Enn meira um fyllerí Sigmundar Ernis.
Þingfréttaritarar til margra ára upplýstu að það hefi oft borið á ölvun þingmanna þótt það hafi aldrei þótt fréttnæmt. Þetta var bara umborið.
Ég held að þetta hafi bara þótt töff. Í þessu felst nefnilega djupstæður valdahroki. Valdahroki sem þótti einhvernvegin flottur.
En allskonar álitsgjafar, bloggarar og blaðamenn voru að bera í bætifláka fyrir ölvun þingmannsins Sigmundar Ernis. Sumir bentu á að ræðan hans hafi verið prýðileg meðan aðrir sögðu þetta í lagi sökum sögunnar. Ég er þessu algerlega ósammála og mótmæli allur.
Ég sat tíma í morgun í skólanum sem ég er nýbyrjaður í og hlustaði á fyrirlestur kennarans. Kennarinn studdist við glærur og óf svo mál sitt í kringum efni glæranna. -Svona eins og góðir kennarar gera. En þá datt mér í hug að hann hefi alveg getað verið drukkinn. Hann hefið sennilega komist skammlaust frá tímanum ef hann hefði verið búin að fá sér eina léttvínsflösku eða tvær. Hann hefði kannksi orðið skemmtilegri, frjálsari einhvernvegin og lausbeislaðri. -Hver veit?
En væri þetta ekki lítilsvirðandi fyrir okkur nemendurna? -Drukkinn kennari? -Er til meira diss?
Það er alveg sama hversu frábær ölvaður þingmaður er, hann sýnir kjósendum sínum algera lítilsvirðingu með framkomu sinni.
Og þjóð sinni allri.















