Brúðubíllinn kemur í heimsókn
Ég eins og sennilega flestir Íslendingar hef fylgst með fléttunni eftir forsetaneitunina í gær. Mér þykir ljóst að staðan hefur breytst verulega og ég, og sennilega enginn, veit hvar þessi ferð endar.
það eru nokkur atriði sem standa uppúr í þessu öllu saman. Fyrst að því veigaminnsta og um leið því fyrirferðarmesta. Það eru hinar reglubundnu og kjánalegu spekúlasjónir að ríkisstjórnin hafi klúðrað einhverju PR-mómenti þegar Ólafur Ragnar vító-aði Icesave2.
Allskonar sprelligosar þyrptust fram eins og leikskólakrakkar þegar Brúðubíllinn kemur í heimsókn. PR-gosarnir, klæddir maglitum pollagöllum og vopnaðir litlum skóflum kvökuðu hver í kappi við annan að Ríkisstjórnini væri að klúðra svon miklu tækifæri til að skýra út málstað Íslendinga.
Því miður þá tendraði þessi söngur einhverjar þræði í fávísum hugum fréttamanna sem gerðu heila frétt um hvað ríkisstjórnin væri ömurleg í PR.
Nú er það svo að sumir landsmenn búa í veruleikanum meðan aðrir dvelja langdvölum einhversstaðar annarsstaðar. Í veruleikanum gerðist þetta.
Forsetinn vító-ar Icesave2 og það er EKKERT sem hefði getað komið í veg fyrir að fyrsta frétt frá Bessastöðum til Hollands og Bretlands væri með stríðsletri. "'ÍSLENDINGAR NEITA AÐ BORGA".... Svo milduðust fyrirsagnirnar þegar leið á daginn og nokkuð furðuleg atburðarás átti sér stað (nokkuð sem ég kem að síðar)
það hefur ekki verið sjens í helvíti að breyta þessum fyrstu viðbrögðum breskra og hollenskra blaðamanna. Sa sem ekki skilur þetta, ætti að halda áfram að sulla í pollinum og leika sér á gröfunni.
Jæja. -Er þetta ljóst?
Annað sem gerðist meðal þessa PR-liðs var að það var kvartað yfir því að forsætisráðherrann okkar, Jóhanna Sigurðardóttir, gæfi sér ekki tíma með þessum blaðamönnum og brífaði þá um stöðuna.
Ég því miður var ég að drekka kaffi þegar ég las þetta og frussaði gómsætum sopa í agnarsmáum dropum yfir prentarann minn. Það kemur mér reyndar ekkert á óvart að PR-liðið lifi ekki í veruleikanum eins og við hin en ég bjóst ekki við að þau væru á pari við "Lilla apa" í Brúðubílnum, svo spélegt þótti mér þessi krafa.
Nú er það svo að það er hlutverk forsætisráðherra að upplýsa stöðu mála fyrir aðra þjóðarleiðtoga en ekki timbraðan blaðamann frá Jyllansposten. Sá sem ekki skilur þetta ætti að fara í "spýtur og dýr" í gulu-deildinni við hiðina á snögunum frammi. Það eru 3 ráðherrar sem mæðir á í upplýsingastarfsemi fyrir ríkisstjórnina. þessir þrír eru Steingrímur, Gylfi og Össur. Haldið þið að það sé tilviljun að ekki sé rætt við Svandísi eða Möller?
Þetta heitir stjórnun og Jóhanna er að leiða þessa stjórnun. Þessir þrír eru hörkunaglar sem ég myndi treysta fyrir hverju sem er. Jóhanna er EINMITT að gera það sem er rétt. Hún er að stýra og það er sorglegt að fréttamenn skuli glepjast af ævintýrum "Lilla apa" og félaga hans í Brúðubílnum þegar forsætisráðherra landsins á sviðið.
Það er athyglisvert í þessu ljósi að strax í gær var sent yfirlit frá Utanríkismálaráðuneytinu um hvað hefði verið gert eftir vító forsetans. það er nokkuð impressiv listi skal ég segja ykkur. Ég hvet ykkur til að lesa hann yfir.
Svo eru það viðbrögðin við vító-i forsetans. Herra minn trúr og allir englar himinsins með í bjölluskóm frá X-18 og íklæddir pastellituðum krumpugalla með herðapúðum drekkandi Epla-jóga með röri.
