EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

miðvikudagur, 27. janúar 2010

DV er langbesta blaðið

Ef einhver hefur ekki tekið eftir því þá er DV að blómstra þessar fyrstu vikur ársins. Hver fréttin á fætur annari styðja það og undirstrika að DV er besta blað landsins um þessar mundir.

Ekki bara besta blaðið, heldur lang-besta blaðið.

Ég er sannfærður að DV hefur fundið sitt Watergate með samblæstri Formanns Sjálfstæðisflokksins og ræningjanna sem tæmdu bótasjóði Sjóvár.

Þessu máli er ekki lokið og getur bara farið á einn veg.

9 Comments:

  • DV er sorprit. Hvar er umfjöllun um Pálma í Fons ? Hvar er gagnrýninn að Jón Ásgeir. Hvar er umfjöllun um Hrein Loftsson, eiganda blaðsins og stjórnarformann Baugs. Kröfur í Baugsþrotabúið nema 300 milljörðum. Það eru hálf fjárlögin á Íslandi.
    Rannsóknarskýrslan kemur hlutunum í samhengi, eflaust nagar eigandi blaðsins neglurnar á hverjum degi þar til skýrslan birtist. Gagnrýni á formann Sjálfstæðisflokksins er sama fréttin blóðmjólkuð dag eftir dag, ekkert nýtt en alið á tortryggni og vantrausti. Maðurinn kom ekki nálægt þeim ákvörðunum sem eru umdeildar. Punktur.

    By Anonymous Nafnlaus, At 27. janúar 2010 23:39  

  • Dv er best , sammála.

    Fréttablaðrið og hitt blaðrið er sorp.

    By Anonymous Nafnlaus, At 27. janúar 2010 23:55  

  • Sammála.
    DV stendur vaktina. Byltingin fer fram í bloggheimum og í DV !

    By Anonymous Nafnlaus, At 28. janúar 2010 01:15  

  • Dv rokkar feitt. Fyrir utan þýddar fréttir af erlendum ömurleika um viðbjóð framinn á börnum. Þoli það ekki. Annars væri ég áskrifandi.

    By Anonymous Nafnlaus, At 28. janúar 2010 05:57  

  • Síðan hvenær fór DV að vera gott blað.? Mér er spurn.
    Ef þið lítið yfir farinn farveg, þá getið þið séð hvernig hann er ílla grýttur.
    Jafnvel! er blaðinu treystandi,
    eða eins vel treystandi og því var í aðdragandi hrunsins, og aðdragandin tók nokkur ár.
    Munum það að þar var farið hjáleið undir stjórn vinstri manna og eigenda DV í þeirra þágu.
    Hvar var upplýsingarskylda þeirra
    sem ráku og studdu DV.

    By Anonymous Nafnlaus, At 28. janúar 2010 09:08  

  • Allt sópað undir teppið hjá eigenda, til að hylma yfir vinina.

    By Anonymous Nafnlaus, At 28. janúar 2010 09:11  

  • Hvers vegna var Sigríður Benediktsdóttir ekki með kallpungunum á fréttamannafundinum um frestun skýrslunnar?

    By Anonymous Nafnlaus, At 28. janúar 2010 09:11  

  • Hann var FRAMSÝN sá aðili sem ákvað að láta RÁNFUGL vera tákn Sjálfstæðismanna, þetta siðblinda lið þeirra fer um "ruplandi & rænandi" færandi "kvóta, banka & annað yfir í hendur á útvöldum fjölskyldum sem eru innmúraðar í spillingu FL-okksins..lol...!" Þegar þingmenn þeirra brjóta "lög & reglur landsins" þá segja þeir allir sem einn: "...við vissum ekki betur, vorum í góðri trú, okkur urðu bara á tæknileg mistök...lol..!" Samansafn af siðblindum aumingjum, því miður. SjálfstæðisFLokkurinn ætti að hafa VIT á að fara í smá HREINSUN...!

    By Anonymous Nafnlaus, At 28. janúar 2010 09:25  

  • Gerist þá áskrifendur.

    By Anonymous Hjörtur Hjartarson, At 28. janúar 2010 11:07  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim