Guðrún á bara að þegja.
Mikið er sorglegt að sjá fólk naga sig fast við einhverjar stöður hér og þar. Þessi Guðrún á ekkert þessa stöðu og á að líta á endurnýjun sem eitthvað sem er gott fyrir allt samfélagið og alla stórnsýsluna.
Halda smá partí og segja takk og bless. Fá sér sígó og slurk af kláravíni í Freska og barasta þegja.
Nú er tími endurnýjunar og það er bara fínt að fá nýtt fólk þarna inn og frekar súrt að Mörður skyldi hafa verið valinn því urmull er til að fólki sem vill leggja sitt á vogarskálarnar í sókninni að betra og réttlátara Íslandi.
Mörður er ágætur en það er þarna var ástæða til að fá inn nýtt fólk. Það skipun Marðar er samt skárri en að mosagróin kvennalistakelling skyldi ná að naga sig inn undir stólbaks-fóðrið á einhverjum stól sem er eign skattgreiðenda.
-Fyndið að hún skuli sprikla við þessi ofur-eðlilegu skipti.
Halda smá partí og segja takk og bless. Fá sér sígó og slurk af kláravíni í Freska og barasta þegja.
Nú er tími endurnýjunar og það er bara fínt að fá nýtt fólk þarna inn og frekar súrt að Mörður skyldi hafa verið valinn því urmull er til að fólki sem vill leggja sitt á vogarskálarnar í sókninni að betra og réttlátara Íslandi.
Mörður er ágætur en það er þarna var ástæða til að fá inn nýtt fólk. Það skipun Marðar er samt skárri en að mosagróin kvennalistakelling skyldi ná að naga sig inn undir stólbaks-fóðrið á einhverjum stól sem er eign skattgreiðenda.
-Fyndið að hún skuli sprikla við þessi ofur-eðlilegu skipti.


13 Comments:
"Vandræðalega fyndið að þurfa að hlusta á þetta LIÐ. Þau haga sér eins og leikskólakrakkar "give me give me give me mOre...mOre...!" Eða "nú er komið að mér að fá eitthvað...!" Flest okkar stjórnmálaflólk er í raun bara sjálftökulið á opinbert fé - það er í stjórnmálum til að komast á ríkisspennann, ekki út frá hugsun eða láta gott af sér leið. Sorglegt lið, og vægast sagt spilt..!
By
Nafnlaus, At
26. janúar 2010 19:44
Þetta dæmi er alveg makalaust. Í því kristallast rugið og viðhorfið til opinberra stöðuveingina. Fyrst og fremst er litið á opinberar stöður sem dúsur hverskonar en ekki vinnu eða hlutverk sem þarf að ynna að hendi.
Þetta lið er alveg ótrúlegt. -Það er satt.
Samfylkinin verður að taka til í eigin ranni. Skítt með Sjálfstæðið og Framsókn. -Það eru bófasflokkar.
En maður á að gera kröfur til Samfylkingarinnar.
By
Teitur Atlason, At
26. janúar 2010 19:49
Ég held persónulega að Mörður sé einn fárra í Samfó og pólitík yfir höfuð sem sé heill í því sem hann gerir. Hann hefur vondandi sætt sig við 8000 krónu greiðslu á mánuði í stað þeirra 40.000 þúsunda sem Guðrún fékk.
By
Nafnlaus, At
26. janúar 2010 19:53
Sammála um Mörð. Hann ber af gamla liðinu.
By
Teitur Atlason, At
26. janúar 2010 20:10
Pffft! Þetta er allt sama tóbakið. Tækifærispólitíkusar sem hygla hver öðrum þegar þeir geta. Mörður hefur átt eitthvað inni hjá Árna Páli. Mörður er ekkert skárri en aðrir í Samfylkingunni sem er með allt niðrum sig í endurreisn þjóðfélagsins og hlægilegri skjaldborginni um heimilin. Af hverju þurfti endilega að ráða einhvern innvígðan og innmúraðan í Samfó?
Nýja Ísland hvað?
By
Nafnlaus, At
26. janúar 2010 20:19
Þetta eru alltaf vinaráðningar. Uppsagnir á rúv voru þannig að vinir yfirmannsins héldu vinnunni frekar en þeir sem lengur höfðu starfað.
Kerfið breytist ekki ef vinstri flokkarnir ætla að viðhafa sömu vinnubrögð. Sannar söguna um að fjórflokkurinn sé sami skítur í sömu skál.
By
Nafnlaus, At
26. janúar 2010 20:45
Það er með ólíkindum að þetta mál skuli vera frétt, svona yfirhöfuð. Árna Pál þekki ég ekki neitt en hann virðist vera drengur góður og vel greindur eins og bróðir sinn. Skiptir í raun ekki hvaða flokk viðkomandi styður meira hvort eitthvað vit er í því sem gert er. Er ekki ekki harður stuðningsmaður stjórnar, svo það sé sagt en þau eru þó allavega að reyna sitt besta, svo er spurning hvort það dugir.
By
Þröstur, At
26. janúar 2010 20:50
Sammála!
Guðrún Ögmundsdóttir hefur nógu lengi þegið bitlinga fyrir að vera til og ætti að sjá sóma sinn í að halda KJ.
Hún minnist ekkert á hlutverk sitt en talar því meira um launin.
Skammastu þín Guðrún
By
Nafnlaus, At
26. janúar 2010 21:05
Algjör brandari ef þú heldur að Samfylkingin sé eitthvað minna spillt en hinir flokkarnir. Aldrei hefur spillingin verið meiri en nú, Skúli Helgasson að kaupa hús af skilanefnd á 50000 kr fermeterinn sem er 1/6 af raunvirði. Mannaráðningar út um allt stjórnkerfið af vinum og vandamönnum. Teitur þú ert blindur.
By
Nafnlaus, At
26. janúar 2010 21:33
Mér skilst nú að ekkert athugvert hafi verið með þessi kaup Skúla nema bara taktleysið í því að kaupa sér 73 miljón króna hús í skuggalegasa fasa, dýpstu kreppu íslandssögunnar.
Hann mun hafa skýrt þetta ágætlega út sjálfur.
Taktleysið er hinsvegar yfirgengilegt.
By
Teitur Atlason, At
26. janúar 2010 21:58
Mörður Árnason -
ENDURNÝJUN??????
Þessi gamli pólitíski refur sem finst ok, að taka henda gömlum kellingum út í vetrarhagan án þess að hún eigi nokkurn andmælarétt.
Þetta er Samfylkingin eins og venjulega.
Vinaráðningar. Ekki Hæfnisráðningar.
By
Nafnlaus, At
26. janúar 2010 22:03
Teitur, ég skil ekki hvernig þú nennir að verja Samfylkinguna og ógerðir hennar alltaf stöðugt.
Samfylkingin er orðin spilltasti flokkur Íslandssögunnar.
Endalausar pólitískar vinaráðningar gerir Samfylkinguna að stærstu vinnumiðlun landsins.
Og Samfylkingin sér um sína. Það hefði verið skárra að ráða einhvern annan en hann (Lyga)Mörð.
By
Nafnlaus, At
27. janúar 2010 00:04
Nafnlaus 0004. Eruð þér ölvaður? Eruð þér læs? Skilur ekki það sem ég er að skrifa?
Er ég að verja Samfylkinuna?
Ef þú ert drukkinn, eða ef þú ert ólæs, þá vinsamlega ekki koma með athugasemdir.
By
Teitur Atlason, At
27. janúar 2010 00:11
Sendu inn athugasemd
<< Heim