Hey...... Eigum við ekki að hætta þessu?
Ég held að ég hafi tekið alla mögulega málstaði í Icesavemálinu. -Svei mér þá. Þetta er svo erfitt mál að ég held að verra mál fyrir þjóð að ákveða er útilokað. Það eru svo margar breytur í því að ég held að hvernig sem fer, þá fer þetta mál einhvernvegin hroðalega.
Því miður varð þetta mál strax pólitískt og hagsmunir flokkanna voru strax teknir fram fyrir hagsmuni þjóðarinnar. Skrumið hleypur fram eins og fúllt jökulhlaup. Veikir stjórnmálaleiðtogar nota þetta mál ýmist til að bjarga vonlausum málstað sínum eða vona að þetta mál muni kynda undir þjóðernisrembing sem gæti fleytt þeim í áframhaldandi atvinnusaming á Alþingi.
Þetta er alveg voðalegt.
Það sem er svo sorglegt er að eignir LB duga fyrir 90% af skuldbindingunum (20.000 evrur á hvern reikning). 90% góðir lesendur! Restna þurfum við að borga eða um 2000 evrur á reikning). Þetta lítur bara vel út ekki satt?
Jú vissulega, en við fáum lánað fyrir þessari upphæð en vextirnir eru byrjaðir að tikka og gera það í uns skuldin er greidd upp, eða uþb eftir 15 ár! Það eru því vextirnir sem eru stóra málið í þessu máli. Óumdeilt er að við ætlum að borga þótt sumir stjórnmálamenn haldi því fram, öðru hvoru, að við ætlum ekki að gera það! Skrum-liðinu er nefnilega sama um eigin æru sem og æru þjóðarinnar. Það eina sem stýrir þessu fólki þvi er að reyna að koma höggi á ríkisstjórina, hvað sem það kostar.
Ef við förum þá leiðina sem sumir vilja, (að borga ekki) þá ættu nokkur atriði að vera á hreinu. Það verða alvarlegar afleiðingar af því hvað sem hver segir. Batikmussu Birgitta heldur því alltaf fram að ekkert gerist og raðar sér í lið með Hannesi Hólmsteini hvað þessa afstöðu varðar.
Enn og aftur vara ég við því þegar ysta hægrið og ysta vinstrið verða sammála um eitthvað.
Ég vil minna á að ef þessi leið verður farin (að borga ekki) eru neyðarlögin í uppnámi. Neyðarlögin sem voru sennilega mestu mistökin í allri mistaka hrinunni á þessum örlagaríku dögum. Neyðarlögin sem mismunuðu reikningseigendum eftir því í hvaða landi þeir bjuggu. Þessi hroðalegu neyðarlög verða pottþétt dregin fyrir dóm með ókunnum afleiðingum fyrir Ísland.
Sem betur fer þá held ég að lang flestir landsmenn vilja borga þessa Icesave skuld. það kann að vera lagalega á gráu svæði (einhver sagði 40%líkur á sigri fyrir dómstólum) og að reglugerðir ESB séu líka á gráa svæðinu og að þetta hefði verið svona og svona. Sú ákvörðun UK og NL að greiða út tapaðar upphæðir reikningseiganda (NL að hámarki 100.000 evrum og UK alla upphæðina) er skiljanleg, en þeir hefðu ekkert þurft að gera þetta því að lágmarki var jú 20.000 evrur! Svona dæmi eru út um allt í máli viðsemjenda okkar. Þeir eru hræddir við að fara með málið fyrir dómstóla. Hvernig skyldi standa á því?
Þeir senda svo reikninginn til Íslands sem sannarlega hefur siðferðislega skyldu að greiða, en ekkert endilega lagalega skyldu. Ef að þetta hefðu verið bandarískir reikningar, hefðu bandarískum stjórnvöldum sennilega ekki verið sendur reikningurinn. Ekki heldur ef þetta væru franskir reikningar. Það eru því ýmis atriði sem styðja það rökum (veikum að vísu) að Íslendingar eigi ekki að borga krónu. Hinsvegar eru töluvert sterkari lagarök fyrir því að seðlabankar viðkomandi landa bakki upp innistæðusjóði ef í harðbakkann slær. Þetta hefði verið hægt að semja um ef að hrunsmeistarinn hefið ekki sagt í sjónvarpinu, framan í gapandi Hollendinga og Breta að Ísland ætlaði ekki að borga. Ekki að standa við skuldbindingar sínar.
Staðreyndin er hinsvegar og hún er óyggjandi, að Íslendingar klikkuðu. Íslenskt eftirlitskerfi (sem er á ábyrgð okkar allra) klikkaði. Íslenskir stjórnmálamenn (Davíð Oddson innifalinn) sem áttu að sjá það fyrir að Seðlabankinn hefið aldrei getað bakkað upp Icesave reikningana. Ómundeilt er líka að Íslendingar skrifuðu upp á að ábyrgjast 20.000 evrur á hvern reikning. Siðferðislegu rökin eru hvað sterkust í þessu máli og þau eru líka hvað "verðmætust" Orðstýr er ómetanlegur og ekki vildi ég ala börnin mín uppi í landi sem álitið er ræningjabæli. Ég veit að sumum fyndist það vera merki um þjóðlegan styrk og ættjarðarást en svo er ekki um mig farið. Ég hvet alla til að lesa greiningu Jóns Baldvins á þessu ömurlega máli. Það er ekki skrýtið að þeir sem eiga alla ábyrgð á Icesave, hrópi nú sem hæst um að þjóðin þurfi ekki að borga.
Nú er það meir að segja svo að þungaviktarmaður í íslenskri þjóðmálumræðu vill að bakkað verði aftur til ársins 1960 í þróunarlegu tilliti og landinu beinlínis lokað. Þessi skoðun sýnir kanski best hve hægrið er ofsafengið í afstöðunni til þessa máls.
Hægrið blandar oft inn í umræðuna inngönguviðræðum Íslands við ESB og segir Samfylkinguna láta allt yfir sig ganga svo fremi sem að viðræðurnar fái að hafa sinn gang. Þetta er nokkuð ósanngjarnt en dellan er, og vitleysan er að hafa alla þessa bolta á lofti í einu. Farsælast væri að draga þessa samninganefnd til baka og setja allar viðræður í frost, uns slökkvistarfinu lýkur hér heima.
Því miður er það svo að margir, bæði stjórnmálamenn og gerendur í hrunadansinum, hafa mikinn hag af því að eldar logi sem víðast um samfélagið. Þeir berja sér á brjóst og eru tilbúnir til þess að taka hvaða afstöðu sem er í þessu máli, svo fremi sem hún skaðar ríkisstjórnina. Þessi viðræðunefnd er olía á óeiningarbálið. Sjálfur er ég mikill evrópusinni en þetta er taktlaust í núverandi stöðu og enginn vandi að hefja viðræður að nýju eftir að brennuvargarnir hafa ekkert að gleðjast yfir og hræsnisfullir og skumslælandi stjórnmálamenn gráta eldana sem loguðu í landinu.
Eins og ég talaði um hér ofan snýst Icesave, hvað Íslendinga varðar, um vextina. Ég óska þess innlega að við náum samkomulagi við Hollendinga og Breta í samfloti við ESB að allir deiluaðilar myndu splitta vöxtunum á milli sín. 5,5% vöxtunum verði deilt niður á 4 málsaðila. Breta, Hollendinga, ESB og Ísland. Með því móti stöndum við við samninga og leysum málið á þokkalegan hátt (munum að eignir LB duga fyrir 90% skuldanna).
Ég upplifa kröfur UK og NL stundum þannig eins og ef að krakkinn einhvers manns brýtur rúðu í hjá nágrannanum. Faðirinn segist eiga alveg eins rúðu í kjallaranum sínum sem passar í gluggann en hann ætli að greiða sjálfur opnanlega fagið (10%). Ok segir nágranninn. Pabbinn tekur síðan eftir að nágranninn hefur pantað lið frá Glerborg sem er að glerja allt húsið!. Reikningurinn er síðan sendur fjölskylduföðurnum og fyrsti greiðsludagur er eftir 7 (síðasti eftir 15 ár) ár en vextir eru greiddir allan tímann!
Það er eitthvað meira en lítið að þessari mynd. Ég veit að við þurfum að borga, en þetta er bara rangt. Alveg eins og þegar einhver bakar upp hjá manni og tilkynnir að fjölskyldan skuldin núna 4,8 miljónir. Ha? gæti einhver sagt. Já það er vegna "Icesave". Ég hafði ALDREI heyrt af Icesave fyrr en í hruninu og ljóst var að fjölskyldan mín skuldaði 4,8 miljónir. Hvað er að kerfinu sem gerir þetta mögulegt? Það er svo grátlegt að Sjálfstæðisflokkurinn, sem á Icesave með húð og hári (þeir neita því ekki einu sinni sjálfir), skuli í ofanálag við þennan hroða, mælast stærsti flokkurinn trekk í trekk.
