltu. Ágætis dæmi um það er að koma í ljós núna þegar formaður flokksins, Bjarni Benediktson neitar að gefa upp tegnsl sín við fyrirtæki í landinu. Ég veit alveg hvaða retórík hann beitir í þeirri vörn sinni. "Þetta kemur ykkur ekki við, ég er líka einstaklingur og þjóðinni kemur ekkert við hvað ég á og hvað ég ekki á". -Klassískt yfirklór og óheiðarlegt. Þingmenn flokksins eru meira og minna laskaðir af óeðlilegum hagsmunatengslum við stórfyrirtæki. Flokkurrinn sjálfur þáði risamútur og varaformaðurinn skuldar þrotabúi Kaupþings 1500 miljónir (sem aldrei munu greiðast vegna ófullkominna laga sem Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur kom á)

Star Wars útgáfan er þessi. Ég lít á Sjálfstæðisflokkinn sem riddarra Sith reglunnar en ekki sem stjórnmálasamtök í hefðbundum skilningi.

Samfylkingin hefur valdið mér ómældum vonbrigðum. Ég skrifaði nokkrum Samfylkingarþingmönnum bréf þar sem ég sagðist vera orði þreyttur á því að vera þreyttur á Samfylkingunni. Ég kaus hana ekki í síðustu kosningum. Samfylkingin er nefnilega líka löskuð eftir Davíðstímann. Hún er eiginlega stofnuð til þess að vera "hinn" Sjálfstæðisflokkurinn og Ingibjörg Sólrún átti að vera "Davíðinn" í Samfylkginunni. -Sterki leiðtoginn. Ingibjörg reyndist illa og brást á ögurstundu. Gísli Marteinn Baldursson (maður sem ég er eiginlega aldrei sammála) hefur bent á þessa eftirhermustæla Samfylkingar og með réttu. Samfylkingin er ónýtur vetvangur fyrir vinstri menn á Íslandi. það þarf að breyta öllum strúktúr flokksins og innviðum eigi ég að kjósa hann í framtíðinni. Það sem fer mest í taugarnar á mér varðandi Samfylkinguna eru pólitískar mannaráðningar og hrókeringar sem gefa Framsókn og Sjálfstæðisflokki ekkert eftir. Flokksskírteini er alltaf meira metið en prófskírteini þegar kemur að mannaráðningum. Ömurleg staðreynd en á pari við eftirhermuáráttu Samfylkingarinnar við Sjálfstæðiflokkinn.

Ég held að eftirköst hrunsins verði úr sögunni eftir 10 - 20 ár. þá er þetta búið en ég held líka að leiðin þangað verið vörðuð tilviljana og -fálmkenndum aðgerðum sem virka stundum og stundum ekki. Ég held að stjórnmálalífið muni loga stafnanna á milli á þessum tíma harðar deilur skekja land og þjóð. Samstöðu, sem er svo nauðsynlega á erfiðum tímum, mun skorta.

Samstöðu um alltaf skorta meðan óréttlæti ríkir.

Óréttlæti sem kveðið er á um í stjórnarskrá, óréttlæti sem fólgið er í því að ofurríkir borga ekki skatta eins og aðrir, óréttlæti sem felst í því að auðlyndir landsins eru "eign" um 60 fjölskyldna og óréttlæti sem fólgið er í því að flokkskírteini eða ætterni er meira metið en prófskírteini í opinberum mannaráðningum.

Ég ber þó, þrátt fyrir allt, von í brjósti að allt muni fara vel. Að órétturinn verið leiðréttur og að á Íslandi muni ríkja almennilegt samfélag. Reyndar gerðist nokkuð óvænt í sálu minni þegar upp komst um svindl og svívirðu Sigurjóns bankastjóra, þá fékk ég eins og vindhviðu í gegnum mig og eftir glundi í hausnum setningin: "Þetta gengur ekki upp. Ísland mun aldrei ná sér. Ísland mun alltaf verða spillt og óréttlátt". En sem betur fer þá þrjóskaðist ég upp við þennan mótbyr sálarinnar og er staðráðinn í því að taka til hendinni. Mennta mig og berjast fyrir almennilegu samfélagi. Bæta það og láta gott af mér leiða fyrir landið sem ég ann svo heitt.

Flokkar:

17, júní í Gautaborg.

Fjölskyldan fór á 17. júní hátið í gær og hittum hóp annara Íslendinga. Veður var gott og það var meir að segja hátíðarstemning. Það fannst mér amk. Mæting mun hafa verið betri en oft áður og ég held að vandræði Íslands hafi þar eitthvað að segja. Íslendingum rennur blóðið til skyldunnar sýnir samstöðu bara með því móti að hitta hvorn annan. Svo voru sungin ættjarðarlög. Það var svolítð sérstakt því á tímum sjálfstæðisbaráttunnar voru ættjarðarsöngvar einskonar útrás tilfininganna undan óréttlátu nýlenduoki.

Ég virti fyrir mér þetta fólk. Þessa landa mína. Allskonar fólk í allskonar störfum. Sumir voru nýkomnir námsmenn, aðrir höfðu búið í Svíþjóð í áratugi. Þetta fólk var þægilegt. Gott fólk. Engir hrokagikkir, engir sjálfspotarar. Bara venjulegt fólk.

Mikið betra fólk en ég.

Flokkar:

miðvikudagur, 17. júní 2009

Unglingabíó í gær.

Við hjónin skelltum okkur á unglingabíó í gærkveldi. Við sáum mynd sem heitir "Drag me to hell" og er í leikstjórn eins af mínum uppáhalds leikstjórum, Sam Raimi. Myndin er alveg frábær. Fyrsta flokks hryllings-tryllingur. Ingunn var eiginlega í fósturstellingu allan tímann svo aðeins glytti í titrandi auga milli hnés og hvít-knýttra hnúa. Stöku sinnum sást þó titrandi hönd ná sér í popp sem hvarf inn til "fóstursins" sem fylgt var eftir með slurpandi soghljóði frá hálftómu kókglasi.

Mér hvell-brá nokkrum sinnum og ygldi mig í hvívetna þegar ógeðið ætlaði engann enda að taka.

Ég er viss um að þessi mynd Raimis er einhverskonar óður til Evil Dead myndanna sem komu honum svo rækilega á kortið í Hollywood. Það er margt líkt með þessum myndum og handbragð Raimis sést vel en fáir standa honum á sporði í því að byggja upp óbærilega spennu nema þá hugslanlega Night M. Shalamalamalamann.

Drag me to hell fær rífandi dóma á Rottentomatoes og það er verðskuldað. Þessi mynd er á pari við Scream sem batt einskonar slaufu á Slasher-myndirnar. Þessi mynd Raimis bindur slaufu á hryllingsmyndirnar.

Mæli með henni, en ekki fyrir kveifar.

Flokkar:

Sigurjón Árnason er gangster.

Sigurjón Árnason bankastjóri er alveg ótrúlegur. Hann í raun persónugerir þá þvælu sem leiddi þjóðina í þær ógöngur sem hún er í.

  • Í fyrsta lagi er hann heilinn bakvið hina toxísku ICESAVE reikninga. Opnaði m.a þessa ráns-reikininga í Hollandi eftir að ljóst var að bankinn var farinn á hausinn.
  • Í öðru lagi lét hann lána sér 70 miljóna kúlulán frá vafasömum "lífeyrissjóði" sem er í raun ekkert annað en svikamilla fyrir þá ríku til þess að komast hjá því að greiða skatt til samfélagsins.
  • Í þriðja lagi lét hann mágkonu sína leppa fyrir sig bílakaup sem eftir nokkra snúninga endaði eigu Sigurjóns. En strangt var tiltekið að stjórnendur bankanna mættu ekki kaupa bílana sem þeir fengu þegar þeir voru í vinnu hjá bönkunum.

Hvað var þessi maður að gera sem bankastjóri! Augljóst er að Sigurjón kann afar vel við sig á gráa svæðinu og gengur út frá því að það sem er ekki beinlínis bannað með lögum er siðferðislega réttæltanlegt.

-Er þetta efniviður í góðan bankamann mér er spurn? Er ekki atriði eins og traust og heiðarleiki ofarlega á lista yfir eiginleika góðra bankamanna?

