Hvað varð um nafnnúmerin?
Áður en bansettar kennitölurnar komu, var miklu betra kerfi í gangi. Nafnnúmerakerfið. Þá fékk maður bara eitthvað númer frá ríkinu og það fylgdi manni ævina út. 8 stafir valdir með slembitækni. Þá gat maður ekki reiknað út aldur andstæðnga sinna (og samherja að sjálfsögðu) með því einu að heyra kennitöluna. Mitt nafnúmer var skrambi flott.
8859-5858 og geri aðrir betur.

Svo var líka geysileg afturför þegar símanúmerunum var breytt þannig að ekki var hægt að sjá hvar númerið var staðsett.. Símanúmer í Kópavogi byrjuðu t.d alltaf á 4 meðan þau í Breiðholtinu byrjuðu alltaf á 7. Vesturbær og miðbær byrjuðu að sjálfsögðu á númerinu 1. Þessi breyting var geysislæm.
Til að toppa þessa vondu þróun þá er bílnúmerakerfið í dag einnig afar vont. Þessi gömlu stóru svörtu sem entust svo vel var hent út fyrir eitthvað látúns-rusl. Bílar úr Reykjavík voru merktir með stóru err-i. Bílar frá Akureyri voru með stóru a-i osfr. Varnarliðsbílar voru merktir VL. Þetta var mikið betra kerfi eins og gefur að skilja.
Vinur minn frá Akureyri sagði mér spélega sögu frá manninum sem var að undra sig yfir fjölda bíla á Akureyri sem voru með þriggjatölustafa númerum. Sá spurði einhvern innfæddan hvað væru eiginlega margir bílar á Akureyri á þriggjastafa númerum. Akureyringurinn kímdi og svaraði rólega:
-Þeir eru um það bil níuhundruð.

Flokkar: http://www.dv.is/blogg/eimreidin/

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim