Vesæl sól og frábært skaup.
Ég sá skaupið í tölvunni minni ásamt Ingunni rétt eftir klukkan 2 á sænskum tíma. þá hafa landar okkar sennilega að vera svona hálfnaðir við að sprengja. Svíar eru miklu hófsamari í sprengingunum, þótt hér sé töluvert úrval af flugendum og þvíumlíku. það er sprengt frá miðnætti til svona korter yfir miðnætti. Þá dettur yfir dúnalogn og þrestirnir skjótast upp í loftið, yfir sig hissa á látunum.
Á Íslandi er þessu öðruvísi farið. Ég var eitthvað að reyna að útskýra þetta fyrir Svíunum, en hljómaði ótrúverðugur. Kom þá loksins hann Kristian sem bjó á Íslandi í nokkur ár og náði stemningunni vel.
"Ímyndið ykkur Beirút árið 1982" svo fylgdi hann eftir sögunni með lýsingu á lyktinni á gamlarskvöldi. "Púður" sagði hann alvarlegur. Félagar hans horfðu á hann með athygli. Það eina sem heyrðist var væl í ýlu sem puðraðist upp í himinn. "Já Íslendingar verða brjálaðir á gamlárskvöld". Ég reyndi að vera impóneraður af veikburða sól sem sveif hratt niður til jarðar. Toppurinn á flueldasýningu fólksins neðar í götunni.
En skaupið var frábært. Ég hrundi af skrifborðsstólnum strax í upphafsatriðinu þegar Útrásarvíkingarnir voru að vakna upp eftir partíið. Timburmannamyglan sem þar birtist reif mig niður af stólnum og niður á gólfið. Skaupið var frábært. Beitt og fullt af frábærum skettsum. Frábært og lokaatriðið snerti mig inn að kviku. Það kveikti réttlætistilfiningu sem ég hélt að væri löngu dauð. Kveikti von um reikningsskil. -Alveg dúndur að nota Pál Óskar í það dæmi. Ég hvet aðstandendur íslenskra sjónvarpsstöðva að fá þetta dúndurteymi til að sjá um reglulega grínþætti í framtíðinni.
Hér er facebook síðan til stuðnings þessari hugmynd.
Skráið ykkur eða dáið. :)

1 Comments:
Mér persónulega verður óglatt af þessu íslenska flugeldaæði. Og ekki öfunda ég hesta, fugla og aðrar skepnur á þessum klukkutímum íslenskrar brjálsemi.
Ég horfði líka á skaupið eftirá, af því að ég bý í Þýskalandi. Sá það raunar í gærkvöldi. Síðasta atriðið "Ísland í lagi(?)" fékk svo á mig, að ég táraðist. Burt séð frá því að í skaupinu voru útrásarvíkingar giftusamlega handteknir, er í raunveruleikanum fátt í lagi á Íslandi í dag, sérstaklega eftir atburði síðustu daga.
By
Margret Run, At
7. janúar 2010 11:58
Sendu inn athugasemd
<< Heim