-Sigurjón er hreinræktaður gangster

Flokkar:

Sendinefnd Íslands vegna ICESAVE

Fín grein í Forbes um ICESAVE málið. Þar segir m.a

The word in Iceland is that when the inexperienced Icelandic officials with little training in sovereign negotiations sat down with their counterparts from former imperial nations, threats soon began to fly--such as the cancellation of IMF assistance to Iceland and also of the of the EEA agreement, not to mention political isolation.

Þetta er á pari við það sem kunningi minn segir sem var háttsettur innan bankakerfisins. Hann sagði að sendinefnd Íslands vegna þessa máls hafi verið "pappakassar" og "flautusleikjóar".

-Sennilega nokkuð til í því.

Ég vona að Alþingi felli þennan saming, ekki bara vegna þess að þingmenn fá ekki að sjá hann(!), heldur líka vegna þess að samningalið Íslands var skipað pappakössum. Nú þarf að senda harðsnúið lið og skilja flokksdindlana eftir heima þar sem þeir geta sogið á sleikipinnunum sínum.

Nú þarf að láta hendur standa fram úr ermum og byrja að moka.

Flokkar:

þriðjudagur, 16. júní 2009

Kostuleg ljósmynd


Nú skil ég Hitlers-áráttu Jóns Gnarrs. Hitler sem efniviður í súrreal bröndurum er alveg kostulegur.

Flokkar:

Flókið plott - Einfalt markmið.

"Einkalífeyrissjóður" Sigurjóns bankastjóra er villandi hugtak samið af spunameisturum.

Ef rakin eru tengsl þessa meinta "einkalífeyrirssjóðs" Sigurjóns kemur nokkuð fróðlegt í ljós. Einkalífeyrirssjóður Sigurjóns er geymdur í einhverju sem heitir Fjárvörlsureikningur III, hann er síðan geymdur í sjóði sem er heitir Fortuna III, hann er síðan geymdur á Guernsey (alræmt skattaskjól) Lára Hanna er með gott yfirlit um þetta svindl. Ég hvet lesendur til að kynna sér færslu Láru

Ljóst er að Þessi Fjárvörslureikningur er notaður af ofurríkum til þess að skjóta fé undan skatti í formi dulbúinna lífeyrirsjóðs(kúlu)lána

Flókið í praxis en ofureinfalt í raun.

Annarlegir kaupaukar Kaupþings..

Í flestum stórum bönkum hafa lykilstarfsmenn s.k "Stock option" en það veitir þeim rétt til að kaupa bréf (í félaginu sem það vinnur hjá)á einhverju tímabili t.d til næstu 5 ára) á föstu umsömdu gengi.

Kaupþing fór aðra leið.

Þeir lánuðu starfsfólki sínu peninga til að kaupa hlutabréf á markaði með veði í bréfunum sjálfum. Sigurðu Einarsson og Hreiðar Már töldu að með þessu móti slegið nokkrar flugur í sama högginu. Manipúlerað markaðinn með því að sýna stöðuga röð stórra kaupenda af bréfum í Kaupþing og að innherjar séu að versla með bréf.

Stock Option leiðin hefði verið mun dýrari fyrir Kaupþing en gegnsærri. Þessi "kaupa-bréf-í-okkur-fyrir-lán-frá-okkur-leið" varð til þess að fjöldi velmenntað fólks féll í græðgisgildru Kaupþingdólganna.

Ekki síst vegna þess að nýr starfsmaður var ekki "company man" nema að hafa gert svona díl við dólgana tvo, Sigurð og Hreiðar Már.

Flokkar:

23 hreinar meyjar í janúar.

Þó að ég sé beggja blands varðandi þessa ICESAVE skuldbindingar Íslands þá tel ég fráleitt að Alþingi samþykki samning sem ekki hefur verið lagur fyrir Alþingismenn og þjóðina alla. Mér þykir líka afar ótraustvekjandi að Svavar Gestsson segist "bara viljað drífa þetta af" aðspurður um hversvegna alltíeinu var skrifað undir einhver drög. Nú vil ég taka fram að ég tel ekki að vondir útlendingar séu að ráða okkur óheilt, né að samninganefnd Íslands séu eintómir landráðalurkar, heldur er þetta prinsippmál. Maður skrifar ekki undir samning sem maður hefur ekki lesið yfir.

Flóknara er það nú ekki. - Andskotinn hafið það.

Það liggur ekkert svo brjálæðsislega á að samþykkja þetta. það má alveg bíða og kynna samninginn fyrir landsmönnum. Hvað er það sem er svona mikið leyndó? Þurfum við að afhenda Hollendingum 23 hreinar meyjar í byrjun hvers almanaksárs? Eru Breskar landnemabyggðir í pípunum á Barðaströnd? Eru geimverur að opperera á Ingibjörgu og Haarde?

HVAÐ ER SVONA MIKIÐ LEYNDÓ!! Drullist nú að segja frá því. Ef það þig viljið ekki gera það opinberlega þá eigið þið að leka þessum upplýsingum til fjölmiðla eða bloggara. Ég man ekki betur en að vanhæfa ríkisstórnin hafi ítrekað verið sökuð um pukur og leyndardómsfullar yfirlýsingar (eða ekki neinar yfirlýsingar). Þetta ætlaði Jóhanna að laga en ekkert gerist. Sama helvítis leyndóið er yfir öllu.

Landsmenn mega s.s ekki sjá þann samning sem hefur kannski mest áhrif á það hversu lífvænlegt Ísland verður í framtíðinni.

Þetta er svo bjánalegt að veit ekki hvort ég sný upp né niður er ég rita þessi orð.

mánudagur, 15. júní 2009

Vanhæf lögregla og rannsóknaraðilar Hrunsins.

Trekk í trekk hefur hið opinbera afhjúpað dugleysi sitt og vanhæfni. Öll meiriháttar spillingarmál sem koma koma upp á yfirborðið eru komin frá fjölmiðlum eða bloggurum.

Ekkert stórt mál hefur komið inná borð lögreglu eða rannsóknaaðila að þeirra eigin frumkvæði.

Hví er t.d ekki búði að handtaka Sigurjón bankastjóra, yfirheyra hann og fá skattsvikamilluna hans fram í dagsljósið. Er í lagi að stela 27 miljónum undan skatti? Hví er ekki búð að handtaka þennan svika-sjóðsstjóra sem lánar útvöldum kúlulán með engum vöxtum? Hvað fékk sá fyrir sinn snúð í þessu dæmi?

Nú er ég ekki rannsóknarlögga eða þvíumlíkt en ég er ekki fábjáni. Aðeins fábjánar halda að þessi svika-sjóðasstjóri hafi ekkert þegið fyrir svindið með Sigurjóni. Tékkið á bankareikningum hans og ég skal éta vekjaraklukkuna mína upp á að þar er að finna grunsamlega millifærslu frá Sigurjóni eða félagi tengdu honum sem skýir tengslin.

Flokkar:

Skortstöður

Mikill fjöldi fólks mun taka skortstöður í haust. Ein algengasta skortstaðan er þannig að maður lítur niður og réttir fram lófann í von um eitthvað smáræði frá túristum.


Halldór E á þessa hugleiðingu og ég deili henni með ykkur.

Flokkar:

Hreiðar Már og Kristján Arason.

Eftir þessar fréttir er ljóst að Hreiðar Már þarf að greiða skattinum 1.2 miljarða. Hann fékk nefnilega lánaða 3.5 miljarða frá Kaupþing eins og margir sennilega muna.

Sæmileg skuld það.

Hreiðar er ekki einn um að þurfa að borga tekjuskatt af þessum niðurfelldu lánum. Allir sem fengu þessi "win-win"-lán þurfa að borga. Allt frá Hreiðari til Kristjáns Ara.

Það hlakkar ekkert í mér við þessar fréttir. Ekki vildi ég fá rukkun upp á átta þúsund triljónir og níuhundruð þúsund og fimmtíu frá skattinum. Það er hinsvegar einskonar póetískt réttlæti fólgið í þessu. -Skulda-elítan þarf að borga.

Því ber að fagna. Enginn, ekki einu sinni þeir sem skrifuðu upp á þessar hroða-skuldir, áttu von á því.



Flokkar:

Valtrýr þarf að fara í frí.

Frekar kunngleg staða er komin upp í vanhæfnismáli Valtýs ríkissaksóknara. Hann neitar að víkja. Segir að hann sé ekki vanhæfur. -Sonur hans er meðal lykilmanna í Exista sem þarf að rannsaka.

Ég held að allir í heiminum (fyrir utan Valtý sjálfan og nokkra bankamenn með slæma samvisku) sjái að þarna er á ferðinni fullkomið vanhæfi.

Valtrýr sjálfur hefur sagt að hann muni ekki sjá um neitt sem viðkemur rannsókninni á Exista. En það er ekki nóg eins og ágætis dæmi um óútskýrða töf á kærumáli tengdu Exista sýnir vel. Bara það að Valtrýr er tendur einhverjum sem sætir rannsókn eða kæru grefur undan málinu. Málið er komið á gráa svæðið.

Hvenrig ætli kollegum Valtýs líði að þurfa að þjarma að syni yfirmanns síns? Ekki vildi ég lenda í þeirri stöðu að minnsta kosti. Svona tengin er bara vond og ófagmannleg. Getur aldrei verið annað en til vansa. -Aldrei sómasamleg.

Valtýr verður að taka sér smá frí á meðan á rannsókn á hruninu stendur. Hann er ekki minni maður fyrir vikið. Hann eykst í áliti meðal þjóðarinnar.

-Það er enginn spurning.

Flokkar: ,

sunnudagur, 14. júní 2009

Öllum hafís verri...

Fréttir af kúlulánasvindli Sigurjóns bankastjóra komu eins og blaut tuska framan í mig eins og sjálfsagt fleiri Íslendinga. Hérna var sannkallaður ofurlaunamaður sem fór í bókhaldslega fimleika til þess að þurfa ekki að greiða skatt af tekjum sínum eins og allir aðrir.

Fáheyrðar lygar lögmanns Sigurjóns voru bara til þess að salta í sárin. Enda voru þær svo fávitalegar að upp komst um þær skömmu síðar.

Það sem undrar mig alveg endalaust er að fólk með tekjur á borði við Sigurjón skuli ekki vilja borga til samneyslunnar eins og aðrir. Ég skil skattsvik þegar einhver á ekki pening en mér er fyrirmunað að skilja skattsvik þegar einhver á of mikinn pening!

Allstaðar annastaðar yrði þessi Sigurjón kærður fyrir skattsvik og látin greiða það sem hann réttilega á að borga. Það mun trauðla gerast. Kerfið á Íslandi er of spillt. -Hann sleppur. Það á líka að reka þennan dóna úr kennarastöðu við HR. Ótækt er að láta skattsvikara kenna í virðulegri menntastofnun. Það verður trauðla gert. -Hann sleppur.

Burtséð frá þessum skelfilegu tíðindum þá er eitt sem mér þykir kristaltært. tvennskonar siðferði hefur ríkir á Íslandi. Annarsvegar er það almennt siðferði sem flestir aðhyllast og svo er það eitthvað lögfræðisiðferði eða hvað á að kalla það. Lögfræðisiðferði gengur út á að það sem ekki er beinlínis bannað með lögum er leyfilegt í siðferðislegum skilningi.

Prýðisdæmi um þetta lögfræðisiðferði er þegar BYR var yfirtekin, lögum breytt áður en Fjármálaeftirlitið gæti farið yfir málið, og bankinn síðan tæmdur af nýju eigendunum. Ég ætla ekki að nota "löglegt en siðlaust" frasann um þetta ástand því að í honum felst einskonar samþykki. Einskonar "það-er-ekkert-hægt-að-gera-í-þessu"-samþykki.

Þó það standi hvergi í lögum að bannað sé að slá fólk utanundir með þorskflaki eða árgangi af Tígulgosanum, þá er það samt ekki leyfilegt. Nú reynir á að stoppa þetta og refsa hinum seku.

Flokkar: ,

laugardagur, 13. júní 2009

ICESAVE. -Bréf frá fyrrverandi bankamanni.

Eimreiðinni barst bréf frá fyrrverandi yfirmanni í einum af gömlu bönkunum. Sá vill koma undir dulnefni því hann telur (sennilega með réttu) að persóna hans myndi eyðileggja allan málfluting sinn að íslenskum hætti. Hérna kemur bréfið.


Við fáum aldrei samninganefndina í Icesave viðræðunum til að viðurkenna að það sé einhver séns að ná betri samningi, það mun láta þá líta illa út, en það breytir því ekki að þetta mál er stærra heldur en allir einstaklingarnir sem koma að því og þessar tiltölulega sársaukalausu breytingar fyrir Breta og Hollendinga sem ég tel upp hér að neðan gætu verið bilið milli feigs og ófeigs fyrir íslensku þjóðina.

Svona myndi ég setja málið upp ef ég væri þingmaður á Alþingi:

  • Hvert er „worst case scenario“ varðandi endurheimtur á lánasafni Landsbankans í UK? Ef það er 75% af hverju má þá ekki setja cap (hámark) á ríkisábyrgðina í 25%? Ef að „disaster scenario“ er enn verra, t.d. 65% heimtur þá ætti hámark ríkisábyrgðarinnar að vera 35%. Það er alveg sama hvaða bókhaldsbrellur eru notaðar til að ýta ábyrgðinni inn í framtíðina, þessi ábyrgð er skuldbinding sem getur þar af leiðandi breyst í skuld og allir lánveitendur íslenska Ríksins munu taka þetta með í reikninginn þegar við tökum lán. Það þýðir ekki að sópa þessu undir teppið og halda að þar með hafi þetta engin áhrif. Auk þess þá eru Bretar og Hollendingar í raun að biðja um belti, axlabönd, björgunarhring og fallhlíf. Þessi 100% ábyrgð mun þýða að öll fjármögnun Ríkisins næstu ár verður dýrari og þar af leiðandi staða Ríksisjóðs verri en ef ábyrgðin væri lægri. Þar með er staða Ríkisins til að standa við skuldbindingarnar við Breta og Hollendinga verri þegar/ef kemur til þess að ganga þurfi að ríkisábyrgðinni. (Ef allt fer á versta veg og eignir Landsbankans þurfa að ganga til annara kröfuhafa en bara Breta og Hollendinga mun þetta ákvæði líka vernda okkur.)
  • Það verður að takmarka hámarks greiðslubyrði á ári þegar/ef til þess kemur að gengið verði á ríkisábyrgðina. Finna þarf rétta mælikvarðann, t.d. tekjur Ríkissjóðs eða þjóðarframleiðslu Íslands, og miða greiðslubyrði við einhverja tiltekna prósentu af því. Fari afborgun (vextir og höfuðstóll) yfir það hlutfall færist það sem fer yfir viðmiðunina á höfuðstólinn og lánstíminn lengist þar til lánið er að fullu greitt. Þetta hefur engin áhrif á heildar skuld okkar við Breta og Hollendinga en tryggir að ef við eigum í erfiðleikum með að verða okkur út um fjármögnun þegar til þess kemur að greiða af þessum skuldbindingum þá „de facto“ lána Bretar og Hollendingar okkur áfram á þeim kjörum sem samið er um nú. Þetta hefur líka gríðarleg áhrif á lánshæfi Ríkissjóðs og þau kjör sem okkur munu bjóðast því tryggt er að Ríkissjóður mun ekki lenda í greiðsluþroti vegna þessa. NB – þetta er annað en „heimild“ til að koma á hnjánum til Breta og Hollendinga ef við getum ekki borgað, hvaða kjör verða á slíku neyðarláni þegar við erum komin með bakið upp við vegg?
  • Í þriðja lagi eigum við að taka annan slag um vaxtakjörin og fara fram á að kjörin verði a.m.k. 125 bps (1,25%) lægri. Þar er hægt að nefna fjölmörg rök. Hins vegar er viðbúið að þetta verði þyngsti punkturinn að ná í gegn en í öllu falli þarf að fara í aðra umferð samningalotunnar með einhver atriði sem viðbúið er að gefa þurfi eftir. Við fáum aldrei allan „laundry“ listann okkar samþykktan.