Ég hef bloggað um það áður að mér fannst eins og andstæðinar Icesave2 hefðu fengið svona "reality check" við vító-ið. Það eru orð að sönnu. Öll stjórnarandstaðan fékk hland fyrir hjarað og það mátti heyra viðrulega þingmenn tala sé í barm sér í upphrópuninni "hvað erum við eignilega búnir að gera". Sumir flissuðu yfir þessu barm-tali meðan aðrir létu hugann reika til Lilla apa, þegar hann hitti ljónið
En þetta gerðist nú samt og mér er til efs að nein stjórnarandstaða í Íslandssögunni hafi gert sig að meira athlægi en sú sem krafðist þjóðaratkvæðagreiðslu, og þegar hún fékk hana ,vill hún ekki þjóðaratkvæðagreiðslu.
Pétur Blöndal, sá sem flutti þingsályktunartillögu um að þjóðaratkvæðagreiðsla yrði að fara fram........ stendur nú sneyptur fyrir framan myndavélarnar og yglir sig við tilhugsunina um þjóðaratkvæðagreiðslu.
Á ég að gráta yfir örlögum þjóðarinnar að sitja uppi með svona lýðskrumandi gosum sem þingmenn. Eða á ég að hlægja af þessu sprelligosum sem kippast við og fremja sprell með útlimunum þegar kippt er í spotta.
Hvort skildi nú vera við hæfi. Ég held að taki kaldhæðnina á þetta og hlægi. Ástæðan er sú að ég hef hundrað sinnum bent á það í þessu bloggi að Icesave2 er einasta haldreipi Sjálfstæðisflokksins og inntak eftir Davíðshrunið. Hugmyndafræðin er í sprunginn eins og nýorpið napalm og flokkurinn afhjúpaðir sem spillingarbæli. Þingmenn hans flæktir hver um annan þveran í ömurlegustu aðstæður sem eru með þvílíkum ólíkindum að flippaðasti rithöfundur gæti ekki toppað delluna. Ég held að ég láti duga að minnast á 900 miljóna króna kúlulán Varaformannsins. . . . . . . . . . . -Sem var að sjálfsögðu afskrifað.
En núna standa þeir í stjórnarandstöðunni og líta hvor á annan og hafa ekki hugmynd um hvað skuli gera næst (því ekki vilja þeir þjóðaratkvæðagreiðsluna sem þeir grenjuðu í gegn). Standa eins og Max og Moriz og bíða eftir rassskellingunni. Það eina sem þeim datt í hug að segja eftir vító-ið var að PR mál ríkisstjórnarinnar væru í lamasessi!
Því miður afhjúpast með þessum ljóta leik sú staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn er tilbúinn að gera allt - óháð þjóðarhag - til að koma ríkisstjórninni í bobba og til að komast til valda. Mótívin eru þekkt sem og leikendurnir ....og hvíslararnir.
Þessi ofsi sem einkennir stjórnarandstöðuna og sú fölskvalausa valdafíkn sem nú afhjúpast hlýtur að vekja upp óþægilegar spurningar um hina raunverulegu ástæðu að baki þessu brölti. Fullvíst að það tengist skýrlsu rannsóknarnefndarinnar og ekki síst hvernig verður unnið úr þeim gögnum. Ég held að þótt að allt annað klikki, þá má uppgjörið vegna Davíðshrunsins ekki mistakast. Stjórnarandstaðan reynir nú sem hún má að klekkja á ríkisstjórninni og er tilbúin að tegja sig ansi langt í þeirri viðleytni sinni. Með þeim spélegu afleiðingum að þegar gengið var að kröfum stjórnarandstöðunnar, þá fór allt í baklás og kröfurnar voru orðnar "alltof hættulegar".
Nú er ég búin að skennsa stórnaranstöðuna og aðalatriðið eftir. Þætti forseta Íslands. Ég er ekki í aðdáendaklúbbi Ólafs Ragnars en ég held að honum sé að takast hið ómögulega. Honum er að takast að þjappa þjóðinni bak við sig. Hann er maðurinn sem er búið að bíða eftir í heilt ár. það var þá Ólafur sjálfur sem stökk fram. Hver hefið búist við því? Ef að Ólafi tekst að vinna málstað Íslendinga enn frekara fylgis, mun hann ekki bara bjarga æru sinni og starfsheiðri, hann mun lika bjarga embætti forsetans (sem margir þ.m.t ég) vilja burt úr stjórnarskránni.
