EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

þriðjudagur, 26. janúar 2010

Björgvin G er óhæfur. - litið í baksýnisspegilinn

Flokkar:

4 Comments:

  • Í kringum hrunið var uppi þrálátur orðrómur um tengsl Jóns Ásgeirs við Samfylkinguna og þá ekki síst Björgvin G.

    Athygli vakti að þegar Glitnir var yfirtekinn þá átti Jón Ásgeir næturfund með Björgvini. Þá var kosningastjóri Björgvins, Sigurður G., einn af nánustu samstarfsmönnum Jóns Ásgeirs og er kannski enn. (Sami Sigurður G. og reyndi að draga úr trúverðugleika Evu Joly.)

    Í frægri grein, sem rituð var í ágúst 2008, þá kom Björgvin G. til varnar útrásarvíkingunum. Taldi þá helstu von Íslands og glæst framtíð þjóðarinnar og velsæld væri þeim að þakka.

    Í janúar 2009 var borgarafundur á Hótel Selfossi. Þar spurði ég Björgvin G. beint út hvort hann hefði þegið einhverja styrki frá hinum svokölluðu útrásarvíkingum eða þeirra fyrirtækjum. Björgvin brást hinn versti við og sagði að hann hefði einungis fengið lítilræði í styrki og þá bara frá nánustu fjölskyldu.

    Seinna kom á daginn að þarna fór hann með rangt mál og að minnsta kosti Baugur styrkti hann beint fyrir kosningarnar 2007.

    Ég tel að Björgvin G. verði einhverskonar "kanarífugl" fyrir trúverðugleika rannsóknarnefndarinnar og viðbrögð þingsins við henni. Sagan segir að kanarífuglar hafi verið notaðir til að kanna súrefni í námum. Þegar kanarífuglinn dó þá var hætta á ferðum.

    Ef Björgvin G. kemst klakklaust út úr þessu og verður enn starfandi þingmaður um næstu páska, þá er eitthvað mikið að.

    Jón Kr. Arnarson

    By Anonymous Nafnlaus, At 26. janúar 2010 11:06  

  • duh....
    en af því að stjórnmál á Íslandi snúast ekki um prinsipp heldur um smákónga og sjálftöku þá var best að hafa hann bara við spenanna áfram.

    By Anonymous Nafnlaus, At 26. janúar 2010 11:06  

  • Samfylkingin er óhæf og það er móðgun við réttlætiskenndina að þetta lið sé að ráðskast með hagsmuni Íslands. Sjáðu bara ráðgjafana og aðstoðarmennina! Burt með þetta lið

    By Blogger Jóhannes Laxdal, At 26. janúar 2010 11:10  

  • Ég tel að Jón Kr. Arnarson hafi hér lög að mæla.

    Ákveðin mælikvarði liggur fyrir.

    By Anonymous Nafnlaus, At 26. janúar 2010 11:33  

Sendu inn athugasemd



<< Heim