Þetta mál er slíkt RISAMÁL fyrir Íslandinga í nútíð og framtíð að það munu allir Íslandingar kunna þeim þingmönnum þakkir sem þora að taka þennan slag og fyrir að hafa sýnt tennurnar, Bretar og Hollendingar munu líka skilja það að samninganefndin hafi ekki komið þessu án athugasemda í gegnum Þingið. Það mun líka skilja eftir aðeins betra bragð í munni Íslendinga.

Íslendingar hafa margoft setið við samningaborðið lengi í risasamningum þar sem hagsmunir hlaupa á tugum milljarða. Það mun ekki koma neinum á óvart að bakland samninganefndarinnar hafi ekki samþykkt samninginn óbreyttan og að taka þurfi annan snúning á lokametrunum.

Guð blessi Ísland,

Berserkur

Flokkar: ,

föstudagur, 12. júní 2009

Útgerðin er búin að ***** upp á bak.

Skuldir útgerðarinnar eru ævintýralega háar. Svo háar að allur arður af greininni fara beint í afborganir og vexti af skuldinni. Þetta var mögulegt því að veð í kvóta við Íslandsstrendur (sem er sameign allrar þjóðarinnar) var álitin svo trygg að ekkert jafnaðist á við árlega úthlutun frá ríkinu upp á miljarað á miljarða ofan.

En það ótrúlega gerðist.

Veðsetning útgerðiarinnar var svo óskaplega há að núna stendur arðurinn af fiskveiðum ekki einu sinni undir afborgunum og vöxtum. Eins og allir vita þá keyptu útgerðarmennirnir sér hlutabréf í bönkunum fyrir lánið og héldu eftir 10% fyrir sjálfa sig. Groddaleg þyrlukaup eins útgerðarbaróns eru sennilega besta dæmið um þetta bruðl.

Ástandið fyrir nokkrum árum var ekkert minna en brjálæðislegt því að lána-prangarara bankanna (sumir hverjir skólafélagar minir úr Hagaskóla) keyrðu í kringum landið og prönguðu erlendum lánum inn á útgerðina (sem var ekkert illa stödd) og véluðu þá til að taka óskaplega há lán í erlendri mynt. Það var þó skilyrði í þessum lánum því að 90% lánanna áttu að fara í hlutabréfakaup í bönkum prangaranna. Þeim var sýnt voða fínt exelsjal með vísbendingu um örann og tryggan vöxt bankanna. Þetta var díll sem ekki átti að vera hægt að tapa á. Sérstaklega ekki fyrir lánaprangaranna sem fengu bónus fyrir hvern lokaðan samning!

Tilgangur bankanna var að styrkja gengið í bönkunum sínum og stækka eigandahópinn. Bankarnir fóru á hausinn og 90% af láninu því veðlaust, restinni (10%) var búið að spreða í þyrlur og aðra dellu þannig að ekkert var eftir nema óskaplegar afborganir.

- Svo hrundi gengið í ofanálag.

Heimildamaður Eimreiðarinnar segir að í raun sé útgerðin gjaldþrota. Ekki sé mögulegt að snúa dæminu við hvernig sem reynt verði. Núna sjá menn hinsvegar harða varnarbaráttu LÍÚ til þess að halda í óbreytt kerfi (hvernig sem þeir sjá það ganga upp) og hafa sett af stað óskaplega herferði til að berjast gegn fyrningarleiðinni. Hafa m.a keypt upp Morgunblaðið og beita því máli sínu til stuðnings. Hafa aukinheldur keypt ótal blaðamenn, lögmenn, pólitíkusa og skríbenta til þess sama.

Leiðin út úr þessari úlfakreppu er einföld. Við eigum að slaufa þessari fyringarleið og ríkið ætti að gera upptækan einhliða allan kvóta frá útgerðarfyrirtækum sem standa verst. Þannig myndu útgerðarfyrirtækin bara fara á hausinn og skuldirnar afskrifast. Þannig yrði hægt að byrja með hreint borð og hagnaðurinn af fiskveiðum landsins myndu koma til Íslands en ekki í afborganir af heimskulegum lánum í Þýskalandi.

fimmtudagur, 11. júní 2009

Jónas hittir naglann á höfuðið

Þessi greining Jónasar er því miður sönn. Nú verður reynt að þykjast styðja Joly en vinna samhliða gegn hugmyndum hennar.

Það sem ég og sennilega fleiri landsmenn óttast er að hrunið verði aldrei gert upp nema til málamynda. Stóru fiskarnir sleppa meðan verðbréfaguttar á gólfinu verða látnir gjalda.

Þessvegna nötraði allt samfélagið við orð Joly.

Ég trúi því ekki að neitt breytist. Sér einhver lesandi t.d fyrir sér að Sigurður Einarsson, Jón Ásgeir eða einhverjir Alþingismenn verði leiddir burtu í járnum á leiðinni á Kvíabryggju?

Trauðla. -Þeir sleppa.

Flokkar:

Koenigsegg kaupir SAAB ! !

Sænski ofurbílaframleiðandinn Koenigsegg hefur keypt SAAB í félagi við norska fjárfesta. Þetta eru frábær tíðindi fyrir SAAB. Merkið getur ekki annað en batnað við þessa samvinnu. Koeningsegg eru jú ótrúlegir bílar samvinna við SAAB getur ekki annað en skilað spennandi niðurstöðum.

Flokkar:

Uppgjörið.

Ég fékk svolítið skrýtna tilfinningu í gær. Ég ímyndaði mér að gengið yrði að kröfum Evu Jolie. Að ríkisstjórnin myndi hysja upp um sig buxurnar eftir smánarlega frammistöðu.

Ég ímyndaði mér að það væru 3 saksóknarar, einn um hvern banka. Ég ímyndaði mér að þessir saksóknarar gætu ráðið til sín allt það fólk sem til þarf til þess að skila af sér verkinu með sóma.

Þá gerðist það.

Ég fattaði allt í einu að ég hef aldrei haft trú á því að Hrunið yrði gert upp. Íslenska svæfum-þetta-í-nefnd-aðferðin er sennilega svona inngróin inn í hugsunarhátt minn. Í brjósti mínu bærðist ekki einu sinni von um að hrunið yrði rannsakað nema með kerfisbundu og skipulögðu sleifarlagi, sérpöntuðu til þess að valda sem minnstum usla.

Svei mér þá ef að þetta er ekki að breytast. Ég fékk skyndilega trú á að uppgjör við Hrunið sé mögulegt. Að það sé rétt sem Eva segir. Slóðin er heit og verður það lengi. Trikkið er ekki flókið. "Follow the money".

Ég er hinsvegar sannfærður um að valdamikil öfl í samfélaginu, í stjórnkerfinu og á Alþingi setja nú allt á fullt til þess að hindra eðlilega rannsólkn og vilji helst að pótentátar Sjálfsstæðisflokksins verði látnir rannsaka (eins og alltaf). Ég er líka sannfærður um að angar þessa máls teygji sig á staði sem hingað til hafa verið stikkfrí frá spillingarumræðunni.

Þegar sagt er að uppgjörið við hrunið sé nauðsynlegt fyrir þjóðina þá er það ekki bara vegna þess að réttlátt er að refsa misgjörðarmönnum sínum, heldur er málið í þessu tilfelli að veruleg hætta er á að óútkljáð uppgjör, uppgjör sleifarlagsins, uppgjör að hætti Sjálfstæðisflokksins, kjúfi þjóðina í tvennt um áratugi.

-Við höfum fengið nóg af slíku rugli. Það má ekki gerast.

Flokkar:

Hjól atvinnulífsins.


Halldór E. á líka þennan.... :)

Flokkar:

einn millimetri


Þessa mynd tók Halldór E. á dögunum. Ljóst er að mýtan um typpastærð jeppakalla er ekkert leyndarmál lengur og "dyrabjöllumaðurinn" á þessum Range Rover er óhræddur að viðurkenna staðreyndir sem áður hafa legið undir leyndarhjúp.

Flokkar:

miðvikudagur, 10. júní 2009

Augljóst. -Algerlega augljóst.

það er augljóst að sleifarlag við rannsókn Hrunsins var kerfisbundið og til þess eins að tefja og dreifa málinu á dreif.

Það þarf að vera þroskaheftur til að sjá ekki í gegnum þetta fúsk.