Óhætt er að segja að uppi er komin ný staða. Ég veit að ef það farið verður í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu verur Icesave2 gersamlega sprengt í burtu. Lengst til andskotans. Því þegar öllu er á botnin hvort þá verður spurt um þetta.
A: Viltu Icesave2
B: Viltu semja upp á nýtt.
Það er varla hægt að tapa á því að semja upp á nýtt og versta útkoman gætur bara verið jafn vond og Icesave2. Sérstaklega í ljósi þess að hið ótrúlega er að gerast, nokkuð sem ég taldi bara fáránlega draumsýn. Með einu risa stóru nei-i frá Íslandi, erum við líka að hrópa nei fyrir þegna allra annara þjóða sem bankageirinn hefur leikið grátt. Þegnar annara landa, sérstalega í bretlandi og Írlandi, eru að bíta úr nálinin af nákvæmlega sömu málum og við, nema þeir fóru ekki á hausinn, þeir BORGUÐU undir þetta hyski með peningum sem komandi kynslóðir munu á endanum borga. Með risastóru nei-i erum við ekki bara að benda á óréttinn með að borga skuldir einkafyrirtækis (ég er ekki að segja að við ættum ekki að borga) við erum líka að benda á kerfið sem hugsar ALLTAF fyrst um bankana og svo um fólkið. Þessu þarf að snúa við. Mig dreymdi ekki einu sinni að slíkt væri hægt en ég glitti í þá lausn.
Nú verðum við að hætta að rífast (já ég líka) og senda okkar besta fólk út um allar koppagrundir og gera þeim ljósa stöðu okkar Íslendinga. Við eigum líka að fá alla sem eru velviljaðir, okkur með okkur í lið.
Þó að hugtak eins og samstaða sé kannsi ekki töm í munni Sjálfstæðismanna og frasar á borð við "frelsi einstaklingsins", bragðist betur, er ljóst að þeir í þessu máli hafa Sjálfstæðismenn rétt fyrir sér. Þeir eru búir að gera í buxurnar en þeir eru í alvöru að hrópa "skeinó".
Auðvitað er þeirra ranglæti vont og þeirra réttlæti verra, en það er nauðsynlegt að staldra við og hugsa þetta mál alveg upp á nýtt. Forsendur hafa breystst.
-Borðið hefur snúist.

13 Comments:
Seinni hluti bloggsins flottur. Fyrri hlutinn hefur of mikið púður á stjórnarandstöðu-ömurleikann.
Magga
By
Nafnlaus, At
8. janúar 2010 09:25
Allur pistillinn flottur. Fólk má ekki gleyma því fyrir hvaða hagsmuni Sjálfstæðisflokkurinn er að berjast.
By
Heiða B Heiðars, At
8. janúar 2010 09:34
Sæll Teitur. Það er hægt að taka undir margt í málflutningi þínum. Það er hinsvegar undir lokin sem mér finnst þér fatast flugið. Þú gefur upp kosti í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem þessa: "viltu samþykkja samninginn eða semja upp á nýtt?" þetta er sami málflutningur og hjá vinum þínum "lýðskrumurunum". Þú segir "Það er varla hægt að tapa á því að semja upp á nýtt og versta útkoman getur bara verið jafn vond og Icesave2." Sem sé þú húðskammar "lýðskrumarana" en vilt svo fara þá leið sem þeir vilja. Er þetta að vera samkvæmur sjálfum sér?
Hvaðan hefurðu það að það sé hægt að "semja upp á nýtt"? Og segjum svo að við færum í samninga og það sem við fengjum væri einfaldlega Icesave2? Hvað viltu að miklum tíma verði varið í að sitja áfram uppi með hugsanlega Icesave2? Ef þú hefur kynnt þér Icesave2 svona vel viltu ekki segja okkur hvað er svona "vont" við samninginn"? Að því frátöldu að við þurfum að borga, sem er frekar bölvað, en verður varla komist hjá.
