Áfram Hjálmar.
Nú er komið að því að kjósa til sveitarstjórnakosninga. Það er alltaf spennandi að fylgjast með og spá í spilin. Ég styð Samfylkinguna í þetta skiptið, ekki bara vegna þess að ég er skráður í þennan flokk (stuðningur í við Jóhönnu í prófkjöri fyrir mörgum árum. JS er í fjölskyldu konunnar minnar. -Klassískt Ísland...) heldur líka vegna þess að hinir flokkarnir eru ónýtir. Slembiúrtak væri betra en t.d mannval Sjálfsstæðisflokksins. -Mikið betra.
Ég hvet fólk að velja á sína lista með eitt í huga og aðeins eitt. -Nýtt fólk! það er ekkert gott fyrir lýðræðið að fólk mosavaxi saman við skrifborðin sín í ráðhúsinu. Það er afar vont. Starf borgarfulltrúa á í mínum huga ekki að vera ævistarf heldur hluti af þroskuðu lýðræði fyrir allar borgarbúa.
-Lets face it......
Núverandi borgarfulltrúar hafa nú ekki verið að brillera á síðasta kjörtímabili. En eins og allir vita, þá var slegið met í ógeðslegri valdafíkn, samkrulli við (stórskulduga) miljarðamæringa og vondri stjórnsýslu. Skammarlegir snúningar og valdabrölt síðasta kjörtímabils, eiga að útiloka alla núverandi borgarfulltrúa frá frekari "þjónustu" (með miljón á mánuði) fyrir Reykvíkinga. -Punktur.
Einn er sá maður sem mér líst best á meðal Samfylkingarfólks sem sækist eftir öruggu sæti í prófkjörinu. Það er hann Hjálmar Sveinsson sem hefur getið sér gott orð sem útvarpsmaður undanfarin ár. Hann er glimrandi klár, vel máli farinn og laus við skrum (sem er einstakt fyrir stjórnmálamann)
Þetta eru samt ekki megin ástæðurnar fyrir því að ég styð Hjálmar. Ég styð Hjálmar vegna þess að hann er venjulegur maður. Venjulegur Reykvíkingur sem er (blessunarlega) laus við flokka-plottið.
Maður sem segir - Og gerir.
Ég dáist af hugrekki fólks eins og Hjálmars. Stjórnmál snúast ekki sýst um hugrekki venjulegs fólks sem hefur fengið nóg af duglausu stjórnmálafólki. Við höfum reytt okkur á biðraðaséni flokkanna sem byrjuðu að plotta svona 15 ára þegar það fékk að skúra gólfin í Valhöll eða á Hallveigarstöðum. Þetta fólk hefur reynst alveg óskaplega illa því (og takið þið nú vel eftir!) .......því að allar gerðir þeirra, öll stjórnsýsla miðast við að halda í fulltrúasætið í næstu kosningum. -That's it.
-Það er inntakið.
Svo rammt kveður af þessu smjaðri að þegar frysti eina nóttina í Reykjavík, sendi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins út fréttatilkynningu að Sjálfstæðisflokkurinn byði frítt á skauta á Tjörninni.
Svona fólk þurfa Reykvíkingar ekki. Ekki fleiri bullara. Ekki fleiri skrumara. Ekki fleiri spillingardindla. Ekki fleiri mosavaxna hrokagikki. Ekki fleiri smaðrandi flautaþyrla. Ekki fleiri maddömmur sem þykrir svoooo vænt um fátækta fólkið....
-Við þurfum bara venjulegt fólk eins og Hjámar Sveinsson.

14 Comments:
Ég man ekki eftir þessu. Hvenær sendi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá sér þessa tilkynningu varðandi ísinn á Tjörninni? Var það einhver núverandi fulltrúa þeirra eða er þetta eldra?
By
Stefán Pálsson, At
11. janúar 2010 09:32
Þetta var eitthvað PR um daginn þar sem kom fam að "vegna áskoranna borgarbúa" hefði borgarstjórn gert eitthvað til að fólk gæti skautað.