"Kerfið" er bara að passa upp á sig og sína. Ekki kæmi mér á óvart að angar eðlilegrar rannsóknar endi í efstu lögum samfélagsins okkar og dragi "virðulega" einstaklinga niður í svaðið. Landsþekkt nöfn fólks úr virðulegum fjölskyldum.

Ég held að ríkisstjórninni sé ekki um að kenna nema fyrir fásinni og tómlæti þótt auðvitað séu sumir Alþingismenn (fyrrverandi og núverandi) invinklaðir í efnahagshrunið eins og allir vita. Ég held að stjórnkerfið sé að hindra eðlilegan framgang þessarar rannsóknar. það á að svæfa rannsóknina í nefnd.

Það er ekki tilviljun.

Flokkar:

auðvitað - - AUÐVITAÐ ! ! ! !

Á Valtýr Sigurðsson að segja af sér sem ríkissaksóknari. SONUR HANS ER EINN AF ARKÍTEKTUM HRUNSINS....

Það er svooooo ljóst að kattaþvottur var í uppsiglingu. Týpískt íslenkskt yfirklór.

Takk Eva Jolie.

Flokkar:

Halldór E. gúgglaði Tortolaeyjar.

Fann ekki Jón Ásgeir en sá þennan ferskan þrátt fyrir allt.

Flokkar:

Lélegur pappír.

Halldór E. Högurður er snillingur. Hann er vinur mínn á Fésinu og kemur mér alltaf í gott skap. Hann deildi þessu með okkur í gær eða fyrradag.


Myndatextinn var svohljóðandi:

Ég lærði margt gagnlegt í stuttu myndlistarnámi.
Til dæmist að þekkja í sundur þessar 2 myndir sem hér fylgja, alveg eins nema vinstra megin er málarastrigi en hægra megin lélegur pappír.

Myndin er s.s af Ólafi í Samskip, manninum sem tók stöðutöku gegn íslensku krónunni á lokadögunum fyrir Davíðshrunið með óskaplegum afleiðingum fyrir landsmenn.

Flokkar:

Næsti leikur gegn fyringarleiðinni.

Ég hef það samkvæmt áreiðanlegum heimildum að næsti leikur LÍÚ gegn fyringarleiðinni sé kerfisbundin útdeiling á leigukvóta framhjá viðkvæmum svæðum. Nú á að svelta sumar byggðir með því að neita að leigja þeim kvóta og skapa þannig þrýsingi á Alþingismenn viðkomandi svæða til að snúast á sveif með hagsmunum LÍÚ.

-Vitið þið til...

Mjög bráðlega munu viðkvæm byggðarlög ekki fá neinn kvóta leigðan. Háværar raddir munu þrýsta á þingmenn viðkomandi kjördæma til þess að afneita fyrningarleiðinni.

Munum að LÍÚ lítur á baráttuna gegn fyrningarleiðinni sem lokabaráttu. Þeir tjalda öllu til og hafa meir að segja keypti heilan Mogga til að básúna ágæti núverandi kvótakerfis og hrikaleika fyringarleiðarinnar. Hundruðir manna og kvenna eru á góðum launum beint og óbeint við að verja kvótakerfið. LÍÚ veit best hvað staðan er viðkvæm og bregst því við með þessum hætti. Það hangir nefnilega ansi mikið á spýtunni. Útgerðaraðallinn er búin að spila svo rassinn úr buxunum að arðurinn af greininni fer ekki lengur til Íslands heldur í vaxtagreiðslur til þýskra banka. Þetta veit LÍÚ vel og reynir nú að blekkja fólk kerfisbundið. Tilkoma þessara skulda er svo annar handleggur og efni í ótal sorglegar bækur. Þeir þurftu nefnilega ekkert á þessum skuldum að halda og voru dobblaðir af gráðugum lánapröngurum frá bönkunum. -Meira um það síðar.

Flokkar: ,

Rembingur eyjaskeggja

Ég er að lesa bók Guðna Th. Jóhannessonar um Hrunið. Fín bók og afar gagnleg sem setur upp aðdraganda efnahagshrunsins og eftirköst í samhengi. Mæli sterklega með henni. Það er svolítið sérstakt að það virðist sem íslenks stjórnvöld og viðskiptalífið hafi staðið fyrir framan nokkrum vondum kostum og alltaf valið þann lang-versta. -Trekk í trekk.

Wa-Mu leiðin var sennilega sú allra versta sem hugsast gat og hefur skaðað okkur ótrúlega mikið. Með henni var lína dregin og hagsmunir íslenskra sparifjáreiganda voru teknir fram yfir þá sem eru erlendir að uppruna. -Gengur þetta upp? Það er ekki að undra að enginn vildi hjálpa okkur í þessari stöðu. Mikið betra hefði verið að láta alla tapa jafnt og ríkisstyðja ekki íslenska sparifjáreigendur. Láta kapítalismann ráða för. borga það sem okkur ber samkvæmt samningum (20.000 evrur) og láta þar við sitja.

Það er svolítið sérkennilegt að í Wa-Mu leiðinni kristallast annar vandi. Sá herfilegi hugsunarháttur að Íslendingar séu á einhvern hátt betri eða merkilegri en þegnar annara þjóða. ESB andstæðingar klifa á þessu í hvívetna. Samvinna á jafnréttisgrundvelli er eitur í þeirra beinum. Björk-fjölskyldan í Gautaborg er ómerkilegri en fjölskylda á Víðimel í Reykjavík. Aho-fjölskyldan í Helsinki er ómerkilegri en fjölskylda í Reynigrund í Kópavogi. Gomez-fjölskyldan í Barcelona er ómerkilegri en fjölskylda í Stekkjaflöt í Garðabæ. Þessi hugsunarháttur er algerlega grundvallandi í hugsunarhætti ESB andstæðinga og í raun kjarninn í hinum belgingslega sjálfsbirginshætti sem einkennt hefur íslenska þjóðarvitund um áratugaskeið.

Við erum betri, merkilegri og fremri öðrum þjóðum. Óskaplega dæmigerður rembingur fyrir eyjaskeggja.

Flokkar:

þriðjudagur, 9. júní 2009

Brjálæðingur handtekinn

Ég sá að tónlistarmaðurinn Tómar R. Einarsson hafði verið handtekin í húsi Björgúlfs Thors. Þetta er orði svo skrýtið alltsaman. Virðulegur heiðursmaður er handtekin í einskonar anarkí-innrás í eitt sögufrægasta hús Reykjavíkur.

Pælið aðeins í þessu.
  • Nauðarsamningum sem eiga sér ekki fordæmi í heiminum er þröngvað upp á Íslendinga,
  • Skuldir landsmanna vegna þeirra nema um 10 miljónum á hvert mannsbarn á landinu.
  • Þá er eftir að taka til tapið vegna fúsks Davíðs Oddsonar í Seðlabankanum sem er öllu stærra en ICESAVE.
  • Á meðan þessu stendur fáum við fregnir að stærsti eigandi Landsbankans sóli sig með kvikmyndastjórnum í Cannes.
  • Sagan segir að hann eigi nóga peninga sem hann bíði þolinmóður með til að festa í einhverju sem fer á brunaútsölu innan tíðar
  • Komið hefur í ljós að skilanefndarmaður fyrir einn "Nýju" bankanna er á dularfullum ofurrlaunum frá Miljarðamæringi. Enginn gerir athugasemd við hann ráðahag.
  • Forseti landsins, mesti útrásargalarin allra tíma, þykist nú aldrei hafa galað og kennir "spilltum stjórnmálamönnum" um hrunið.
Þetta dynur á okkur. Við þekkjum þetta og erum orðin ónæm fyrir þessu. Þá kemur þessi frábæra frétt af manni sem viðrist vera eini Íslendingurinn með viti í dag. Maðurinn sem sagði NEI: -Ekki lengra. -Við eigum þetta fokking hús. Við, við og við.

Ástandið er orði svo kreisí að maður sem er handtekin og festur í járn er algerlega að gera hið rétta. Hann er síðasta andvarp hugrekkis meðal Íslendinga. Tómas er síðsta blómið. Síðasti siðvæddi maðurinn. Við hin eru huglausir aumingjar sem látum raðnauðga okkur án þess svo mikið sem að leiða hugað að því hvort þetta sé óeðlilegt ástand. Auðvitað eigum við öll að láta handtaka okkur og færa í járn. það er hið siðlega, það er amk einhverskonar viðnám. Ég þekki stjórnvöld af nógu vel að ég veit að Hrunið verður aldrei gert upp. Allt í lausu lofti og enginn verður svo mikið sem sektaður. Útrásarhyskið mun sóla sig áfram á Cannes og hreinsa naflakuskið úr fitusognum maganum á meðan Ísland sekkur.

-Takk Tómas. Hugrekki þitt veitir innblástur.

Adam Lambert og KISS.

Eins og venjulega þá missi ég alltaf af straumhvörfum í poppmenningunni. Ég uppgötvaði t.d Sex Pistols árið sem Tupac var skotinn og Gangster rappið fattaði ég svo í vetur. Allt á sömu lund. Það er bara einn fasti í poppinu hjá mér.

-Hjómsveitin KISS.

Ég hef alltaf staðið með þeim í gegnum sætt og súrt. Ég man meir að segja þegar þeir gáfu út Dynasty og "I Was Made For Lovin You" var vinsælt. Ég sá þá í Reiðhöllinni 92 á lágpunkti frægðarsólar þeirra og svo aftur í fyrrasumar í Köben með Eldjárni og vinum hans. Það var ekki orginal lineup. Tommy Thayer og Eric Singer eru ráðir til að þykjast vera Ace og Peter. Frekar slappt en fuck it. -KISS rules.

Ég sá fyrir tilviljun í gær eða fyrradag Youtube klippu þar sem Adam nokkur Lambert er að syngja Beth með KISS. Furðulegt -hugsaði ég með mér. Hann söng eins og engill en skyndilega brustu á sprengingar með tilheyrandi eimyrju og viti menn. KISS var mætt á svæðið með Detroit Rock City. Úff hvað það var ljúft að sjá þá. Samt svolítið svekkjandi að heyra þennan Lambert rúlla svona gersamlega yfir Paul Stanley. Maður virkilega heyrir hvað Paul er lélegur (en samt bestur einhvernvegin)

-Lambert er bara svo hrikalega góður.

Annað með þennan Lambert. það er ekki oft að ég fæ á tilfinninguna að ég sé gay en sveimérþá. Mér finnst hann sætur. Sætasti maður sem ég hef séð. Alger dúlla. Mann langar barasta að knúsa hann. Adam er æðislegur (andvarp) Ég skil bara ekkert í þessu .

-Ekki bofs.

Hérna er Lambert og KISS:

Flokkar: , ,

Ólafur Ragnar er skammarlegur.

Það var grátlegt að lesa Mannlífsviðtal við Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands og útrásargalara númer eitt. Hann hefur fundið sökudólg fyrir hruninu.

Stjórnkerfið og eðlislæg spilling innann þess.

Vissulega ætti Ólafur að vita þetta ágætlega enda afsprengi téðs kerfis sem hann gagnrýnir. Hann sleppir reynda að minnast á vini sína í útrásinni í þessu samhengi. Það er grátlegt en sýnir vel innræti Ólafs og refshátt.

Ég vona svo sannarlega að við endurskoðun stjórnarskrárinnar verið forsetaembættið lagt niður. Það er gersamlega óþarft, dýrt og fábjánalegt. Við Íslendingar þurfum ekki einhvern spena til að ástunda veislur fyrir okkar hönd. Best væri að láta það "mikilvæga" hlutverk lenda á forseta Alþingis. Það er álíka gáfulegt að hafa pólitískan Seðlabankastjóra eins og að hafa pólitískan forseta á Íslandi. báðir njóta ekki trausts og allt sem þeir gera er sett undir hægri/vinstri vinkla. Jafnvel þegar þeir hitta naglann á höfðuðið (sem er afar sjaldan) er það túlkað á annarlegan hátt.

Persónulega þá fyrirlít ég Ólaf Ragnar. Hann reyndi sitt ýtrasta til þess að reka mömmu mína úr starfi auglýsingastjóra á Þjóðviljanum þegar hún var ein með okkur bræðurna, nýskilinn og í erfiðri stöðu. Það var vegna þess að Ólafur taldi að mamma væri í einhverri fylkingu innanhúss og andstæðingur sinn. Sennilega hefur hann þó bara verið að rýma fyrir einhvern vin sinn um stöðuna.

Þegar Sigmundur fór á dularfullan fund.

Nokkrum dögum eftir að Sigmundur Davíð var kosinn formaður Framsóknarflokksins var hann skyndilega boðaður á fund á Hótel Nordica. Sigmundur vissi ekki hverjir stóðu á baki fundnum en mætti að áeggjan reyndra innanbúðarmanna í Framsókn.

Þegar Sigmundi var vísað á fundarherbergið blasti við stórt U-laga bort sem var þéttsetið af 60 einstaklingum. Þeir mændu allir á hinn nýja formann uns einn þeirra sagðist ekki nenna smjaðri og snúa sér beint að efninu.

"Hvað getur þú gert fyrir okkur?"

Þetta var sem sagt fyrsta og eina spurningin sem LÍÚ lagði fyrir formann Framsóknarflokksins.

-o-o-o-

LÍÚ eru þjóðskaðleg glæpasamtök sem sett hafa landið á hausinn með fávitahætti og hundingsskap. Rændu auðlyndum þjóðarinnar og seldu til þýskra banka. Arðurinn af hinni sameiginlegu auðlynd þjóðarinnar fer ekki til Íslands heldur til Þýskalands. Þessvegna styrkist ekki gengið. Þessvegna er fólk að berjast í bökkum. Það sorglega við þessa stöðu er að bankarnir í raunninni prönguðu þessum skuldum inn á útgerðina með gylliboðum knúnum áfram af bónusgreiðslum lánaprangaranna. Lánaprangararnir fengu svo prósentu af hverjum díl sem nam tugum miljóna. Laun þessara lánaprangara voru stjarnfræðileg.

Fróðlegt er að fylgjast með varnarbaráttu útgerðarinnar. Öllu er tjaldað til og heill fjölmiðill keyptur í þessum tilgangi. Tugir blaðamanna og urmull þungavigtarmanna í samfélaginu eru á launum frá LÍÚ við það að viðhalda kvótakerfinu óbreyttu.

Þetta er lokaorrusta. Þetta er Stalingrad.

Flokkar: ,

Táknræn ljósmynd

Þessa frábærlega táknrænu mynd tók Halldór hálftröll félagi minn á dögunum. Myndin sýnir vel íslenskar efnahagsaðstæður eða fjárlagagatið sem verður að brúa.

Myndina gæti einnig verið hægt að nota sem nýtt lógó fyrir Landsbankann,. Íslandsbanka eða Kaupþing.

Ljósmyndarinn Halldór E. Högnuður ætti að vera á hverju einasta heimili með menningarlegan metnað. Hann er engum líkur. Nýjasta innleggið hans á Fésinu er eftirfarandi:

Hitti félaga minn á skokkinu, hann var með nýa húfu, svipaða þeim sem kosta 1.200,- á næstu bensínstöð. Hann borgaði 13.000,- fyrir sína. Hann lét Prada sig

Flokkar: ,

Vírus í RÚV-húsinu

Ég hef lengi velt vöngum yfir RÚV. Ég held að í þessari risabyggingu sé einhver vírus búin að stinga sér niður og herji á starfsfólk á skrifstofum yfirstjórnar þessa ríkisapparats. Ég hef nokkrum sinnum komið inn í þetta gímald og ég fullyrði að ég fékk einhverja sýkingu. Einkennin hjá mér voru mjög furðuleg. Mig dreplangaði að lesa símaskránna spjaldanna á milli. Þegar því lauk renndi ég svo yfir bifreiðaskrá og lagði nokkur bílnúmer á minnið.

Ég var að stofnanavæðast.

Augjóst er að Páll Magnússon hefur smitast af þessum þurr-vírus. Hann kom inn í starfið fullur af fínum hugmyndum en það var eins og við manninn mælt að um leið og hann var búin að sitja nokkra fundi í Útvarpshúsinu þá stofnanavæddist Páll. Það eina sem eftir var af "ferskleikanum" var að hann lét skattgreiðendur greiða fyrir sig einhvern helvítis lúxusjeppa.