Staðan er sú Teitur að þessu máli þarf að fara að ljúka. Viðsemjendur okkar hafa gengið jafnlangt og þeir töldu sig geta. Það þarf að halda áfram uppbyggingu og að fara að fresta málinu enn einu sinni (ég held að það séu allir sammála um að við þurfum að borga) verður þegar upp er staðið dýrara en ella.
By
Nafnlaus, At
8. janúar 2010 09:37
Það er enginn leiðtogi í þessari í ríkisstjórn, nema Steingrímur Joð, hann er klárlega stálið í þessu, en af hverju hann er ekki bara forsætisráðherra og þessu punti sleppt er óskiljanlegt.
Allir úti nema hún, og ekki talar hún við fólkið... jú reyndar, hún muldraði eitthvað ofan í A4 blað þarna í vikunni, allt saman mjög hughreystandi og leiðtogalegt, og eins og einhver sem að tryði virkilega því sem hún sagði?
Talar hún við einhvern?
Gæti kannski e-meilað okkur?
Áfram Ísland, búúúú á flokkapot...
KOMA SO
btw: ætlar þú að SWIFTA okkur þinn hluta af IceSave greiðslunni, þegar samningur verður loks undirritaður? ;þ
Gunnar G.
By
Nafnlaus, At
8. janúar 2010 10:21
Þetta er valid punktur. ÉG skamma lýskrumarana en tek undir málflutning þeirra.
Málið er ekki alveg svona einfalt. Lýðskrumararnir (og við hin) stóðu allt í einu uppi með þá staðreynd að borðið hafði snúist. Reyndar ekki alla leið en um nokkrar gráður.
þess ber varla að geta að skrumararnir átti ekki von á þessu og þessi staðreynd (að eitthvað hafði breysts) er þeim óbeint það þakka. Þeir sáu aldrei fyrir sér að Ólafur myndi vító-a lögin.
Fyrir mér er staðan þessi. Kosningar um Icesave2 eru um þetta:
a: Slappann saming
b: Möguleika á betri samining
Sérstaklega athyglisvert i ljósi þess að almenningsálitið er að snúast okkur í vil og að þjóðin er byrjuð að þjappa sér saman.
Því miður. Við erum á byrjunarreit.
By
Teitur Atlason, At
8. janúar 2010 10:24
Sæll Teitur.
Við erum ekki að fara að semja við almenningsálitið. Þessi míta að almenningsálitið hafi áhrif á samningsaðstöðu er bara það. það að þjóðin þjappi sér saman hefur nákvæmlega engin áhrif á samningsaðstöðu okkar. Þetta tal er reyndar málflutningur Simma og Bjarna sem þú gagnrýnir svo.
Þú segir "slappann samning", en vilt ekki segja hvernig hann geti orðið betri eða hvort það sé yfirleitt raunhæft að við fáum betri samning. Við getum samið endalaust við okkur sjálf og snúist í hringi en þegar upp er staðið þá eru þarna viðsemjendur og ég held að þeir telji sig í ansi sterkri stöðu. Eftir því sem mér skilst þá hafa t.d. bretar þurft að leggja út ákveðinn fjármagnskostnað til að borga fyrir út Icesave reikningana. Mér finnst varla raunhæft að þeir geri annað en að fara fram á að við greiðum þann kostnað.
Málið er ekki svo flókið. Okkur var dyfið í fúlan pytt. Við létum það yfir okkur ganga meðan allt gekk vel. þar með sitjum við uppi með ábyrgðina. Að tala um "slappann samning" og einhvert óljóst blaður um betri samning er að mínu mati mjög nálægt málflutningi "lýðskrumarana", sérstaklega þegar það er svo til ekkert að baki.
FB (gleymdist áðan)
By
Nafnlaus, At
8. janúar 2010 11:00
Nú er ég svo aldeilis hlessa. Ég er byrjaður að hljoma eins og kalla-barnið.
Mín tilfinning er að það séu svo margir lausir endar í þessu máli, eins og t.d Ragnars Hall-ákvæðið sem setur málið í annarlegt ljós.
Vissulega á að standa við samninga en í þessu tilfelli finnst mér að t.d vaxtakostnaðurinn ætti að deilast niður á alla viðsemjendur.
Sem væri frábært.