-Fólk ER fífl.
Við ættum að taka ráðum ýmiss málsmetandi fólks eins og frú Joly og setja saman samningshóp og reyna að fá, með fulltingi ESB, Breta og Hollendinga að samningaborðinu aftur. Hvort þeir vilja tala við okkur er önnur saga, en við ættum a.m.k að reyna. Málstaður okkar hefur skyndilega meðbyr og það furðulega er að hann kemur frá vinstri.
Almenningur í Evrópu sem bitið hefur úr nálinni vegna hins gegnumrotna bankabransa, skilur okkur. Hann skilur að Icesavemálið er ekki einkamál Íslendinga og við eigum ekki ein að bera allan kostnaðinn af því.
Evrópa er komin með upp í kok af bankaliðinu. Ofurlaunaliðinu sem sett hefur samfélögin þeirra á hliðina. Bankabransinn er svo spilltur og svo óskammfeilin að hann krafðist (og fékk það í gegn) að almenningur borgaði fyrir fúsk og klúður ríkasta 1% samfélagsins þegar stefndi í að bankarnir myndu fara á hausinn! Sama átti sér reyndar stað á Íslandi í svipaðri mynd þegar opinberu fé var dælt inn á reikninga ríkasta 1% á Íslandi í peningamarkaðssjóðunum.
Vesalings Bretar horfðu upp á það að björgunarpakkinn (skattfé) var notaður í að greiða BÓNUSA til bankaliðsins. Evrópskir almenningur hefur skilning á málstað okkar þó ég sé ekkert viss um hvernig stjórnkerfið eða bankakerfið tekur kröfum okkar.
Ég held að kosningar um þetta mál séu tímaeyðsla, kostnaðarsöm tímaeyðsla. Ég veit heldur ekkert hver staðan er ef að þjóðin hafnar Icesave2? Hvað þá? Enn eitt árið í umræður um þennan hroða. Umræður sem hafa stíflað allt uppgjör (mörgum til ómældrar gleði) og klofið þjóðina í herðar niður á versta tíma.
Svo er það eitt sem aldrei er talað um. Það er sú staðreynd að eftir að þessu máli er lokað og önnur brýnari tekin fyrir, er alltaf hægt að opna það aftur og fá almennilegan botn i söguna. Það er ekkert ólíklegt að eignir LB dugi beinlínis fyrir allri skuldinni þegar upp er staðið og stormurinn sem hefur geysað í 13 mánuði reyndist vera í vatnsglasi. Enn og aftur kemur að þætti skrumsins, það er t.d lífæð Sjálfstæðisflokksins, enda er enginn stefna eða leiðarljós til í þeim flokki eftir hrunið.
Ég tek undir með hinum hræsnu Sjálfstæðismönnum sem allt í einu áttuðu sig á því að þeir voru búinir að gera í buxurnar svo um munaði. Við eigum að hætta við þjóðaratkvæðið og reyna að semja upp á nýtt. Vissulega kostar það suma pólitískt andlitið og þá staðreynd að standa svolítið berskjölduð á "No man's land" milli skotgrafanna, en það má líka segja að Sjálfstæðismenn séu nú þegar komnir þangað, sjálfum sér til háðungar.
Það er ekki hægt að tapa á þessari leið. Ennþá er hægt að snúa við og hætta við þjóðaratkvæðagreiðslua. Mér finnst þessi nakta afstaða Sjálfstæðisflokksins bera þess merki að þeir meini það sem þeir segja og þeir hafi rétt upp hvíta flaggið. Svona eins og slagsmálahundurinn sem gerir sér skyndilega grein fyrir skaðanum sem hann hefur valdið og segir af allri einlægni.
Hey! Eigum við ekki að hætta þessu?

22 Comments:
Jú hættu þessu :)
By
Jóhannes Laxdal, At
12. janúar 2010 08:35
Þú veist ekkert um raunverulegt verðmæti eigna Landsbankans fyrr en þú ert kominn með peningana í kassann. Mæli með því að þú lesir söguna um heimsku stúlkuna sem var búin að planleggja framtíð sína út frá sýndargróða.