Frostið var eiginlega tekið út úr jöfnunni. :)
Þetta var frétt fyrir nokkrum dögum þegar frostið kom
By
Teitur Atlason, At
11. janúar 2010 09:35
Ókey. Þetta var sem sagt kynnt í boði borgarinnar en ekki Sjálfstæðisflokksins?
Og væntanlega hefur verið tekið smásvæði af tjörninni, það rutt og líklega sprautað vatni yfir til að fá góðan skautaís? Það er ekki nóg að það sé frost úti til að fá gott skautasvell.
Eitthvað segir mér nú að borgin hafi líka sent frá sér svona tilkynningar í tíð R-listans þegar rutt hefur verið svell á Tjörninni.
By
Stefán Pálsson, At
11. janúar 2010 09:46
Já eitthvað svoleiðs. Ég skal alveg trúa R-listainum til að eigna sér heiðurinn af frostavetrum ef að því er að skipta.
Smjaður við kjósendur á kosningaári er þverpólitískt fyrirbæri.
By
Teitur Atlason, At
11. janúar 2010 09:50

...öhh...
nú heyrði ég ekki þessa tilkynningu og veit ekki hvernig hún var orðuð - en það að vekja athygli á því að búið sé að ryðja svell á Tjörninni (og það er alls ekki gert í hvert skipti sem hana leggur) er nú ekki alveg það sama og að halda því fram að maður hafi framkallað frost í borginni. Eða hvað?
Nú kostar það bæði vinnu og útgjöld að útbúa svellið. Er það þá einhver sérstök dyggð að gera það í kyrrþey án þess að vekja athygli á að fólk geti komið niður eftir að renna sér?
By
Stefán Pálsson, At
11. janúar 2010 10:04
Hvernig getur þekktur fjölmiðlamaður verið "venjulegur maður" eins og þú orðar það?
Ég tel Hjálmar alls góðs maklegan en hann er náttúrulega fjölmiðlamaður og þess vegna þekktur fram yfir hinn venjulega jón.
By
Nafnlaus, At
11. janúar 2010 10:13
Teitur, þú ert með lögheimili í Svíþjóð og getur því hvorki tekið þátt í prófkjörinu né kosningunum sjálfum.
Þinn stuðningur við Hjálmar er þá svona meira andlegur stuðningur?
Nema þú ætlir að flytja lögheimili þitt til Rvk?
Hjálmar hefur flutt marga mjög góða pistla í útvarpinu.
AH
By
Nafnlaus, At
11. janúar 2010 10:24
Teitur - þú notar níu - níu - þankastrik í þessu stutta - mjög svo stutta - innleggi.
Er verið að gefa ókeypis þankastrik í Gautaborg?
By
Doddi, At
11. janúar 2010 11:19
Doddi, ert þú maðurinn sem telur þankastrikin?
Doddi, vissir þú að þú notaðir 39 sérhlóða í þínu innleggi?
AH
- Öðru nafni maðurinn sem telur sérhljóðana.
ps. Við ættum kannski að stofna samtök um þetta skemmtilega áhugamál okkar?
By
Nafnlaus, At
11. janúar 2010 11:34
hahaha...
"hinir flokkarnir eru ónýtir"
helv. gott, allavega miðað við val þitt...
kv,
Ólinn, þar sem hinir eru allir...
By
Nafnlaus, At
11. janúar 2010 12:02
Það sem ísland þarf á að halda núna er algjör yfirhalning á stjórnmálakerfinu, stjórnarskránni og stjórnsýslunni. Það fæst ekki með því að styðja fjórflokkinn, sama hvort er í sveitastjórnar eða alþingiskosningum.
Mér þykir þetta afskaplega sorgleg niðurstaða hjá þér.
Kveðja. Hörður Tómasson
By
Nafnlaus, At
11. janúar 2010 16:19
Jú Hörður. Breytingar á "kerfinu" eru fæddar til að deyja sem eitthvað spútnikframboð. Borgarahreyfingin drap endanlega þá von.
Um að gera að kjósa besta og ferskasta fólkið og láta hina mosavöxnu eiga sig.
By
Teitur Atlason, At
11. janúar 2010 16:22
This post has been removed by a blog administrator.
By
Nafnlaus, At
11. janúar 2010 20:50
Sendu inn athugasemd
<< Heim