Eignir LB munu t.d ná að dekka um 90% af öllum kostnaðinum þannig að 10% stendur eftir. Það er vaxtakostnaðurinns sem er að sliga okkur. Vextirnir (5.5%) eru t.d miki hærri en húsnæðisvextir hér í Svíþjóð (þeir eru á milli 0.5% og 1%)
Það væri glapræði að reyna ekki til hins ýtrasta að fá fram betri samning.
By
Teitur Atlason, At
8. janúar 2010 11:08
Alveg hreint frábær pistill. En við vorum samt ekki að uppgötva neitt nýtt í sambandi við Sjálfstæðisflokkinn.
http://wp.me/pIMPE-6Z
Ástæða er til að hafa áhyggjur af uppgjörinu við Davíðshrunið þegar fjármálaráðherra talar eins og þjóðin komist ekki af án Björgólfs Thors Björgólfssonar.
Það verður ekkert uppgjör nema almenningur láti finna fyrir sér. Það var almenningur sem opnaði leið fyrir forsetann, en ekki öfugt.
By
Hjörtur Hjartarson, At
8. janúar 2010 11:58
Vopnin munu snúast á ný í höndum okkar. Vitið til. Og íslenski hrokinn er auðvitað strax farinn að stæra sig í koki manna sem virtust vera með fulla fimm áður. En þannig er nú mál með vexti: Blaðamenn úti munu bráðum komast að því að hér er engin glæst lýðræðishefð fólksins (þeas þjóðaratkvæðagreiðsla um deilumál) og sjá að Íslendingar eru í raun og veru að reyna losna við að borga skuldir sínar. (Þær raddir munu hækka núna á næstu dögum: Við borgum ekki skuldir óreiðumanna...). Ég held líka að Brown og Darling séu þessa stundina að búa til sprengjupakka sem mun verða kynntur á næstu dögum, og í þeim sprengjupakka komum við til með að líta út einsog asnar. Að halda annað er einfeldni. Ef ekki nákvæmlega þetta þá eitthvað álíka. Eitt og annað á líka eftir að gerast sem mun jafnvel gera okkur Íslendinga að hálfgerðum ,,Hafnfirðingum" Evrópu... Bíðið bara. Auðvitað vona ég að svo fari ekki, en ég held að gamla Evrópa eigi eftir að draga fram ýmis spil úr erminni...
By
Nafnlaus, At
8. janúar 2010 13:23
Sæll Teitur. Vextir af húsnæðislánum í Svíþjóð eru alls ekki sambærilegir við vexti í alþjóðalegum lánaviðskiptum. Eða stýrivextir í Bretlandi sem eru ef ég man rétt hálft prósent. Gleymum heldur ekki að sýrivextir á Íslandi eru 10% og svo höfum við blessaða verðtrygginguna.
Má vera að okkur þyki sanngjarnt að bretar taki á sig frekari kostnað með að deila með okkur vaxtagreiðslunum. En það verður að teljast afar ólíklegt.
By
Nafnlaus, At
8. janúar 2010 13:54
Skil ekki menn sem tala um spil úr erminni. Hér bíða allir eftir rannsóknarskýrslu. Almenningur vill öll spilin á borðið.
By
Nafnlaus, At
8. janúar 2010 16:38
Það er nokkuð víst að þegar skýrsla Rannsóknarnefndarinnar kemur út (síðasta lagi 1. feb) þá mun koma þar ýmislegt fram sem bregður algjörlega nýju ljósi á Icesave. Og þar komum við ekki vel út. Trúið mér. Og það verður spil sem Bretar og Hollendingar eiga eftir að nota. Þetta spil er upp í erminni á þeim núna og þeir bíða eftir að geta notað það.
By
Nafnlaus, At
8. janúar 2010 17:27
Jóhanna að stjórna! Þú hlytur að vera grínast því Steingrímur J er skipstjórinn. Samfylkingin lítur út eins og allsherjar brandari í öllu þessu máli. Forsetinn gerði hárrétta hluti og er búinn að brillera við berjast fyrir málstað íslands meðan samfylkingin er í geðvonskukasti og panikk yfir esb-ruglinu. Ég held að þjóðin kolfelli þessi heimskulegu lög byggð á klúðri Svavars Gestsonar.
By
Nafnlaus, At
8. janúar 2010 22:52
Sendu inn athugasemd
<< Heim