Fínu hugmyndirnar um að RÚV ætti að hætt að keppa við Stöð2 og Skjá1 í keppninni "hver getur sýnt mesta ruslið" var blásin með vísun í almannahagsmuni og eldgömlum lögum um "hlutverk Ríkisútvarpsins". Nú er RÚV bara rusl-stöð. Innlenda framleiðslan er reyndar fín en overall er Dagskráin bara útkreistingur úr gólftusku amrískrar rúnkmenningar.

Auðvitað á að hætta að sýna rúnkið frá Bandaríkjunum og stytta frekar dagskránna. Hafa almennilegt efni. Innlent að uppistöðu. Í fyrra voru sem dæmi framleiddar um50 heimildamyndir sem allar eiga það sameiginlegt að hafa brýnt erindi til landsmanna. Hafa almennilegar fréttir og almennlegar fréttaskýringar. Almennilega menningarþætti og almennilegar íþróttafréttir.

-Almennt sjónvarp takk fyrir.

Ef að lögin um RÚV eru léleg þá þarf að breyta þeim. Frumkvæðið ætti að sjálfsögðu að koma frá Páli Magnússyni en meðan þurr-vírusinn geysar á skrifstofunum er vonlaust að nokkur einasta eðlileg hugsun komi þaðan. Páll ætti að skipta um skrifstofu. Fá sér lítið skrifborð meðal ungra heimildakvikmyndafólks og smitast af almennilegum vírus. Sköpunarvírusnum sem er bráðsmitandi og miklu betri en þurr-vírusinn sem plagar efstu hæðirnar í Efstaleitinu.

mánudagur, 8. júní 2009

Sparnaðarráð til ríkisstjórnarinnar

Nú á að setja lög sem kveður á 95% skatt á tekjur sem eru umfram eina miljón króna á mánuði. Þannig má ná inn peningum í ríkiskassann sem gætu brúað bilið fyrir heilbrigðis og -menntakerfið. Skattsvik munu sennilega aukast til muna við svona lög en á þeim á bara að taka eins og öðrum lagabrotum. Fyrirtæki sem hefðu svona þak á launagreiðslur munu sjálfsagt spara peninga sem þessu nemur og gætu ráðið fólk í vinnu fyrir mismuninn.

Lífeyrisgreiðslur frá ríkinu ættu einnig að skattleggja á þennan hátt. Ég skil ekki hvað farlama gamalmenni hafið neitt við ofurlaun að gera. Miljón á mánuði ætti að duga. Fjölmargir stjórnmála og -embættismenn sem komin eru á eftirlaunaaldur eru með ofurlaun. Sárast er að þeir sem lögðu grunninn að hruninu skulu fá ofureftirlaunagreiðslur fyrir fúskið. Davíð Oddson mun vera hæst launaðasti ríkisstarfsmaðurinn í sögu lýðveldisins. Með tvö eða þreföld ráðherralaun fyrir að hafa farið með eldibrandi um íslenskt samfélag.

Þetta er óþolandi.

Flokkar:

ICESAVE þrautagangan.

Ég er beggja blands varðandi ICESAVE samninginn við Breta og Hollendinga. Auðvitað var þetta þvílík skítastaða fyrir Íslendinga að vandfundin er önnur áþekk, jafnvel þótt leitað sé út fyrir landsteinana og farið langt aftur í tímann.

Hvert var alternatívið á móti núverandi samningum? Var það ekki bara alger og yfirþyrmandi eingangrun þjóðarinnar? Aðalatriðið má ekki gleymast! það voru 300.000 manns sem áttu fé inn á þessum ógeðfeldu reikningum. Að skilja þá eftir í skítnum hefði haft ófyrirséðar afleiðingar fyrir Ísland. Svo gleymist hitt að eignir eru sannarlega fyrir hendi hjá Landbankanum sem að ganga upp í skuldina. Mér þykja hugmyndir Eiríks Bergmanns einna áhugaverðastar í þessu samhengi en hann heldur fram fullum fetum að um leið og Bretar settu á oss hryðjuverkalög hefðu þeir átómatískt tekið við öllum skuldbindingum ICESAVE. Á þetta var aldrei reynt og það er furðulegt. Gaman væri að heyra röksemdina fyrir því að þetta var aldrei skoðað.

Ef að hlutirnir þróast á heppilegan hátt fyrir Ísland, að eignir Landsbankana standi algerlega undir kostnaðinum (gerist með uppsveiflunni sem er óumflýanleg) þá stöndum við keik á eftir. Ósköðuð að mestu og mannorði okkar er borgið. Það er sjálfsagt hugmyndin sem býr að baki þessum samningum.

Ég held að þessir samningar gefi okkur Íslendingum færi á að endurbyggja efnahagskerfið okkar. Samningurinn veitir okkur skjól í nokkur ár. Þennan tíma verðum við að nota vel. Svei mér þá. Ég held að ég hallist frekar að því að þessir samningar séu góðir frekar en slæmir. Í hrikalegri stöðu er sjaldnast góðir möguleikar fyrir hendi. Bara misslæmir möguleikar. Þessir samningar voru slæmir en þeir bestu í stöðunni.

Flokkar: ,

1500 miljónir á dag...

Íslensk útgerðarfyrirtæki selja fisk fyrir einn og hálfan miljarð á dag. Ekkert af þessu fé skilar sér inn í hagkerfið því allur arður af fisk-auðlind Íslendinga fer beinustu leið til þýskra banka.

-Þessvegna styrkist ekki krónan
-Þessvegna eru erlendar skuldir að buga fjölskyldur
-Þessvegna hafa engir áhuga á að fjárfesta á Íslandi


LÍÚ eru þjóðskaðleg glæpasamtök.

Flokkar: , ,

föstudagur, 5. júní 2009

"Kall Matt" vill réttlæti.

Fyndin en ákaflega íslenska athugasemd eftir Karl Matthíasson fyrrverandi alþingismann Samfylkingarinnar (og síðar vonarstjörnu Frjálslyndra eftir að sá fékk hraklega útreið úr prófkjöri Samfylkingarinnar) er að finna á bloggi "Kalla Matt" eins og hann vill láta kalla sig upp á kumpánlegan máta.  Athugasemdin fjallar um að ranglæti sé aldrei þjóðhagslega hagkvæmt.  

Mér þykir þetta pínlegt hjá "Kalla Matt".  Ég komst nefilega að því fyrir tilviljun að samhliða starfi sínu sem (fyrrverandi) alþingismaður og brennivínsprestur er Kalli Matt formaður umferðarráðs.  Ljóst er að Kalli matt hefur gleymt réttlætinu um stund og þegið pólitískan bitling frá krötum í Umferðarráði.  Nú þarf varla að taka það fram að hundruðir manna, ef ekki þúsundir eru betur til þess fallin að stjórna umferðarráði en Kalli Matt.  Flott og vel menntað fólk sem er myndi gegna þessu starfi af alúð og hugsjón en ekki af annarlegum hvötum eins og títt er með bitlingafólkið.  Það vinnur jú alltaf fyrst og fremst fyrir reddaranan sína og svo fyrir stofnunina sem bitliginn gefur.  

Ég hvet Kalla Matt að sinna öðru hvoru starfinu og gefa atvinnulausu fólki færi á því að fylla í skraðið.  

-Það er nefnilega réttlæti fólgið í því.

Flokkar: , ,

200 metrar í næsta Range Rover.

Ég hef nú verið á skerinu í tæpa viku eftir árs dvöl í Svíþjóð.  Margt hefur breyst á þessum tíma.  Nýjar byggingar, nýjar götur og heilu hverfin hafa risið upp.  Ég var t.d í matarboði í gær á Löngulínu 10.  Flott hverfi í Garðabæ.  Aldrei er meira en 200 metrar í næsta Range Rover.  Ég sé ekki þessa kreppu sem alltaf er í fréttum.  Allir vinir mínir eru í vinnu að mér skilst og vélin gengur hikstalaust.  Kreppan er sennilega í efstu lögunum.  Ósýnileg og óáþreyfanleg.  