By
Nafnlaus, At
12. janúar 2010 09:04
Þú segir:
"Sú ákvörðun UK og NL að greiða út tapaðar upphæðir reikningseiganda (NL að hámarki 100.000 evrum og UK alla upphæðina) er skiljanleg, en þeir hefðu ekkert þurft að gera þetta því að lágmarki var jú 20.000 evrur!"
Það má rifja það upp í þessu samhengi að Íslenska ríkið ákvað að greiða út 100% af öllum öðrum innistæðum í Landsbankanum (með neyðarlögunum) og bættu svo um betur þegar þeir hentu tugum milljarða í peningabréfin og aðra áhættusjóði Landsbankans (samtals held ég 200 milljarða í öllum 3 bönkunum). Þ.a. við höfum nú varla efni á að gagnrýna Breta og Hollendinga fyrir sínar "of háu innistæðubætur".
jens
By
Nafnlaus, At
12. janúar 2010 09:05
"Hvort þeir vilja tala við okkur er önnur saga."
Eins og Elvira Méndez Pinedo benti réttilega á í Silfri Egils þá ættu þeir svo sannarlega að hlusta núna.
Næst munu þeir ekki standa frammi fyrir 60.000 undirskriftum í margra mílna fjarlægð.
By
Nafnlaus, At
12. janúar 2010 09:19
Teitur, ég hjó eftir að þú skrifar að það að neita að borga Icesave setji neyðarlögin í uppnám. Er eitthvað í Icesave samkomulaginu sem ver Íslenska ríkið fyrir málsóknum vegna neyðarlaganna?
By
Nafnlaus, At
12. janúar 2010 09:29
Nei. En neyðarlögin myndu ugglaust komast í deigluna ef allt fer í hnút.
Ég held að þessi ranglátu neyðarlög (sem björguðu peningum ríka fólksins) muni fyrr eða síðar verða sett undir smásjá og leiðrétt á einhvern hátt.
Sennilega með skattheimtu á sparifé, enda fáránlegt að ríkið skuli tryggja peninga rikasta hluta samfélagsins. Það átti bara að greiða út 20.000 evrur og ekki kronu meira.
By
Teitur Atlason, At
12. janúar 2010 09:59
"Leiðrétt á einhvern hátt hmmm?" - svona væntingar skila litlu.
"Batikmussu Birgitta hmmm?" - karlremban uppmáluð.
Þegar að ykkur er þrengt þá sýnið þið kratastrákar alltaf ykkar rétta andlit: nýfrjálshyggjan er miðjumoðið sem hleypur í fangið á peningavaldinu.
Það er það sem gerðist þegar Samfylkingin fór í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum 2007. Og núna berjast þingmenn Samfó um hæl og hnakka og vilja engar breytingar því þá gæti hitnað undir stólunum þeirra.
By
Nafnlaus, At
12. janúar 2010 10:27
Óskaplega ert þú leiðinleg/ur þú þarna Nafnlaus 10:27.
Það er vegna fávísandi sargara eins og þín sem landið kemst ekki úr sporunum.
By
Teitur Atlason, At
12. janúar 2010 10:34
Ég skil ekki af hverju þér er svona illa við Birgittu. Þið virðist bæði svo ágæt
By
Nafnlaus, At
12. janúar 2010 10:56
Það tók Birgittu 3 mánuði að svíka kjósendur sína. Ég efa að það met verði slegið í bráð.
Hún sagðist alltaf vilja kosningar um ESB en þegar á hólmin var komið, kaus hún á móti því með vísun í einhverjar furður.
By
Teitur Atlason, At
12. janúar 2010 11:09
Þú talaðir illa um Birgittu fyrir kosningar ef ég man rétt. Kannski þú hafir tekið út svikin fyrirfram? Erfitt að slá það met.
By
Nafnlaus, At
12. janúar 2010 11:53
Ég man ekkert hvort ég talaði illa um Birgittu fyrir kosningar eða ekki.
Hún hefur reyndar alltaf farið í taugarnar á mér, en það er önnur saga og er beisiklí mitt vandamál. :) 'Eg veit ekkert afhverju sumir fara í taugarnar á mér en sumir ekki.
Hún fór semt nótu lítið í taugarnar á mér að ég kaus Borgarahreyfinguna í síðustu kosningum.
By
Teitur Atlason, At
12. janúar 2010 12:06
Ég vona innilega að þú vinnir bug á þessu vandamáli því eins og ég segi þá virkið þið bæði svo vel.
By
Nafnlaus, At
12. janúar 2010 12:12
Eignir Landbankans eru ekki í hendi svo sannarlega. Bretar frystu eignir Landsbankans og taka það ekki í mál að þær gangi upp í skuldina sem segir töluvert um þetta blessaða eignasafn.
By
Nafnlaus, At
12. janúar 2010 12:37
Já mér finnst ótrúlegt að 60% þjóðarinnar skuli kjósa S og D vibbann...
Og alveg er magnað að þú vitir hvað fæst fyrir eignir landsbankans.
Svo varðandi neyðarlögin þá er búið að staðfesta að þau voru lögleg skv. EES. Svo væri mér slétt sama þótt að þau yrðu gerð ógild þannig að aðeins væri tryggt ca 20.000 evrur fyrir þá sem áttu meira en það. Íslendingar tóku alveg jafn mikinn séns og bretar og hollendingar sem ávöxtuðu peningana sína í þessum bönkum.
En magnaðast finnst mér að ríkisstjórn smáríkis ætli að taka málstað stjórnmála-og fjármálaelítu heimsins framyfir almenning (sem virðist vera meirihluti fyrir í evrópu skv. fregnum, ekki bara hér)
Áfram Ísland,
Ólinn
By
Nafnlaus, At
12. janúar 2010 14:48
"Ég tek undir með hinum hræsnu Sjálfstæðismönnum sem allt í einu áttuðu sig á því að þeir voru búinir að gera í buxurnar svo um munaði."
Það sem þarf að gera er að klára þjóðaratkvæðagreiðsluna - þessi þjóð þarf að horfast í augu við þetta bull og taka skuldbindandi ákvörðun.
Ég vorkenni Íslandi ekkert lengur. Alveg er mér sama hvernig atkvæðagreiðslan fer, hvort samið verði aftur eða ekki, hvort Ísland heltist úr lestinni í V-Evrópu.
Það sem ég hef séð, það sem ég hef heyrt - það hefur endanlega þurrkað út nokkra samúð eða samkennd sem ég hef með íslenskri þjóð.
Best væri að geðveikrahælið fái bara yfir sig það versta sem hugsast getur. Ekki sérstaklega vegna þess að það gæti kennt þeim eitthvað, heldur vegna þess að hælið á það skilið.
By
Nafnlaus, At
12. janúar 2010 15:03
D-listinn hefur staðið með þjóðinni annað en segja má um Samfylkinguna.
By
Nafnlaus, At
12. janúar 2010 21:08
HA ha ha. Þessi er alveg einstakur!!!
Sjálfstæðisflokkur staðið með þjóðinni!!!! Ha ha ha
Hann steypti þjóðinni í glötun! Og tilgangurinn með öllu þessum látum er einmitt að takast! Að kæfa umræðuna um aðkomu FLokksins að hruninu!!!
Þetta er NÁKVÆMLEGA það sem ég hef verið að segja í marga mánuði!!!!
By
Teitur Atlason, At
12. janúar 2010 22:20
Frammistaða Samfylkingarinnar í Icesave klúðrinu er hroðaleg. Þau hafa hagað sér eins og vanvitar og hent hagsmunum íslands útí hafsauga fyrir von um klapp á öxlina frá bretum í væntanlegum Esb aðildarviðræðum. Aðildarviðræðum sem mun geta af sér samning sem verður kolfelldur í þjóðaratkvæðagreiðslu enda vill engin venjulegur íslendingur tilheyra þessum skrifræðisrisa sem aðeins hugsar um hagsmuni breta þjóðverja og frakka. Skömm Samfylkingar mun verða hneisa Íslands í sögubókum framtíðarinnar um duglausa og vitgranna stjórnmálamenn. Hrokagikkir Samfylkingar sem eru ekkert annað en liðleskjur.
By
Nafnlaus, At
13. janúar 2010 20:41
..............og þú gengur ekki heill til skógar.
;)
By
Teitur Atlason, At
13. janúar 2010 23:02
Ógurlegt klúður Samfylkingarinnar í Icesave hefur nánast kostað gjaldþrot Íslands ef hetjan Ólafur Ragnar hefði ekki bjargað málunum.
By
Nafnlaus, At
14. janúar 2010 07:09
Glæpir Samfylkingar gegn þjóðinni eru með mjög einbeittum brotavilja
By
Nafnlaus, At
14. janúar 2010 19:40
Sendu inn athugasemd
<< Heim