Mér datt svolítið í hug komandi frá hinni skipulögðu Svíþjóð.  Þar er umferðarmenning betri og enginn leggur í stæði nema að borga fyrir það.  Engum Svía dettur í hug að leggja upp á gangstétt eða gegn aksturstefnu.  Það er ekki vegna þess að þeir eru siðferðislega fremri Íslendingum heldur eru viðurlög við slíku skarpari en á Íslandi.  Lágmarkssekt við því að leggja ólöglega í stæði er 500 skr. (um 8000 kall) og stöðumælaverðir eru óvenju vökulir.  Ég legg því til við yfirvöld að hækka viðurlög við umferðarlagabrotum tífallt.  Bæta einu núlli við.  Með því móti græðist tvennt.  Umferðarmenning batnar og tekjustofn myndast tímabundið (meðan að fólk er að fatta nýja kerfið).  Peningana er síðan hægt að nota til að greiða fleiri stöðumælavörum laun sem ella myndu vera á bótum.  Í sumum götum í Reykjavík leggja menn tvist og bast gegn akstursstefnu, á ská, upp á gangstéttum og algerlega upp við gangbrautir.  Þetta er bara djók hvernig fólk leggur birfreiðum sínum.  Svo ætti að tengja viðurlög við hraðakstri við skattskýrlsu síðasta árs.  Miða ætti sektir við hlutfall af mánaðartekjum.  Sama ætti að gilda um ölvunarakstur nema viðurlög harðari.

Flokkar:

fimmtudagur, 4. júní 2009

Don Davíð.


Ég hitti tölvumann í bankakerfinu í gær. Vel fór á með okkur og ég spurði hann í gríni að ég rétt vonaði að öll samskipti milli Davíðs Oddsonar við hinna bankana væru til í öryggisafritum tölvukerfanna. Tölvumaðurinn brosti og sagði að enginn tölvusamskipti væru til milli Davíðs Oddsonar því að hann notaði ekki tölvupóst. Viðmælandi okkar játti því og sagði það almannaróm að Davíð notaði ekki tölvupóst.


Þetta er bara fyndið.


Davíð Oddsyni svipar mjög til mafíósa í þessu samnengi. Notar ekki tölvupóta og lætur áhangendur sína þeysast bæjarenda á milli með "skilaboð". Notar ekki GSM síma og aðeins tíkallasíma í sárustu neyð. Sestur í helgan stein á sveitasetri sínu og klippir rósir í kyrrðinni.

Flokkar: ,

Samblástur gegn formanni VR í uppsiglingu!

Nú hefur "VR-fjölskyldan" blásið til sóknar gegn Kristni Erni Jóhannessyni núverandi formanni félagsins. Greinilegt er að samsæri hefur litið dagsins ljós því að "slysið" sem varð þegar Kristinn felldi VR-bófann hefur farið gríðarlega í taugarnar á mosavaxinni já-manna-hirðinni (kallar sig VR-fjölskylduna) í kringum VR-bófann.

Nú á að seta upp ennfrekari girðingar til þess að hindra að lýðæðislegar kosningar geti átt sér stað meðal félagsmanna VR.

Tölvupóstur sem sirkúlerar meðal samsærismanna er í rauninni ekki svaraverður og skýrir allt sem þarf að skýra. Ég hvet fólk til að lesa þennan skammarlega póst og kynna sér þann siðspillta hugsunahátt sem ræður ríkjum meðal stuðingsmanna VR-bófans. Ljóst er að stefnan er að setja bófann aftur á stall og halda áfram. "Buisness as usual".

En hvað hefur Kristinn Örn gert? Jú þetta.


  • Feldi VR-bófann.
  • Skipti um varaformann (Stefaníu Magnúsdóttur sem vann kerfisbundið gegn nýju stjórninni og er lykilmanneskja í samblæstrinum)
  • Forstjóri Lífeyrissjóðs Verslunarmanna hætti störfum eftir að Kristinn var kosinn formaður VR. En þessi ofurlauna forstjóri var aðallega þekktur fyrir gríðarleg laun og taldi það auka vegsemd sína að keyra um á tugmiljóna Cadilack á kostnað iðgjaldsgreiðenda í VR. Fljótreiknað kostaði það iðgjald hundrað félagsmanna VR að kosta jeppann undir rassinn á forstjóranum. -Í hverjum einasta mánuði.

Ég hvet alla félagsmenn VR til að mæta á fundinn í kvöld kl 19:30 og styðja Kristinn gegn samblæstrinum.

Flokkar:

miðvikudagur, 3. júní 2009

Hátækni er til fyrirmyndar.


Ég fór með símann minn í viðgerð í gær. Hljóð-neminn í honum var eitthvað bilaður. Ég heyrði í andstæðingnum en hann ekki mér, sama hvað ég æpti. Hátækni heitir þjónustuaðili Nokia og er með aðsetur í Vatnagörðum. Þangað fór ég keikur og setti símann í viðgerð. Mér var tjáð að það væri sennilega hægt að gera við símann. það voru góð tíðindi því síminn minn er barasta ágætur hvernig sem á hann er litið. Hefur sparað mér ófá gremjuköstin í umferðinni í Gautaborg en síminn þessi er þeirrar náttúru að hann er með GPS-tæki inn í sér og vísar mér leið um öngstræti stórborgarinnar með þýðri röddu sjónarpsstjórans á Skjá einum.


Sama dag var hringt í mig heim til mömmu og mér tjáð að síminn væri tilbúin. Ég sótti hann og þá kemur í ljós að hann var í ábyrgð! Tölvukerfi Nokia keyrir alla skandinavíu saman þannig að ekki skiptir máli hvar síminn er keyptur.
Þjónustan var til fyrirmyndar, ljúf, hröð, fumlaus, upplýsandi og þægileg.

Flokkar: ,

þriðjudagur, 2. júní 2009

Skjaldborg 09 lokið.

Ótrúlega skemmtilegri Skjaldborgarhátið lauk á sunnudaginn. 30 heimildamyndir voru sýndar og flestar myndir heiðursgestsins Þorfinns Guðnasonar einnig. Sigurvegari í áhorfendakosningu þetta árið var myndin "Konur á rauðum sokkum". Frábær mynd sem sannarlega kallast á við þá umbrotatíma sem í dag skekja samfélagið. Ég var kynnir á hátíðinni og sá því allar myndirnar 30. Ég er s.s búin að sjá u.þ.b 30 klukkutíma af heimildamyndum um helgina.

-Slatti

Eins og á fyrri hátiðíðum þá kynntist ég fullt af fólk og sá afrakstur af vinnu hundruða kvikmyndagerðamanna. Það er stórkostlegt að fylgjast með gróskunni í þessum geira kvikmyndagerðarlistarinnar.

Eitt skyggði á annars frábæra hátið en ég lenti í umferðaróhappi. Ég lenti í árekstri. Var í órétti og skemmdi 2 bíla. Bílinn hans Hjálmars frænda og bíl á Patreksfirði. Enginn slasaðist og skemmdir voru ekki sérlega miklar. Ég hef aldrei lent í árekstri áður og þetta var mikið sjokk. Slys gerast eins og elding. Við aðkomuna af slysinu kom aðvífandi Patreksfirðingur sem spurði okkur hvort við værum slösuð og þegar við ökumennirnir sögðum að svo væri ekki þá sagði hann nokkuð góða setningu sem endurspeglar hárrétta afstöðu til hlutanna.

"þetta er bara járnarusl þessa bílar má laga. Það eina sem skiptir máli er að þið eruð ósköðuð".

Tildrög slyssins voru þau að ég taldi mig vera á aðalbraut og sá ekki veginn sem þverar þessa meintu aðalbraut fyrir húsi sem stóð á horninu. Mér til afsökunnar var tjáð að þarna gerðust oft slys sem utanbæjarfólk lendir í. Þetta var samt agalegt og fyrir lesendur Eimreiðarinnar þá fjallaði síðasta færsla einmitt um ökuþursa sem eira eingu í fyrringu ökuæsings og tillitssleysis. Kemur vel á vondan gæti einhver sagt. Auðvitað er þetta smá peningalegt áfall fyrir mig en ég redda þessu. Þetta er hægt að bæta.

Í næstu bloggum mun ég fjalla um myndirnar og hátíðna.

Flokkar: